Tíminn - 27.03.1986, Qupperneq 5
Fimmtudagur 27. mars 1986
Tíminn 5
Frá David Keys í Hong Kong
ÞORRINN
GERIR VÍDREIST
íslenskur matur fluttur til Kína
Kínvcrsk matargeröarlist hefur
löngum vakið athygli sökum hinna
óvenjulegu rétta, eins og soðinna
hunda, hauslausra snáka og apa-
heila. En nú stendur hún frammi
fyrir stcrkum samkeppnisaðila, -
hinu hefðbundna íslenska þorra-
fæði. Á eynni Hong Kong í suður-
hluta Kína ætlar stærsta veitinga-
sölukeðjan þar í borg, sem rekur alls
sextíu og sex veitingastaði, að hrinda
af stað áætlun sinni um íslcnska
matargerðarhátíð. Mestan áhuga
hafa Kínverjar á íslenskum fiski og
öðrum þeim réttum sem íslendingar
eru hvað frægastir fyrir, cn ef rcynist
mögulegt að færa 12 ára hákarl.
sviðshausa eða hrútspunga inn á
hátíðarmatseðilinn. cr kínverskunt
furðuréttum ógnað fyrsta sinni. Jafn-
vcl er talið, að íslenskt brennivín
yrði vinsælt í 5 milljón manna borg
Hong Kong, en íbúar hennar hafa
lengi haldið tryggð við brjóstbirtuna
þeirra, sem þeir kalla Moutai, og cr
bruggað úr grænmeti cftir 300 ára
gamalli forskrift og mun vera, sam-
kvæmt áreiðanlegum heimildum
kínverskum, 106% að styrkleika.
Veitingahúsakeðjan, sem mun
halda hina íslensku átveislu, heitir
Maxirns og til hennar sækja unr hálf
milljón hungraðra gesta ár hvert.
„Okkur langar til að halda íslenska
matargerðarhátíð vegna þess, að
íbúar Hong Kong vilja reyna citt-
hvað nýtt," sagöi aðstoðarsölustjóri
Maxims, Frank Wuen.
„Við munum reyna að lrafa á boð-
stólum hina sérkennilegu rétti ís-
lenskrar matargcrðarlistar, sem þá
verður að fljúga með hingað, beint
frá íslandi." sagöi Wuen ennfremur
í viðtali við fréttaritara Tímans.
„Við höfðum samband við heiðurs-
konsúlinn íslenska í Hong Kong
þegar við höfðunr fengið'hugmynd-
ina að hátíðinni og spurðum hann
ráða," sagði Wuen. „Aðalstjórn
Nei, heyrðu mig, vinur. Nú er komið að mér að bjóða,
fyrirtækisins fjallar nú um málið."
Maxims hefur áður haldið Ijórar
sams konar hátíðir og þá cinbeitt sér
að amerískri, franskri, þýskri og
ítalskri matargcrðarlist. Allar hafa
þær átt miklum vinsældum að fagna.
Veitingasölukeðjan rekur tuttugu og
fjóra evrópska matsölustaði, tuttugu
og sex kínverska, sextán skyndibita-
staði og auk þess scxtíu og fimm
bakarí, - allt saman í Iiong Kong.
Hvergi eru fleiri veitingastaöir á
mann en þar. Ef frá eru taldir allir
útistaðir í Hong Kong stendur samt
sem áður cftir cinn vcitingstaður á
hvcrja 1000 íbúa. Aö borða er
þjóðarástríða Kínverja. Stór hluti
matsölustaðanna býður alls kyns
kínvcrska rétti, meðal annars súpu
soðna úr hákarlauggum, djúpstcikt
kjúklingalæri, soðna bjarnarhramma,
hauslausa en óeitraða snáka og loks
hundakássu. Hinsvegar er furðuleg-
asti rétturinn í pottum þeirra Kína-
manna, hcilinn úr apa, bannaður
með lögum og þcss vegna er crfitt að
lá lumn auk þess sem Itann er
l'okdýr. Innflutningur á íslenskum
þorramat til Hong Kong ætti að
auka enn meira fjölbreytni matseöla
á kínverskum matsölustöðum og
verður jafnvcl enn ein skrautfjöður-
in í hatti þeirra hjá Maxims.
-
Hl Hamboigar á afinælisdagmn
Nýr áætlunarstaður Arnarflugs í Vestur-Þýskalandi
^fARNARFLUG
Lágmúla 7, sími84477
Á tíu ára afmæli sínu,
10. apríl næstkomandi,
opnar Arnarflug nýjan
áfangastað í Evrópu þvi
þá hefst áætlunarflugið til
Hamborgar.
Hamborg er stærsta
borg í Vestur-Þýskalandi
og hefur, allt frá dögum
Hansakaupmanna, verið
ein helsta verslunarmið-
stöð landsins.
En Hamborg er meira
en verslunarmiðstöð. Hún
er ein grænasta borg í
Evrópu og fagrir skemmti-
garðar laða til sín þúsundir
gesta á góðum dögum.
Menning og listir
blómstra í óperunni, ball-
ettinum, hjá sinfóníu-
hljómsveitunum þremur
og í Qölmörgum myndlist-
arsöfnum. Skemmtanalífið
er svo kapítuli alveg út af
fyrir sig.
Hvort sem þú þarft að
sinna viðskiptum eða vilt
njóta lífsins, hefur Ham-
borg það sem þú ert að
sækjast eftir.
Þaðan er líka stutt til
margra annarra skemmti-
legra borga.