Tíminn - 23.02.1986, Side 13

Tíminn - 23.02.1986, Side 13
Sunnudagur 23. febrúar 1986 Tíminn 13 Giftu sig um borð í svifflugvél Fyrir nokkrum dögum átti sérstað óvanaleg giftingarathöfn á Nýja Sjá- landi. John Phillips og Carolyn Smith giftu sig í svifflugvél í tæplega þrjú þúsund feta hæð yfir fjallinu Maunganui við norðurströnd Nýja Sjálands. Presturinn sem athöfnina fram- kvæmdi var í annarri svifflugvél skammt frá en talstöðvarsamband var á ntilli farkostanna en vottar voru börn þeirra Carolyn og Johns frá fyrra hjónabandi. „Það hefur blundað í mér að gifta mig á þennan hátt síðan ég fór að velta giftingum fyrir mér." segir John. „Mér tókst ekki að fá þessu framgengt í fyrra skiptið sem éggifti mig en þegar ég færði þetta í tal við Carolyn þá varð hún stórhrifin af hugmyndinni og við létum verða af þessu ogsvífum nú á vit hamingjunn- ar." Þær vildu eign- ast barn Á dögunum leysti erkibiskup kan- adisku anglikana-kirkjunnar tvær dí- akonessur frá störfum, þar sem þær voru í lesbisku ástarsambandi og önnur þeirra þunguð í ofanálag. Höfðu konurnar skýrt frá hvernig högum þeirra var háttað og þeirri löngun sinni að eignast barn. Erkibiskup kirkjunnar, Lewis Garnsworthy í Toronto, sem sagði diakonessunum upp þjónustunni, sagði að sú athygli sem málið hefði vakið væri kirkjunni til hneisu. Anglikanakirkjan í Kanada, sem er óháð bresku biskupakirkjunni, leyfir að þjónar hennar séu kyn- hverfir, en ekki að þeir stundi neins konar ástalíf. í kirkjunni eru 900 þúsund manns og er þetta þriðja fjöl- mennasta kirkjudeild í Kanada. Erkibiskupnum barst tilkynning um málið eftir að diakonessan Joyce Barnett hafði lýst því yfir við guðs- þjónustu í kirkju í Toronto að hún væri þunguð vegna gervifrjóvgunar og langaði sig og stöllu sína að eiga barn og ala upp. í tilefni 100 ára afmælis Landsbankans á þessu ári hefur stjórn bankans ákveðið að gera sparifjáreigendum freistandi afmælistilboð: 100 ára afmælisreikningurinn er verðtryggður innlánsreikningur sem gefur 7,25% ársvexti umfram vísitölu og er aðeins bundinn í 15 mánuði. Þetta er tilboð sem allir peningamenn geta mælt með. _ . _ . . m Landsbanki íslands Banki allra landsmanna

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.