Tíminn - 31.01.1984, Síða 4
ÞRIÐJUDAGUR 31. JANÚAR 1984
4____ Wwmm
fréttir
Ávöxtun skyldusparnaðarins frá 1978 getur mest numið 917%:
VANTAR 24 MIUJÖNIR UFPAAB
FULLAR VERÐBÆ1UR StU GREIDDAR
krónum.
Endurgreiðslu verður þannig hagað
að 1. febr. verður opnaður sérstakur
sparisjóðSreikningur á nafni hvers
skyldusparanda frá 1978 í afgreiðslum
Landsbanka íslands. Reikningar þeirra
sem heima eiga á Stór-Reykjavíkur-
svæðinu verða í aðalbankanum í Reykja-
vík, en reikningar annarra í því útibúi
sem. næst er lögheimili þeirra 1. des. s.l.
Innistæður verða eigendum til frjálsrar
ráðstöfunar frá 1. febr., en bera ella
vexti almennra sparisjóðsbóka frá 2.
febrúar.
-HEI
■ Græddur er geymdur eyrir hjá
okkur, segja þeir hjá fjárinálaráöuneyt-
inu, sem nú þann 1. febrúar borga til
baka skyldusparnað þann sem lagður
var á töluverðan hluta skattgreiðenda
árið 1978 með rúmlega tífaldri sparnað-
arupphæðinni sem þá var innheimt. Ef
menn hefðu hins vegar t.d. keypt brenni-
vín hjá sölufyrirtæki fjármálaráðuneytis-
ins ÁTVR fyrir sparnaðarupphæðina
árið 1978, og geymdu það enn, hefðu
verðmæti þess ekki nema rúmlega sex-
faldast á geymslutímanum.
Verðbætur miðast við breytingar á
framværsíuvísitölu frá 1. jan. 1979 til 1.
jan. 1984 og geta mest numið 917 kr.
(917%) af hverjum 100 spöruðum krón-
um 1978 (10.000 gömlum krónum).
Heildarálagning skyldusparnaðar nam
22.496.234 nýkrónum, þannig að fullar
verðbætur ættu að nema 206.290.700
krónum. I lögunum ar hins vegar tekið
fram, að gjaldendur sem skulduðu enn
þinggjöld vegna ársins 1978 eftir 31. jan.
1979 fá ekki greiddar verðbætur fyrr en
næstu áramót eftir að þau gjöld voru að
fullu greidd. Samkvæmt þeim útreikn-
ingum eru verðbætur þær sem nú koma
til greiðslu því 182.348.797 kr., eða nær
24 milljónum króna lægri upphæð. Er það
því heldur hærri upphæð en upphaf-
legum skyldusparnaði nam, sem þar
vantar á fullar verðbætur, þ.e. ef allir
hefðu greitt sína skatta og skyldusparnað
á réttum tíma.
Þar sem dráttarvextir hafa vafalaust
verið reiknaðir á fyrrnefndar skattskuld-
ir var Höskuldur Jónsson, ráðuneytis-
stjóri í fjármálaráðuneytinu , spurður
hvort ríkið hafi í raun með þessum hætti
verið að tvíinnheimta dráttarvexti vegna-
skuldanna. Höskuldur sagði þarna ein-
ungis farið eftir lögunum. Ákvæðin væru
þau að sparnaðurinn byrjaði ekki að
táka á sig verðbætur fyrr en næstu
áramót á eftir að skuldin var að fullu
greidd.
Sú upphæð sem nú kemur til greiðslu
hjá fiármálaráðuneytinu nemur því
204.845.031 krónu alls, sem skiptist á
16.301 sparanda. Upphaflega álagður
skyldusparnaður var rúmlega 9,2 millj.
nýkróna á 2.869 félög og tæplega 15,5
miilj. nýkróna á 14.314 einstaklinga.
Það kemur út sem 1.081 kr. (108.100
gkr.) að meðaltali á hvern einstakling.
Með fullum verðbótum ætti sú upphæð
nú að endurgreiðast með 10.994
■ „Framkvæmdum við stöðina er að
Veltu bílnum
við eftir óhappið
■ Bíll af VW gerð valt á Vesturbergi,
rétt við verslunina Straumnes, síðdegis
á sunnudag. Tveir piltar voru í bílnum
og varð þeim ekki meira um óhappið en
svo að þeir veltu bílnum aftur á hjólin,
ýttu honum inn á húsagötu, og höfðu sig
síðan á braut.
Lögreglan kom skömmu síðar á stað-
inn og hóf leit að piltunum og fundust
þeir eftir nokkurn tíma. Grunut leikur á
að Bakkus hafi verið með í ökuferðinni.
GSH
Ölfusvegur:
Þriðja umferð-
arslysið
■ Allharður árekstur varð á Ölfusvegi
á móts við Hjalla á sunnudag þegar tveir
bílar rákust saman. Tvennt var flutt á
sjúkrahús en meiðsli munu ekki hafa
verið alvarleg.
Þetta er í þriðja sinn á stuttum tíma
sem umferðaróhöpp vérða á þessum
stað. Hellisheiðin hefur verið lokuð og
því er talsverð umferð um Ölfusveginn.
Að sögn lögreglunnar á Selfossi er
vegurinn mjór vegna ræsa, þar sem
óhöppin urðu, og ekki gerður fyrir mikla
umferð. GSH
verða lokið,“ segir Eyjúlfur í samtali við
hlaðið, en svona lítur fyrirhuguð laxeld-
isstöð við Apavatn út í dag.
Tímamynd - Hilmar
Laugalaxmálid:
Athugun
á lif-
Kvennaframboðið:
MÓTMÆUR FRÉTTAFUfTNINGI ÚTVARPS
AF AFGREIÐSLU FJÁRHAGSAÆTLUNAR
■ „Við viljum benda útvarpsráði á, eins og álykta mætti af fréttaflutningi
að af uin 160 breytingartillögum sem útvarpsins.
Iluttar voru, við fjárhagsáætlun
Reykjavíkurborgar, átti Kvennafram- „Af gefnu tilefni mótmælir Kvenna-
boðið 99“, segir m.a. í bréfi sem framboðið þeim fréttaflutningi sem
Kvcnnaframboðið hefur skrifað út- ríkisfjölmiðlarnir hafa stundað í
varpsráði. Sé því ekki svo að Kvenna- tcngslum við fjárhagsáætlun Reykja-
framhoðið hafi lítið haft fram_að færa víkurborgar fyrir árið 1984", segir í
við afgreiðslu fjárhagsáætlunarinnar, bréfinu. „Þessi fréttaflutningur hefur
Athugasemd Ernu Indriðadóttur, fréttamanns:
„RANGT AÐ KVENNAFRAMBOHNU HAFI
VERID GERT LÆGRA UNDIR HðFÐT’
ríki Apa-
vatns í
febrúar
■ „Við erum búnir að ganga frá því að
það verði gerð athugun á Apavatni núna
fyrri partinn í febrúar," sagði Eyjúlfur
Friðgeirsson stjórnarformaður Lauga-
lax, er Tíminn spurði hann í gær hvenær
athugun sú yrði framkvæmd sem Holl-
ustuvernd ríkisins og Náttúruverndarráð
mæltu með að yrði gerð á Apavatni,
áður en ákveðið væri hvort leyfð yrði
starfræksla laxeldisstöðvar við Apavatn.
Eyjólfur sagði að Náttúruverndarráð
hefði haft milligöngu um að fá mann til
þess að framkvæma þessa athugun, en
það væri Jón Olafsson hjá Hafrann-
sóknastofnun.
Eyjólfur sagði að ef niðurstöður rann-
sóknar Jóns yrði jákvæðar fyrir þá
Laugalaxmenn, þá gætu þeir hafið rekst-
urinn strax seinni partinn í febrúar.
Aðspurður hvort framkvæmdir við stöð-
ina væru ekki skammt á veg komnar
svaraði Eyjólfur: „Nei, þeim er að verða
lokið. Það vantar bara herslumuninn á
þær. Það stöðvuðust framkvæmdir fyrir
jól út af veðri, en við þurfum ekki langan
tíma til þess að ljúka framkvæmdum."
■ „Það er rangt að Kvennaframboð-
inu hafi verið gert iægra undir höfði í
fréttum útvarpsins en öðrum flokkum
minnihlutans í borgarstjórn“, segir í
bréfi sem Erna Indriðadóttir á frétta-
stofu útvarpsins hefur sent útvarpsráði
vegna bréfs Kvennaframboðsins.
Hún segir ennfremur: „1 minnihlut-
anum eru fjórir flokkar. Það gcfur
auga leið, að í stuttu fréttaíhnskoti er
ekki hægt að tala hverju sinni við
fulltrúa allra flokkanna fjögurra og
fulltrúa meirihlutans, þegar viðtal er
tekið vegna einhvers máls. Oftar en
ekki cr afstaða minnihlutaflokkanna
til mála mjög svipuð.
Ég hef í seinni tíð, reynt að skipta
þessu, og tala við fulltrúa minnihluta-
flokkanna á víxl, ásamt einhverjum úr
meirihlutanum. Val fulltrúa minni-
hlutaflokks hverju sinni, fer mikið
eftir því hvað hver hefur til málanna
að leggja á borgarstjórnarfundum. Það
cr rétt, að það var ekki talað við
einkennst af grófu misrétti gagnvart
Kvennaframboðinu, þar sem fulltrúum
þess hefur aldrei verið gefinn kostur á
að koma sjónarmiðum sínum og til-
lögum varðandi fjárhagsáætlunina á
framfæri*'. Bent er á að fulltrúar ann-
arra flokka hafi komið fram í sérstök-
um fréttaaukum og/eða þáttum um
þetta mál.m.a. hafi Davíð Oddssonog
fulltrúa Kvennaframboðsins í útvarpi,
vegna fjárhagsáætlunar. Það var held-
ur ekki talað við fulltrúa Alþýðu-
bandalagsins, né Alþýðuflokksins um
áætlunina. Þcgar fjárhagsáætlun var
lögð fram í desember síðast liðnum,
var greint ítarlega frá henni og við-
brögðum allra minnihlutaflokkanna
við henni. Við síðari umræðu um
áætlunina, í byrjun janúar, voru lagðar
fram fjölmargar breytingartillögur við
hana. í síðari kvöldfréttum, daginn
Sigurjón Pétursson ást við í tveim
sjónvarpsþáttum í röð án þess að aðrir
kæmu þar við sögu.
„Við væntuni þess, að héðan í frá
verði séð til þess, að sjónarmið
Kvennaframboðs fái að koma fram í
ríkisfjölmiðlum til jafns við önnur
þegar fjallað er um fjármál borgarinn-
ar“, segir í iok bréfsins.
sem umræðan fór fram, var einungis
drepið á þær allra helstu. Kvennafram-
boðið sat þar við sama borð og aðrir
flokkar. Umfjöllun um fjárhagsáætl-
unina lauk svo með því, að borgarstjóri
var fenginn til að ræða hana ásamt
Kristjáni Benediktssyní, Framsóknar-
flokki.
Þess má að lokum geta, að ég hef
cinnig verið gagnrýnd fyrir að draga
taum Kvennaframboðsiús, í umfjöllun
minni um borgarmál.'-.
-AB