Tíminn - 18.12.1983, Blaðsíða 11
SUNNUDAGUR 18. DESEMBER 1983
11
GEFUM GÓDAR
WBk’ j
'/l/kl SJÖMWiK
pí ^kamiss
t-ogreglumoró
°«£Aa«
00 s**áfuqlah
Ólafur Jóhann
Sigurösson
Drekar og
smáfuglar
I þessari miklu
skáldsögu leiðir
höfundur til lykta
sagnabálk sinn af Páli
Jónssyni blaöamanni
sem hófst meö
Gangvirkinu (1955) og
hélt áfram með Seiði og
hélogum (1977).
Einn örlagaríkasti tími i
sögu þjóðarinnar er hér
magnaöur fram í
andstæðum fortíöar og
nútíöar, þjóðhollustu og
svika.
Einar Kárason
Þar sem
Djöflaeyjan rís
Sögusviöiö er „Gamla
húsiö“ í braggahverfi í
Reykjavík um og eftir
1950, og aðal
söguhetjurnar eru
strákarnir: Fyrst
útsmogin hrekkjusvín,
ósigrandi í fótbolta,
síöan svalir og
brilljantíngreiddir gæjar í
támjóum skóm sem eiga
Vetrargaröinn.
Bráðlifandi frásögn af
bragga- og blokkafólki
sem þegar hefur fengiö
geysigóöar viötökur.
Þetta er önnur skáldsaga
Einars. Sú fyrri hét Þetta
eru asnar, Guðjón.
Einar Olgeirsson
Jón Guðnason
Kraftaverk
einnar
kynslóðar
Þetta er annað bindi
endurminninga Einars
Olgeirssonar sem Jón
Guönason skráir. Hér er
sjónum m.a. beint aö
verkalýðsbaráttunni og
vaknandi vitund
verkafólks. Umbrotatím-
um í íslensku þjóðlífi og
atvinnulífi er hér lýst frá
sjónarhóli manns sem
stóö í fylkingarbrjósti og
skildi samtíð sína dýpri
skilningi en flestir aörir út
frá þeirri hugsjón sem
hann helgaði líf sitt.
William Heinesen
Ráð við
illum öndum
Sjöunda bókin í ritsafni
Heinesen í snilldarþýð-
ingu Þorgeirs Þorgeirs-
sonar.
í bókinni er stutt
skáldsaga, Ijóörænar
endurminningar og
smásögur. Sögusviðið
er Færeyjar, nema í
síðustu sögunni,
„Flugum", sem gerist í
Suður-Frakklandi.
Þorgeir Þorgeirsson
endurskapar skáld-
skaparheim Heinesen,
líkt og í öörum bókum
ritsafnsins, á svo
einstakan hátt aö engu
er líkara en sögurnar
séu frumsamdar á
íslensku.
Sigurður A. Magnússon
Við elda
Indlands 2. útgáfa.
Hér segir Sigurður frá
rúmlega þriggja mánaöa
ferö sinni um Indland þar
sem hann kynnti sér
land og þjóö, siði,
trúarbrögð, menningu
og daglegt líf fólks.
Hann bregður upp
Ijóslifandi myndum af
því sem hann upplifirog
leitast viö aö skilja og
greina þaö sem mætir
honum í fjarlægu og
framandi landi.
Fjöldi Ijósmynda prýðir
þessa nýju útgáfu.
Jakobína Sigurðardóttir
Kvæði
Hér er á ferðinni ný
útgáfa Ijóöabókar
Jakobínu sem kom fyrst
út áriö 1960. Sú bók
hefur notið mikilla
vinsælda meöal
baráttuglaöra karla og
kvenna og er fengurinn
aö þessari nýju útgáfu
því meiri aö aukið er í
hana Ijóðum sem
Jakobína hefur ort
síðastliðna tvo áratugi.
Meðal þeirra eru bæði
baráttukvæði og mörg
persónuleg Ijóð.
Heinrich Böll
og sagði ekki
eitt einasta orð
Fyrsta skáldsaga Böll
sem út kemur á
íslensku. Viðfangsefnið
er, líkt og í mörgum
öðrum bókum skáldsins,
mannlíf í örbirgð og
uppgjöf í Þýskalandi á
árunum eftir síðari
heimsstyrjöldina. En í
gegnum fátækt og
niðurlægingu brýst
mannleg reisn og
þrautseigja og þeir sem
minna mega sín eiga
alla samúð höfundar.
Böðvar Guðmundsson
þýddi.
P.C. Jersild
Eftir flóðið
Sagan segir frá ungum
manni sem berst fyrir lífi
sínu í óbyggilegum
heimi og lýsir fjörbrotum
deyjandi mannkyns.
Þetta er ógleymanlegt
listaverk um langtíma
afleiðingar kjarnorku-
styrjaldar og tvímæla-
laust ein brýnasta
skáldsaga síðari ára í
okkar heimshluta.
Njörður P. Njarðvík
þýddi.
Mál || og menning
Sigurður A. Magnússon
Jakobsglíman
Þriðja bindi uppvaxtar-
sögunnar sem hófst
með metsölubókinni
Undir kalstjörnu.
Jakobsglíman lýsir
þremur átakaárum í lífi
drengsins, Jakobs,
tilraunum hans til að
komast að heiman,
mennta sig og ná
fótfestu í KFUM.
Togstreitu og viðkvæmu
skeiði í lífi Reykjavíkur-
unglings í umróti
stríðsáranna er hér lýst
af fágætri stílsnilld.
Ólafur Haukur
Símonarson
Vík milli vina
Þessi nýja skáldsaga
Ólafs Hauks segir frá
hópi fólks sem haldið
hefur saman síðan á
árunum blómlegu í kring-
um 1968. Hvað er orðið
um stóru hugsjónirnar
og áætlanirnar? Hvert
hefur einstaklingana
borið í leit að iífs-
hamingju?
Maj Sjöwall og
Per Wahlöö
Lögreglumorð
Níunda bókin í hinum
vinsæla flokki Skáld-
saga um glæp. í
þessari næstsíðustu bók
flokksins kemst friðsælt
sveitaþorp í fréttirnar
þegar kona finnst myrt.
Almenningur finnur fljótt
sökudólg, en þá er
framinn nýr glæpur -
lögreglumorð.
Ólafur Jónsson þýddi.
Hans-Jorgen Nielsen
Fótbolta-
engillinn
Frands og Franke voru
vinir í æsku og léku
fótbolta saman fram á
unglingsár. Þá skildust
leiðir: Frands valdi
menntabrautina en
Franke varð frægur
atvinnumaður í
knattspyrnu. Mörgum
árum síðar hittust þeir
aftur með voveiflegum
afleiðingum .. .
Spennandi bók fyrir
karlmenn, sem konur
ættu líka að lesa.
Kristján Jóh. Jónsson
þýddi.
.jiippijt