Tíminn - 16.03.1986, Page 11

Tíminn - 16.03.1986, Page 11
Tíminn 11 á einstökum Einstakt HÓTEL úpuvík á Ströndum hefur hópur duglegs og kjarkmikils fólks reist nýtísku hótel þar sem áður var síldarbraggi. Framtakssamur hópur fólks hef- ur tekið sig til og komið upp hóteli norður á Djúpuvík á Ströndum. Síðastliðið sumar komu þangað um 2000 gestir og Ásbjörn Þorgils- son einn af eigendum hótelsins segir að töluvert sé um fyrirspurnir og pantanir fyrir næsta sumar. Staðurinn er að sjálfsögðu fræg- astur fyrir síldarverksmiðjuna sem þar var byggð á árunum 1934 og 1935. Þessi eyðilegi staður varð á ör- skammri stund eitt helsta síldar- plássið á landinu en þegar síldin hvarf fluttist fólk í burtu og eftir stóðu hús og mannvirki og biðu þess að verða vindi og veðrum að bráð. Djúpavík komst síðan aftur í heimspressuna á íslandi í sambandi við svikamál sem nefnt hefur verið „sölumannamálið“. Bíræfnir sölu- menn keyptu aðstöðuna og seldu sjálfum sér hana aftur og notuðu víxla sem búnir voru til í þessu skyni til að svíkja fé út úr fólki. Hlutafélag, sem nefnist Magnús Hannibalsson, eignaðist síðar húsin og verksmiðjuna á Djúpuvík og réðst í að gera upp eitt húsanna fyrir hótelrekstur og fyrirhugar að koma af stað fiskeldi í verksmiðjuhúsinu í framtíðinni. Petta er eins konar fjölskyldufyrir- tæki hjá okku^segir Ásbjörn Þorgils- son en móðurætt Ásbjörns bjó um tíma í Djúpuvík og afi hans sem fyrirtækið heitir í höfuðið á var for- maður á hákarlaskipi sem gert var út frá Djúpuvík. „Við getum tekið á móti 70 manns í mat og 20 í næturgistingu," segir Ásbjörn sem telur að löngu sé kom- inn tími til að dreifa ferðamanna- þjónustunni víðar um landið en nú er gert. Ýmsir staðir hér í Strandasýslu hafa upp á margt að bjóða sem ferða- menn eru að sækjast eftir. Hrikaleg og sérstök náttúra auk vegsum- merkja horfinna kynslóða eru meðal þess sem hér má finna og það er það sem við höfum í hyggju að gefa ferðamönnum kost á að uppgötva. Hér er sannarlega margt að sjá og þeir voru margir sem komu við sögu þegar útgerð og síldarsöltun var hér í blóma og margir þeirra heimsóttu okkur í fyrra eftir að hótelið var opnað. Útlendingar hafa einnig sýnt þessu mikinn áhuga enda fá hótel í heimin- um sem geta státað af svipuðum að- stæðum og hótelið okkar. Við leggjum áherslu á góðan mat og reynum að nýta þá matarkistu sem Strandirnar eru. Sjófugl, fiskur, egg og ber eru ofarlega á matseðlin- um og fólki gefst einnig tækifæri á að komast sjálft í veiði því hér er mikill og góður sjóbirtingur og góður veiði- staður í fjörunni niður af hótelinu. Fjöllin í kringum okkur eru kjörin til gönguferða og þegar skyggni er gott má sjá gríðarlega borgarísjaka sem rekið hafa frá Grænlandi og jafnvel landið sjálft í hillingum. Það sem einu sinni var síldar- braggi er nú orðið hið glæsileg- asta hótel. Vel hefur tekist til varðandi allar innréttingar en hótelið rúmar 20 næturgesti og getur auðveldiega tekið á móti 70 manns í mat. Frá Háafelli sem líka er nefnt fjall hinna sjö sýslna má sjá til sjö sýslna í landinu og eyðifirðirnir hér í kring hafa einnig mikið aðdráttarafl fyrir þá sem hafa gaman af sérstæðri nátt- úru.“ Vegasamgöngur eru erfiðar en þó er Djúpavík í vegasambandi við Bjarnarfjörð en vegurinn er lokaður eina sjö mánuði á ári vegna snjóa. Hótelið hefur yfir að ráöa skipi en sigling að Gjögri tekur aðcins um 45 mín. ogþaðan er flug tvisvar í viku til Reykjavíkur. Ásbjörn og samstarfsfólk hans notuðu svokallaðan kvennabragga undir hótelið en þar bjuggu fyrr á öldinni tugir síldarstúlkna. Ásbjörn sagði að á síðasta sumri hefðu komið hjón sem kynntust á sínum tíma á Djúpuvík og svo skemmtilcga vildi til að þeim var úthlutað sama hcr- berginu og konan hafði búið í hálfri öld áður. Það eru ýmsir skemmtiiegir munir og tæki sem hafa komið í ljós við hreinsunina á staðnum. Sumar vél- arnar í verksmiðjunni mundu sóma sér vel á tæknisöfnum og á staðnum er gamall vörubíll af Ford gerð frá árinu 1931 svo eitthvað sé nefnt. Það er óhætt að fullyrða að á Djúpuvík er sérstæður gististaður. Þeir sem vilja ferðast um staði sem ekki eru í alfaraleið ættu að geta fundið þuð sem þeir sækjast eftir á Djúpuvík. Sunnudan'ir 16. mars 1986 Séð út Reykjarfjörð. Djúpavík þótti einkar hentugur síldarsölt- unarstaður vegna þess hve hlíðin er skuggsæl. Gamall bátur í fjörunni minnir á þau umsvif í útgerð og fiskveið- um sem einu sinni áttu sér stað á Djúpuvík. Sumarið 1937 voru brædd hér tæp 30 þúsund tonn af síld og saltað í um 11 þúsund tunnur.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.