Tíminn - 01.12.1982, Side 20
Opið virka daga
9-19.
Laugardaga 10-16
HEDDk
Skemmuvegi 20 Kopavogi
Simar (91)7 75 51 & 7 80 30
Varahlutir
Mikiö úrval
Sendum um land allt
Ábyrgð á öllu
Kaupum nýlega
bíla til niðurrifs
Gagnkvæmt
tryggingaféJag
labnel
HÖGGDEYFAR
QJvarahlutir sYmmi
Armiíla 24
36510
dropar
„Ungt ogfallegt44
■ Þegar nokkrir Hcimdell-
ingar skruppu til þess að fá sér
snæðing á Lækjarbreku nú um
daginn bittu þeir fyrir Vilmund
Gylfason, sem var það í sömu
erindagjöröum. Einn Heim-
dellinganna, Gísli Baldur
Garðarsson lögfræðingur, tók
Vilmund tali og sagði sem svo:
„Jæja, er nú ekki tímabært að
þú farir að opinbera leyndar-
dóminn? Hverjir eru með í
bandalaginu?“ Vilmundur
svaraði að bragði: „Alltaf eru
þeir eins þessir Heimdellingar!
Alltaf þekkt fólk, þekkt fólk.
Þetta verður bara ungt og
fallegt fólk, ungt og fallegt."
Skildu þá leiðir og Heimdell-
ingamir snæddu við sitt borð
og Vilmundur við sitt. Þegar
Heimdellingarnir voru síðan á
útleið að loknum snæðingi, þá
segir einn þeirra við Vilmund:
„Já, þú sagðir ungt og fallegt
fólk. Má treysta því?“ „Já,
ungt og fallegt,“ sagði Vil-
mundur enn einu sinni.
Klykktu þá Heimdellingar út
með spumingunni: „Hvaðætl-
ar þú ekkert að bjóða þig
fram?“
Pétur í rjúpu
■ Á meðan að einhverjir
þátttakendur í prófkjöri Sjálf-
stæðisilokksins fara afsíðis og
sleikja sár sín, eftir hörmulega
útreið í prófkjörinu, er einn
þátttakandinn sem í sigurvímu
hefur arkað til fjaUa og lagst i
rjúpnaskytterí og er hann að
sögn ekki væntanlegur aftur til
byggða fyrr en síðla í kvöld.
Maðurinn er enginn annar en
Pétur Sigurðsson, alþingis-
maður, sem var fjarri sölum
Alþingis í gær og verður í dag,
enda raeð fjarvistarleyfi!
Eitthvaðfyriralla
■ Það fór vist ekki framhjá
nokkmm kj... að Bryndís
Schram tók drjúgan þátt í
kosningabaráttu manns síns,
Jóns Baldvins, fyrir prófkjör
Alþýðuflokksins sem var um
síðustu helgi. Fréttist m.a. af
Bryndísi, þar sem hún stóð
fyrir utan Ríkið og dreifði
áróðri sl. föstudagskvöld.
Tóku flestir við áróðurspésun-
um og tóku Bryndísi bara vel,
en einstaka sagði þó, og það
með nokkm þjósti: „Eg er
íhaldsmaður“ Bryndísi varð
ekki svarafátt við slíkar at-
hugasemdir - hún brosti bara
sínu blíðasta og svaraði að
bragði: „Já, þá kjósið þið bara
hann bróður minn!“
Fréttist einnig af Bryndísi,
þar sem hún sat við símann á
mánudaginn og hringdi í allar
áttir til þess að fá fólk til þess
að koma og taka þátt í
prófkjörinu. Hringdi hún þá í
íhaldsmann nokkum, sem
tengist krötum talsvert og
spurði hvort hann væri búinn
að fara og kjósa. Hann svaraði:
„Prjófkjörið er búið hjá
ykkur.“ Ekki var Bryndís því
sammála, því hún sagði hin
ísmeygilegasta: „Eg á nú líka
bróður!“
Krummi ...
...sér að Geir er bara í 7unda
himni...!
— segir Wilhelm Wessman framkvæmdastjóri Gildis hf.
sem tekið hefur að sér allan veitingarekstur á Hótel Sögu
■ „Við emm með ýmislegt í deiglunni
en það mun ekki koma fram fyrr en búið
er að ganga fullkomlega frá því“ sagði
Wilhelm Wessman framkvæmdastjóri
Gildis hf. í samtali við Tímann en það
fyrirtæki hefur tekið að sér allan
veitingarekstur á Hótel Sögu. Auk
Wessmans em starfsmenn í fyrirtækinu
þau Ármann Guðmundsson skrifstofu-
stjóri, Francois Fons stjórnandi mat-
reiðslusviðs, Sveinbjörn Friðjónsson
yfirmatsveinn, Halldór Malmberg,
Valdimar Óli Þorsteinsson og Huld
Goethe veitingastjórar og Hörður Har-
aldsson yfirþjónn í Súlnasal en alls hefur
fyrirtækið á að skipa um 150 starfs-
mönnum.
„Þessi hugmynd kom upp um síðustu
áramót og hefur síðan smátt og smátt
þróast út í þetta. Að vísu höfðu svipaðar
framkvæmdir verið á reiki áður en aldrei
orðið úr framkvæmdum. Aðalbreytingin
er sú að nú hefur sjálfstætt fyrirtæki
tekið við veitingarekstrinum og erum
við algerlega óháð hótelinu í daglegum
rekstri nema sá fyrirvari er gerður að við
getum ekki staðið fyrir breytingum á
húsnæði staðarins og öðru slíku upp á
eigin spýtur“ segir Wessman.
Gildi hf. hefur á leigu alla veitingaað-
stöðu á Hótel Sögu þ.e.a.s Stjörnusal,
Súlnasal, Lækjarhvamm, Áttahagasal
og önnur salarkynni auk þess að annast
alla herbergjaþjónustu hótelsins.
Eftir sem áður mun öll veitinga-
aðstaða þó verða rekin í nafni Hótel.
Sögu.
Eigendur Gildis hf. eru auk Wessmans
þau Ármann Guðmundsson, Francois
Fons, Hólmfríður Hrönn Brynjarsdóttir
og Ólöf Wessman.
Wessmann kvaðst vera bjartsýnn á
framtíðina, að vísu væri þetta enn allt í
burðarliðnum og reynsla ætti eftir að
koma á starfið en þar á móti kæmi að
allir aðstandendur Gildis hefðu góða og
yfirgripsmikla þekkingu á þeim störfum
sem þau væru í, hann hefði sem dæmi
starfað þarna í tæp 16 ár og Fons í tæp
9 ár
íá .. ...LlÍíííVL
MIÐVIKUDAGIJR 1. DES. 1982
fréttir
Teknir
fyrir inn-
brot
■ Tveir unghngspiltar
voru handteknir í fyrrinótt,
staðnir að verki við innbrot
í sjoppu við Hagamel. í
ljós kom að þeir höfðu
brotist inn víðar um nótt-
ina en ekki munu þeir hafa
haft mikla fjármuni upp úr
krafsinu.
Piltamir voru færðir í
fangageymslur lögreglunn-
ar til yfirheyrslna. Þeir
munu báðir hafa verið
staðnir að afbrotum áður.
Níu ára
drengur
fyrir bíl
■ Um half þrjuleytið í
gærdag varð níu ára gamall
drengur fyrir flutningabíl
frá Mjólkursamsölunni við
Fossvogsskólann þar sem
drengurinn er nemandi.
Drengurinn hlaut inn-
vortis meiðsl og var fluttur
á gjörgæsludeild Borgar-
spítalans. Tímanum var
ekki kunnugt um líðan
hans f gærkvöldi.
Itu TV. !M Sr>d. w. T. M. »->.
dagar til jóla
■ Eigendur Gildis hf. Armann Guðmundsson, Francois Fons, Hólmfrídur Hrönn Brynjarsdottir, Olöf Wessman og Wilhelm Wessman en með þeim á myndinni eru
þeir Konráð Guðmundsson hótelstjóri og Ólafur E. Stefánsson. ^
„VW ERIIM MEfi YMIS-
LEGTI DEIGLUNNI”