Fréttablaðið - 10.02.2009, Side 25
ÞRIÐJUDAGUR 10. febrúar 2009 21
Val Kilmer, sem hefur á ferli
sínum leikið bæði Batman og Jim
Morrison, íhugar að bjóða sig
fram sem ríkisstjóra í Nýju Mex-
íkó á næsta ári.
„Mig langar að
leggja mitt af
mörkum,“ sagði
Kilmer. „Ef ég
fæ möguleika
á að hafa svona
mikil áhrif mun
ég bjóða mig
fram.“
Kilmer, sem
er 49 ára, ólst upp í Los Angel-
es en hefur búið í Nýju Mexíkó
undanfarna tvo áratugi. Hann er
demókrati og gaf Barack Obama
atkvæði sitt í síðustu forsetakosn-
ingum. Verði Kilmer kjörinn til
embættis mun hann feta í fótspor
kollega síns, Arnolds Schwarz-
enegger, sem er ríkisstjóri Kali-
forníu.
Hugsar um
framboð
Síðasta plata Slowblow, sem er
samnefnd hljómsveitinni, hefur
verið endurútgefin af hinu virta
fyrirtæki Mobilé. Platan er fáan-
leg bæði á geisladiski og vínyl
í plötubúðum á vegum þýska
útgáfufyrirtækisins Kimi Rec-
ords.
Slowblow, sem er skipuð leik-
stjóranum Degi Kára Péturssyni
og upptökumanninum Orra Jóns-
syni, er með fleiri járn í eldinum.
Þessa dagana er hún að semja tón-
list fyrir nýjustu mynd Dags Kára,
The Good Heart, sem verður gefin
út síðar á árinu og hún er einnig að
vinna að nýrri breiðskífu. Óvíst er
hvenær hún kemur út.
Slowblow
endurútgefin
SLOWBLOW Síðasta plata sveitarinnar
hefur verið endurútgefin af fyrirtækinu
Mobilé.
VAL KILMER
Haukur D. Magnússon, eigandi
gogoyoko.com, Margrét Sigurð-
ardóttir framkvæmdastjóri og
Hallfríður Ólafsdóttir flautuleik-
ari verða á meðal þátttakenda í
námskeiði um gerð viðskipta- og
fjárhagsáætlana sem Útón stend-
ur fyrir í Norræna húsinu í kvöld.
Farið verður yfir mikilvægi
þess að byggja öruggan grunn
fyrir verkefni hvort sem er rekst-
ur hljómsveita eða fyrirtækja.
Bjarnheiður Jóhannsdóttir verk-
efnastjóri kynnir þá aðstoð sem
fyrirtæki og einstaklingar í
atvinnurekstri geta leitað eftir
hjá Impru á Nýsköpunarmiðstöð
Íslands. Skráningar á námskeið-
ið fara fram á greta@utflutnings-
rad.is.
Ræða tónlist
og viðskipti
Stuttmyndin Naglinn eftir Bene-
dikt Erlingsson hlaut viðurkenn-
ingu í flokknum Special Mention
á einni stærstu stuttmyndahá-
tíð heims, Clermont Ferrand, í
Frakklandi. Myndin var einnig
valin ein af átta bestu myndum
hátíðarinnar.
Mikið hefur verið fjallað um
myndina í frönskum fjölmiðlum
og þykir hún endurspegla bakland
efnahagsástandsins og þann pólit-
íska óróa sem hefur ríkt á Íslandi
undanfarið. Þegar er búið að selja
Naglann til Frakklands, Spán-
ar, Ástralíu og Póllands. Einnig
hefur myndinni borist fjöldi til-
boða á virtar kvikmyndahátíð-
ir víða um heim. Ríkissjónvarpið
hefur einnig fest kaup á verkinu,
sem verður líklega sýnt þar í vor.
Framleiðendur myndarinnar telja
að hún eigi eftir að seljast fyrir
mun hærri upphæð en styrkurinn
nam sem hún fékk frá Kvikmynda-
miðstöð Íslands. Því er ljóst að hún
mun skila dýrmætum gjaldeyri til
landsins á krepputímum.
Fékk frönsk verðlaun
NAGLINN Myndin fékk verðlaun á einni
stærstu stuttmyndahátíð heims, í Cler-
mont Ferrand í Frakklandi.
Slumdog sigurvegari á Bafta
Slumdog Millionaire hlaut sjö
verðlaun, þar á meðal sem besta
myndin, á Bafta-hátíðinni sem var
haldin í London á sunnudagskvöld.
Danny Boyle var jafnframt verð-
launaður fyrir leikstjórn sína.
Kate Winslet var valin besta
leikkonan fyrir hlutverk sitt í
The Reader og Mickey Rourke
var kjörinn besti leikarinn sem
útbrunninn fjölbragðaglímukappi
í The Wrestler. „Það er frábært
að vera kominn hingað aftur úr
myrkrinu,“ sagði hann og tileink-
aði leikaranum sáluga Richard
Harris verðlaunin.
Winslet tileinkaði framleiðend-
unum Anthony Minghella og Syd-
ney Pollack sín verðlaun en þeir
létust báðir á síðasta ári. „Ykkar
er sárlega saknað í dag og ykkar
verður saknað um ókomin ár.
Þetta er handa ykkur,“ sagði hún.
Heath Ledger, sem lést á síð-
asta ári langt fyrir aldur fram,
fékk Bafta fyrir hlutverk Jókers-
ins í The Dark Knight og Penélope
Cruz fékk styttuna fyrir aukahlut-
verk sitt í Vicky Christina Barce-
lona. The Curious Case of Benja-
min Button, sem hafði fengið
ellefu tilnefningar, fékk aðeins
þrenn verðlaun.
DANNY BOYLE Leikstjóri Slumdog Milli-
onaire með Bafta-verðlaunin sem hann
fékk fyrir sína frammistöðu.
NORDICPHOTOS/GETTYIMAGES