Tíminn - 31.07.1983, Qupperneq 5
5
SUNNUDAGUR 31. JU1.I 1983
Hvers Keitar fólk í
ástarsamböndum?
Fjárhagslegt öryggi
2% Rómantik
njrnni
T /
mmrni
/ iAnnað
I 6%
Kk
mtBBmsMKmtoh
'.r ■ i '
' Í:®Í
Félagsskapur
32%
Löngunarleysi
og framhjáhöld
Mcðal karla er löngunarleysið algeng-
ast á meðal fráskildra og þeirra sem ekki
elska konur sínar. Sömuleiðis er farið
um menn sem segja að tilgangur þeirra
með síðustu kynferðislegu reynslu sinni
hafi verið að veita sjálfum sér ánægju.
Þrátt fyrir að margir giftu þátttakend-
anna segist ekki hafa löngun skýra
þriðjungur eiginmanna og eiginkvenna
frá því að þau hafi átt í að minnsta kosti
einu ástarævintýri utan hjónabandsins.
Möguleikinn á slíkum ævintýrum eykst
með aldrinum: einn af hverjum fimm
mökum undir 30 ára hafa haldið
framhjá, þriðjungur þeirra sem eru á
fertugsaldri og helmingur þeirra sem eru
á fimmtugsaldri. En hvernig má svo
sætta þessar niðurstöður sem virðast
fremur mótsagnakenndar?
Þeir sem spurðir voru að því hvort þá
skorti löngun voru ekki spurðir að því
hvort þeir meintu að þá skorti löngun til
cinhverrar ákveðinnar manneskju eða
hvort þeir finndu til almenns áhugaleysis
á kynlífi. Við getum okkur þess þó til að
hið fyrra sc rétt. Tölur um konurnar eru
óljósar en stærsti hluti þeirra karla sem
skortir löngun (41%) hafa átt í að
minnsta kosti sjö ástarævintýrum utan
Rómantískar reynslusögur þátttakenda
Það var um miðjan
nóvember, < síðasta
föstudagskvöldið sem
ísbúð Ted Drews var
opin. Kærastinn minn
og ég sátum í aftursæt-
inu í bílnum hans með
teppi vafið utan um
okkur og borðuðum
rjómaís.
17 ára gömul kona.
Brúðkaupsferðin
með seinni manninum
mínum - í kofa við
Tahoe vatnið... Skelf-
ingin úr fyrri brúð-
kaupsferð var víðs
fjarri, en þá var mér,
hreinni meynni, nauðg-
að á brúðkaupsnótt-
unni.
61 árs gömul kona.
Einu sinni var ég
skotin í tónlistar-
manni. Síminn hringdi
og þegar ég lyfti upp
tólinu spilaði hann ást-
arsöng á píanóið og
söng fyrir mig. Síðan
sagði hann „Halló
elskan," og við fórum
að tala saman.
70 ára gömul kona
ingur þátttakenda sammála um að róm-
antík feli í sér sársauka eða þjáningar.
Það sem virðist sameiginlegt hug-
myndum fólks um rómantík er há-
stemmdara vitundarstig - spennan við
óvenjulegt kynlíf, sársauki sem fylgir
sérstökum þjáningum. Auk þess hafa
þátttakendurnir augljóslega ekki neina
eina ótvíræða hugmynd um rómantík.
Margbreytileiki lýsinganna sýnir að róm-
antíkin fær líf í huga þess sem reynir
hana - hún er það sem hver og einn
hcldur að hún sé.
Þegar þátttakendur voru beðnir um
að velja þrjá mikilvægustu þætti ástar-
innar voru vinátta, hollusta og andlegt
samræmi í efstu sætunum og tekin fram-
yfir ástríðufyllri þætti eins og kynferðis-
lega spennu, ákafa löngun og þess
háttar. Þessi lýsing sem er fremur hæglát
og ástúðleg á varla við ást Dantes sem
„hreyfir sólina og aðrar stjörnur", heldur
er hún nær skilningi Platons: „lllur er
hinn lágkúrulegi elskuhugi sem elskar
líkamann fremur en sálina.“
Hvunndagslífið leggur
rómantíkina að velli
Nær allir hafa trú á rómantíkinni -
96% þátttakenda sögðu að hún væri
þeim mikilvæg og meirihlutinn álítur að
ást tvcggja einstaklinga geti enst ævina á
enda. En sú bjartsýni er kannski orðum
aukin. Svörin bera þess tæpast vott að
rómantíkin blómstri, ástin lifi eða hjóna-
bandið heppnist. Einungis 40% paranna
segja að talsverð rómantík hafi einkennt
sambandið í byrjun og tæplega þriðjung-
ur segir að sambandið sé eins rómantískt
í dag. Einn af hverjum fimm er sammála
tólftu aldar konunni Marie, greifafrú af
Champagne, sem sagði að „kraftur ástar-
innar dvínar á milli karls og konu sem
eru gift hvort öðru“. Helmingur kvenn-
anna og næstum því jafnmargir menn
benda á hvunndagslífið (en ekki fjárhags
áhyggjur, börn eða „eitthvað sem þau
gerðu") sem aðalorsökina fyrir hnignun
rómantíkurinnar. Þau 2/3 paranna sem
halda að ástin geti enst ævina út byggja
á takmarkaðri reynslu: helmingur þeirra
hefur aðeins verið saman skemur en
fimm ár. Þriðjungur gifta fólksins álítur
að hjónaband sitt geti hugsanlega endað
með skilnaði.
Þrátt fyrir allt er rómantíkin í sam-
bandi fólks nokkurs konar mælikvarði á
ástina: Þegar rómantíkin er í lágmarki
er kynlífið með daufara móti og sjaldnar
iðkað en ella, viðkomandi par hefur ekki
eins háar hugmyndir um ástina og er
líklegra til að íhuga skilnað. Fjörugt og
títt kynlíf getur að sjálfsögðu virst róm-
antískt í sjálfu sér. Kona nokkur, 57 ára
gömul, sem hefur búið með manni sem
við getum kallað Ed Brown síðast liðin
tvö ár, segist lifa rómantísku lífi vegna
þess að „hann er dásamleg manneskja
og ég hef aldrei upplifað kynlífið eins og
ég geri með Ed Brown“ (Ed heldur því
sjálfur fram að samband þeirra sé
rómantískt vegna þess að „við komum
vel fram við hvort annað, við sýnum
hvort öðru virðingu og tillitsemi og
vinnum að því að gera sambandið
gott.“).
Um 20% paranna sem svöruðu greinir
í meginatriðum á um það í hverju
rómantíkin sé fólgin, hversu mikilvæg
hún sé og hvað þau eigi mikið af henni.
Ástarsamböndum nær helmings þessara
para er þannig háttað að þeim finnst
annar aðilinn elska heitar en hinn.
Þriðjungur þessara para hafa ekki kyn-
mök nema einu sinni eða tvisvar í
mánuði á meðan mjög fá þeirra 12%
para sem hafa sömu skbðun á rómantík-
inni segjast eiga við vandamál í ástum
eða kynlífi að stríða. Þannig virðast
þeim pörum sem ástin blómstrar hjá
ekki einungis hafa tekist að halda í
rómantfkina heldur virðast þau enn-
fremur hafa sömu skoðun á því í hverju
rómantíkin felist.
Helsta skýringin á því að svo margir
segjast ekki hafa kynferðislega löngun
er líklega minnkandi rómantík og óham-
ingjusamar ástir. Um 28% karla og 40%
kvenna segja að skortur á löngun komi
í veg fyrir kynlíf þeirra. Helmingur
þeirra kvenna sem eru í samböndum
sem ekki eru rómantísk hafa ekki kyn-
ferðislega löngun og það sama gildir um
3/4 þeirra kvenna sem segjast ekki elska
menn sína. Löngunarleysið stafar ekki
af því að ekki sé félagi fyrir hendi því
stærsti hluti þeirra kvenna sem segjast
ekki hafa kynferðilega löngun eru giftar.
(45% kvenna í fyrsta eða öðru hjóna-
bandi sínu skortir löngun. 35% ein-
hleypra kvenna segjast hafa litla
löngun.)
hjónabandsins. Sennilega endurspeglar
löngunarleysi þeirra ófullnægju í hjóna-
bandinu.
Hið háa hlutfall framhjáhalda er til
vitnis um þá staðreynd að þær siðferðis-
legu þvinganir sem eitt sinn neyddu
eiginmenn og eiginkonur til þess að
sætta sig við kynferðislegt hlutskipti sitt
eru nú að engu orðnar. Nú virðast
margir makar vera að leita að fullnægj-
andi kynlífi og því sem þeir álíta sanna
ást og ef þeir finna þetta ekki heima hjá
sér leita þeir bara annars staðar.
Ekki skorti alla þátttakendur í
könnuninni kynferðislega löngun eða
rómantík. Nokkrir þeirra - um það bil
4% - eru einstaklega gjarnir til ásta og
haga sér eins og þeim sé gjörsamlega
fyrirmunað að koma í veg fyrir að þeir
verði ástfangnir eins og hendi sé veifað.
Þessi hópur, sem kemur í fyrsta sinn
fram í dagsljósið í þessari könnun, er
tiltölulega óhamingjusamur í ástum. En
þau sem skipa þennan hóp hafa trú á
kynferðislegu kalli líkamans, eiga í
mörgum ástarævintýrum og telja miklar
líkur á að hjónabönd þeirra endi
með skilnaði.
Samkvæmt skilgreiningum könnunar-
innar hefur ástgjarna fólkið orðið ást-
fangið að minnsta kosti fjórum sinnum
(sumir oftar en tíu sinnum). Þau hafa
einnig reynt óendurgoldna ást mörgum,
sinnum og þau skýra öll frá tilfellum
þegar þau urðu ástfangin við fyrstu sýn
og voru ástfangin af mörgum í einu. Þau
lýsa sjálfum sér oft með því að segja „ég
er mjög móttækileg/ur“. Þessi 4% ást-
gjarnra voru ásamt 21% þeirra sem voru
næstum því eins „móttækilegir" bornir
saman við þau 25% sem eru ólíklegust
til þess að verða ástfangin. Hin „ást-
gjörnu" voru líklegri til að telja ástina
skammvinna. Þau voru miklu yngri þeg-
ar þau urðu ástfangin í fyrsta sinn - að
meðaltali 14 1/2 árs samanborið við að
þau sem síst eru líkleg til að verða
ástfangin voru að meðaltali 19 ára þegar
þau urðu ástfangin í fyrsta sinn. Þau
ástgjarnari eru einnig líklegri til að segja
að kynlífið sé mikilvægt til að rómantíkin
endist, þau scm síst verða ástfangin velja
trúnaðinn.
Ástfanginn í 131. sinn
Annar samanburður sýndi að ást-
gjarna fólkið cr óhamingjusamara í
ástum. Þau hafa oftar kynmök og tvisvar
sinnum fleiri hafa átt í að minnsta kosti
einu ástarævintýri utan hjónabandsins
(43% ástgjarnra á móti 21% af þeim sem
síst verða ástfangin) og tvisvar sinnum
fleiri segja að líkurnar á að þeir skilji séu
miklar.
Á nteðal þeirra sem eiga auðveldast
með að verða ástfangin er hinn 86 ára
gamli Donald Leonard frá Kaliforníu en
hann minnist þess að hafa í fyrsta sinn
orðið ástfanginn fyrir um 70 árum - og
við fyrstu sýn - af stúlku sem hann hafði
aðeins þekkt í tvær vikur. „Ég gleymi
þeirri fjalla stúlku aldrei," segir hann.
Sama gildir um aðrar ástir hans sem allar
kviknuðu við fyrstu sýn, „ég get gefið
ykkur nöfn og heimilisföng." Lewis, sem
hefur orðið ástfanginn miklu oftar en tíu
sinnuni segir: „Það er ánægjulegt að rifja
þetta allt upp."
Maður nokkur frá Pennsylvaniu, 28
ára gamall, heldur því fram af vísinda-
legri nákvæmni að hann hafi, þrátt fyrir
ungan aldur, orðið ástfanginn 131 sinni
og í öllum samböndunum var um alvar-
leg tilfinningaleg tengsl að ræða.“ Hann
byrjaði að skrá hjá sér Casanovaferilinn
eftir fyrsta „skotið" sex ára að aldri.
Hann er alveg viss um að tölunni 131
sinni geti ekki skeikað „nema í mesta
Við hittumst þegar
yið vorum átta ára
gömul. Við lékum okk-
ur saman í ár en síðan
varð ég að flytja
burtu... Við gerðum
samning um að hittast
á Hawai þegar yið yrð-
um 21 árs. Ég gaf
henni brúnan bangsa
lagi um 1 eða 2." Það þarf því engan að
undra að hann skuli segja: „Rómantíkin
er hreyfiafl lífs ntíns."
Kona nokkur frá New Jersey 49 ára
gömul, sem á einstaklega auðvelt með
að verða ástfangin heldur því fram að
þar sent hún hafi engar hugmyndir um
fyrirmyndar karlmanninn sé hún opnari
fyrir ástinni og því líklegri til að verða
ástfangin en ella.
Ekki er vitað með vissu hvað veldur
því að sumt fólk hungrar í ástina á
meðan aðrir láta sig hana ekki eins miklu
skipta. En ein hugsanleg skýring kom
þó fram í svörum þeirra þafttakenda í
könnuninni sem hvað mesta tilhneigingu
hafa til að verða ástfangin - sú staðreynd
að flest mótttækilega ástgjarna fóíkið
scm tók þátt í könnuninni átti erfiða
bernsku og naut lítillar ástar á barnsald-
ri. Einn bjó hjá fimm mismunandi
fjölskyldum. annar var kjörbarn sem
sætti miklurn barsntíðum í bernsku og
enn annar var sendur um langan veg til
að búa hjá ömmu sinni vegna þess að
ógift móðirin hafði ekki tök á að sjá um
hann. Þaðvirðist því Iíklegt að sumt fólk
sem ekki naut nægilegs ástríkis og hlýju
í bernsku eyði því sem eftir cr ævinnar í
að reyna að ná í ástina sem það fór á mis
við.
og mamma hennar
sendi mér mynd af
henni. Ég hafði þá
mynd með mér hvert
sem ég fór í 18 ár og
ég leita hennar ennþá
með logandi Ijósi, áður
en það verður of seint.
26 ára gamall maður
VÉLADEjLD SAMBANDSINS
BÚVÉLAR Ármúla 3 Reykiavík S. 38 900
LANSING
VIÐ ERFIÐAR
AÐ-
uvp>
ysin
9a
LANSING
ER ÞEKKTUR FYRIR
• Fjölhæfni
• Afl
• Afköst
• Sparneytni
• Minna strit