Tíminn - 18.03.1986, Qupperneq 13
Þriðjudagur 18. mars 1986
ÍíllNÍÍiilÍ MINNING ^iilll
Tíminn 13
Fæddur 24. febrúar 1910
Uáinn 7. inars 1986
Erlendur Guðmundsson, bifreiða-
stjóri hjá Mjólkursamsölunni í
Reykjavík lést á sjúkrahúsi í
Reykjavík 7. ntars sl. 76 ára gámall
en hann hafði átt við mikla vanheifsu
að stríða síðustu árin.
Erlendur föðurbróðir minn var
fæddur24. febrúar 1910 í Jaðarkoti í
Flóa og var hann yngstur sjö systkina
en (rrjú þeirra létust í bernsku.
Afi ntinn og amma, foreldrar Eri-
endar, þau Kristín Stefánsdóttir og
Guðmundur Þorvaldsson voru leigu-
liðar Biskupstungnahrepps í Jaðar-
koti og bjuggu þar við mikla fátækt
og aðsteðjandi heilsuleysi síðustu
árin.
Erlendur var aðeins fjögurra ára
þegar hann missti föðursinn og fjór-
um árunt síðar varð móðir hans að
leggjast á spítala vegna alvarlegra
veikinda og var heintilið þá leyst
upp og synimir fóru hver í sína átt-
ina.
Erlcndur fór þá í fóstur að Holta-
kotum í Biskupstungum til aldraðra
hjóna sem þar bjuggu. Ellefu ára
gamall fékk Erlcndur aðkcnningu að
berklum og fór’þá á Vífilstaðahælið
og dvaldi þar í eitt ár. Eftir fcrming-
una fór hann síðan í vinnumennsku
til föðurbróður síns. Kristmundar
sem þá bjó í Gýgjarhólskoti í Bisk-
upstungum. Síðar fór Erlcndur að
Króki í sömu svcit og var þar síðustu
sex árin áður en Itann flutti suður tii
Hafnarfjarðar.
Fljótlega cl’tir suöurkomuna mun
Erlendur hafa lært á bíl og tekið bif-
reiðastjórapróf sem alls ekki þótti
neitt sjálfsagt í þá daga.
Erlendur Guðmundsson. eöa
..Elli l'rændi" eins og við kölluöum
hann var ntikiö prúðntenni og dreng-
ur góður og trúi ég því ekki að hann
hafi nokkurtt tíma lagt annað en gott
til samferðamanna sinna, skyldra
jafnt scnt vandalausra. Eg man fyrst
eftir honum við skepnuhirðingu í
Hafnarfirði hjá þcim Gísla Gunnars-
syni kaupmanni og Einari Halldórs-
syni á Setbergi og kont ég þar stundum í
fjósið til hans á báðum þessum stöð-
utn og dáðist að snyrtimennsku hans
og alúð við þessi'störf.
Á þessum árum kom Elli frændi
ntinn oft til forcldra minna sem þá
bjuggu í Hafnarfirði, sömuleiðis
Kristmundur bróðir hans og minnist
ég þess sem barn að það var gaman
nteð þeim að vera, þeir voru báðir
eðlisglaðir en þó Itvor á sína vísu.
Á þessum árum keypti Elli frændi
forláta reiðhjól sem hann kom alltaf
á til okkar þegar hann átti frí. Nú
rúmunt 45 árum síðar er það Ijóst í
minningu hversu Ijúfmannlega hann
tók því að lána ntér hjólið sitt. þrátt
fyrir að ég lenti í ýmsunt óhöppum á
því og árekstrum sem örugglega hef-
ir ekki bætt þennan glæsilega farkost
frænda ntíns.
Árin liðu og oft þurfti ég á því að
halda að fá gistingu og jafnvel að
dvelja tíma og tíma á heimili frænda
míns en þegar fór að líða að því að ég
keypti bíl fór ég á hans fund og reif-
aði málið. Hann brást vel við, keypti
gamlan ógangfæran bíl, gerði hann
upp og færði mér síðan í sveitina,
skoðaðan ásamt heilmiklu af vara-
hlutum. Þannig var Elli frændi.
Árið 1942 giftist Erlendur eftirlif-
andi konu sinni. Guðrúnu Hjartar-
dóttur, og hófu þau búskap í Reykja-
vík en bjuggu síðar í Hafnarfirði.
Kópavogi og svo mörg hin síðari ár
aftur í Reykjavík.
Erlendur hóf bifreiðaakstur sent
aðalatvinnu 1942-43 á mjólkurflutn-
ingabíl hjá Mjólkurbúi Hafnarfjarð-
ar sem stóð við lækinn neðst við
Öldugötuna og var glæsilegt fyrir-
tæki á þeirri tíð. Þáverandi kúa-
bændur í Hafnarfirði og nágrenni
munu hafa fengið frænda minn til
starfans og gegndi hann því við ann-
an mann til ársins 1949er mjólkurbú-
ið mun hafa veriö lágt niður.
Þá hóf Erlendur bifreiðaakstur hjá
Mjólkursamsölunni í Reykjavík við
útkeyrslu á ntjólk og vann hann hjá
því fyrirtæki meðan heilsa og kraftar
entust.
Alla tíð var mikill samgangur á
ntilli foreldra minna og fjölskyldu
Erlendar og minnist ég þess sérstak-
lega þegar þau komu í sumarleyfum
sínum til okkar að Syðri-Gróf og
tóku þá virkan þátt í ýmsum búverk-
unt í sveitinni.
Eldri sonur þeirra hjóna. Hjörtur.
var líktt á þessum umrædda tíma
snúningadrengur hjá okkur í mörg
ár.
Guðrúnu konu Erlendar fylgdi
ætíð frískleiki og glaðværð eins og
hún á raunar kyn til. Að því leyti
virtust þau hjón kannski nokkuð
ólík á yfirborðinu en það kom ekki í
veg fyrir það að sambúðin var ætíð
ljútleg og traust enda þurftu þau á
því að halda.
Elsta barn þeirra, Kristín, er
þroskaheft og hlýtur slíkt að hafa
verið mikil lífsreynsla fyrir ungu
hjónin með sitt fyrsta barn.
Kristín frænka mín var oft hjá
okkur með foreldrum sínum þegar
hún var barn og niun ég ætíð minnast
þess hversu natjn og þolinmóður lað-
ir hennar var aö liðsinna henni og
leiðbcina.
Kristín hefir nú dvalist á Kópa-
vogshæli unt langt árabil.
1 minningunni var þessi látni
frændi ntinni dæmigerður þénari eins
og þeir gerðust traustastir og bestir,
daglaunamaður sem hrópaði ekki á
samfélagið en vann samt hylli og
traust samferðamanna sinna með
einlægni og prúömennsku.
Hann varð sent barn að sæta því að
verða fluttur hreppatlutningi á
heimasvcit foreldra sinna vegna
heilsuleysis þeirra og fátæktar.
Þrátt fyrir eigin heilsuleysi lians í
æsku tókst honum að vinna sig upp,
eignast góða kona, hillegt heimili og
fjögur indæl börn. Hann tranaði sér
aldrei frant cn var tryggur vinur vina
sinna sem gott var að leita til.
Þannig hefi ég einnig kynnst
frændsystkinum mínum og börnum
hans. Samheldni fjölskyldunnar hefur
verið til fyrirmyndar og þegar aldur
og heilsuleysi steðjuðu að stuöluðu
börnin og tengdabörnin að því að
þau Guðrún og Erlendur mæltu búa
í sem næstu sambýli við þau og nutu
þau þess í ríkum mæli.
Aö endingu færi ég Guðrúnu og
aöstandendum öllum innilegar sam-
úðarkveðjur fjölskyldu ntinnar og
ntóöur minnar viö fráfall frænda
míns Erlendar.
Börn þeirra Erlendar og Guðrún-
ar eru: Kristín scm nú dvelur á
Kópavogshæli eins og áður getur,
Hjörtur bílamálari, kvæntur Ólöfu
Smith, búsett í Rcykjavík. lngibjörg
gift Matthíasi Sturlusyni, vélstjóra,
búsett í Reykjavík og Guðmundur.
húsasmiður sem cnn er í heimahús-
um, ókvæntur.
Hafstvinn Þurvaldsson.
/////////////////
Blaðberinn
' ■ □
Við bjóðum gotl úrval gullfallegra
plexiglerinnréttinga í einingum sem
henta t.d. sem borð, hillur, blað-
slandar, útstillingarefni i verslunum
og verslunargluggum eóa bara eins
og hugmyndaflug þtt leylir.
Fást í glæru og reyklituðu.
Hver kannast ekki viö ótrúlegustu blöö
og bæklinga liggjandi í einum haug á
miöju boröi í biðstofunni, á skrifboröinu
eöa hillunni þar sem þaö ekki á heima!
4 VEGGINN
Á BORÐIÐ
Fjölmargir ánægöra viöskiptavina okkar hafa gert sér Ijóst
aö Vestur-þýsku WERIT BLADBERARNIR eru ekki bara augnayndi
heldur hinir bestu starfsmenn. Tilkoma þeirra hefur sett röð
og reglu á hlutina á fjölmörgum biöstofum um land allt.
Reynslan hefur sýnt aö meö tilkomu BLAÐBERANNA frá okkur fara
bióstofurnar aö sjá um sig sjálfar, þaö er aö segja blöö og bæklingar .
veröa aðgengilegir fyrir þá sem þurfa aö staldra viö á slíkum stööum.
Vestur-þýsku WERITBLAÐBERARNIR eru sjálfsagt andlit á hverri
biðstofu, fyrstu viökynni vióskiptavinar af þér og þínum!
I Blaðberar a veggi i stærðunum:
A4 (breiddir 22,5 og 21,5 cm)
A5 (breidd 15,7 cm)
A6 (breidd 11,2 cm)
■ Blaðberar á borð:
A4 (breidd21,5cm)
A5 (breidd 15,7cm)
A6 (breidd 11,2cm)
□□□□□□□□□□
□□□□□□□□□□
□□□□□□□□□□
“□□□□□
□ □□□
Steinunn Björk BirgisdóttirSkeifan 8-108 Reykjavlk 0 38555
Erlendur Guðmundsson