Tíminn - 11.03.1984, Síða 9

Tíminn - 11.03.1984, Síða 9
SUNNUDAGUR 11. MARS 1984 9 STtwmm menn og málefni Meiri kauphækkanir ykju verðbólgu og atvinnuleysi Boginn spenntur til hins ýtrasta Það er ekki ofmælt hjá Steingrími Hermannssyni forsætisráðherra að með hinum nýja aðalkjarasamningi Alþýðusambands íslands og Vinnu- veitendasambands íslands hafi boginn verið spenntur til hins ýtrasta. Það má litlu muna, ef stórt verðbólguflóð á ekki að skella yfir að nýju. Samkvæmt þessum samningi mun kaupgjald í landinu verða 13% h ærra í byrjun næsta árs en það er nú. Meðaltalskauphækkun á þessu ári verður hins vegar ekki nema rúm 6-7%, þar sem engin hækkun verður tvo fyrstu mánuðina og síðan verða hækkanir í áföngum. Kauphækkunin á þessu ári verður þannig um þriðjungi meiri en ríkis- stjórnin gerði ráð fyrir, þegar gengið var frá fjárlögum fyrir árið. Þar var gert ráð fyrir 4% kauphækkun. Sú áætlun byggðist m.a. á því, að útsvarsbyrðin yrði ekki meiri á þessu ári en á árinu 1983. Frá þeirri reglu var hins vegar stórkostlega vikið, þegar gengið var frá fjárhagsáætlun Reykja- víkurborgar fyrir árið 1984. Eftir það var ljóst, að 4% reglan, sem ríkis- stjórnin vildi miða við, var úr sögunni. Það staðfesta líka nýju kjarasamning- arnir. Launþegar munu áreiðanlega segja, að þeir séu ekki miklu bættari með 6% meðaltalshækkun á árinu. Vissulega má færa það til sanns vegar, hvað hina launalægri snertir. Undir þeim kringumstæðum, sem nú eru, hefði hins vegar meiri kaup- hækkun ekki komið að notum. Á móti meiri hækkun hefði ekki aðeins komið meiri verðbólga, heldur stóraukin hætta á atvinnuleysi. Staðan í efna- hagsmálunum Af hálfu þeirra, sem láta óánægju í ljós yfir samkomulagi Alþýðusam- bands íslands og Vinnuveitendasam- bands íslands, er því m.a. haldið fram, að það sé ósigur fyrir verkalýðshreyf- inguna. Þeir, sem fella slíka dóma, gera sér ekki grein fyrir því, hvernig ástatt er í efnahagsmálum þjóðarinnar. Launakjör þau, sem menn nutu á árunum 1978-1982, byggðust að veru- legu leyti á erlendri skuldásöfnun. Hin erlenda skuldabyrði er nú orðin svo þung, að frekari skuldasöfnun myndi leiða til efnahagslegs ósjálfstæðis. Óhjákvæmilega hlýtur það að skerða kjörin að ekki er lengur hægt að lifa um efni fram á þennan hátt. Til viðbótar þessu kemur svo hinn mikli samdráttur þorskveiðanna, sem ekki verður bættur nema að litlu leyti með aukinni loðnuveiði, þarsem loðnu- verðið er líka fallandi. Erfiðlega horfir með sölu á skreið og saltfiski og fleiri sjávarvörum. Verðlag á Bandaríkjamarkaði fyrir frystan fisk helzt enn sæmilegt, en er þó fallandi. Þar vofir yfir, að dollarinn lækki og hefði það ófyrirsjáanlegar afleiðingar fyrir sjávarútveginn og raunar þjóðar- haginn yfirleitt. Þótt afkoma ýmissa atvinnufyrir- tækja hafi haldizt sæmileg, gildir það ekki um önnur. Þau standa mjög höllum fæti. Mjög hæpið er um sum þeirra, að þau standist þá kauphækk- un, sem búið er að semja um. Þess vegna má búast við að nokkurt at- vinnuleysi fylgi í kjölfar hinna nýju kjarasamninga. Mesti ósigurinn Þegar litið er á þessar forsendur allar, er það í meira lagi rangt að tala um samkomulagið milli Alþýðusam- bands íslands og Vinnuveitendasam- bands íslands sem ósigur fyrir Alþýðu- sambandið. Það hefði komið flestum umbjóð- endum þess verst, ef það hefði reynt að spenna bogann hærra. Óhjákvæmi- lega hefði þá meiri verðbólga fylgt í kjölfarið og gert að engu kauphækkun- ina hjá hinum launalægri og raunar meira til. Aukið atvinnuleysi hefði þá einnig komið til sögu með hörmulegum afleiðingum fyrir þá, sem við það þurfa að búa. Alþýðusamband íslands hefur því náð eins hagstæðu samkomulagi og frekast mátti vænta undir ríkjandi kringumstæðum. Þó er það ótalið, ef með þessu samkomulagi tekst að tryggja fullan vinnufrið. Það er enn ekki séð, hvort svo verður. Langflest félögin, sem hafa fjallað um samningana, hafa samþykkt þá, en nokkur tekið sér umhugsunar- frest. Aðeins þrjú hafa fellt þá, þegar þetta er ritað. Sennilega hugsa þau sig um oftar en tvisvar áður en þau efna til verkfalls. Við nánari athugun hljóta forustu- menn þeirra að gera sér ljóst, að eins og staðan er nú, gæti meiri kauphækk- un ekki leitt til annars en aukinnar verðbólgu og meira atvinnuleysis. Það yrði mestur ósigur fyrir alla hina kaup- lægri launþega, sem yrðu að þola aukna verðbólgu, og eiga atvinnuleys- isvofuna helzt yfir höfði sér. Vísitölukerfið og Alþýðubandalagið Nýju kjarasamningarnir, sem Al- þýðusamband íslands og Vinnuveit- endasambandið hafa orðið sammála um, eru að því leyti frábrugðnir fyrri samningum þessara aðila, að þar er sýnd markviss viðleitni til að hækka lægstu launin meira en hærri launin. Að því leyti hefur Ásmundur Stefáns- son markað sér sérstöðu meðal ís- lenzkra verkalýðsleiðtoga í seinni tíð, að hann hefur lagt mesta áherzlu á hækkun lægstu launanna. Þetta hefur alltof mikið gleymzt hjá fyrirrennurum hans, eins og raun ber líka vitni. Það er svo annað mál, að æskilegt hefði verið að láglaunin hefðu getað hækkað meira, eins og síðar verður vikið að. Það er óumdeilanlegt, að sá flokkur, sem ber höfuðábyrgð á þeim vaxandi launamun, sem hér hefur verið að myndast síðustu árin, og þó mest í tíð síðustu ríkisstjórnar, er Alþýðubanda- lagið. Alþýðubandalagið hefur öllum öðrum flokkum haldið fastar í það vísitölufyrirkomulag, sem mældi há- launamanninum margfaldar vísitölu- bætur á við láglaunamanninn. Það er þetta vitlausa fýrirkomulag, sem hefur aukið launamuninn meira en nokkuð annað. Það hefur markvisst fært hálauna- manninn upp á við og láglaunamann- inn niður á við. Það er ömurlegt dæmi um þessa afstöðu Alþýðubandalagsins, að í þau rúmlega þrjú ár, sem þeir Svavar Gestsson, Hjörleifur Guttormsson og Ragnar Arnalds sátu í ríkisstjórn, töldu þeir það ósköp eðlilegt, að þeir fengju margfalt meiri dýrtíðarbætur en Dagsbrúnarmaðurinn. Ólafur Ragnar Grímsson var heldur ekki feiminn við það sem alþingismaður og prófessor að taka á móti margföldum dýrtíðarbótum á við Dagsbrúnar- manninn. Þessum félögum fjórum fannst það þannig sjálfsagður hlutur að þeir væru( metnir margfalt á við Dagsbrúnarmanninn. Gagnrýni Tímans Til þess að draga athygli frá þdssari ósvinnu og ósvífni, hefur Þjóðviljinn i ■ Guðmundur J. Guðmundsson. reynt að beina árásum á Tímann. Tíminn hafi gleymt því að hugsa um láglaunafólkið. Forustugreinar Tím- ans frá liðnum árum vitna þó vissulega um allt annað. Ekkert annað blað hefur deilt eins harðlega á hið vitlausa vísitölukerfi og Tíminn. Hvað eftir annað hafa birzt útreikn- ingar í forustugreinum Tímans, sem sýndu fram á, að þær vísitölubætur, sem láglaunamenn fengu, nægðu alls ekki til að vega gegn vaxandi dýrtíð, á sama tíma og menn eins og Svavar, Hjörleifur, Ragnar og Ólafur Gríms- son fengu stórar upphæðir umfram það sem dýrtíðaraukningunni næmi. Enginn stjórnmálamaður hefur lagt meiri áherzlu á það að undanförnu en Steingrímur Hermannsson, að það svigrúm, sem nú væri til launahækk- ana, yrði fyrst og fremst látið koma láglaunafólki til góða. f stað þess er hlutur þess hækkaður lítillega, sem vert er þó að meta, en 5% hækkunin látin ná upp úr. Þetta er ekki sú stefna, sem Framsóknarflokkurinn hefði helzt kosið. Það var mikil ólga á Dagsbrúnar- fundinum á dögunum. Hún þarf ekki að koma á óvart. Hún hlaut fyrr en síðar að koma upp á yfirborðið eftir að Alþýðubandalagið er áratugum saman búið að viðhalda þeirri reglu, að há- launamaðurinn fái margfaldar bætur á við láglaunamanninn. Leiðir Alþýðu-, bandalagsins og Dagsbrúnar hafa sannarlega ekki legið saman. Klofningurinn í Alþyöubandalaginu Það hefur kontið glöggt í ljós á undanförnum misserum. að mikill tví- skiptingur ríkti t röðum forustuliðs ■ Ásmundur Stefánsson. Alþýðubandalagsins. Annars vegar voru fulltrúar verkalýðshreyfingarinn- ar, hins vegar hópur svokallaðra menntamanna, sem slitnað hafði úr tengslum við alþýðuna í landinu, en telja sig þó sjálfkjörna vegna gáfna og menntunar til að segja verkalýðsleið- togunum fyrir verkum. Þessi klofningur í forustusveit Al- þýðubandalagsins hefur sjaldan komið betur í Ijós en í sambandi við kjara- samningana nú. Langflestir verkalýðsleiðtogar í flokknum hafa gert sér fuila grein fyrir því, hvernig ástatt er í efnahagsmálum þjóðarinnar. Á þessu stigi yrði ekki hægt að endurheimta kaupmáttinn eins og hann var mestur, því að tilraun í þá átt myndi enda með nýju verðbólgu- flóði og stórauknu atvinnuleysi. Leiðina til að ná þessu marki yrði að fara í áföngum og hún yrði því aðeins fær, að hægt væri að auka og bæta framleiðsluna. Verkalýðshreyfingin yrði í samræmi við það að reyna að hafa þau áhrif á atvinnurekendur og stjórnarvöld að markvíst yrði stefnt að aukinni og fjölþættari atvinnustarf- semi. í samræmi við þetta yrði að miða kröfugerðina við það, að boginn yrði ekki spenntur of hátt. Nú væri um varnarbaráttu að ræða. Launþegár yrðu sjálfir verst úti, ef afleiðingin yrði aukin verðbólga og atvinnuleysi. Menntamannahópurinn í Alþýðu- bandalaginu hafði önnur sjónarmið. Markmið hans var að nota verkalýðs- hreyfinguna í pólitískri valdabaráttu Alþýðubandalagsins. Ríkisstjórninni yrði að misheppnast í baráttunni við verðbólguna. Þannig yrði að reyna að bæta taflstöðu Alþýðubandalagsins. Dagsbrúnar- fundurinn Það er flestum verkalýðsforingjum 'innan Alþýðubandalagsins til lofs, að þeir létu ekki blekkjast af þessum áróðri menntamannahópsins. Þeir tóku ábyrga og raunhæfa afstöðu undir forustu Ásmundar Stefánssonar. Þannig náðu þeir fram eins miklu og frekast var mögulegt undir núverandi kringumstæðum, ef ekki átti að efna til meiri verðbólgu og atvinnuleysis. Einn af hinum öldnu verkalýðsleið- togum Alþýðubandalagsins, Guð- mundur J. Guðmundsson, hlustaði þó um of á málflutning þeirra Svavars Gestssonar og Ólafs Ragnars Gríms- sonar. Hann klauf sig frá meginþorra vcrkalýðsleiðtoganna, sem unnu að gerð nýju kjarasamninganna. Það sýndi sig þó á fundi Dagsbrúnar 23. febr. sl. að Guðmundur J. ætlaði að fara frekar hóflega í sakirnar. Hann deildi að vísu hart á Ásmund Stefáns- son og félaga hans fyrir áhugaleysi og deyfð. Ætlun hans var ekki að láta fella nýja kjarasamninginn, heldur gagnrýna vissa þætti hans og óska eftir frekari viðræðum við atvinnurekendur í samræmi við það. Hér stóð Guðmundur J. Guðmunds- son nokkurn veginn í svipuðum spor- um og Héðinn Valdimarsson, þegar hann var að keppa við kommúnista í Dagsbrún á sínum tíma. Hann gerði yfirboð, en kommúnistar gerðu enn meiri yfirboð og fengu þau samþykkt, því að Héðinn var óbeint búinn að undirbúa jarðveginn. Pétur Tyrfingsson lék hér nákvæm- lega sama leikinn. Hann gekk á lagið og flutti tillögu um að fella samninginn. Eftir ádeiluræðu, sem Guðmundur var búinn að halda, var tæpast annað fyrir hann að gera en að sætta sig við forustu Péturs. Sú varð líka niðurstaðan. Eftir þessa afgreiðslu málsins á Dagsbrúnarfundinum er erfitt að dæma um hver afstaða Dagsbrúnar kann að vcrða. Boðskapur Guðmund- ar eftír fundinn var þessi: Verum harðir - en yfirvegaðir og rólegir. Bersýnilegt er, að Guðmundur er hér að leita að útgönguleið. En ræður hann ferðinni lengur? Hann er búinn að láta menntamannahópinn teyma sig langt. PéturTyrfingsson, Ólafur Ragn- ar Grímsson og Svavar Gestsson segja nú líkt og maðurinn forðum: Nú get ég. Þáttur ríkisins Það er Ijóst, að samkomulag hefði ekki náðst milli aðila vinnumarkaðar- ins, ef ríkisstjórnin hefði ekki komið til aðstoðar og fallizt á að auka veru- lega framlag ríkisins til að bæta kjör þeirra, sen lakast eru settir. Þetta sannar réttmæti þess, sem Framsóknarflokkurinn hefur haldið fram, að ríkið verður að hafa hönd í bagga við gerð kjarasamninga. Aðilar vinnumarkaðarins einir eru ekki færir um að leysa þessi mál svo vel sé. Þetta þýðir, að ríkið verður í vax- andi mæli að fylgjast með gerð kjara- samninga og hafa afskipti af þeim beint og óbeint. Það verður að beita áhrifum sínum til aukinnar jöfnunar og gæta hlutar þeirra, sem lakast eru settir. Þórarinn rn Þórarinsson, Í5É' 1 ritstjóri, skrifar:

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.