Tíminn - 14.06.1986, Síða 1
TELEVISION
fWs ii iha slory oi a hoifrfay thal tuinrtt ooí quit# dUie.’oníly hom whal haií oeivn
vxpivctac). Tno hrotheis GuHi, tS. nnc! SínbW. 10. aro tnvttoo on a c.ampinc trlp in
SOftharh .'ceiafid tvy thair (vcc.antrtc uncle. h'aukui. They Mari oi;t by f.'yíntJ to
nfciíJeyr!. and t.hen drlve lo Mývatn, a íahe and pvei districl ron&Vvnod for Ita alranca
Teauty ano ruvh laur-a ano ítora. Thwo. Unclo Haokur pians to enjoy tishing, ano iho
vrot.heis tnteitd fo >nvos!igalt? the wondcrs of natur6 anu, gerMiratly. fava some fun.
5n fhtiic way to Mývatn they spot ar> tcoianáic la'con, línd ila nest. a.nd
mthosiastica-'ly prepnre to obsttrve this n>agr.if!ceht famiiy of >are btros. As h
tappens. otttera have 6>.‘nitsj lnt#ntionc. Evury summar profeasicnal thievos steai
'Gi73 ano otslcka In tceiar.a, oncf oe.'oje fong tne brothecs njr. Inlo a characfar whc ,
lehavea very oosplcicusty. They decide to fretvp ari nye on him, and thereby their '
loliday toV.rt3 an umv.v.pectivo turn.... I
Á FÁLKASLÓÐUM, - sjón
varpsþátturinn sem vakti mikla athygli I
vetur, hefur veriö seldur til írska sjón-
varpsins, austurþýska sjónvarpsins og
ástralskrar sjónvarpsstöövar, og fleiri
stöövar íhuga aö kaupa sjónvarpsþáttinn.
Þá hafa finnar áhuga á að sýna þáttinn
Bygging, jafnvægi, litur, um Tryggva
Ólafsson listmálara, og heimildarmyndin
um skáldkonuna íris Mudroch var sýndur
mikill áhugi á árlegum markaöi norrænu
sjónvarpsstöövanna sem haldinn var i
Helsinki í síðustu viku, Hinrik Bjarnason
hafði umsjón meö kynningu íslensks
efnis á markaönum.
AKURNESINGAR hafa gengið
frá meirihluta í bæjarstjórn og er hann
myndaður af Framsóknarflokki og Al-
þýöubandalagi. Ingimundur Sigurpálsson
hefur verið endurráðinn bæjarstjóri en
hann var áður bæjarstjóri í meirihluta
Sjálfstæðis- og Alþýðuflokks. Ingibjörg
Pálmadóttir frá Framsóknarflokki verður
forseti bæjarstjórnar.
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ verður með
síðustu sýningar leikársins um helgina og
verður I deiglunni sýnt í kvöld, laugardag
og Helgispjöll á morgun, sunnudags-
kvöld.
ÍSLENDINGI stendur til boða að
taka þátt í námskeiði í handritsgerð fyrir
kvikmyndir, sem handritshöfundurinn
Frank Daníels mun haldafyrirtíu Evrópu-
búa í Brussell. Danlel hefur kennt kvik-
myndahandritsgerð við Colombíuháskóla
í New York sl. 10 ár. Námskeiðið stendur
í þrjá mánuði alls á næsta ári og eiga
þátttakendur að því loknu að skila hand-
riti, tilbúnu til töku. Kvikmyndasjóður ís-
lands mun gefa nánari upplýsingar.
FLUGLEIÐIR hafa undirritað nýja
kjarasamninga við öll stéttarfélög flugliða
og taka samningarnir mið af launaþróun
í landinu, þá voru gerðar breytingar á
vinnutímareglum sem auka hagkvæmni í
flugrekstrinum. Samningarnir gilda til
næstu áramóta.
OLIS hefur hafið sölu á nýjum farmi af
bílabensíni er verður að lágmarki 98
oktan. Verðið á bensíninu verður 29.80
krónur líterinn en verð á svokölluðu
„súperbensíni" er frjálst.
ÍSFIRÐINGAR hafa náð sam-
komulagi um sama meirihluta í bæjar-
stjórn og var á siðasta kjörtímabili, þ.e.
Alþýðuflokk, Alþýðubandalag og Fram-
sóknarflokk.
KRUMMI
Vopnuö varðstaða lögreglumanna á Keflavíkurflugvelli:
Starfssamningur við
tólf lögregluþjóna
- bera nú einungis skammbyssur
Gengið hefur verið frá starfs-
samningi milli tólf lögreglumanna
á Keflavíkurflugvelli og Lögreglu-
stjóra þar, Þorgeirs Þorsteinsson-
ar. Samningurinn sem gildir frá
fyrsta júní fram til þrítugasta sept-
ember er háður samþykki Varn-
armálaskrifstofu utanríkisráðu-
neytisins og lögreglufélags Suður-
nesja. í samningnum er kveðið á
um að tólf lögreglumenn skuli
annast vopnaða varðstöðu í og við
flugstöðina á Keflavíkurflugvelli.
Um vopnaburð lögreglumannanna
segir að þeir skuli bera í belti
skammbyssu af gerðinni H&K p7
model 18 en ekki er talað um
vélbyssur eins og þeir hafa haft
undir höndum. Þrír menn verða á
vakt að degi til, en einn að nætur-
lagi. Þeirmunufáskammbyssurnar
þegar þeir fara á vakt, og skila
þeim að lokinni varðstöðu.
Samningurinn tekur einnig til
ábyrgðartryggingar lögreglu-
manna, og kjaraákvæði er fellt inn
sérstaklega, vcrði um sérkjara-
samninga að ræða síðar. Tólf-
menningarnir gegna ekki öðrum
reglulegum vöktum en varðstöð-
unni í flugstöðinni.
Jón Egilsson hjá Varnarmála-
skrifstofunni sagði í samtali við
Tímann að samningurinn hefði cnn
ekki verið undirritaður afskrifstof-
unni, en bjóst við því strax upp úr
helgi. „Þetta er nokkurskonar
sumarsamningur, á meðan mest er
álagið vegna ferðamannatímans,"
sagði Jón.
Ekki eru allir jafn ánægðir með
gerð .þessa samnings. Gísli Þor-
steinsson þjálfari víkingasveitar
lögreglunnar sagði í gær að það
væri undarlegt að ekki hefði verið
tekið tillit til tillagna Landsam-
bandsins um vopnaburð. Sagði Gísli
ennfremur að sú staðreynd að
Varnarmálaskrifstofan hefði hönd
í bagga með samningsgerðinni gæti
orðið til þess að sambandsleyfi yrði
milli víkingasveitarinnar og sveit-
arinnar á Keflavíkurflugvelli, ef til
aðgerða kæmi, „því hvcr á að
stjórna?"
Lögreglan á Keflavíkurflugvclli
heyrir undir utanríkisráðuneytið.
ólíkt öðrum embættum á landinu,
sem lúta stjórn dómsmálaráðu-
neytisins. Böðvar Bragason var
spurður um álit á málinu og þcirri
staðreynd að ekki var um að ræða
samstarf við dómsmálaráðuneytið.
„Ég tel að það eigi að haga þessu
cins og á öðrum Norðurlöndum,
að allt lögregluiið sé undir einni
stjórn og ég sé ekki að það ætti að
spilla neitt því seni hefur verið
forsenda fyrir þessu, að öll starf-
semi á flugvallarsvæðinu væri undir
einum liatti. Ég tel þaö vega þyngru
á metunum að öll lögreglan í
landinu sé undir einni stjórn.“
sagði Böðvar.
- ES
Steingrímur
Hermannsson:
Albert
kemstekki
hjá að
tengjast
Hafskips-
umræðu“
„Ég vil nú sem minnst ræða um
það mál, en það er vitaskuld Ijóst
að hann sem fyrrverandi stjórnar-
formaður Hafskips kcmst ekki hjá
því að tengjast þeim leiðindamál-
um sem þar eru að koma upp,“
sagði Steingrímur Hermannsson
forsætisráðherra við Tímann þegar
hann var spurður hvort umræða
um tengsl Alberts Guðmundssonar
við gjaldþrotamál Hafskips myndi
hafa einhver áhrif á stöðu hans
innan ríkisstjórnarinnar. „Ég vil
ekkert gefa út á skrif Helgarpósts-
ins og annarra um þetta mál, en
segi cinungis að ef svo færi að
ráðherra í ríkisstjórninni verði
ákærður, þá verður auðvitað að
taka það mál til mjög alvarlegrar
meðferðar. En ég vil síður en svo
gera því skóna að svo fari og ég
vona að svo fari ekki.“
- Þú munt þá ekkert gera nema
ef ákæra kemur fram í þessu máii?
„Nei, það má kalla fyrir hvern
sem er og spyrja, en það er að
sjálfsögðu allt annað mál,“ sagði
forsætisráðherra.
- BG
Þó sólinni hafi gengið illa að brjótast gegnum regnskýin undanfarið má þó eiga von á betri tíð þ.e. ef
veðurfræðingarnir skrökva ekki. Sjá bls. 2.