Tíminn - 01.12.1982, Síða 3
MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 1982.
3
fréttir
Hvað segja
flokksfor-
mennirnir um
úrslitin í
prófkjöri
sjálfstæðis-
manna?
Hvad verdur um skeröingu verdbóta ef bráöabirgöalögin
verda felld? ^
GRÐM VERBUR OSKERTAR
VERÐBÆTUR AÐ MATI ASÍ
— Vinnuveitendasambandid á öndverðri skoðun
■ „Það er eindregin skoðun Alþýðu-
sambandsins, að ef bráðabirgðalögin
verða felld á Alþingi þá upphefjist fyrra
ástand, þ.e. að launahækkanir sem
koma áttu frá 1. des., kxmu þá til
framkvæmda frá þeim degi, sem lögin
yrðu felld úr gildi“, sagði Lára V.
Júlíusdóttir, lögfræðingur ASI.
Yrði önnur skoðun ofaná, það að
lögin giltu eftir sem áður þótt þau væru
felld, kvaðst Lára álíta að gæti skapað
mjög hættulegt ástand. Allt eins mætti
þá ímynda sér að landinu yrði hreinlega
stjómað með bráðabirgðalögum. „Verði
bráðabirgðalögin felld á Alþingi hlyti
það að túlka skýra og eindregna afstöðu
þess um að það væri á móti lögunum.
Það væri því einkennilegt er slíkt ætti
ekki að koma til með að hafa nein áhrif
í þjóðfélagiu", sagði Lára.
Þórarinn Þórarinsson, lögfræðingur
Vinnuveitendasambandsins, kvað það á
öðru máli. „Þetta myndi ekki breyta
vísitölubótunum. Samkvmt Ólafslögum
■ „Vinnumarkaðskönnun áætlan-
adeildar Framkvæmdastofnunar leiddi í
Ijós að karlar hafa 53% hærri laun en
konur“, segir m.a. í ályktun þings
Bandalags háskólamanna, sem haidið
var um helgina.
Telur þingið muninn á stöðu karla og
kvenna hér á landi jafnvel enn meiri en
almennt hafi verið gert ráð fyrír og
ákvað að gera úttekt á kjörum og öðrum
högum félagsmanna BHM er varpað
geti Ijósi á stöðu jafnréttismála innan
bandalagsins.
í starfsáætlun bandalagsins fyrir næstu
tvö ár var m.a. lögð áhersla á kynningar
og útgáfustarfsemi. Ennig var ákveðið
að halda ráðstefnu um langtímamarkmið
Háskóla íslands og að kanna greiðslu-
byrði þeirra sem fengið hafa verðtryggð
námslán.
Þingið telur brýna nauðsyn bera til að
stórefla alla rannsóknarstarfsemi í land-
inu. Eðlilegt var talið að stefna að því
að á næstu 10 árum komist íslendingar
jafnfætis nágrannalöndum hvað varðar
rannsóknar-ogþróúnárstarfsemi.
Helstu breytingar í hinum nýju lögum
sem samþykkt voru fyrir BHM eru þær
að framkvæmdastjorn komi í stað stjórn-
ar og aðalstjórn í stað fulltrúaráðs. Þá
eru felld úr lögum öll ákvæði um
kjarasamninga opinberra starfsmanna
skal kauplagsnefnd reikna út verðbóta-
vísitölu á 3ja mánaða fresti eftir gildandi
lögum á hverjum tíma. Launin þannig
reiknuð gilda næsta verðbótatímabil og
breytingar á forsendum verðbótaút-
reikningsins hafa þar engin áhrif á.
Okkur finnst þetta alveg skýrt“, sagði
Þórarinn. HEI
og þeim vísað til launamálaráðs ríkis-
starfsmanna.
Formaður BHM til næstu tveggja ára
var kjörin Gunnar Schram prófessor og
varaformaður Ragnheiður Torfadóttir
menntaskólakennari. Aðrir stjórnar-
menn voru kjörnir þeir Jafet Ólafsson,
Pétur Stefánsson og Hallgrímur Ben-
ediktsson.
-HEI
hækkar
■ Áskriftar- og auglýs-
ingaverð Tímans hækkar
í dag. Áskriftarverð á
mánuði verður 150
krónur, en lausasölu-
verð 11 krónur virka
daga en 15 krónur um
helgar. Auglýsingaverð
verður 90 krónur á dálk-
sentimetri
„Hlýtur að
hafa veru-
leg eftirköst”
— segir
Steingrímur
Hermannsson
■ „Ég vil sem minnst segja um
niðurstöður skoðanakannana og próf-
kjöra hjá öðrum flokkum. Slikt hlýtur
náttúrlega fyrst og fremst að vera
þeirra höfuðverkur,“ sagði Steingrím-
ur Hermannsson, formaður Fram-
scknarflokksins, þegar Tíminn innti
hann álits á úrslitum prófkjörs Sjálf-
stæðisflokksins í Reykjavík.
„Vitanlega vekur það gífurlega
undrun, að Geir Hailgrímsson skuli
lenda þama í sjöunda sæti,“ sagði
Steingrímur, „og ég hef ekki fengið
neinar skýringar á því, sem mér
sýnist að gangi upp. Þetta hlýtur því
að hafa veruleg eftirköst fyrir Sjálf-
stæðisflokkinn, en slíkt er náttúrlcga
fyrst og-síðast þeirra haus-og 'maga-
verkur."
-AB
„Brman-
flokksmál
hjá þeim”
— segir Svavar
Gestsson
■ „Ég hef i sjálfu sér ekki margt um
þessi úrslit prófkjörs Sjálfstæðisflokks-
ins að segja,“ svaraði Svavar Gestsson,
formaður Alþýðubandalagsins að-
spurður, í viðtali við Timann. „Þetta
er innanflokksmál hjá þeim, og þeir
verða að reyna að leysa það á eigin
vettvangi."
Svavar var spurður hvað hann teldi
að væri að gerast innan Sjálfstæðis-
flokksins, fyrst úrslitin hefðu orðið
eins og raun bar vitni: „Þetta er bara
enn eitt táknið.um það að stjórnmálin
cru hér öll á óskaplega mikilli hreyf-
ingu. Það þurfti í sjálfu sér ekki að
koma svo ýkja mikið á óvart, miðað
við þá hreyfmgu, að hlutirnir færu að
taka á sig aðrar myndir en búist hafði
vcrið við, þegar að mörg þúsund
manns er stefnt á kjörstað, til þess að
krossa við nöfii."
-AB
„Hljóta að
draga dilk
á eftir sér”
— segSr
KJartan n
Jóhannsson
■ „Mér þykja þessar niðurstööur
cinkennílcgar, og ég held að þær hljóti
að draga einhvern dilk á eftir sér, og
reynast Sjálfstæðisflokknum erfiðar,"
sagði Kjartan Jóhannsson, formaður
Alþýðuflokksins, þegar Tíminn spurði
hann álits á úrslitum í prófkjörí
Sjálfstæðisflokksins.
Kjartan var spurður hvað hann
meinti, þegar hann segði „draga dilk á
eftir sér“: „Ég á við það að þær eru
svo óvæntar og svo óvcnjulegar, að
þær eru ekki hlutur sem menn komast
yfir á einum degi.“
AB
„Næðir gjarnan
um toppmennina”
— segir Ellert B. Schram
■ „Ég er afskaplega ánægður meö
úrslitin hvað sjálfan mig varðar,“ sagði
Ellert B. Schram, rítstjóri DV, en som
kunnugt er lenti hann í fjóröa sæti í
prófkjörínu.
-En nú hlýtur að vera erfitt fyrir
flokkinn að leggja í kosningabaráttu
með formanninn í sjöunda sæti?
„Það er óneitanlega erfitt fyrir
flokkinn að formaðurinn skuli ekki
vera ofar. Mér finnst það ltka mjög
ósanngjarnt gagnvart honum. En ég
vi! minna á það að þegar óánægja er
næðir gjarnan um þá sem eru á
toppnum."
- Hyggst þú halda áfram að ritstýra
DV sem gefur sig út fyrir að vera frjálst
og óháð dagblað?
„Það iiggur ekkert fyrir um það
ennþá. Enda fengust ekki úrslit í
prófkjörinu fyrr en í nótt,“ sagði
Ellert.
-Sjó
Gunnar tjáir sig
ekki um prófkjörið
■ „Ég hef hcyrt um niðurstöðuna en
ég vil ekkert láta hafa eftir mér unt
hana að svo stöddu,“ sagði Gunnar
Thoroddscn, forsætisráðherra og eini
þingmaður Sjálfstæðisflokksins i
Rcykjavík sem ekki tók þátt í prófkjör-
inu, þegar Tíminn bað hann að tjá sig
um útkomuna í prófkjörínu.
Gunnar Thoroddsen er nú staddur í
Oslo þar sem hann situr fund forsætis-
ráðherra Norðurlanda.
-Sjó
Öllum Rang-
æingum bodið
í kaff i
— Kaupfélagið á Hvolsvelli
kynnir starfsemi sína
■ Allir Rangæingar eru boðnir þessa
dagana í sérstaka heimsókn í Kaupfélag
Rangæinga á Hvolsvelli til að kynna sér
Lesbíur og hommar
mótmæia misrétti
við alþingishúsið í
dag klukkan 13.45.
■ „Misrétti í garð lesbía og homma á
íslandi verður mótmælt í Reykjavík, Oslo og
Stokkhólmi í dag, fullveldisdaginn 1. des-
ember,“ segir í frétt frá Samtökunum ’78,
sem Tímanum barst í gær.
„Mótmælastaðan hefst á Austurvelli við
Alþingishúsið klukkan 13.45 og að Skúlagötu
4 klukkan 14.45. Forseta Alþingis og
útvarpsstjóra verður áfhent ályktun, annars
vegar að Alþingi og ríkisstjóm taki til greina
ályktun þingmannafundar Evrópuráðsins um
afnám misréttis í garð lesbía og homma, og
hins vegar að Ríkisútvarpið falli frá ákvörðun
sinni um að ekki skuli leyft að miðla
upplýsingum til lesbía og homma með
útvarpsauglýsingum," segir ennfremur í
fréttinni.
f Oslo og Stokkhólmi verður mótmæla-
staða við sendiráð íslands og ályktanir verða
afhentar.
-Sjó
Ri Gunnar Schram prófessor var kosinn nýr formaður Bandalags háskólanna í stað
Valdimars K. Jónssonar sem gegnt hefur formennsku s.l. fjögur ár og gat því ekki
setið lengur í stjórn samkvæmt lögum félagsins. Tímamynd G.T.K.
BHM ákveður að gera úttekt
á kjörum og högum
félagsmanna sinna:
Karlmenn hafa
53% hærra
kaup en konur
— Dr. Gunnar G. Schram kosinn
formaður BHM
starfsemi félagsins. Hátt í hundrað
manns þáðu boð þetta í gær, sem var
fyrsti dagur þessara heimsókna, en þær
standa áfram í dag - 1. des. - og á
morgun. Tilgangurinn er að sýna fólki
hvemig hinar ýmsu deildir líta út hið
ytra og innra og hvernig hlutirnir gerast,
bæði í þjónustu og framleiðslu. Janframt
er ætlunin að kynna sérstaklega ýmsar
vörur sem félagið selur eða ætlar að
selja.
Tilhögunin er þannig að fólk verður
sjálft að koma sér á staðinn, þ.e. í
aðalsölubúð félagsins á Hvolsvelli kl.
14.00 þessa daga, þar sem starfsfólk
félagsins tekur á móti gestum og fer með
þá í skoðunarferðir um allar deildir þess.
Að því loknu er fólki boðið til kaffidrykkjui
í kaffistofu Kaupfélagsins, þar sem
Pálmi Eyjólfsson, stjórnarformaður og
Ólafur Ölafsson, kaupfélagsstjóri lýsa
starfsemi félagsins í örstuttu máli.
Að sögn Magnúsar Finnbogasonar,
stjórnarmanns í félaginu er vonast til að
sem flestir hafi möguleika á að taka þátt
í þessum heimsóknum og þeirri umræðu
sem þessu verður tengd.
-HEI