Tíminn - 05.01.1983, Qupperneq 6

Tíminn - 05.01.1983, Qupperneq 6
MIÐVIKUDAGUR 5. JANÚAR 1983 Hárgreiðslumeistarinn byrj- aði á því, að fá starfsfólk á stofunni sinni í London til að leggja fram hálfsmánaðar- drykkjupeninga, þ.e.a.s. þá upphæð, sem fastir viðskipta- vinir greiddu sínu hárgreiðslu- fólki aukalega fyrir þjón- ustu og gott viðmót. Þetta varð töluverð upphæð, en Alexand- er þótti ekki nóg. Hvernig gat hann fengið aðrar hárgreiðslu- stofur til að taka þátt í söfnun- inni? Hann yrði að fá einhvern frægan leikara, eða konung- lega persónu til að styðja sig í þessu framtaki. Elizabeth Tay- lor var viðskiptavinur hans, og hann ákvað að færa i tal við hana, hvort hún vildi aðstoða við fjársöfnunina. „Ertu frá þér?“ sögðu vinir • hans og starfsfélagar. Þeir héldu því fram að Elizabeth væri svo upptekin af sínum málum og leikhússtarfinu (Little Foxes í London) að árangurslaust væri að reyna að fá hana til að eyða sínum dýrmæta tíma til að hlaupa undir bagga. En Alexander reyndi samt, hann skrifaði henni hjartnæmt bréf, og bað hana að hjálpa sér við framkvæmd fjársöfnunar- innar. „Satt að segja bjóst ég ekki við svari, - í mesta lagi, að leikkonan sendi okkur ein- hverja upphæð í ávísun. En það var nú eitthvað annað. Viðbrögð hennar glöddu okk- ur öll mjög.“ Elizabeth sagði: „Eg er glöð að geta gert eitthvað til að styrkja máiefn- ið,“ og hún fór í heimsókn á barnaheimili fyrir vangefin börn, þar sem teknar voru myndir af henni með börnun- um. Síðan skoraði hún á allar hárgreiðslustofur að taka upp sama form á fjársöfnun og hárgreiðslustofa Alexanders hafði gert. Þetta hafði mikil áhrif og söfnunin gekk greið- lega. ■ Stundum getur það borgað sig, að taka í sig kjark og reyna að framkvæma hluti, sem aðrir segja að séu ófram- kvæmanlegir. Það reyndist a.m.k. Jacq- ues Alexander, hinum þekkta hár- greiðslumeistara í London. Alexander var nýlega á fundi hve verkefnin voru mörg sem með formanni fyrir styrktarfé- vantaði fjármuni til að fram- lagi vangefínna barna, og hann kvæma, að hann hét því að varð svo hrærður vegna þess gera eitthvað í málinu. ■ Elizabeth Taylor í heimsóknábarnaheimilinu,ogekki brást hennar heillandi bros til að hæna börnin að henni. Þau vildu öll komast á mynd með Liz ■ Sammy Davis og Altovise að fara út að aka í fína bflnum. Ferðast með glæsibrag ■ Sammy Davis jr., sem við sjáum hér á mynd ineð konu sinni, Altovisc, hefur nýlega skellt sér í það að kaupa sér nýjan bíl. Ilvernig bíl? -Þaö var ekkert minni bíll en sportshíll af dýrustu gerð, með allra handa sérstaklega gerðum skreytingum, svo sem ekta gulllauf, sem mynduðu rönd aftur eftir hílnum, gull- lituð leðursæti, svört ábreiða á gólfí bifreiðarinnar með gyllt- um ofnum stöfum hjónanna. Marmari cr í mælaborði og innan á dyraumbúnaði, og gullhúðað stýrið. Bifreiðin kostaði 35.000 ensk pund, - eða um 945.000 ísl. krónur. Ýinsir varahlutir aukalega kostuðu svo smápen- ing, svo ætla má að bíllinn hafí farið upp í cina milljón, - en það gleymdist í fréttinni að geta þess af hvaða tcgund farartækið er. Ætluðu ekki að missa af út- sölunni: ■ Tveir 15 ára yngissveinar, Bo Hallquist (t.h.) og Peter Björn Möller, bjuggu um sig á jóladag fyrir framan PLATAN, Ijósmyndavöru- verslun á Vesterbrogate í Kaupmannahöfn, til að biða eftir hinni árlcgu áramótaút- sölu verslunarinnar. Þar scm nýárið og helgi fóru nú saman var það ekki fyrr en 3. janúar, sem útsalan átti að byrja. Þessi ■ Frá jóladegi og fram yfir nýár ætluðu þessir kræfu piltar að halda til í beddunum sínum á Vesterbrogade. Þeir eru í hlýjum svefnpokum og segulbandstækið styttir þeim stundir. UZ TIL SVÁFU ÚTI FYRIR VERSLUNINNI í VIKU! útsala er orðin fræg fyrir það, að þcir sem koma fyrstir geta fengið dýrar og fínar Ijósmynda- vélar fyrir „næstum enga pen- inga“, Forstöðumenn verslunar- innar hafa að undanförnu haft fyrir vana, að setja tvær til þrjár lúxus-myndavélar á út- söluna, sem venjulega kosta þúsundir króna - og selja þær fyrir eina krónu, eða einhverja álíka hlægilega upphæð. Þetta er auðvitað til að draga athygli að útsölunni. Reyndar stóð það ekki í auglýsingunni þetta árið, en piltarnir ætla að treysta á að venjunni verði haldið, - og þeir ætla sér svo sannarlega að verða fyrstir. viðtal dagsins ERFITT AÐ GERA SV0 ÖLLUM LÍKI — rætt við Vilberg Ágústs- son verkstjóra um snjóruðning á götum borgarinnar yfir hátíðarnar ■ Hún varð fremur endaslepp jólahátíðin hjá starfsmönnum hjá Gatnadeild Reykjavíkur- borgar, nánar tiltekið þeim sem vinna snjóruðning af götum borgarinnar. Erfið tíð yfir jólin og nýárið gerði það að verkum að þeir gátu lítils notið af þessuni annars stuttu jólum. -Það var byrjað að hringja í mig klukkan tvö á jólanóttina og fyrst svaraði ég því til að mynd- um ekki byrja fyrr en klukkan 8 um morguninn, en svo vorum við kallaðir út klukkan 3 um nóttina og þá varð ekki undan vikist sagði Vilberg Ágústsson verkstjóri, þegar Tíminn ræddi við hann um jólatörnina í snjó- ruðningnum. Þaðvarvíðaorðið illfært um borgina og það varð að ryðja til að vaktaskipti gætu farið fram á sjúkrahúsum o.s.frv. Síðan þurfti að ryðja leiðir strætisvagnanna og við náðum að ljúka því áður en þeir hófu akstur kl. 14.00 á jóladag. Snjó- ruðningurinn á jóladag stóð til kl. 18.00 og síðan var byrjað aftur kl.04.00 á aðfaranótt ann- ars í jólum og unnið til 17.30 þann dag. Var sami mannskapurinn að störfum allan tímann? -Já, þaðmá heita. Viðvinnum á tveim vöktum og það var sama vaktin að alla jólahelgina. Við bættum að vísu við einum veg- hefli á annan í jóladag og vorum þásamtals lömannsávaktinni. Milli jóla og nýárs má segja að allt hafi verið í gangi, öll tæki sem borgin hefur yfir að ráða og fleiri til, það er alvanalegt að borgin þarf að leigja tæki til snjómoksturs hjá verktökum og öðrum aðilum, t.d. á borgin ekki nema fjórar hjólaskóflur. Er mikið um að fólk hringi í ykkur og biðji ykkur um að ryðja ákveðnar götur eða hluta af götum? Já.-það er alveg yfirdrifið að gera við það að svara símanum

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.