Tíminn - 05.01.1983, Qupperneq 3

Tíminn - 05.01.1983, Qupperneq 3
■ „Vélsleði eina farartækið sem kemst hratt yfir í svona færð,“ segja lögreglumennirnir Eiríkur Beck og Jón Bjartmars. Vélsledalögregla: „EINA FARARTÆKIÐ SEM KEMST HRATT YFIR í SVONA FÆRД ■ Tveir vígalega búnir lögregluþjón- ar á vélseða, þeim eina í eigu lögregl- unnar vekja forvitni Tímamanna. Þeir eru Eiríkur Beck, sem hcfur hlotið sérþjálfun á snjósleða í Noregi og Jón Bjartmars, en fyrr um daginn var Ellert Vigfússon með Eiríki á sleðan- um. Við tökum þá tali og spyrjum hvað hafi nú drifið á dag þeirra þennan óveðursdag: Eiríkur: „Við Ellert vorum á sleðanum frá því fyrir kl. 9 í morgun, og í glórulausri hríðinni vorum við mest hræddir um fólk sem hafði fest í vanbúnum bifeiðum sínum og ókum um til þess að athuga hvort það yfirgæfi bifreiðar sínar. Það sem við óttuðumst í því sambandi var beinlínis að fólkið ör- magnaðist, því það sá ekki útúr augum í þessum þreifandi byl. Nú, við vorum auðvitað að ýta bílum einnig og koma bílum útfyrir veg, svo að ruðningstæk- in kæmust að. Það var á milli klukkan 9 og 10 í morgun, sem við ókum fram á konu í Elliðaárbrekku, sem hafði yfirgefið fastan bíl sinn, og var að berjast upp brekkuna. Konan var orðin mjög þreytt, þegar við komum fram á hana og við tókum hana á sleðann og kómum henni í hús. Meginhugmyndin á bak við notkun svona vélsleða hjá lögreglunni er að þetta er í rauninni eina farartækið sem kemst hratt yfir í svona færð, og ef slys kemur til dæmis upp í heimahúsum, svo eitthvað sé nefnt, þá cr ætlunin að vélsléðinn sé fyrstur á vettvang." -AB ■ Ruðningur gengið vel segja borgarstarfsmenn, en yfirgefnir bílar tefja. TTRudningur gengið vel, en tafir af yfir* gefnum bílum” ■ Við Blikahóla í Breiðholti ökum við Tímamenn fram á jarðýtu sem er stopp sem stendur, því verið er að bæta á hana olíu. Sá sem stendur fyrir því er ísak Möller verkstjóri hjá borginni. Við spyrjum hann hvernig snjóruðningurinn hafi gengið: „Snjór- uðningurinn sjálfur hcfur gengið mæt- avel. Það er alls ekki snjórinn sem hefur tafið okkur, við enda ágætlega í stakk búnir til þess að ryðja honum burt. Hinsvegar höfum við orðið fyrir ómældum töfum vegna illa útbúinna bíla sem hafa verið yfirgefnir í tuga, ef ekki hundruðatali, og heft för ruðningstækjanna.“ - Hvenær byrjuðu þið að ryðja? „Við byrjuðum kl. 04 í nótt að undirbúa og laga til, en allt fór í fullan gang hjá okkur eftir að bylurinn skall á í morgun. Við höfum verið á fullu í allan dag, og um kl. 14.30, eða svo í dag, voru flestar aðalleiðir, ef ekki allar orðnar ágætlega færar." -AB „Hef aðstoðað marga“ ■ „Já, ég er að vísu fastur núna, en mér hefur gengið mjög vel í dag að komast leiðar minnar," segir einn fastur bílstjóri á Dalbrautinni, Þórodd- ur aðnafni. „Ég er vel útbúinn á vetrardekkjum og allt það, og hef aðstoðað marga í dag, en svo þegar ég einu sinni festi mig, þá virðist enginn ætla að aðstoða mig,“ segir Þóroddur og er súr. Hann reynist ekki hafa rétt fyrir sér því nokkrir ökumenn í öðrum bílum hlaupa til og aðstoða hann útúr skaflinum, sem var reyndar ekki með þeim stærri. -AB ■ „Virðist enginn ætla að aðstoða mig,“ sagði Þóroddur súr á svip. Ófærð og óveöur á Vesturlandi: SJÚKRABfLAR f HRAKNINGUM ■ Vegagerðin i Borgarnesi stóð í ströngu að aðstoða menn í brjáluðu veðri og ófærð, m.a. við tvenna sjúkra- flutninga. Sjúkrabíll sem lagði af stað vestan úr Búðardal í gærmorgun festist endanlega í skafli vestur á Mýrum þar til vegagerðamcnn með aðstoð tækja sinna komu honum í Borgames um fimmleytið í gær, þá leið á Sjúkrahúsið á Akranesi. Þá fór sjúkrabíll úr Borgarnesi á móti snjósleða sem lagði af stað með sjúkling (álitið botnlangakast) frá Bifröst, sem einnig náði til Akraness síðdegis. Að sögn Bragastarfsmanns Vegagerð- arinnar er við höfðum samband við upp úr kl. 17 í gær.var þá björgunarleiðangur á leið frá Borgarnesi til að sækja 2 bíla er lagt höfðu af stað frá Stykkishólmi um kl. hálf tíu í gærmorgun. Ekki var þó vitað með vissu hvar á leiðinni þeir voru né um ástand þeirra. „Ég hef þó von um að við vitum svona hér um bil hvar þeirra er leita“ sagði Bragi. Gífurleg snjókoma var í Borgarnesi í fyrrakvöld og fyrrinótt, svo menn segjast ekki muna annað eins um áraraðir. Þegar hvessa tók upp úr kl. níu í gærmorgun varð veður snarbrjálað. Að sögn Braga varð nánast allt ófært um Vesturland nema . leiðin Borgarnes- Reykjavík sem opnaðist aftur síðdegis í gæt, þegar veðrinu fór aftur að slota. Að sögn Indriða Albertssonar mjólk- urbússtjóra í Borgarnesi var útlitið ekki svo slæmt þegar mjólkurbílstjórarnir lögðu af stað í gærmorgun. En þeir voru síðan að brjótast um í ófærðinni í allan gærdag og allir ókomnir - mörgum klukkutímum á eftir áætlun - er við ræddum við Indriða unt kvöldmatarleytið í gærkvöldi. Hann hafði þó haft samband við þá alla-sex talsins-og kvaðmjakast hjá þeint öllum. Vegagerðin hugðist leggja á stað til að ntoka nú snemma í morgunsárið - „ef Guð og Kári lofa“ eins og þeir orðuðu það þar. -HEI Öfærd á Suður- og Vesturlandi ■ Samkvæmt upplýsingum Hjörleifs Ólafssonar hjá Vcgagcrð ríkisins var ófært víðast á Suður- og Vesturlandi vegna veðurs l'ram yfir hádegi í gær. Þá fór að rofa til og varð fljótlega fært um Reykjanesbraut og vcgi á Suðurncsjum; austur í Árncssýslu um Þrengsli, og cftir öllum aðalleiðum allt austur í Vík í Mýrdal. Þá varð einnig fært upp í Mosfellssveit cn erfiðlcgar gckk mcö Hvalfjörðinn því að í Hvammsvík lokaði töluvert stórt snjóflóð alveg vcginum. Á Vestfjörðum voru flcstir vcgir ófærir cn þó fært á milli ísafjarðar og Bolungarvíkur, og frá ísafirði inn í Súðavík. í gær var fyrirhugað að halda opnunt öllum aðalleiðum um Vesturland, norður í Íand og austur á firði frá Vík cn því var síðan frcstað þar til í dag eða þar til veður lcyfir. Að sögn Hjörleifs voru vcgir um austanvcrt Noröurland, Norð-Áustur- land og Austfirði víðast hvar greiðfærir.- sbj. Víða snjóflóðahætta á vegum í gær: FIMM SNJÓFLÖD í ÓLAFSVÍKURENNI ■ Fimm snjóflóð höfðu nrðiö í Olafsvíkurenni crTíminn hafðisamband við vegagerðarmenn i Olafsvík síðdegis í gær. Leiðin var því lokuð og svipað var sagt um aðra vegi þar á Nesinu. Ekki var hins vegar vitað um nein meiri háttar óhöpp. Kristinn Jónsson hjá Vegagerðinni á ísafirði kvað víðast hvar hafa verið ófært þar um slóðir frá því á gamlársdag og takmarkað hvað hægt væri að moka vegna snjóflóðahættu. Reynt var að opna Óshlíðina í fyrradag og aftur í gær, en hún lokaðist strax aftur vegna snjóflóða. Einnig kvað Kristinn mikið hafa verið um snjóflóð í Súðavíkúrhlíð. Á ísafirði var skafrenningur og bylur frá hádegi í gær, „en ekki neitt stórviðri", eins og Kristinn orðaði það, cnda menn ýmsu vanir þar um slóðir. Síðdegis í gær var Suðurlandsvegur opinn austur úr að sögn vegagerðar- manna á Selfossi, enda minni snjór á jörð eftir því sem austar dró og nær sjónum. Töluverð ófærð var hins vegar víða í uppsveitum Árnessýslu. Enginn mjólkurbíll var t.d. kominn til baka til Mjólkurbúsins á Selfossi síðdegis í gær. Hjá Vegagerðinni á Sauðárkróki sögðu menn einnig lítinn snjó á jörð, þannig að færðin hafi ekki spillst að ráði meðan óveðrið gekk yfir þar um slóðir. Um fimm leytið í gær var skollið á vonskuveður á Akureyri. Þá var alveg orðið ófært vestur yfir Öxnadalsheiði og einnig til Dalvíkur og Ólafsfjarðar. Bílar sem ætluðu í vestur frá Akureyri sneru allir við. Austan Akureyrar - til llúsavíkur var þá enn fært um bæði Dalsmynni og Tjörnes, og Sléttu og allt til Vopnafjarðar. Svo var og í Mývatns- sveit. -HEI

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.