Tíminn - 27.03.1986, Blaðsíða 5

Tíminn - 27.03.1986, Blaðsíða 5
Fimmtudagur 27. mars 1986 Tíminn 5 Frá David Keys í Hong Kong ÞORRINN GERIR VÍDREIST íslenskur matur fluttur til Kína Kínvcrsk matargeröarlist hefur löngum vakið athygli sökum hinna óvenjulegu rétta, eins og soðinna hunda, hauslausra snáka og apa- heila. En nú stendur hún frammi fyrir stcrkum samkeppnisaðila, - hinu hefðbundna íslenska þorra- fæði. Á eynni Hong Kong í suður- hluta Kína ætlar stærsta veitinga- sölukeðjan þar í borg, sem rekur alls sextíu og sex veitingastaði, að hrinda af stað áætlun sinni um íslcnska matargerðarhátíð. Mestan áhuga hafa Kínverjar á íslenskum fiski og öðrum þeim réttum sem íslendingar eru hvað frægastir fyrir, cn ef rcynist mögulegt að færa 12 ára hákarl. sviðshausa eða hrútspunga inn á hátíðarmatseðilinn. cr kínverskunt furðuréttum ógnað fyrsta sinni. Jafn- vcl er talið, að íslenskt brennivín yrði vinsælt í 5 milljón manna borg Hong Kong, en íbúar hennar hafa lengi haldið tryggð við brjóstbirtuna þeirra, sem þeir kalla Moutai, og cr bruggað úr grænmeti cftir 300 ára gamalli forskrift og mun vera, sam- kvæmt áreiðanlegum heimildum kínverskum, 106% að styrkleika. Veitingahúsakeðjan, sem mun halda hina íslensku átveislu, heitir Maxirns og til hennar sækja unr hálf milljón hungraðra gesta ár hvert. „Okkur langar til að halda íslenska matargerðarhátíð vegna þess, að íbúar Hong Kong vilja reyna citt- hvað nýtt," sagöi aðstoðarsölustjóri Maxims, Frank Wuen. „Við munum reyna að lrafa á boð- stólum hina sérkennilegu rétti ís- lenskrar matargcrðarlistar, sem þá verður að fljúga með hingað, beint frá íslandi." sagöi Wuen ennfremur í viðtali við fréttaritara Tímans. „Við höfðum samband við heiðurs- konsúlinn íslenska í Hong Kong þegar við höfðunr fengið'hugmynd- ina að hátíðinni og spurðum hann ráða," sagði Wuen. „Aðalstjórn Nei, heyrðu mig, vinur. Nú er komið að mér að bjóða, fyrirtækisins fjallar nú um málið." Maxims hefur áður haldið Ijórar sams konar hátíðir og þá cinbeitt sér að amerískri, franskri, þýskri og ítalskri matargcrðarlist. Allar hafa þær átt miklum vinsældum að fagna. Veitingasölukeðjan rekur tuttugu og fjóra evrópska matsölustaði, tuttugu og sex kínverska, sextán skyndibita- staði og auk þess scxtíu og fimm bakarí, - allt saman í Iiong Kong. Hvergi eru fleiri veitingastaöir á mann en þar. Ef frá eru taldir allir útistaðir í Hong Kong stendur samt sem áður cftir cinn vcitingstaður á hvcrja 1000 íbúa. Aö borða er þjóðarástríða Kínverja. Stór hluti matsölustaðanna býður alls kyns kínvcrska rétti, meðal annars súpu soðna úr hákarlauggum, djúpstcikt kjúklingalæri, soðna bjarnarhramma, hauslausa en óeitraða snáka og loks hundakássu. Hinsvegar er furðuleg- asti rétturinn í pottum þeirra Kína- manna, hcilinn úr apa, bannaður með lögum og þcss vegna er crfitt að lá lumn auk þess sem Itann er l'okdýr. Innflutningur á íslenskum þorramat til Hong Kong ætti að auka enn meira fjölbreytni matseöla á kínverskum matsölustöðum og verður jafnvcl enn ein skrautfjöður- in í hatti þeirra hjá Maxims. - Hl Hamboigar á afinælisdagmn Nýr áætlunarstaður Arnarflugs í Vestur-Þýskalandi ^fARNARFLUG Lágmúla 7, sími84477 Á tíu ára afmæli sínu, 10. apríl næstkomandi, opnar Arnarflug nýjan áfangastað í Evrópu þvi þá hefst áætlunarflugið til Hamborgar. Hamborg er stærsta borg í Vestur-Þýskalandi og hefur, allt frá dögum Hansakaupmanna, verið ein helsta verslunarmið- stöð landsins. En Hamborg er meira en verslunarmiðstöð. Hún er ein grænasta borg í Evrópu og fagrir skemmti- garðar laða til sín þúsundir gesta á góðum dögum. Menning og listir blómstra í óperunni, ball- ettinum, hjá sinfóníu- hljómsveitunum þremur og í Qölmörgum myndlist- arsöfnum. Skemmtanalífið er svo kapítuli alveg út af fyrir sig. Hvort sem þú þarft að sinna viðskiptum eða vilt njóta lífsins, hefur Ham- borg það sem þú ert að sækjast eftir. Þaðan er líka stutt til margra annarra skemmti- legra borga.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.