Tíminn - 18.12.1983, Síða 28

Tíminn - 18.12.1983, Síða 28
SUNNUDAGUR 18. DESEMBER1983 bridge umsjón: Guðmundur Sv. Hermannsson Lokið við sterku laufopnunina ■ I síðasta þætti var farið yfir laufopn- unina að hluta, þ.e. svar á 1 tígli og 1 hjarta og spaða og 2 laufum og tíglum. Hér verður farið yfir önnur svör og sagn- þróun eftir þau. Svar á 1 grandi 1 grand svarhandar við 1 laufi sýnir 8- 13 punkta og jafna skiptingu. Svarhend- in neitar einspili og 5-lit, með einni undantekningu: hún getur átt fimm hunda í laufi eða tígli. Með t.d. drottn- inguna fimmtu í tígli verður svarhendi að segja 2 tígla. Opnari hefur í raun um þrjár leiðir að velja. Sú fyrsta er að segja 2 lauf, sem er einskonar stayman og spyr um skiptingu svarhandar og styrk; hann getur sagt lit sem lofar þá 5-lit og sagnir halda eðlilega áfram; eða hann getur sagt 2 eða 3 grönd. Stayman Svör við stayman í þessari stöðu eru nokkuð flókin við fyrstu sýn en samt er tiltölulega auðvelt að læra þau þegar menn hafa séð kerfið: Þetta eru helstu svörin og þýðingar þeirra eftir sagnirnar 1 L71 Gr;2L: 2 tíglar: þessi sögn sýnir 4-lit i hjartaog 8-10 hápunkta. Hugmyndir með þessari yfirfærslu er að koma hugsanlegum hjartasamning í sterku hendina. Svarhendi getur verið með annan 4-lit og opnari spyr að því með því að segja 2 grönd. Svarhendi segir þá frá hliðarlitn- um sínum, annars segir hún 3 hjörtu með mjög góðan hjartalit eða 3 grönd. 2 hjörtu: 4-litur í spaða og 8-10 punkt- ar og neitar um leið 4-lit í hjarta. Opnari getur samþykkt spaðann með því að segja 2 spaða, og getur einnig spurt svar- hendi um 4-lit í láglit með því að segja 2 grönd. 2 spaðar: 8-10 punktar og neitar 4-lit í hálit. Opnari getur spurt um 4-liti í láglit með því að segja 2 grönd. 2 grönd: 11-13 punktar og sýnir ná- kvæmlega 3334 skiptingu. Opnari getur spurt um hvar 4-liturinn er með 3 laufum og svarhcndi segir 3 tígla með 4-lit í tígli, 3 hjörtu með 4-lit í hjarta, 3 spaða með 4- lit í spaða og 3 grönd með 4-lit í laufi. 3 lauf: 11-13 punktar, lofar 4-lit í laufi og öðrum 4-lit. Opnari getur spurt um hinn 4-litinn með 3 tíglum og svarhendi segir 3 hjörtu með 4-lit í hjarta, 3 spaða með 4-lit í spaða og 3 grönd með 4-lit í tígli- 3 tíglar: 11-13 punktar og sýnir ná- kvæmlega 4-lit í tígli og 4-lit í hjarta. 3 hjörtu: 11-13 punktar og sýnir ná- kvæmlcga 4-lit í hjarta og4-lit í spaða. 3 spaðar: 11-13 punktar og sýnir ná- kvæmlega 4-lit í spaða og4-lit í tígli. 3 grönd: 11-13 punktar og sýnir léleg- an 5-lit í laufi eða tígli. Opnari getur spurt um litinn með 4 laufum, og svar- hendi segir þá 4 tígla með 5-lit í tígli og 4 hjöru með 4-lit í laufi, Svar á 2 gröndum Þetta lofar jafnri skiptingu og a.m.k. 14 punktum. Opnari getur sagt 3 lauf sem er spurning um 4-liti hjá svarhendi. Svarhendi segir lægsta 4-lit sinn og næsti litur opnara er þá einnig 4-litur. Sagnir gætu gengið eitthvað á þessa vegu: 1L- 2Gr; 3L-3T (4-litur) 3H(4-litur)-3S(4- litur); 4S: samþykkt á spaða. f þessari stöðu eru 4 spaðar krafa um að minnsta kosti einn sagnhring þar sem öruggt er að spilararnir hafa a.m.k. 30 punkta saman. Svarhendi getur sagt 4 grönd með lág- mark (14-15 punkta) en að öðrum kosti segir hann frá fyrirstöðu. Opnari getur einnig sagt eðlilega eftir 2 grönd en það gildir sama regla að ekki má hætta sögnum fyrr en í fyrsta lagi í 4 gröndum. Þetta hefur þann kost að báðir aðilar geta notað 3 grönd sem biðsögn ef svo ber undir. Svör á 2H/S og 3L/T Ef það svarkerfi sem rakið hefur verið hér á undan er athugað, kemur í Ijós að ein tegund handa fellur ekki inn í það. Það eru hendur með skiptingunni 4-4-4- 1. í fyrstu útgáfum kerfisins voru þær af- greiddar með því að segja fyrst 1 tígul, afmeldingu, en segja síðan á eftir sagnir sem sýndu þessar hendur. Síðan hefur kerfið þróast og algengasta útgáfan nú er að stökkva í 2 hjörtu/spaða eða 3 lauf/ tígla, með þessar hendur eftir opnun á 1 laufi. Þetta eru þýðingar þessara stökkva og frekari sagnþróun: 2 hjörtu:8+ punktar og 1-4-4-4 skipting, með einspili í spaða. Opnari getur spurt um háspilapunkta (sbr. 1L- 1H; IGr.) með því að segja 2 spaða, einspil svarhandar. Svarhendi svarar háspilunum eins og eftir spurninguna á 1 grandi. Athugið að stakur kóngur et ekki talinn háspil. Opnari getur sleppt því að spyrja um háspil með því að segja einhvern annan lit eða grand og ganga sagnir þá eðlilega.. 2spaðar: 8+ punktarogeinspil ílaufi. Opnari spyr um háspil með 3 laufum. 3 lauf: + punktar og einspil í tígli. Opnari spyr um háspil með 3 tíglum. 3 tíglar: 8+ punktar og einspil í hjarta. Opnari spyr um háspil með 3 hjörtum. Svör á 3 hjörtum og 3 spöðum ■ Þessi stökk eru eiginlega hjálfjákvæð og sýna hendur sem hefði verið opnaðar á 3 hjörtum og 3 spöðum. Þessi svör sýna þannig 7-lit og undir 8 punktum, t.d.: A KD108643 G4 0 765 * 4 Ef andstæðingar segja Hér hefur þá verið farið yfir opnun á 1 laufi og svör við henni í hnotskurn, og um leið yfir Precisionkerfi í heild. Eftir er að ræða stöður sem koma upp þegar andstæðingar koma inn á sagnir. All- margar útgáfur eru til af því hvernig svar- hendi getur brugðist við ef andstæðingar trufla sterku laufaopnunina, enda hafa margir spreytt sig á að finna upp sérstök hindrunarkerfi til að skemma sem mest. Hérer ekki pláss til að ræða allar stöður sem hugsanlega geta komið upp eftir inn- ákomu andstæðinga yfir 1 laufi og því verður látið nægja að ræða möguleika ef andstæðingar segja eðlilega á fyrsta og öðru sagnstigi. Fyrsta reglan er sú að ef svarhendi á 8 punkta segir hún eins eðlilega og henni er unnt þó andstæðingarnir hafi komið innár. Ef félagi opna á 1 laufi og ands- tæðingur segir 1. hjarta, hefur spaðasögn svarhandar nákvæmlega sömu þýðingu og þó andstæðingurinn hefði ekki sagt. Opnari getur eftir sem áður spurt um háspil eða litinn ef hann vill. Aftur á móti á það ekki við er andstæðingur segir t.d. 1 spaða og svarhendi verður að segja 2 ■ í spilaþraut 8 spilar suður 3 grönd og vestur spilar út spaðasexu. Austur lætur kónginn og fær að halda slagnum, og hann spilar spaðafjarka til baka. Það virðast vera nógir slagir í spilinu en það er ekki alltaf allt sem sýnist. Hvernig á suðui að tryggja vinningí 3 gröndum? hjörtu: þá verður framhaldsagnaað vera eðlilegt. Með grandhendur getur svarhendi sagt eðlilega ef hún á stöðvara í lit ands- tæðingsins. Opnari getur eftir sem áður notað stayman og svarhendi svarar eðli- lega. Ef svarhendi á hinsvegar grand- hendi en ekki stöðvara í lit andstæðings- ins getur hún sagt litinn á öðru sagnstigi (1L-1H-2H) ogsýnt þannig 8-11 punkta, jafna skiptingu en neitar stöðvara í litnum. Ef svarhendi á ekki 8 punkta hefur hún um nokkrar sagnir að velja. Með 5-7 punkta getur hún doblað sögn andstæð- ingsins og gefur með því aðeins til kynna punktafjöldann, hún getur enn á 5-lit eða 6-lit í einhverjum lit. Eftir dobiið verður að halda sögnum opnum þar til a.m.k. 2 gröndum er náð. Með 0-4 punkta passar svarhendi ef andstæðingur kemur inná laufopnun. Ef andstæðingur doblar laufopnun getur svarhendi passað með 0-4 punkta og sagt 1 tígul með 5-7 punkta. Redobl gefur til kynna að svarhendi hafi ekkert á móti því að 1 lauf sé spilað. Ef andstæðingur kemur inn á öðru sagnstigi hækkar punktasvið doblsins upp í 6-8 punkta og passið sýnir þá 0-5 punktá. Þetta dobl er ekki til sektar. Ef andstæðingur kemur inn á 3 sagns- tigi lofar doblið a.m.k. 8 punktum og er til úttektar. Opnari segir þá sinn besta lit nema hann passi til sektar. í næsta þætti, sem verður hinn síðasti að sinni, verður farið yfir innákomur á aðrar opnanir og viðbrögð svarhandar við þeim. Svar við spilaþraut númer 7 A <? O 4 Norður A S. AD5 V H. G3 T.A95 * L.A10862 Vestur Austur S. 962 A S. K873 854 V H.7 T. K10864 O T. Dg732 L. KG 4 LD74 Suður A S.G104 V H. AKD10962 O T. - * L. 953 Suður spilar 6 hjörtu og fær tígulsexið út. Hver er besta leiðin til vinnings? Eðlilegasta leiðin er að stinga upp tígulás og henda laufi heima, og taka síðan laufaás og spila laufi. Ef austur fær þann slag, og laufið liggur 3-2, er spilið öruggt því austur getur ekki spilað spaða. Sagnhafi tekur þá næsta slag, spilar hjarta á gosann og trompar lauf hátt. Síðan tekur hann trompið, spilar spaða á ásinn í borði og tekur laufaslag- ina og hendir spöðum heima. Þessi leið gengur hinsvegar ekki ef spilin liggja eins og sést hér að ofan. Það er vestur sem tekur annan laufslaginn og spilar spaða og sagnhafi hefur engan annan kost en svína spaðadrottningu. Ef laufið liggur 3-2 getur suður unnið spilið, hvernig sem það liggur að öðru leyti, með því að láta tígulníuna í fyrsta slag og henda Iaufi í tíguldrottningu austurs. Ef austur spilar hjarta til baka tekur suður á ás heima og spilar laufi á ásinn í borði. Síðan hendir hann síðasta laufinu heima í tígulás, trompar lauf heim, spilar hjarta á gosann í borði og trompar lauf heim. Ef laufið liggur 3-2 er spilið unnið en ef það liggur 4-1 er spaðasvíningin enn í bakhöndinni.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.