Tíminn - 12.04.1984, Page 20
Opið virka daga
9-19
Laugardaga 10-16
HEDD”
Skemmuveg' 20 Kopavogi
Simar (91)7 75 51 4 7 80 30
Varahlutir
Mikiö úrval
Sendum um land allt
Ábyrgö á öllu
Kaupum nýlega
bíla til niðurrifs
5AMVINNU
TRYGGINGAR
&ANDVAKA
ARMULA3 SIMI 81411
w
abriel
HÖGGDEYFAR
(JJvarahlutir .SST’
Ritstjorn 86300 - Auglýsingar 18300 - Afgreiðsla og áskrift 86300 - Kvöldsimar 86387 og 86306 Fimmtudagur 12. apríl 1984
■ Hvaða fólk cr þetta? Ekki eru þetta íslendingar, og ekki heldur útlendingar. Þetta Verkin eru eftir norska listakonu, Gitte Dahlin að nafni og eru til sýnis á
eru listavcrk. Verkið með manninum við spilakassann heitir Núllið, og hitt heitir Hún Kjarvalsstöðum á sýningunni Borealis.
her með sér minninguna um jörðina. Hvert ber jörðin hana?, hvorki meira né minna.
RÍKISVÍXLAR
SELDIR FYRIR
28 MILUÓNIR
■ Alls23vildukauparíkisvíxla
samtals að upphæð48,5 milljónir
króna í 2. útboði þeirra sem
tilboð voru opnuð í gær, þannig
að færri fengu en vildu. í boði
voru ríkisvíxlar að upphæð 30
milljónir króna.
Tilboðum var tekið í víxla að
upphæö samtals 28,5 milljónir
að nafnvirði, fyrir samtals
26.901.650 kr. kaupverð. Jafn-
gildir það 25,97% meðalárs-
vöxtum reiknuðum eftir á, að
sögn fjármálaráðuneytisins. Til-
boðin sem tckið var voru á bilinu
470.900 krónur til 475.000 kr.
íyrir hvert 500.000 króna víxla-
sett. Næsta útboð er fyrirhugað í
fyrrihluta maímánaðar.
- HEI.
Guðrún Á Símonar
KEMUR FRAM
EFTIR
TVEGGJA
ÁRA HLÉ
■ Guörún Á. Símonar, ó-
pcrusöngkona. hefur ckki ver-
ið mikið sviðsljósinu undanfar-
ið, enda ekki komið fram um
tveggja ára skeið. Það þýðir
þó ekki aó hún sé hætt aö
syngja opinberlega því að í dag
klukkan 17.00 nfun hún koma
fram fyrir gesti á „smáiðn-
sýningu" í Álafossbúðinni við
Vesturgötu. Með henni verður
pianóleikari og hyggst söng-
t konan sýna að hún hefur engu
gleymt þau tvö ár sem rödd
hennar hefur ekki heyrst.
SKATTUR A
FERÐAGJALD-
EYRIENDAN-
LEGA AF-
NUMINN NÚ
■ Fjögur lagafrumvörp voru
afgrcidd scm lög frá Alþingi í
gær. Þrjú þeirra eru staðfesting
á bráðabirgðalögum. Hið fyrsta
þcirra cr frumvarp um fjármála-
ráðstafanir til verndar lífs-
kjörum, cn bráðabirgðalögin
voru sett 27. maí s.l. í sambandi
við efnahagsráðstafanirnar scm
þá voru gerðar. í þessurn bráða-
birgðalögum var tekjuskattur
lækkaður. Lífeyrir og tekju-
trygging var hækkuð svo og
barnabætur. 150 millj. kr. var
varið til jöfnunar og lækkunar
hitunarkostnaðar og ríkisútgjöld
voru lækkuð um 300 millj. kr.
Staðfest voru bráðabirgðalög-
in um niðurfellingu og endur-
greiðslu stimpilgjalda af íbúðar-
húsnæði frá 6. sept. s.l.
Og enn voru staðfcst bráðá-
birgðalögin um afnám álags á
ferðamannagjaldeyri frá 29. júlí
s.l.
Frumvarp um gleraugnafræð-
inga varð að lögum og er þar
kveðið á um réttindi og skyldur
þeirra sem selja og vinna gler-
augu og skilgreining gerð á
starfssviði þeirra og lækna.
-OÓ
„Silkitromman“ ný finnsk ópera frumsýnd í Helsingfors:
GERD EFTIR SÖMU SÖGU OG
SILKITROMMA ATLA HEIMIS
„fengum hugmyndina óháð hvor öðrumj' segirAtli en hann er skólabróðirog kunningi finnska tónskátdsins
■ „Við Heinincn lærðum á
sínum tíma saman við Tónlistar-
háskólann í Köln og höfum alla
tíð haldið kunningsskap síðan
og fylgst hvor meðöðrum. Hann
er afskaplega bókmenntalega
sinnaður maður og eitt sinn er
hann heimsótti mig á íslandi
sátum við saman heilt kvöld og
ræddum aðeins um hugsanleg
efni til að gera óperur við. Síðan
liðu nokkur ár og þá komumst
við að því að við höfðum báðir
fyrir milligöngu kunningja byrj-
að að gera ópcru eftir sama
efninu. japanska leikritinu um
silkitrommuna," sagði Atli
Hcimir Sveinsson tónskáld í
spjalli við blaðið í gær. Tilefnið
var að það vakti athygli blaða-
manns er hann var i boðsferð í
Finnlandi á dögunum að meðan
á dvölinni stóð var frumsýnd í
Þjóðaróperunni í Helsingfors
ópera eftir Paavo Heininen, sem
ber nafnið Silkitromman, og af
blaðafregnum var Ijóst að til
grundvallar lá sami efniviður og
lá til grundvallar óperu Atla
Heimis með sama nafni.
„Nei, það hefur engin stolið af
neinum í þessu efni, sagði Atli.
Við leggjum gjörólíkan skilning
í efnið, við Örnólfur Árnason
settum söguna í nútímabúning,
létum óperuna gerast í tísku-
heimi samtímans, en ópera
Heininens gerist í Japan á 14.
öld eins og upphaflega leikritið.
Ég get bætt því við að ég var eitt
sinn á ferð í Finnlandi og heim-
sótti þá Heininen þar sem hann
býr, rétt fyrir utan Helsingfors
og var þá með nóturnar að minni
Silkitrommu í töskunni og vildi
'sýna honum. En það vildi hann
ekki, „ekki fyrr en ég er búinn
með mína," sagðLhann.
Það var reyndar talað um það
á sínum tíma að þessar tvær
óperur yrðu frumsýndar saman,
en af því varð ekki, ég lauk við
mína óperu á undan og vildi að
hún yrði frumsýnd hér heima,"
sagði Atli Heimir og lét í ljós
ánægju yfir þeim tíðindum að
Silkitromma Heininens hefði
fengið frábæra dóma finnskra og
sænskra gagnrýnenda.
-JGK
dropar
Notaðir þú
nafnið mitt?
■ Tveir sölumenn á
ferðalagi þurftu að leita
næturskjóls á bóndabýli
vegna vélarbilunar. Hús-
freyjan var falleg ung
kona, nýorðin ekkja.
Nokkrum mánuðum
seinna vék annar sölu-
mannanna að þessari
nóttu við félaga sinn:
„Segðu mér, ekki vænti ég
að þú hafír læðst inn til
ekkjunnar þarna um nótt-
ina?“
„Jú“, svaraði hinn, „það
gerði ég raunar.
„Ekki vænti ég að þú
hafír einnig notað mitt
nafn?“
„Jú, ég gerði það, mér
þykir það leitt.“
„Það þykir mér ekki.
Ég var að fá bréf frá
lögfræðingnum hennar.
Hún er látin og arfleiddi
mig að öllum eignum
sínum.“
„Guð blessi
kjaftshöggið“
■ Löðrungurinn hans
Árna Johnsens alþingis-
manns hcfur orðið upp-
spretta ýmissa viðbragða
eins og komið hefur fram í
Dropum undanfarið. Ný-
lega heyrðu Dropar af við-
brögðum forstöðumanns
sértrúarsafnaðar hér i
höfðuðborginni, sem hef-
ur það m.a. sér til ágætis
að vera Eyjamaður, en
honum mun hafa orðið
eftirfarandi að orði þegar
tíðindin lágu fyrir: „Guð
blessi Árna fyrir kjafts-
höggið.“
Hagyrðingi datt þessi
vísa í hug þegar hann frétti
um lögðrunginn, og hafði
þá jafnframt í huga hálf-
tímaræðu þingmannsins
um konubrjóst í þing-
sölum nokkru áður:
Hann Árni tók viðbragð
að vonum,
því víst er hann hrifínn af
konum,
svo ruddist það fram,
gramm fyrir gramm,
allt brjóstvitið sem
blundaði í honum.
Krummi ...
... sér að nemendur geta
farið að hlakka til liausts-
ins strax.