Tíminn - 18.12.1983, Page 31

Tíminn - 18.12.1983, Page 31
SUNNUDAGUR 18. DESEMBER 1983 31 VFtRSYN Gæðin ofar öllu Mezzoforte/Yfirsýn/ Steinar ■ Einn af fremstu tóntistarviðburð- um ársins í ár verður að telja jólatón- leika hljómsveitarinnr Mezzoforte í Háskótabíói vegna þeirrar stöðu sem hljómsveitin hefur skipað sér ytra en nýlega gáfu þeir út þessa sjöundu plötu sína sem sýnir glögglega hvað er að gerast, og hvað hefur verið að gerast síðan þeir náðu fótfestu á aiþjóða- markaði. Upptökur þessarar plötu tóku tölu- verðan tíma, vegna anna híjómsveitar- innar í sumar en þeir fengu tvö af fullkomnustu hljóðverum Bretlands Power Plant og Mason Rouge til afnota við plötugerðina og leynir það sér ekki á hljóðrituninni og tæknilegri hlið plötunnar, þetta verður varla betra. Platan iniheldur 9 frumsamin lög og eru 5 þeirra eftir Friðrik, 3 eftir Eyþör og 1 eftir Kristin. Engar meiriháttar breytingar eru á þessari plötu frá síðustu plötum Mezzoforte, þeir halda áfram að fikra sig áfram með notkun bakradda en mjög varlega þó. Fyrsta lagið Miðnætursól er með bakröddum en þær eru þó mest áberandi í laginu Ferðafönk sem er eitt af bestu lögum plötunnar en þar sem eitt af aðals- merkjum Mezzo hingað til hefur verið hve vel þeim tekst að láta hljómborð/ synthesizer og saxafón fylla í þá eyðu sem röddin er á maður ekki von á að breyting verði á því í bráð. Öll lögin á plötunni eru í hraðari kantinum, drífandi djskófönk keyrsla og raunar er í fjarska eina verulega rólega lagið, falleg tregafull saxafón melódía en á hinum endanum eru svo lög eins og eina kunnuga lagið á plötunni Rockall. Upptökugæðin eru mikil eins og að framan greinir og gerir það manni kleift að hlusta á hvern einstakan í meðlim hljómsveitarinnar án verulegr- ar truflunar, þannig er hreint magnað að heyra hljómborðsleik Eyþórs á „Létt lag af hljómplötu" eða Friðrik á „Ferðafönk“ og svona mætti lengi telja, en upptökustjórn var í höndum Geoff Calver. - FRI EINN ...eða tveir Jóhann Helgason/ Einn/Steinar ■ Jöhann Helgason verður stöðugt betri með árunum og er hann nú tvímælalaust toppurinn í dægurlaga- bransanum hérlendis, auk þess sem hann hefur nýlega getið sér gott orð erlendis eins og f söngvakeppninni á írlandi fyrr í ár, en þessi síðasta sólóplata hans er það besta sem undir- ritaður hefur heyrt frá honum, hvergi feilnótu að finna á henni ef undan er skilið síðasta lagið „Game of love“ sem virkar mjög út úr fókus miðað við hin lög plötunnar. Fyrsta lag seinni hliðarinnar Take your time hefur átt nokkrum vinsæld- um að fagna á öldurhúsum/ og vinsældalistum borgarinnar enda fjörugt diskólag með hröðum og kröft- ugum hrynjanda en mörg lög af Einn eru vel í meðállagi danshæf eins og sagt er. Hljómsveitin á bak við Jóhann á þessari plötu er skipuð þeim Ray Russel, gítar, Andy Brown, bassi, Peter Van Hook, trommur, og Richard Cottel á hljómborð en auk þeirra þá leikur Louis Jardin á öll hljóðfæri í fyrsta laginu, Taik of the Town, eitt af betri lögum plötunnar og David Katz hefur yfirumsjón með málmblásurum að því er sagt cr á albúmi. Geoff Calver,(hver annar?) stjórnaði svo upptökum. Allur hljóðfæraleikur mjög vandað- ur og ekkert tii spárað til að það sem lagt er í þessa plötu skili sér sem best. Eftir að hafa hcyrt lög af þessari plötu eins og Shout in the Night, gott diskófönk-lag, þá værí gaman að heyra hvernig kokteillinn Jóhann/Mezzo- forte hljómaði en þar er Jóhann inn á svipuðum línum og Mezzoforte hefur verið á þótt þær hugleiðingar séu að sjálfsögðu öðrum þræði út í bláinn. Á heildina litið plata eins og aðdá- éndur kappans vilja hafa hana, éngin meiriháttar breyting frá.fyrri verkum en þær sem gerðar eru virka mjögt til bóta. _ FRj Plötur Kökur hverrar kynslóðar á fætur annarrar eru bestu meðmælin með KitchenAid Amma og mamma notuðu hana og svo áfram um ókomin ár n.(ann aniBÚíi 0SAMBANDSINS ÁRMÚLA3 SÍMAR 38900 - 38903 og kaupfélögin KitchenAid hrærivél Orginal hitalakið Norsk hitalök í sérflokki Sérstaklega gerð fyrir þá sem þjást af gigt, vöðvabólgu og fótkulda. Norsk sjúkrahús mæla með notkun hitalakanna. Halda hitanum jöfnum á veturna án rafmagns og eru svöl á sumrin. Þolir þvott við allt að 95 gr. hita. Höfum einnig sængur og kodda með undra efninu HOLLOFIL Vefnaðarvörubúðin Laugavegi 26 - Reykjavík - Sími 14974 (Áður Grundarstíg 2) Sendum póstkröfu Góð gjöf AIVt/fLISDAGABOK Fæstíbókabúðum PRENTSMIDJAN Þakjárn Notað þakjárn til sölu Selst mjög ódýrt Upplýsingar í síma 99-4455

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.