Tíminn - 18.12.1983, Síða 19

Tíminn - 18.12.1983, Síða 19
18 ■ Izzy (t.v.) og Moe taka niður stórvirk eimingartæki. IZZY OG MOE Engir sköpuðu slíka skelfingu meðal leynivínsalanna á bannárunum og þessir snjöllu eftirlitsmenn ■ í leiguíbúð við Ridge Street í neðri hluta East Side í New York bjó á sinni tíð maður að nafni Isadore Einstein og greiddi hann 14 dollara mánaðarlega fyrir grenið. Allir köll- uðu hann Izzy. Hann hafði verið sölumaður en var nú lágt settur skrifstofumaður á póststofunni. Hann var að líta í kringum sig eftir betra starfi og taldi sig hafa rekist á það rétta, þegar hann las í blöðunum um þær fyrirætianir stjórnarinnar að greiða eftirlitsmönnum með framkvæmd bannlaganna allt að 2.500 dollurum á mánuði. Varla gat nokkur maður verið ólíkari leynilögreglumanni en Izzy Einstein. Hann var fertugur að aldri, næstum sköllóttur, vart 1.70 á hæð og vóg 110 kíló... En Izzy hafi góðaumgengnishæfi- leika og óbilandi sjálfstraust. Enginn sem leit framan í þetta kringlótta glað- lega andlit og sá blikið í svörtum augun- um, hefði látið sér til hugar koma að þetta væri útsendari stjórnvalda. t’arna niðri í East Side var hann hrókur alls fagnaðar. í hvert sinn sem hann rakst inn í vindlabúðina eða inn á kaffihúsin brást varla að um hann safnaðist múgur og margmenni til þess að heyra hann reyta af sér brandarana. , Fyrsta verkefnið sem Izzy fékk var það að hreinsa til á stað í Brooklyn þar sem yfirvöldin töldu að vínsala væri starfrækt, - svonefnd „speakeasy“, eins og slíkir staðir voru kallaðir, Drukknir menn höfðu sést slaga út af þessum stað og lykt af bjór og visky lagði langan veg. Fjöldi eftirlitsmanna hafði verið að snuðra þarna í kring, en engum þeirra hafði tekist að komast inn. Izzy vissi ekkert um viðurkenndar aðferðir leyni- lögreglumanna. Hann gekk bara að dyrunum og barði. Lokið var upp lúgu og rám rödd spurði hver þarna væri á ferð. „Izzy Einstein," sagði Izzy. „Mig lang- ar í einn.“ „Nú, - hver sendi þig hingað, drengur? Hvað gerir þú?“ „Húsbóndinn sendi mig“, útskýrði Izzy. „Ég er eftirlitsmaður. Þeir eru nýbúnir að ráða mig.“ Dyrnar voru rifnar upp og maðurinn sló kumpánlega á bakið á Izzy. „Ha, ha!“ sagði hann og skellihló. „Komdu strax inn, drengur. Þetta er nú það besta sem ég hef heyrt til þessa.“ Izzy kom nú inn í herbergi, þar sem sex menn sátu og drukku við lítjnn bar. „Heyrið þið strákar!“, hrópaði dyra- vörðurinn. „Hér er kominn eftirlitsmað- ur og vill fá einn gráan. Ertu ekki með lögreglumerkið, drengur?" „Vitanlega,“ sagði Izzy og dró það fram. „Ja hérna..“ sagði sá sem stóð á bak við barinn. „Fetta lítur út eins og það sé ekta.“ Hann hellti viskysopa í glas og Izzy skellti því í sig. En þar gerði hann mistök, því þegar að því kom að fram- kvæma handtöku hafði Izzy ekkert sönnunargagn. Hann reyndi að hrifsa flöskuna, en afgreiðslumaðurinn hljóp út um bakdyrnar með hana. „Þarna lærði ég það,“ sagði Izzy síðar, „að einn tvöfaldur fer Ijómandi vel í maga á eftirlitsmanninum, en sönnunargagn er hann ekki lengur, sjúss- inn sá.“ Izzy notaði það frumlega ráð að segja alltaf rétt til nafns, - með dálitlum frávikum þó, - meira en tuttugu sinnum næstu fimm árin. Það hafði góð áhrif eftir sem áður, þótt hann væri um það leyti orðinn svo vel þekktur og slíkur skelfir leynivínsalanna, að mynd af hon- um var látin hanga á barnum á mörgum leynivínstofum. Stundum óð Izzy rak- leitt inn í bruggverksmiðju með eftirlits- mannsmerkið í barminum og sagði glað- lega: „Hvernig væri að gefa uppgefnum eftirlitsmanni einn gráan?“ Þegar menn sáu þennan litla og digra mann leggja svo mjög á sig til þess að vera fyndinn, voru allar hendur á lofti við að útvega honum eitthvað hjartastyrkjandi, - og Izzy handtók þá á staðnum. Þegar Izzy hafði gegnt þessum starfa í nokkrar vikur, fór hann að sakna félags- skapar hins gamla vinar síns, Moe Smith... Líkt og Izzy var Moe leikari af guðs náð og hann var feitlaginn eins og hann. Hann vóg 118 kíló, en var aftur á móti örlítið hærri en Izzy og því ekki jafn kúluvambalegur. Moe átti litla verslun og nú taldi Izzy hann á að fá einum ættingja sinna umsjón með henni og sækja um eftirlitsmannsstarfið. Það sem blöðin gerðu sér mestan mat úr var kænska þeirra Izzy og Moe. Eitt sinn sátu þeir um vínstofu þar sem fjöldi manna hafði án árangurs reynt að fá keypt Vín, því afgreiðslumaðurinn seldi aldrei neinum neitt sem hann ekki þekkti. En svo var það á hrollköldu haustkvöldi að Izzy tók sér stöðu fyrir framan vínstofuna á stuttermabol og frakkalaus. Þarna stóð hann uns hann var orðinn helblár af kulda og'tennurnar í honum glömruðu. Moe næstum því bar hann á öxlunum inn í stofuna og hrópaði: „Gefið manninum einn. Hanner næst- um því dauðfrosinn!“ Afgreiðslumaðurinn sem komst við vegna útlits Izzy og var að auki ringlaður vegna hrópanna í Moe, kom strax á vettvang með viskyflöskuna. Moe greip hana undir eins og lýsti yfir handtöku. Ein snjallasta hugmynd Izzy var sú að hafa jafnan eitthvað í hendinni á njósna- ferðum sínum. Þegar hann kom á staði sem tónlistarmenn sóttu öðrum fremur, þá hafði hann jafnan með sér f iðlu eða básúnu. Kæmi það fyrir, sem stundum gerðist, að menn báðu hann að leika á hljóðfærið, þá gat hann gert það. Vana- lega lék hann: „How Dry I Am...“ Þegar Izzy var á ferð á ströndinni í grennd við New York, hafði hann j afnan meðferðis fiskistöng eða baðföt... Dyra- vörðurinn á „The Assembly," stað í Brooklyn sem lögfræðingar og dómarar sóttu mjög, hleyptu honum orðalaust inn, af því að hann var í lafafrakka og bar doðrant bundinn innn í lambsskinn... Þegar þeir Izzy og Moe heimsóttu Reiscnweber, frægan og rán- dýran stað á Broadway, voru þeir í fylgd tveggja ijóshærðra yngismeyja, klæddir í smoking, með marga gullhringi og ilmandi hársmyrsl, en stórar perlubind- isnælur blikuðu á skyrtubrjóstinu. í meira en fimm ár hló öll þjóðin að uppátækjum þeirra Izzy og Moe að hörðustu fylgjendum bannsins þó undanskildum, sem blátt áfram tilbáðu þá. Smyglarar og eigendur vínstofa voru aftur á móti lafhræddir við þá og héldu að þeir væru snargeggjaðir. Ótti.þeirra var á,rökum reistur, því á skömmum ferli sínum gerðu þeir Izzy og Moe upptækar fimm milljón flöskur af víni að andvirði fimmtán milljónir dollara. Eru þá ótaldar tunnur og keröld í hundr- uðum brugghúsa og eimingarstöðva. Þá tókst þeim að láta eyðileggja mikið magn af allslags afgreiðslubúnaði fyrir vínföng og þeir tóku 4.392 menn fasta. Voru um 95% þessa fjölda dæmdir. Engir aðrir eftirlitsmenn komust með tærnar þar sem þeir höfðu hælana. Aldrei hittu þeir Izzy og Moe þá A1 Capone, Johnny, Totio eða aðra kon- unga undirheimanna, sem mest högnuð- ust á vínbanninu. En hefðu þeir- rekist á þá er enginn vafi á að Izzy og Moe hefðu reynt að klekkja á þeim, því hugrekkið skorti þá ekki. SUNNUDAGUR 18. DESEMBER 1983 SUNNUDAGUR 18. DESEMBER 1983 HELSTU ORSAKIR ÞESS AÐ VÍNBANNIÐ í BANDARÍKJUNUM RANN ÚT í SANDINN, VORU MISTÖK VIÐ FRAMKVÆMD ÞESS SEM EYÐILÖGÐU TILTRÚ ALMENNINGS Á FYRIRTÆKINU knúin fram. Lögin segja að vínanda til drykkjar megi ekki framleiða og við munum sjá til þess að hann verði ekki framleiddur. Þar með verður hann held- ur ekki seldur eða af hendi látinn né settur í eitt eða annað á yfirborði jarðar eða neðan yfirborðs jarðar, og hvorki í lofti né á legi.“ Svo fórust fyrsta yfireft- irlitsmanninum með framkvæmd bann- laganna orð. Til þess að annast eftirlit með fram- kvæmd laganna voru ráðnir 1500 eftir- litsmenn og eftir því sem reynslan óx komu til sögunnar ýmsar.viðbótarreglur, til dæmis um leyfi lækna til þess að ávísa vínanda með lyfseðlum og reglur um meðferð á messuvíni. Var svo mælt fyrir um að undir engum kringumstæðum mætti ávísa á vínanda sterkari en 24% og ekki mátti fá neinum einstaklingi í hendur meira en pela í einu á tíu daga tímabili. Þá skyldi engum lækni heimilt að skrifa fleiri en 100 lyfseðla á hverjum 90 dögum, nema í neyðartilfellum, sem borin voru undir löggæslumenn. í byrjun var misræmi í því hvernig hin ýmsu fylki vildu meðhöndla vínbirgðir sem geymst höfðu frá því áður en bannið kom til sögunnar, en t.d. Georgía lagði blátt bann við því að menn ættu áfengi yfirleitt, hvernig sem það var til komið. Erfiðleikar á framkvæmd Lögð var í upphafi áhersla á sem nánasta samvinnu alríkisstjórnarinnar og fylkjanna til þess að tryggja framgang og áhrif bannsins og yfirstjórnin með framkvæmdinni var fengin þeim stjórn- ardeildum sem ýmissa hluta vegna þóttu hafa nauðsynlega þekkingu og aðstöðu til að annast hana best. Þó fór það svo að þessi skipting olli ýmsum ruglingi og árekstrum t.d. milli fjármálaráðuneytis- ins og dómsmálastjórnarinnar, uns eftir- litið var að mestu sett undir hatt dóms- Sjá næstu síðu ■ í desember árið 1933 voru bannlögin í Bandaríkjunum numin formlega úr gildi. Vín- bannið í Bandaríkjunum varði í 14 ár og er talið að ekki hafi ríkt hatrammari skoðana- ágreiningur um annað mál þar í landi meðan það bannið stóð, nema ef vera skyldi þræla- haldið á sínum tíma. Þótt bannið hefði sannar- lega ýmsa kosti í för með sér þá risu líka af því margháttuð vandamál, svo sem alkunna er, og mun flestum þá fyrst detta í hug sú glæpaöld sem hófst með lögleiðingu þess. Við gerum fimmtíu ára afmæli afnáms bannlag- anna að tilefni til þess að rifja upp hitt og þetta frá þessum árum. kváðu átta fylki að gera það, þótt Rhode Island skipti um skoðun að þrem árum liðnum. Síðar bættust 18 fylki á „þurra listann“ og var það loks árið 1917 að þingið tók málið fyrir og var allsherjar bann samþykkt tveimur árum síðar. Þann 16. janúar 1920 kom það svo til framkvæmda. Sérstaka breytingu þurfti að gera á stjórnarskránni til þess að koma þeim í framkvæmd og var hún jafnan nefnd „18. breytingartillagan (viðaukinn)“ samkvæmt því. Um fram- kvæmd laganna var svo saminn enn sérstakur bálkur, - „Volstead lögin." Þar sagði m.a. á þá leið að drykkir sem hefðu inni að halda meira en 0.5-1% vínanda skyldu teljast áfengir. í lofti láði og á legi „Þessum lögum ber að hlýða í stærri borgum og smærri, og í þorpum og hvar sem þeim ekki er hlýtt munu þau verða Vínbannshugmyndin var ekki ný af nálinni árið 1919, þegar bannlögin tóku gildi. Upphaf hennar má rekja allt aftur til ársins 1733, en þá voru lög sett í Georgíu, sem bönnuðu sterk vín. Árið 1777 kom svo sú hugmynd fram á þingi að fylkin tækju sig saman um að ær banna eimingu og framleiðslu á vínanda, en ekki var meira að hafst. Fyrst ríkið sem kom á vínbanni var New York árið 1845, en banninu var aflétt tveimur árum síðar. Fyrsta langtíma vínbannið var sett á í Maine árið 1851. Á næstu fimm árum fylgdu fimm ríki dæmi Maine en þau höfðu öll numið bannið úr gildi að nýju árið 1875, - nema Maine. 1 september árið 1869 var stofnaður í Chicago sérstakur flokkur til þess að berjast fyrir vínbanni. Hann bauð fram við hverja kosningar og lét ekkert tæki- færi ónotað til þess að afla hugmyndinni fylgis. Á árunum eftir 1880 var víða farin sú leið að lögleiða vínbann á takmörk- uðum svæðum, en þetta hafði lítil áhrif á framleiðslu vínanda. Á þessum áratug var kosið um það 19 sinnum í 18 fylkjum hvort vínbann skyldi upp tekið og á- ■ Dulbúnir eftirlitsmenn á bannárunum, „Those 14 years", eins og þau voru síðar nefnd. ■ „Leynivfnsalar" - („Bootleggers"), nefnist þessi mynd sem Bem Sahn málaði um 1935. Johnny Torrlo Ásamt A1 Capone var hann fremsti bófahöfðinginn í Bandaríkjum bannáranna ■ Þegar liða tók á fóru ýmsir menn að mata krókinn á kringum- stæðunum með því að útvega vín- föng handa vakandi fjölda ólöglegra vínstofa. Hér segir lítillega frá helsta foringja undirheimanna, Johnny Torrio. Sem undirheimaforingi á Johnny Torrio varla sinn líka í bandarískri afbrotasögu og er þá langt til jafnað. Hann hefur komist næst því að margra áliti að skapa hið fullkomna aðferðakerfi í kring um lögbrot sín. Hann rak alla starfsemi sína eftir sömu leiðum og um hálöglegan rekstur væri að ræða. Á morgnana kyssti hann konuna sína og hélt beint niður á skrifstofuna sína, sem var á annarri hæð skrifstofubyggingar- innar Four Deuces. Þar keypti hann og seldi kvenfólk og ráðgaðist við forstöðu- menn vændishúsa sinna og spilavíta. Þar gaf hann og smyglaraflokkum sínum fyrirmælin og sá um að spillingin væri sem mest meðal lögreglunnar og borgar- ayfirvaldanna. Stundum sendi hann skotmenn sína út af örkinni til þess að myrða þá giæpamenn sem kepptu við hann um völdin eða rugluðu áætlanir hans. En aldrei var hann í för með þeim í slíkum leiðöngrum. Eitt sinn gumaði hann af því að hann hefði aldrei hleypt af byssu á æfi sinni. Johnny var þegar orðinn einn valda- mesti maður landsins, með hundrað þúsund dala tekjur á ári af vændi, þegar hann tók að sjá um vínflutningana til Chicago. Það var síðsumars árið 1920. Hann átti fundi með foringjum helstu glæpaflokkanna og fékk þá til að leggja bankarán, innbrot og rán á hilluna að sinni, en snúa sér þess í stað að smyglinu. Hann hét þeim meiri tekjum en þá nokkru sinni hefði getað dreymt umog hann stóð vel við þau loforð... Tekjur hans náðu hámarki vorið 1924, þegar hann rak tuttugu og fimm vændis- hús í Cook County og um það bil helmingi fleiri spilavíti og illræmda næt- urklúbba í Chicago og úthverfum hennar. Þá rak hann ekki færri en sextíu og fimm brugghús og átti margar eiming- arstöðvar. Óhemjumagn var flutt á hans vegum til Chicago frá Canada og höfnum við Atlantshaf og voru vörubílar og sendibílar notaðir við flutninginn. Þeir voru þannig útbúnir að leynigeymslur voru undir þaki og gólfi. Var hann um þetta leyti í félagi við A1 Capone. Bílafloti hans var á ferðinni um Chi- cago og Cook County með bjór og visky allan sólarhringinn og sátu í bíiunum vopnaðir verðir. Talið er að Torrio og félagar hans hafi séð um þremur fjórðu þeirra tuttugu þúsund vínstofa sem upp spruttu eftir að bannlögin gengu í gildi, fyrir nauðsynjum. Flutningavagnar Torrio voru sjaldnast ónáðaðir. Þvert á móti var það venjan þegar dýra skipsfarma bar að landi að einkennisklæddir lögreglumenn veittu liðsinni sitt við uppskipun. Eftir því sem tekjurnar jukust færði Torrio út veldi sitt. Hann gaf ríkulega í kosningasjóðina og keypti lögreglumenn og eftirlitsmenn, dómara og stjórnmálamenn. Einnig ýmsa stjórnendur borgarinnar, eftir því sem þörf var á. Hundruð manna sóttu mútur sínar í viku hverri á skrifstofu sem hann lét koma upp miðsvæðis í borginni. Þar sem lögreglan var nú alveg mátt- vana og löggæslan nær því að hruni komin, fóru ýmsir skuggabaldrar undir- heimanna nú að koma fram úr fylgsnum sínum. Bankar í borginni voru rændir um hábjartan daginn. Varðstjórar og lögreglumenn höfðu ekki undan að semja skýrslur um vopnuð rán, því tilkynningar bárust um eitt til tvö hundr- uð á nóttu, Vasaþjófar voru sem mý á mykjuskán. Vikulega var launa- greiðslum fyrirtækja stolið eins og þær lögðu sig og ekki var um annað að ræða en nota brynvarða bíla og vopnaða verði, þegar flytja skyldi peninga milli staða. Bílþjófnaðir skiptu þúsundum. Ökumönnum var skipað að aka upp að gangstéttarbrúninni á fjölförnum stræt- um og þar voru þeir vægðarlaust rændir. Chicago virtist troðfull af glæpalýð, sem stöðugt átti í innbyrðis erjum og morðin gengu á víxl. Tvö hundruð og fimmtán slíkir féllu á fjórum árum. Á sama tíma féllu hundrað og sextíu glæpa- menn fyrir hendi lögreglunnar. Þessir bófar höfðu það að skemmtan sinni að skjóta samkomusali í rúst og kasta sprengjum sem nefndar voru „pine- apples.“ Þá æfðu þeir. fimi sína í meðferð vélbyssa í fáförnum bæjarhlut- um og óku stórum vörubílum á ofsa- hraða um miðborgina í trássi við öll umferðarlög. Þeir reigsuðu- um á al- mannafæri og hirtu varla um að fela skammbyssuna. Lögreglumenn, dómar- ar og aðrir sem halda áttu uppi lögum og reglu tóku við skipunum frá þeim. Þeim var óhætt að reiða sig á vini sína í dómsölunum og réttarhúsunum. Þá mátti líta á dýrustu veitingahúsunum og í óperunni, þar sem þeir leiddu konur sínar eða ástmeyjar, sem klæddar voru í dýrindis pelsa. Þeir héldu líka veglegar veislur, þar sem gestirnir gerðu sér það til gamans að skvetta kampavíni hverjir yfir aðra, þótt flaskan kostaði tuttugu dollara. Oft flugu þúsund tappar upp úr stútnum á einni nóttu. Bófarnir, vopnað- ir skammbyssum, rifflum og vélbyssum fylgdu flutningavögnum þeirra Torrios og A1 Capone út og suður og voru alls staðar fyrir augum manna, - nema í fangelsunum.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.