Tíminn - 31.07.1983, Blaðsíða 27

Tíminn - 31.07.1983, Blaðsíða 27
SUNNUDAGUR 31. JÚLÍ 1983 127 ■ Ritlerbusch við Rolls Royce bifreið sína. Sumir hrækja á eftir bílnum, er þeir sjá klámmyndakónginn á ferð. en þetta hljóti að vera jafn gróðavæn- legur útvegur og bankarekstur. Erfiðasta hlutverkið. - eða það óþokkalegasta eftir atvikum. - hvtlir á herðum Ijósmyndaranna og kvikmynda- tökumannanna. Þeir verða að laða nýja stúlkur að og koma þeint inn í starfið. Ekki eru laglegar stúlkur á hverju strái í Þýskalandi. sem ekki eru haldnar ein- hverri blygðunarkennd og veigra sér því við ýmsu. Frá Ameríku og Frakklandi er mun meira framboð á „frjálslyndum" stúlkunt. Því verður þýski klámmynda- iðnaðurinn að byggja í æ ríkari mæli á erlendum starfskröftum. Rcyndarsenda fjórar stúlkur að jafnaði inn umsókn í viku hverri til miðlunarskrifstofu Beate- Ushe. en meðal þeirra höfum við „enga nothæfa fundið". eins og framkvæmda- stjórinn orðar það. „Þetta eru tómar spunakerlingar. sem aldrci hafa litið í spegil". segir hann. Það scm þýskir klámmyndaframleið- endur leita að eru gcislandi ferskar og fríðar stúlkur. Frcmstu 100 Ijósmyndar- arnir í þessari grein vita hvar þeirra skal leita og hvernig: Þeir gera sér tíðförult á hestu diskótekin og heita þar eigin kyntöfrum og fortölum. Þeir svipast um í „útjaðri" vændisheimsins. fylgjast með svonefndum gægjugata-klefum og börunt og athuga einnig hvað er á listum atvinnumiðlara Ijósmyndafyrirsæta. Þar má rekast á ýmsar fegurðardísir. sem ekki hafa „komist áfram” sem fyrirsætur. Þetta cru stúlkur sem litla menntun hafa. cn eigi að síður einhverntíma komist um skcið á samning. t.d. hjá útgefcndum myndskreyttra vörulista. Þar liafa þær vanist að hafa um 3000 ísl. krónur á dag í laun og slíkt kaup fá þær ekki með því að sitja við einhvern búðarkassann. Þær láta því hafa sig út í að sitja fvrir í kynæsandi nærfötum. - til að byrja með, þótt fyrr hefðu þær þvertekið fyrir það. Svo cr gengið lengra og lengra. Framleiðendur eru ekki naumir á vínföngin Sé nokkur stúlka sem nefna mætti drottningu klámmyndanna í.V-Þýska- landi þá er það Christine Schwarz. Hún er 25 ára gömul og var fvrrum aðstoðar- stúlka hjá tannlækni. Hún hefur lcikið í 24 stórum myndum á tveimur árum, en litlum myndum hcfur hún varla tölu á. Hún var eina þýska stúlkan í þessari grein sem viljug var til að eiga viðtal við okkur undir fullu nafni og sem framleið- cndur vildu glaðir láta ræða við biöð. Hún þótti-einkum framhærileg vcgna þcss að hún hafði ekki nokkru sinni unniö í „skemmtigarði" eins og nú er til siðs að kalla glcðihúsin í V-Þýskalandi. En Christine Schwarz cr hins vegar á verði öðrum þræði. Hún hefur nú nefnilega byrjað að vinna við gagna- vinnslu í vöruhúsi í Hamborg og reynir nú að fóta sig á venjulcgum atvinnu- markaði með hversdagsleg laun. líkt og hún áður hafði. Hún segist verðaáð bíta á jaxlinn. En hún cr líka stolt vegna þess að ólíkt því sem oft gerist með stúlkur úr þcssum iðnaði, var hcnni ekki strax hafnað á almenna vinnumarkaðinum. Christine situr á stól. klædd gailabuxum, meö liárið hnýtt í tagl og ómáluð. Hún byrjaöi í klámiðnaðinum á þennan vana- lega hátt: Ungur og laglcgur maður fullvissaði hana um að jafri falleg stúlka hefði annað betra að gera en að hræra tannfyllingar. Klámkvikmyndastjarnan lítur um öxl án allrar beiskju. Nei, hún iðrast einskis. Þetta var allra fjörugasti tími. Hún var í París í veislum á Café Coppola og skemmti sér með þeim ríkustu á Ibiza. Á þessum þremur árum kveöst hún hafa aflað sér mikillar þekkingar og þó einkum þekkingar á karlmönnum. Hún kveðst hafa öðlast sjálfsöryggi og veru- lega frægð. Ástæða þess að ölj töfraveröld hennar hrundi var að taugarnar biluðu. Eitt sinn brast hún í grát. Kvöldið áður en til stóð að taka upp övenju gróft atriði drakk hún eitthvað. sem líklega var ekki mjög hollt. „Framleiðendur eru ósparir á vínföng." segir hún „og oft er stúlkunum gefið eitthvað á morgnana. til þess að gera þær skeytingarlausar." Loks fór það að koma fyrir að hún brast í grát við sjálfar upptökurnar og þar með var ævintýrið á enda. „Þá var ekki hægt að nota tnig lengur, auk þess sem ég var líklega búin að vera of lengi í þessu og farin að verða of gömul. Áhorfendur heimta alltat' eitthvaö nýtt." En karlmaðurinn verður seint of gam- all í hlutvcrkin. því karlarþeirsem horfa á klámmyndir sjá í karllcikaranum ímynd sjálfs sín og þann draum sinn að legg.ja hverja glæsikönuna á fætur ann- arri að fótum sér. En þeir vilja ekki sjá sama kvenmanninn of oft. „Við vitum nú hvernig hún er þessi." Christinc er ekki tilbúin að viður- kenna að grátköstin hafi átt sér sálrænar orsakir. Stolt hennar lcyfir henni ekki að viðurkenna slíkt. Stoltið vill ekki kann- ast við að særö blygðunarkennd cigi þar neinn hlut að máli. Hún fór ekki út í þetta nauðug, eða að gamni sinu. Vinn- an var henni til mestu ánægju og hún þénaði ágætlcga. „Tilfinningum hélt ég utan viö þetta." segir hún. Þær kynfcrðislegu fullnægingár 'scm sjást í myndum hennar og eru meira en hundrað talsins. lék hún allarsaman. Þá var það henni sönnun fyrir því að sjálfa sig hcfði luin ekki scl.t af hcndi að hún kom aldrei fram fyrir myndavélarnar í eigin nærfötum: „Aldrei, aldrei!" Hún segir að andlega hafi hún aldrci sclt sig' „og ef cinhvcr gerist til aö minna mig á fortíð niína, í stað þess að líta á mig sem persónu, þá er sá maður ekki neitt handa mcr." Stúlkurnar sem leika í klámmyndun- uni hljóta ekki þá upphefð að nokkur maður viöurkenni þær sem leikkonur, - og þær gera mun á „vinnu" og „ntynda- töku". „Vinnan" felst í því að koma karlleikaranum til.gera hann til í tuskið. Til þess þarf margvíslegar strokur og arinað óncfnt. Þegar á þessu stigi er mat lagt á hæfileika viðkomandi, því tíminri er dýrmætur í klámiðnaðinum. „Því miður er þetta orðið svo hvers- dagslcgur hlutur hjá ungu kynslóðinni." segir Werner Ritterbusch og brcgður yfir sig enska jakkanum. Utan um ístr- una hefur hann spennt bclti með mynd af tveimur logagylltunt hlébörðum. Ritterbusch er fertugur Hamborgar- búi. Hann ekur á Harley-Davidson'mót- orhjóli, á stórhýsi á Flori'da ogframleiöir hinar vinsælu „ribu"-myndir. Hann á líka guillitan Rolls Royce. en ekur þó sjaldan í honum vegna haturs almenn- ings á „þeim sem hafa það got.t," eins og hann segir. Aki hann í gegnum háskóla- hvcrfið á glæsivagninunv. hrækja stúd- entarnir á bílinn og þetta „öfundsjúka pakk" situr um að stcla silfurmyndinni af vclarhlífinni. Hann hcfur því tengt þjófablístru við myndina. Leikararnir gefa engin hljóð frá sér Ritterhusch hóf feril sinn með því að hann flutti inn hcilu bílfarmana af dönsk- um klámritum. sem í þann tíð varð aö sclja undir borðið. Þá komst hann að því hve mikið mátti upp úr slíku hafa og er allt var gefið frjálst í V-Þýskalandi setti hann eigið framleiðslufyrirtæki á laggirn- ar. Ritterbusch leggur mikið upp úr því að kynferðislegar fullnægingar sjáist sem- oftast í myndum hans. Hendi slíkt á röngu augnabliki kostar þaö Rittcrbusch peninga. Komi það fyrir að karlleikárinn verði getulaus og áætluð upptaka fcrst fvrir af þeim sökum hefur Ritterbusch lcyfi samkvæmt samningi til þess að draga af launum lians. Fyrsta flokks klámkvikmyndahús er byggt samkvæmt því sent segir í gömlu Ijóði: „í öllum fjórum hornum kvcði ástarraustin við." f samræmi við það drynur úr fullkomnustu dolby-stereó hátölurum: „Áfram, reiðhrókurinn þinn.“ Slík orð hafa þó aldrei kontið frá stúlkunni sem liggur eins og afvclta bjalla á bakinu uppi á „skrifborði for- stjórans". Líklegra cr-að hún hafi sagt: „89,88,87,86...."" Leikarar í klámkvikmyndum eru alls ólærðir í leiklist og þar mcð framsögn og eru því látnir þegja. Þar sent í kringum þá stcndur fjöldi tæknimanna og blik- andi fljóðljós skína á þá er líka varla aö búast við miklu andríki af þeirra hálfu. Því cr mælt nteð að þeir telji í huganum. Klámorðaflóðið og andköfin eru sett inn á tónband eftir á. I lér koma snillingarnir til sögunnar. Frú Sommer. scm auglýsir kíd'fi í sjón- varpsauglýsingunt. skiptir mi um hlut- verk og stynur enn meir þegar karlleikar- inn dregur niður um sig. en þegar hún smakkar á filterkaffinu. Röddin sem auglýsir nýjar baunir í útvarpinu heyrist nú innfjálgum orðum prísa nautn sam- ræðisins. Eðvarö Irændi sem þckktur varö í þýska sjónvarpsmyndaflokknum um Schölermann-fjölskylduna kann og að túlka hina frjálsu ástir og orgar af frygð út úr öllum dolby-stcrcó-hátölur- unum fjórun). Eiginkona róttæks vísna- söngvara eins. hefur og þegiö góðan skilding fyrir að láta til sín heyra á sama vettvangi. „Æskan skeytir ekki um okkur“ Frá ómunatíð hafa yngstu viðskipta- vinir vændiskvenna verið 2(1 til 22ja ára gamlir. Þegar þeir fengu fyrstu aurana til ráðstöfunar var þarna opin leið til þess að sanna manndóm sinn gegn dálítilli greiðslu. En nú er þetta orðið öðruvísi. „Æskan skeytir ekki unt okkur." scgir • einn úr hópi framleiðenda. Wolf Rade- macher. En þá er að snúa sér að kvenþjóöinni. „Kvenfrelsisbaráttan var mikið happ fyrir okkur," segir auðkýfingurinn og klámmyndaframleiðandinn Uli Rotcr- niund og því til sönnunar segir liann að konum meöal viðskiptamanna hafi fjölg- aö úr 8% í 34% af hcildinni á síðustu 10 árum. Gerir hann allt sem hann getur til þcss að laða konur að viðskiptunum og þær cru aðeins látnar greiða hálft að- göngugjald í kvikmyndahúsum lians. Án þess að konurnar komi mcð er ekki hægt að gcra ráð fyrir jafn blómlegum rekstri og áöur. „Ushe"-hringurinn hefur í framhaldi af þessu kostaö all viðamikla könnun sem líffræðistofnun í Múnchen (Gesell- schaft fúr Physologische Studien) tók að sér aö framkvæma. 50 karlar og 50 konur tóku þátt í þcssari könnun. Vartilrauna- hópurinn látinn horfa á tíu vcl valdar klámmyndir og púls, svitamagn og hrcyf- ingar greindar með nákvæmum mæli- tækjum. Eftir því scm fjör færðist í lcikinn fóru nálarnar aö tifa af krafti. Niöurstaðan varð: Það scm æsir karla, æsir konur ekki síður. Hins vcgar er klám ekkert áhugamál þeirra, þar sem þær koma saman, eins «g oft gerist mcð kar!a. (Þýtt úr „Stern“ - AM) ■ Leikararnir eru óskólaðir í leiklist og þar með framsögn. Stunurnar og andvörpin eru sett inn eftir á. PLASTPOKA OG PRENTUN FÆRÐU HJÁ

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.