Tíminn - 12.04.1986, Page 1
0 STOFNAÐUR1917
lírmim
RAUSTIR
MENN
j0%
SOlDIBiLJISTÖDm
FJÁRMÁLARÁÐHERRA
hefur boöiö grunnskólakennurum í
Bandalagi kennarafélaga samskonar
samning og háskólamenntaöir félagar í
BSRB samþykktu fyrir skömmu. Fulltrúar
kennara munu ræða þetta tilboð fjár-
málaráöherra á morgun, og síöan mun
samninganefnd þeirra hitta fulltrúa fjár-
málaráðuneytisins á þriðjudag.
200 BRÉFDÚFUM verður
sleppt viö Hólabrekkuskóla í dag, á hátíö
sem foreldrafélag skólans hefur boöað
til. Dúfurnar 200 tákna þau ár sem liðin
eru frá því aö Reykjavíkfékk kaupstaðar-
réttindi. Hátíð skólafélagsins stendur frá
klukkan 15-17. Sýnd veröa verkefni
nemenda, fariö í leiki og ýmislegt fleira.
BRAGI BENEDIKTSSON
hefur hlotið kosningu sem prestur í
Reykhólaprestakalli í Baröastrandar-
prófastsdæmi. Bragi var einn umsækj-
andi og hlaut hann 129 atkvæöi. Alls
voru 258 á kjörskrá. Hann hefur starfaö
sem félagsmálastjóri í Hafnarfirði.
LANDKYNNINGAR-
skrifstofa Ferðamálaráös í Þýskalandi
hefur veriö flutt frá Hamborg til Frankfurt
am Main. Er þetta gert samhliöa manna-
breytingum á skrifstofunni, en Ómar
Benediktsson hefur látiö af störfum sem
forstöðumaður hennar og Dieter Wend-
ler-Jóhannsson tekið viö starfi, hans.
Dieter hefur unniö hjá Flugfélagi íslands
og Flugleiöum s.l. 22 ár í Frankfurt am
Main.
BÓKSÖLULISTI Kaupþings
fyrir mars hefur nú veriö birtur. Listanum
er skipt í þrjá flokka og eru eftirtaldar
bækur efstar í hverjum flokki; Einar
Áskell eftir Gunilla Bergström var vin-
sælasta barnabókin, Sóla, Sóla eftir
Guölaug Arason mest selda skáldsagan
og sjálf sálmabókin efst í flokki sem
nefndur er aðrar bækur.
ALBERT Guömundsson, iönaöar-
ráðherra, er um þessar mundir erlendis
í erindum ríkisstjórnarinnar aö beiðni
viöskiptaráöherra, sem gegnir for-
mennsku í ráðgjafarnefnd EFTA á fyrri-
hluta þessa árs. Fundur ráðgjafarnefnd-
arinnar var haldinn í Genf dagana 8. og
9. apríl. Sendinefnd íslands fór utan
sunnudaginn 6. apríl til að sitja fundinn.
Dagana 17. og 18. apríl n.k. mun iönaö-
arráðherra sitja ráöherrafund OECD sem
haldinn veröur í París. Til undirbúnings
þeim fundi veröur haldinn sérstakurfund-
ur innan EFTA aö morgni þess 17. apríl.
lönaöarráðherra er væntanlegur heim
laugardaginn 19. þ.m.
INDVERSK stjórnvöld hafa fariö
fram áviö sendiherra Libýu í landinu aö
hann hætti aö auglýsa eftir hermönnum
í dagblöðum þeim sem rituö eru á
Urdu-tungumáli, en þaö er helsta tungu-
mál þeirra 80 milljóna múhameðstrúar-
manna sem Indland byggja. Að sögn
stjórnvalda hefur sendiherrann tekið vel
í þessa viöleitni en hyagst þó láta liggja
frammi bók í sendiráði sínu þar sem
hægt væri aö skrifa undir siöferöiiegan
stuðning viö Líbýustjórn í baráttu hennar
gegn bandarískri heimsvaldastefnu.
ERNA Indriða-
dóttir hefur verið
skipaöur deildar-
stjóri útvarpsins á
Akureyri. Á fundi
Útvarpsráðs í gær
hlaut hún 4 at-
kvæöi af sjö er ráö-
iö tók afstöðu til
umsækjendaog út-
varpsstjóri skipaði
hana seinna um
daginn.
Albert neitar að ræða við blm. Tímans:
Fékk ekki veitingarvald
Á sögulegum ríkisstjórnarfundi í liðinni viku krafðist Albert
Guðmundsson iðnaðarráðherra þess að heimild til að veita erlcnduni
aðilum undanþágur til að eiga meir en 20% í fasteignum hérlendis yrði
flutt til iðnaðarráðuneytisins frá dómsmálaráðuneytinu. Andstaða
ráðherra Framsóknarflokksins við framlagt frumvarp þessa efnis
orsakaði svo brotthlaup ráðherrans af ríkisstjórnarfundi.
„Það er aðeins eitt frumvarp
sem Albert Guðmundsson hefur
lagt fyrir ríkisstjórnina sem við
höfum ekki gctaö fallist á. Það
felur í sér að færa heimildina til að
veita útlendingum leyfi til að eiga
meira en 20% í fasteignum hér á
landi frá dómsmálaráðherra til iðn-
aðarráðherra þegar um iðnað er að
ræða. Það var viljandi ákveðið á
sínum tíma að framkvæmd á veit-
ingu þessara undanþága yrði á
einni hendi," sagði Stcingrímur
Hermannsson forsætisráðherra í
samtali við Tímann í gær. Stein-
grímur bætti því við að það hefði
verið ríkisstjórnin í heild sinni sem
hefði staðið gegn hugmyndum Al-
berts um að létta opinberum gjöld-
um af skipasmíðastöðvum.
Að sögn forsætisráðherra voru
ummæli iðnaðarráðherra í DV í
gær þess efnis að það væri „ekki
óvanalegt að bunan stæði út úr
Steingrími Hermannssyni eins og
stórfoss þegar minnst varði," mjög
óviðeigandi og hann lagði áherslu
á að frétt um brotthlaup Alberts af
ríkisstjórnarfundi væri ekki eftir
sér liöfð eins og gefið væri í skyn í
DV. „Ég mun ræða þetta þegar þar
að kemur þó ég geri þaö ekki í
fjölmiðlum. Ég hcf það sem reglu
að ræða ekki opinberlega innri mál
ríkisstjórnarinnar cn ég sá mér
hins vegar ekki annað fært en að
staðfesta sannleiksgildi þess sem
gerðist þegar það var borið undir
mig," sagði Stcirígrímur. Hann
bætti því við að Albert hefði vfir-
gefið ríkisstjórnarfundinn áður cn
honum var slitiö.
Aðspurður um það hvað geröist
et' iðnaðarráðherra stæði viö fyrri
orð sín og sækti ekki ríkisstjórnar-
fundi nema í cinstaka tilvikum,
sagði forsætisráðherra að þessir
fundir færu lögboðnir og ráðherr-
um bæri að sækja þá, en hins vegar
kvaðst hann ekki gcra ráð fyrir að
iðnaðarráðherra léti verða af fyrir-
ætlan sinni.
Blaðamaður Tímans náði sím-
sambandi við Albert Guðmunds-
son á Grand Hotel í París í gær og
hugðist afla fregna af afstöðu ráð-
herra. Albert brást hinn vcrsti við
og sagði blaðamanni með þjósti að
ræða málið viö forsætisráðherra.
Að því búnu rauf hann sambandið
fyrirvaralaust.
-SS
FRAMKVÆMDASTJÓRIFRÁ EBEÍHEIMSÓKN
Gallagher framkvæmdastjóri fískveiðideildar Efnahagsbandalags Evrópu sést glaðbeittur milli þeirra Matthíasar Á. Mathiesen utanríkisráðherra
og Halldórs Ásgrímssonar sjávarútvegsráðherra. Gallagher er hér á landi í óformlegri hcimsókn viðskiptaráðuneytisins. Að sögn Iialldórs
Ásgrímssonar fóru fram óformlegar viðræður, m.a. um verndun fískistofna og fískveiðimál. Halldór sagði í samtali við Tímann í gær að víst hefði
borið á góma að Efnahagsbandalagslöndin vildu fá veiðiréttindi við íslandsstrendur. (Timamvnd: Sverrir)
Tólf milljónir í öryggismál sjómanna:
„Stórt og mikiðfagnaðarefni“
KRUMMI
segir Hannes Hafstein framkvæmdastjóri Slysavarnafélagsins
„Það er vitaskuld stórt og mikið
fagnaðarefni að fá þetta því að það
er nóg að gera í þessu sambandi og
í mörg horn að líta,“ sagði Hannes
Hafstein um ákvæði í stjórnar-
frumvarpi um „Skiptaverðmæti og
greiðslumiðlun í sjávarútvegi,"
sem kveður á um 12 milljón króna
framlag til öryggismála sjómanna
og björgunaræfinga á fiskiskipum.
Hannes sagði að þetta væri mjög
nýtt mál og meira að segja óafgreitt
í þinginu þannig að fullsnemmt
væri að tjá sig um það að gagni og
enn ætti eftir að sjá hvernig útfærsl-
an á þessu yrði. Hins vegar væri því
ekki að leyna að þörfin væri brýn
á að haldið sé áfram því starfi sem
hafið er varðandi öryggismál sjó-
manna. „Við höfum fyrirliggjandi
tölfræðilegar upplýsingar um þau
slys sem verða um borð í fiskiskip-
um í dag og það verður að breyt-
ast,“ sagði Hannes. „Það hefur
ýmislegt gott gerst með þeirri
hreyfingu sem orðið hefur á þess-
um málum, en það er líka ljóst að
til þess að þetta geti gengið þarf að
koma til góður fjárhagslegur
grundvöllur," sagði hann ennfrem-
ur.
Slysavarnafélaginu var á sínum
tíma falið að sjá um öryggismála-
fræðslu sjómanna og var ráðinn
maður í það 1984. Sá starfsmaður
auk annars starfarnú við öryggis-
námskeiðahald Slysavarnafélags-
ins að staðaldri.
Á núverandi fjárlögum var
heildarfjárveiting til öryggismála
og fræðslu sjómanna 5 milljónir.
Samkvæmt frumvarpinu sem nú
liggur fyrir verður 12 milljónum
veitt til þessara mála þegar Trygg-
ingasjóður fiskiskipa hefur verið
lagður niður og gerður upp, en
sjóðurinn hættir starfseminni 15.
maí nk. -BG