Tíminn - 31.01.1984, Page 15
ítfft ’i
•.' > t í a v.. r; x i Jr ífJi æiwí
m
15
ÞRIÐJUDAGUR 31. JANÚAR 1984
smyaít®
LOKS NÍÐU
VALSMENN
AÐ VINNA!
lögdu Keflavík 92-69
í Seljaskólanum
■ Valsmenn unnu sannfærandi sigur
á Keflvíkingum, 92-69 í úrvalsdeildinni
í körfuknattleik, er liðin mættust í
Seljaskóla á sunnudagskvöld. Staðan i
hálfleik var 48-31 Valsmönnuin í vil.
Það var Ijóst strax í upphafi hvert
stefndi, því eftir aðeins 3 mínútur
höfðu Valsmenn náð 11 stiga forskoti,
13-2. Valsmenn héldu uppteknum
hætti og um miðjan háifleikinn var
staðan orðin 30-14. í hálfleik höfðu
Valsmenn síðan 17 stiga forskot 48-31.
Óþarfí er að rekja nákvæmlega gang
mála í síðari hálfleik, því hann var
keimlíkur þeim fyrri, sem sagt algjörir
yfirburðir Valsmanna, staðan um
miðjan síðari hálfleik var 73-49. Þegar
leiktímanum lauk höfðu Valsmenn
tryggt sér 23 stiga sigur 92-69.
Tímabær sigur
Valsmenn sem tapað höfðu hverjum
leiknum á fætur öðrum upp á síðkastið
og máttu muna sinn fífil fegri, höfðu
greinilega fundið fífilinn og lífgað
hann við, því þeir léku á als oddi í
leiknum og Keflvíkingar áttu aldrei
glætu í þá. Helst virðist sem viljinn til
að sigra hafi blossað upp meðal leik-
manna liðsins, en þann blossa hefur
skort að undanförnu. Bestu maður
Vals í þessum leik var bakvörðurinn
djarfi Tómas Holton, en Torfi Magn-
ússon og Kristján Ágústsson áttu einn-
ig góðan leik. Þá komust þeir Valdem-
ar Guðlaugsson og Jóhannes Magnús-
son ágætlega frá leiknum.
Erfitt framundan hjá ÍBK
Ef lið Keflvíkinga á að leika áfram í
úrvalsdeildinni, verða leikmenn þess
að leika betur en þeir gerðu í þessum
leik. Baráttan verður vafalaust hörð í
þeim leikjum sem eftir eru og ekkert
gefið eftir í botnbaráttunni.
Stig Vals skoruðu: Tómas Holton
20, Kristján Ágústsson,13, Torfi
Magnússon 11, Jóhannes Magnússon
11, Valdemar Guðlaugsson 10 Björn
Zöega 8, Leifur Gústafsson 8, Jón
Steingrímsson 6, Helgi Gústafsson 3
og Páll Arnar 2. Stig ÍBK skoruðu: Jón
Kr. Gíslason 18, Björn V. Skúlason
12, Óskar Nikulásson 11, Guðjón
Skúlason 10, Sigurður Ingimundarson
10, Þorsteinn Bjarnason 4, Pétur Jóns-
son 2 og Matti Stefánsson 2. -BL
Góður sigur
Gummersbach
- Alfreð skoraði 4 mörk - nýr
þjálfari hjá Gummersbach
- Frá Gísla Ágúst Gunnlaugssyni,
íþróttafréttamanni Tímans í V-Þýska-
landi:
■ Handknattleikslið Essen, lið
Alfreðs Gíslasonar, vann góðan og
öruggan sigur á V-Þýskalands- og
Evrópumeisturum Gummersbach
á hcimavelli sínum á sunnudaginn.
Leiknum lauk með sigri Essen
17-12, og var sá sigur aldrei í hættu.
Essen náði fljótlega góðu for-
skoti í leiknum, og staðan í hálfleik
var 8-4 Essen í hag. Við þennan
sigur skaust Essen upp í 3. sæti
deilarinnar. Alfreð Gíslason skor-
aði fjögur mörk fyrir Essen í
leiknum, öll úr vítaköstum. Mark-
verðir liðanna þóttu báðir eiga
snilldarleik, en leikurinn var nokk-
uð harður, þannig máttu leikmenn
Gummersbach hvíla í samtals 12
mínútur utan vallar.
Nýr þjálfari hefur nú tekið við
liði Gummersbach, Klaus Brand
að nafni. Hann var einn af bestu
máttarstólpum Gummersbach fyrr
á árum, en Herbert Wittchen, sem
þjálfað hafði liðið síðan í sumar,
sagði starfi sínu lausu síðastliðinn
föstudag. -GÁG/SÖE
■ Alfreð Gíslason skoraði 4 mörk í 17-12 sigri Essen á Gummersbach um
helgina. Essen á nú góðu gengi að fagna í v-þýsku Búndeslígunni í handbolta.
■ Besti maður Vals í leiknum á sunnudag, Tómas Holton, sækir hér djarflega að körfu Keflvíkinga. Til varnar er Pétur
Jónsson. Tómas skoraði 20 stig í leiknum, sem Valsmenn unnu örugglega 92-69.
_____ Tímamynd Árni Sæberg.
KR rauf sigur-
göngu Hauka
— Vesturbæingarnir unnu 81-75
■ Sigurganga Hauka í úrvalsdeildinni
í körfuknattleik var rofin á laugardag
þegar þeir fengu KR í heimsókn.
KR-ingar sigruðu 81-75 eftir að staðan
í hálfleik var 44-37 KR í vil.
„Það er mikil spenna því samfara að
vera í öðru sæti deildarinnar og þá
spennu þoldu strákarnir ekki“ sagði
Einar Bollason, þjálfari og leikmaður
Hauka. „Við vorum búnir að vinna 7
af síðustu 8 leikjum og það hlaut að
koma að því að við töpuðum. Svo
bætti heldur ekki úr skák að við
misstum Pálmar Sigurðsson út af strax
í upphafi síðari hálfleiks og munar um
minna,“ sagði Einarennfremur. Bestu
menn Hauka voru þeir Kristinn Krist-
KRISTJAN SIGRADI
— í þyngsta flokknum á
afmælismóti JSÍ
■ Fyrri hluti afmælismóts Júdósam-
bands Islands, fór fram á laugardag, í
íþróttahúsi Kennaraháskólans. Úrslit í
einstökum flokkum urðu sem hér segir.
60 kg.
1. Gunnar Jóhannesson UMFG
2. Guðmundur Sævarsson Ármanni
3. Kristján Svanbergsson UMFK
65 kg.
1. Rúnar Guðjónsson JR
2. Gunnar Jónasson Gerplu
3. Örn Arnarson Ármanni
71 kg.
1. Halldór Guðbjörnsson JR
2. Karl Erlingsson Ármanni
3. Rögnvaldur Guðmundsson Gerplu
86 kg.
1. Sigurður Hauksson UMFK
2. Magnús Hauksson UMFK
3. Sævar Kristjánsson Gerplu
95 kg.
1. Kristján Valdemarsson Ármanni
2. Arnar Marteinsson Ármanni
3. Runólfur Gunnlaugsson Ármanni
-BL
insson og Hálfdán Markússon.
KR-ingar léku vel í þessum leik og
voru vel að sigrinum komnir. Guðni
Guðnason átti bestan leik KR-inga en
þeir Jón Sigurðsson og Birgir Guð-
björnsson áttu einnig ágætan leik.
Stigahæstir KR-inga voru Guðni
Guðnason með 24 stig, Jón Sigurðsson
með 14, Garðar Jóhannesson með 14
og Birgir Guðbjörnsson með 12. Hjá
Haukum skoraði Kristinn Kristinsson
13, Hálfdán Markússon 13, Pálmar
Sigurðsson 11, Sveinn Sigurbergsson 10
og Einar Bollason 9, og aðrir skoruðu
minna.
-BL
Sfadan
■ Staðan í úrvalsdeildinni í körfuknatt-
leik eftir leiki helgarinnar er nú þessi.
Njarðvík-ÍR...........................83-72
Haukar-KR ............................75-81
Valur-Keflavík .......................92-69
Njarðvík..... 13 10 3 1048-966 20
KR .......... 14 8 6 1005-988 16
Haukar....... 14 8 6 1015-1025 16
Valur........ 14 6 8 1149-1089 12
Keflavík..... 13 5 8 854-969 10
ÍR........... 14 4 9 985-1030 8