Tíminn - 31.07.1983, Page 13

Tíminn - 31.07.1983, Page 13
SUNNUDAGUR 31. JÚLÍ1983 ■ Vonandi gefur þessi mynd lesendum einhverja hugmynd um giæsileik sýningarinnar á Kim II Sung iþróttaleikvanginum, en eins og sjá má þá var gífurlegur fjöldi iþrottafólks sem tók þátt í þessari syningu. Fyrir þá sem ekki hafa áttað sig á myndinni, má geta þess að myndin fyrir ofan leikvanginn, þar sem gestir blaðamannaráðstefnunnar eru boðnir hjartanlega velkomnir, er samsett af börnum með mislitar slæður - og þannig fengum við að sjá tugi ólíkra mynda. Norður-Kórea — framandi lokaður ævintýraheimur: Þar sem alkóhólismi og lanslæti eru óþekkt fyrirbæri ■ Hvaða land er það þar sem engir skattar þekkjast? Hvaða land er það, þar sem gjörvöll þjóðin virðist standa, sem einn maður að baki þjóðarleiðtoga sínum? Hvaða land er það, sem á síðustu 30 árunum eða svo, hefur brotist undan vanþróun þriðja heimsins, og rutt sér braut, og það hratt, á sviði tæknilegra framfara? Landið er kommúnistalandið Norður-Kórea, þar sem „Hinn mikla leiðtogi“ Kim II Siing vakir yfir landi og þjóð sem einskonar guðlegur leiðtogi, en þó alveg ákveðið einnig stjórnmálalegur, hugmynda- fræðilegur leiðtogi. Ég var i höfuðborg Norður-Kóreu, Pyongyang, í 10 daga, fyrri hluta júlímánaðar á alþjóðlegri ráðstefnu blaðamanna 350 talsins, og þar sem ég hef nú endurheimt ferðatösku mína, sem glatað- ist um stundarsakir, ásamt öllum filmum ferðarinnar, þá er ekkert því til fyrirstöðu, lesendur góðir, að ég reyni að gera ykkur einhverja grein fyrir því helsta sem fyrir augu og eyru bar í þessu framandi landi. Satt best að segja, þá var það svo margt sem fyrir augu bar, og velflest svo n>.5t Hegt að mér er nokkur vandi á höndum að velja, frá hverju skuli greint. Samt sem áður þýðir nú ekki að leggja árar í bát áður en róðurinn er hafinn, þannig að ég geri a.m.k. heiðarlega tilraun: ■ Ég var drifin i dansinn á útiskemmtuninni sem haldin var til heiðurs blaðamönnum á Kim II Sung torgi og steig ég dansinn auðvitað i norður-kóreanska þjóðbúningnum. Agnes Bragadóttir skrifar um Norður-Kóreuför sína faralds fæti

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.