Tíminn - 27.03.1986, Síða 3
Fimmtudagur 27. mars 1986
Tíminn 3
VALTYR
SÝNIR
Einkasýning Valtýs Péturssonar
á Kjarvalsstöðum
Nú nýverið opnaði Valtýr Péturs-
son listmálari fyrstu einkasýningu
sína á Kjarvalsstöðum. Það ersíðbú-
in veisla, því Valtýr á langan lista-
mannsferil að baki og hefur getið sér
landsfrægðar fyrir margt fyrir löngu.
Hann hefur haldið fjölda málverka-
sýninga, ýmist einn sér eða ásamt
öðrum, bæði hér á landi og utan.
Ósjaldan hcfur hann verið fulltrúi
íslenskra listamanna og íslenska
ríkisins við tækifæri erlendis og hann
hefur látið til sín taka í félagsmálum
listamanna, meðal annars settist
hann í stjórn Norræna listabanda-
lagsins 1950 og varð á sama ári
gjaldkeri Félags íslenskra myndlist-
armanna.
Valtýr er fæddur 27. mars 1919 í
Grenivík. Hann stundaði verslunar-
nám jafnhliða listnáminu og starfaði
nokkuð við verslun. Einnig hefur
hann fengist við sjómennsku og
ýmislegt fleira sem til féll á yngri
árum.
„Það voru nefnilega engin náms-
lán í þá daga. Ég fór til Bandaríkj-
anna í list- og verslunarnám. en
maður þurfti að hypja sig heim og
vinna fyrir sjálfum sér,“ sagði Váltýr
í viðtali við Tímann. „Það var nú
ekki hin venjulega leið myndlistar-
nemans að fara til Bandaríkjanna,
en Evrópa var lokuð vegna stríðsins.
Hún varð því að bíða betri tíma."
Og að lokinni heimsstyrjöldinni
hélt Valtýr í suðurátt og nam fagrar
listir í Flórens á Italíu og síðar í
París. Við Parísarborg varð hann
svo viðloðandi af og til, allt til 1968.
„Ég hef samt alltaf búið á íslandi,"
sagði Valtýr.
Valtýr var spurður um viðtökur er
hann hafði fengið á fyrstu einkasýn-
ingu sinni á Kjarvalsstöðum. „Ég er
mjög ánægður með þær, - hef aldrei
hlotið jafn góðar viðtökur áður. Ég
hef þegar selt held ég fimmtán
myndir, en allar eru sýningarmynd-
irnar til sölu.“
Valtýr hefur verið myndlistar-
gagnrýnandi frá 1952 og hefur lista-
mönnum oft þótt svíða undir þeirri
umfjöllun er þeir fá í dálkum hans.
„Ég álít, að listamenn séu jafnvel
einu mennirnir sem geta skrifað
gagnrýni." sagði Valtýr að lokum,
þeir sem stunda listgreinina
sjálfir. Sjáðu til, listfræðingar eru
bara sögumenn og hafa enga reynslu
af sjálfri listgreininni í flestum til-
fellum. Mönnum mislíkar stundum
það sem ég skrifa, en það er eins og
VÉLSLEDA
ÞJÓNUSTAN
Viögeröaþjónusta fyrir vélsleða
og minni háttar snjóruöningstæki.
FRAMTÆKNI s/f
Skemmuveg 34 N -
200 Kópavogur
Sími 64 10 55
gengur og gerist. Menn verða bara
að taka því. Það þýðir ekkert að
sigla sléttan sjó alltaf. Til að skrifa
gagnrýni þarf visst hugrekki, - það Magnús L. Sveinsson, formaður VR, og Páll Sigurðsson, ráðuneytisstjóri, árna Valtý heilla við opnun
er nakvæmlega eins og a við um sýningarinnar. 1 Tímamynd: Svcrrír viihcimsson.
listiðkunina sjálfa."
AHUG
YAMAHA RAFSTOÐVAR
I
msjösj
fm
RAFGIRÐINGAR OG
EFNI TIL ÞEIRRA
%
b Ú.
m m b
-tr’ t'
.-r- --7
BASAMOTTUR
FRÁ ALFA-LAVAL
Sterkar og einangra mjög vel.
Stærð: 1400x1100 mm.
o
ELTEX LAMBAMERKI
Eltex lambamerki eru gerð úr þunnri álplötu, með
bognum járnpinna, sem stungið er í eyrað og
lokað.
Númeraðar raðir á lager. 1-1000.
RUNINGSKLIPPUR FYRIR
KÝR, HESTA OG KINDUR.
Lister rúningsklippur, barka- eða með mótor i
handfangi.
Breiðir eða mjóir kambar.
DRYKKJARKER FYRIR
KÝR, HESTA OG FÉ.
Drykkjarstútur fyrir svín.
BUNADARDEILD
ARMULA3 REYKJAVIK SIMI 38900