Tíminn - 06.08.1983, Qupperneq 13

Tíminn - 06.08.1983, Qupperneq 13
Það er líka sjálfsagt að sem flestir fái að vita hvernig unnið er í safni, sem er í almenningseign og sýna um leið tilganginn með slíkri stofnun og að margs konar störf þarf að vinna, þegar verið er að byggja eitthvað upp. Ég tel mig vera ákaflega heppna með starf. Fortíðin er lykillinn að nútíðinni og framtíðinni. Til þess að vera hamingju- samur í starfi er nauðsynleg að trúa á tilgang þess og að árangur af því verði til góðs. í Árbæjarsafni eru varðveittar bygg- ingar til að fólk skilji betur sögu Reykjavíkur, sem viðbót við frásagnir í ræðu og riti. Fimmtudagurinn 4. ágúst var grár eins og því miður flestir dagar í sumar. Morguninn var rólegur. Við hjónin vorum ein í morgunkaffinu, því synir okkar tveir eru hjá ömmu sinni og afa í Svíþjóð. Ég er svo heppin að þurfa ekki að eyða miklum tíma í ferðir til og frá vinnu, því að við búum í skemmtilegu og fallegu húsi á safnsvæðinu, en það hús var áður á Laufásvegi 31. Skrifstofa safnsins var lengi í því húsi, en er nú í húsinu Líkn, sem var í Kirkjustræti 12. Á svæðinu býr einnig ráðsmaður safnsins. Ég kom á skrifstofuna laust fyrir klukkan 9 og byrjaði á því að ræða við samstarfsmenn mína. Guðný Gerður Gunnarsdóttir, safn- vörður, var að athuga brunavirðingar og manntöl frá síðustu öld til að fá vitneskju um hús í Skólastræti. Við ræddum framtíð þessara húsa og hvað þau eru mikilvæg sem bakgrunnur húsanna á Bernhöftstorfu. Beiðnin hafði komið frá borgarskipulagi um upplýsingar um þessi hús. Þetta er fastur liður í starfi safnsins. því borgar- minjavörður er m.a. ráðgjafi borgar- innar, hvað varðar gömul hús. Þegar byggingarnefnd fær erindi varðandi gömul hús, vísar hún því yfirleitt til umhverfismálaráðs, sem vísar því síð- an til mín, en umhverfismálaráð fer með stjórn safnsins. Nokkrir „reitir" í kvosinni hafa verið kannaðir líkt og Grjótaþorpið 1976 (en sú skýrsla var gefin út). Salvör Jónsdóttir, aðstoðarmaður einkabílamálum mínuin, því á sunn- udaginn kom í Ijós að 15 ára gamli Land Rover jcppinn minn er orðinn það lélegur að grindin gat ckki lengur haldið púströrinu uppi. Af einskærri tilviljun hafði ég heyrt að Land Rovcr væri til sölu austur í Landeyjum og vegna þcssara bílakaupa hringdi ég í bifreiðaeftirlitið. Eftir hádegið kom Halldór Back- mann trésmiður, sem hefur staðið fyrir eíundirbúningi á flutningi hússins frá Suðurgötu 7 og við ræddum verkið og hanntókfram undirstöður fyrir húsið. Við Salvör ætluðum að fara á mælingadeildina, en töfðumst vegna símans. Við þurftum að láta fjölmiðla vita um húsflutninginn og lofuðum þeim rituðum upplýsingum um húsið. Margir hringdu m.a. maður frá Álafossi, sem hafði bcðið okkur um aðstoð við að setja upp gamla krambúð á sýningu. Þctta finnst okkur skemmtilegt verkefni, því við erum cinmitt að undirbúa gamla búð í safninu. Á mælingadeildinni í Skúlatúni hitt- um við forstöðumanninn, sem gaf okkur ýmsar góðar upplýsingar m.a. um þýðingu korta við lóðaskrárritun og fasteignamat og sagði okkur frá gömlum merkjastefnum í Reykjavík og þeirri miklu vinnu, sem lögð hefur verið í þær. Klukkan var að ganga fimm og skrif- stofurnar að loka. En við notuðum tækifærið og ljósrituðum upplýsingar um Suðurgötu 7. Vinnudcgi lýkur yfirleitt með því að ég flýti mér upp á pósthús rétt fyrir fimm. Á leiðinni heim kcypti ég brauð og ost til að hafa sem nætursnarl handa flutningamönnunum, sem flytja áttu húsið úr Suðurgötu 7. Árbæjarhverfið erl gróið hverfi og þar er hægt að fá allt til daglegs brúks. Um hálf sex fór Pétur, maðurinn minn, með mér að skila upplýsingum til dagblaðanna. Á einu dagblaðanna hitti ég Færeying, sem er hér í hópi færeyskra kennara og hafði komið hingað í safnið daginn áður. Þetta var gamall kunningi minn frá því að ég bjó í Færeyjum, cn þar var ég safnvörður, áður en ég kom hingað, en nú eru bráðum II) ár síðan. Við ókum honum í Norræna húsið rauninni ckki eitt hús, hcldurtvö. Um 1831) var rcist lítið einlyft hús og 40 árum síðar annað tveggja hæða jafn- hliða því. Nokkrum árum seinna var gamla húsið hækkað og eitt þak gert yfir allt. Þetta sést ckki í lljóti bragði því húsið er svo heilsteypt að utan. Ég hafði lofað að hringja austur í Landeyjar vegna jeppakaupa og fékk að fara inn í Suöurgötu 8 til að nota símann. Meðan ég var að reyna að hringja hugsaöi ég um, hvað það hlýtur að vcra crfitt að búa við lélegt símakcrfi, þar scm síminn er orðinn svo ómissandi hlutur í daglegu lífi okkar. Á meðan kom regnskúr og fólkið hópaði sigsaman undir einu fallcgasta- tré bæjarins, á horni Suðurgötu og Vonarstrætis. Landsíminn gat ekki gefið mér sam- band austur, svo ég fór aftur út. Allt gekk samkvæmt áætlun nema að einn „kranafótur" seig og þá raskaðist jafn- vægi hússins. Þetta þurfti að lagfæra áöur en hægt var að lyfta húsinu. Það var gaman að fylgjast með þessum rösku smiðum vinna sitt verk... Stór flutningabíll var kominn á sinn stað og á honum voru trébitar, því húsið var auðvitað miklu stærra en flutningsvagninn. (Húsið er 9.40 m x 6.80 m). Það er stórkostleg sjón að sjá hús lyftast, en til þess þarf bæði hugvit og tækni. Það var komið fram um miðnætti, þegar húsið lagði af stað upp í Ár- bæjarsafn. Ferðin gekk hægt, því að aka þurfti með gætni fram hjá Ijósa- staurum og byggingum. Á mörgum stöðum munaði mjóu að húsið kæmist fram hjá, enda gengu smiðir á undan lestinni og lögreglan var til aðstoðar. Það er kominn nýr dagur, en vinnan hélt áfram og tekið var að birta á ný, þegar húsið var á komið á sinn nýja stað. Þó að verkið liafi gengið Ijómandi vel, var klukkan að verða 6, þegar því var lokið. Við hjónin gengum um svæðið, áður cn við fórum að sofa og dáðumst að húsinu og gerðum okkur í hugarlund hvað það yrði fallegt, þegar búið yrði að lagfæra það. - Söfn eru ckki byggð á einni nóttu. - ■ Gamla húsið í Suðurgötu 7 er komið á sinn stað í Árbæjarsalni. safnvarðar er landfræðinemi og sumar- starfsmaður hér. Við ræddum um skrá, yfir gömul Reykjavíkurkort, sem við höfum lengi verið að safna efni í. Við ætluðum að fara til mælingadeildar Reykjavíkurborgar, vegna þess að við erum að undirbúa sýningu á gömlum kortum á afmælisviku Reykjavíkur- borgar 15.-21. ágúst. Aðrir starfsmenn á skrifstofunni eru: Mjöll Snæsdóttir, fornleifafræð- ingur, sem nú er í leyfi til að standa fyrir uppgreftri á Stóru-Borg undir Eyjafjöllum á vegum Þjóðminjasafn- sins og Kristín Jónasdóttir, viðgerð- armaður, sem sér um textíla safns'ins, en hún er nú í sumarfríi. Á verkstæðinu vinnur ráðsmaður og með honum 3 trésmiðir og þeir eru líka allir í sumarfríi. Sumarstarfsfólkið mætir til vinnu eftir hádegi, því safnið er opið frá kl. 13.30 til 18.00. Það eru fjórar stúlkur, sem leiðbeina gestum um svæðið. Næst á dagskrá hjá mér var að draga fram „símalistann". Fyrst hringdi ég í verkfræðinginn, sem er ráðgjafi okkar, til þess að vita, hvort undirbúningur vegna flutnings á húsinu úr Suðurgötu 7 hefði gengið samkvæmt áætlum, því að flytja átti það þetta kvöld upp í Árbæjarsafn. Þá hringdi ég í flautuleikara, sem ætlar að leika hér í safninu á sunnudag- inn. Næst hringdi ég í formann um- hverfismálaráðs til að ræða kynningu á fólkvangnum í Elliðaárdal á Reykja- víkurvikunni, en í sumar hefur safnið séð um gönguferðir til að kynna Elliða- árdalinn. Þá hringdi forstöðumaður Æsku- lýðsráðs til að láta mig vita hvernig safnið yrði kynnt á Reykjavíkurviku. Einn af gömlum vinum safnsins kom til að gera við orgel kirkjunnar. Ég hafði hringt til hans kvöldið áður, því að þetta þurfti að laga fyrir skírnarathöfn eftir hádegi. Eins og áður sagði átti húsið úr Suðurgötu 7 að færast upp í Árbæjar- safn þetta kvöld og á staðnum, þar sem húsið átti að koma, þurfti að reka niður hæla til að gcfa nákvæma staðsetningu á húsinu, en fyrir löngu var búið að skipta um jarðveg. Þetta fórum við nú í að gera, en auðvitað tók hann að rigna, meðan við vorum að þessu. Orgelsmiðurinn lauk viðgerðinni og ég ók honum heim þakklát fyrir að eiga slíka menn að. Þegar ég kom heim, var klukkan orðin 12, og þrátt fyrir veðrið, hlupum við samstarfskonurnar í kringum svæð- ið og er þetta daglega 10 mínútna skokk orðið okkur nauðsynlegt. Ég þurfti í hádeginu að huga að og ég notaði tækifærið til að kaupa mér eitt veggspjald eftir grænlenska listakonu. Á heimleiðinni litum við inn til gamallar vinkonu móður minnar, sem ég kalla fóstru mína, Önnu Loftsdóttur. Hún bauð okkur í kvöldmat. Meðan hún undirbjó hann, hringdi ég í Kristínu Jónasar, sam- starfskonu mína, sem hafði bakað pönnukökur handa flutningsmönn- unum, og þær ætlaði ég að sækja til hennar. Klukkan var að verða níu og þá átti 50 tonna krani og flutningsbílar að mæta við Suðurgötu 7. Við fórum þangað og þar voru smiðirnir að styrkja húsið með stoðum, því þeir voru búnir að taka allan múrsteininn burt úr húsinu. Húsið var eiginlega „botnlaust" því að undirstöður voru skemmdar af fúa vegna þess að gatan og gangstéttin höfðu verið hækkaðar og húsið því staðið í vætu. Áhorfendur tók að drífa að svæðinu. Fyrst var bíslagi hússins lyft og það sett á bílpall og farið með það upp í Árbæjarsafn. Síðan voru „stroffurnar" settar upp í gegn um húsið, en þær voru festar á stálbita, sem höfðu verið scttir undir húsið. Þessir: stálbitar eru sérstak- lega gerðir til þess að nota við húsflutn- inga. Mikil spcnna ríkti meðal okkar sem að þessum flutningum stóðu vegna þess að viö vissum að þetta er í LALGARDAGUR 6. ÁGÚST 1983 heimilistíminn 13 umsjón: B.St. og K.L. ■ Nanna Hermansson er borgarminjavörður og for- stöðumaður Arbæjarsafns. Nanna er fædd í Helsingborg í Svíþjóð og uppalin þar. Faðir hennar er sænskur og móðir hennar íslensk. Nanna varð stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri og stundaði fram- haldsnám í norrænu, fornleifa- fræði og þjóðháttafræði og er fil. lic. í þjóðháttafræði. Nanna hefur starfað sem lektor í þjóð- háttafræði við háskólann í Leeds, unnið á danska þjóð- minjasafninu sem safnvörður og einnig á þjóðminjasafni Fær- eyinga. Nanna hefur verið borgarminjavörður og for- stöðumaður Árbæjarsafns síð- an 1974. Hún er gift Peter Ottossyni, þjóðháttafræðingi, sem er við nám í arkitektúr í Kaupmanna- höfn. Þau eiga tvo syni, Stefán 8 ára og Magnús 7 ára. Mér finnst gaman að hafa verið beðin að lýsa degi í lífi mínu, því það eru ekki margir, sem vita í hverju starf safnvarðar er fólgið, en mér finnst gaman að segja frá mínu starfi og jafnframt að fræðast um störf annarra. ■ Nanna Hermansson TEL MIG AKAFLEGA HEPPNA MEÐ STARF” Dagur í Ifffi Nönnu Hermansson borgarminjavardar

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.