Tíminn - 18.12.1983, Qupperneq 11

Tíminn - 18.12.1983, Qupperneq 11
SUNNUDAGUR 18. DESEMBER 1983 11 GEFUM GÓDAR WBk’ j '/l/kl SJÖMWiK pí ^kamiss t-ogreglumoró °«£Aa« 00 s**áfuqlah Ólafur Jóhann Sigurösson Drekar og smáfuglar I þessari miklu skáldsögu leiðir höfundur til lykta sagnabálk sinn af Páli Jónssyni blaöamanni sem hófst meö Gangvirkinu (1955) og hélt áfram með Seiði og hélogum (1977). Einn örlagaríkasti tími i sögu þjóðarinnar er hér magnaöur fram í andstæðum fortíöar og nútíöar, þjóðhollustu og svika. Einar Kárason Þar sem Djöflaeyjan rís Sögusviöiö er „Gamla húsiö“ í braggahverfi í Reykjavík um og eftir 1950, og aðal söguhetjurnar eru strákarnir: Fyrst útsmogin hrekkjusvín, ósigrandi í fótbolta, síöan svalir og brilljantíngreiddir gæjar í támjóum skóm sem eiga Vetrargaröinn. Bráðlifandi frásögn af bragga- og blokkafólki sem þegar hefur fengiö geysigóöar viötökur. Þetta er önnur skáldsaga Einars. Sú fyrri hét Þetta eru asnar, Guðjón. Einar Olgeirsson Jón Guðnason Kraftaverk einnar kynslóðar Þetta er annað bindi endurminninga Einars Olgeirssonar sem Jón Guönason skráir. Hér er sjónum m.a. beint aö verkalýðsbaráttunni og vaknandi vitund verkafólks. Umbrotatím- um í íslensku þjóðlífi og atvinnulífi er hér lýst frá sjónarhóli manns sem stóö í fylkingarbrjósti og skildi samtíð sína dýpri skilningi en flestir aörir út frá þeirri hugsjón sem hann helgaði líf sitt. William Heinesen Ráð við illum öndum Sjöunda bókin í ritsafni Heinesen í snilldarþýð- ingu Þorgeirs Þorgeirs- sonar. í bókinni er stutt skáldsaga, Ijóörænar endurminningar og smásögur. Sögusviðið er Færeyjar, nema í síðustu sögunni, „Flugum", sem gerist í Suður-Frakklandi. Þorgeir Þorgeirsson endurskapar skáld- skaparheim Heinesen, líkt og í öörum bókum ritsafnsins, á svo einstakan hátt aö engu er líkara en sögurnar séu frumsamdar á íslensku. Sigurður A. Magnússon Við elda Indlands 2. útgáfa. Hér segir Sigurður frá rúmlega þriggja mánaöa ferö sinni um Indland þar sem hann kynnti sér land og þjóö, siði, trúarbrögð, menningu og daglegt líf fólks. Hann bregður upp Ijóslifandi myndum af því sem hann upplifirog leitast viö aö skilja og greina þaö sem mætir honum í fjarlægu og framandi landi. Fjöldi Ijósmynda prýðir þessa nýju útgáfu. Jakobína Sigurðardóttir Kvæði Hér er á ferðinni ný útgáfa Ijóöabókar Jakobínu sem kom fyrst út áriö 1960. Sú bók hefur notið mikilla vinsælda meöal baráttuglaöra karla og kvenna og er fengurinn aö þessari nýju útgáfu því meiri aö aukið er í hana Ijóðum sem Jakobína hefur ort síðastliðna tvo áratugi. Meðal þeirra eru bæði baráttukvæði og mörg persónuleg Ijóð. Heinrich Böll og sagði ekki eitt einasta orð Fyrsta skáldsaga Böll sem út kemur á íslensku. Viðfangsefnið er, líkt og í mörgum öðrum bókum skáldsins, mannlíf í örbirgð og uppgjöf í Þýskalandi á árunum eftir síðari heimsstyrjöldina. En í gegnum fátækt og niðurlægingu brýst mannleg reisn og þrautseigja og þeir sem minna mega sín eiga alla samúð höfundar. Böðvar Guðmundsson þýddi. P.C. Jersild Eftir flóðið Sagan segir frá ungum manni sem berst fyrir lífi sínu í óbyggilegum heimi og lýsir fjörbrotum deyjandi mannkyns. Þetta er ógleymanlegt listaverk um langtíma afleiðingar kjarnorku- styrjaldar og tvímæla- laust ein brýnasta skáldsaga síðari ára í okkar heimshluta. Njörður P. Njarðvík þýddi. Mál || og menning Sigurður A. Magnússon Jakobsglíman Þriðja bindi uppvaxtar- sögunnar sem hófst með metsölubókinni Undir kalstjörnu. Jakobsglíman lýsir þremur átakaárum í lífi drengsins, Jakobs, tilraunum hans til að komast að heiman, mennta sig og ná fótfestu í KFUM. Togstreitu og viðkvæmu skeiði í lífi Reykjavíkur- unglings í umróti stríðsáranna er hér lýst af fágætri stílsnilld. Ólafur Haukur Símonarson Vík milli vina Þessi nýja skáldsaga Ólafs Hauks segir frá hópi fólks sem haldið hefur saman síðan á árunum blómlegu í kring- um 1968. Hvað er orðið um stóru hugsjónirnar og áætlanirnar? Hvert hefur einstaklingana borið í leit að iífs- hamingju? Maj Sjöwall og Per Wahlöö Lögreglumorð Níunda bókin í hinum vinsæla flokki Skáld- saga um glæp. í þessari næstsíðustu bók flokksins kemst friðsælt sveitaþorp í fréttirnar þegar kona finnst myrt. Almenningur finnur fljótt sökudólg, en þá er framinn nýr glæpur - lögreglumorð. Ólafur Jónsson þýddi. Hans-Jorgen Nielsen Fótbolta- engillinn Frands og Franke voru vinir í æsku og léku fótbolta saman fram á unglingsár. Þá skildust leiðir: Frands valdi menntabrautina en Franke varð frægur atvinnumaður í knattspyrnu. Mörgum árum síðar hittust þeir aftur með voveiflegum afleiðingum .. . Spennandi bók fyrir karlmenn, sem konur ættu líka að lesa. Kristján Jóh. Jónsson þýddi. .jiippijt

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.