Tíminn - 23.02.1986, Page 18
18 Tíminn
Sunnudagur 23. febrúar 1986
Hlaðvarpinn:
„Okkurvantarpening"
Frá hátíðahöldum á s.l. sumri.
- segja konurnar sem mikið vantar til þess að endar nái saman varðandi húsakaupin
Eins og kunnugt er festu konur
kaup á þremur húsum við Vestur-
götu í Reykjavík á síöastliðnu ári.
Hér er auðvitað átt við ' Hlaðvarp-
ann þar sem meiningin er að reka
menningarmiðstöð kvenna.
Við fórum á stúfana til að kynna
okkur starfsemina og hittum þar að
máli Bergljótu Gunnarsdóttur sem
er framkvæmdastjóri Hlaðvarpans.
Þegar húsin voru keypt í júní s.l.
kostuðu þau níu milljónir en illa hef-
ur gengið að fjármagna kaupin þótt
ríkið hafi styrkt fyrirtækið og veitt
því tvær milljónir. Hlaðvarpinn hef-
ur fjármagnað starfsemina með
hlutabréfum sem kosta 1000 kr.
hvert og eru hluthafar rúmlega þrjú
þúsund nú en hefðu þurft að vera níu
þúsund ætti dæmið að ganga upp.
Konur búast varla við því að geta
greitt húsin fyrir júní á þessu ári en þá
á húseignin að vera fullgreidd. Berg-
ljót sagði að í framtíðinni yrði þarna
leikhús og svo væri gert ráð fyrir
tónlistaraðstöðu, veitingahúsi og
vinnustofum margskonar. Einnig
eru uppi hugmyndir um að leigja út
húsnæði tímabundið fyrir konur
sem vildu vinna við allskonar listir.
Ætla konurnar einnig að leigja eitt
húsið næstu árin til að drýgja tekj-
urnar cn ætlunin er að lokið verði við
að gera upp húsin eftir 5-10 ár. Þær
eru nú þegar búnar að koma upp svo-
litlu leikhúsi þar sem Kjallara-
leikhúsið er að sýna Reykjavíkur-
sögur Ástu og þær sýningar hafa
gengið mjög vel og er búið að sýna
leikritið rúmlega 70 sinnum fyrir
nærri fullu húsi. Mezzoforte var svo
með eitt jazzkvöld sem gekk ntjög
vel og vonast þær til að þau verði
fleiri. Öll vinnan við húsin er sjálf-
boðavinna en á skrifstofu er einn
fastráðinn starfsmaður.
J.E.T. (í starfskynningu).
Elísabet, Jónheiður og Theodóra eru nemendur í Grunnskólanum á Sauðár-
króki. Þær unnu sem blaðamenn á Tímanum í eina viku og skrifuðu meðal
annars þá samantekt sem hér fylgir.
Lausn á síðustu krossgátu