Tíminn - 14.06.1986, Blaðsíða 4

Tíminn - 14.06.1986, Blaðsíða 4
4 Tíminn r'.f<rJi- 'oh' h >■ irjclviBO' 'P I Laugardagur 14. júní 1986 Michael J. Fox: Stjarnan í „Aftur til framtíðar“ á aö leika James Cagney í kvikmynd um ævi hins þekkta leikara Óvænt kolldýfa nautsins slær nautabanann út af laginu! Brögðótt naut! Nautaat er sem kunnugt er þjóðaríþrótt Spánverja, þó að útlendingar líti þá tegund sports misjöfnum augum. Ef allt gengur eins og til er ætlast á viðureignin milli nautabana og nauts að vera nokkuð jöfn, en þó á hún að enda með sigri nautabanans, þó að dæmi séu til um annað. Ymsar óvæntar uppákomur krydda leikinn og áhorfendur fylgjast spenntir með ýmsum brögðum andstæðinganna. Flest þykjast tryggir nautaatsaðdáend- ur hafa séð til keppenda, en þó kom naut eitt þeim á óvart á nautaati í Castellon de la Plana á Spáni fyrir skemmstu. Nautið tók skyndilega undarlega kolldýfu og sló þar með vopnið úr höndum andstæðingsins, um stundarsakir a.m.k.! Ekki fara sögur af endalokum baráttunnar. Ólíkt hafðist nautið að á ródeókeppni í grennd við Melbourne í Ástralíu. Par stendur keppnin um hversu lengi knapanum tekst að halda sér á baki nauts, sem ekki vill sjá að bera slfka byrði. Nautinu tókst ætlunarverk sitt fljótlega í þetta skipti og kastaði George Benbow langar leiðir af baki. Ródeó eru annars nokkurs konar íþróttamót kúreka í vesturfylkjum Bandaríkjanna og eiga sér þar langa hefð. „Hann er sá sem ég vil að lciki mig,“ sagði James Cagney þegar hann hafði séð Michael J. Fox ■ myndinni „Aftur til fortíðar". 55H/g trúi þessu bara ekki, - að ég fái að leika sjálfan James Cagn- ey! Hann hefur alltaf verið uppáhaldsleikarinn minn,“ sagði Michael J. Fox stórhrifinn, þegar Cagney sjálfur hafði hringt til hans og farið fram á að liann léki í myndinni. James Cagney hafði séð Fox í „Aftur til framtíðar" (Back to the Future) og var alveg ákveðinn með það sama, að þarna hefði hann fundið þann sem hæfði í hlutverk- ið. „Getið þið ekki séð fyrir ykkur þennan snaggaralega strák hoppa um sem „Yankee Doodle Dandy“ eins og ég gerði? Hann er fæddur í rulluna strákurinn," sagði hinn aldni leikari. Peir Michael J. Fox og Cagney hittust svo í október sl. og fór vel á með þeim, en nú var heilsan alveg biluð hjá hinum 86 ára gamla leikara, svo lítið varð úr fram- kvæmdum. Hann ráðgerði að fara til Hollywood og fylgjast með framgangi myndarinnar, en ekkert varð úr því. James Cagney lést síðan 30. mars s.l. en hann lifði það þó, að sjá Michael og CBS samþykkja að gera sjónvarpskvikmynd byggða á ævi hans. Myndin á að heita „Hinn ungi Jimmy Cagney“ og spanna yfir fyrstu ár Cagneys í kvikmyndun- um. Áætlað er að hún verði tilbúin eftir rúmt ár. „Nú fær ný kynslóð að kynnast James Cagney", segja þeir hjá CBS sjónvarpsstöðinni. James Cagney ungur í myndinni „Yankee Doodle Dandy“. . t , ./< Upp með aftur- %%§*! endann ■ f ' ?'/ ' ■ og burt með kúrekann! ÚTLÖND 1III1IMÍ HÖFÐABORG — Desm- ond Tutu biskup og einn af leiðtogum baráttumanna gegn aðskilnaðarstefnu stjórnvalda í Suður-Afríku átti í gær óvæntar viðræður við P.W. Botha forseta landsins. Botha lýsti yfir neyðarástandi í land- inu í fyrradag. MOSKVA — Sovéska frétta- stofan Tass sagði neyðar- ástandslögin sem sett voru á í Suður-Afríku sýna „örvinglan dauðadæmdrar stjórnar.“ BONN — Stjórnvöld í Vestur- Þýskalandi ætla að hvetja Suð- ur-Afríkustjórn til að aflétta neyðarástandslögunum og leysa alla þá úr haldi sem haldið er föstum í nafni þeirra. Heimildir hermdu þó að stjórn- in muni ekki taka neina einhliða ákvörðun um efnahagslegar refsiaðgerðir gegn stjórn Suð- ur-Afríku. LUNDÚNIR — Bresk stjórn- völd eru nú undir miklum þrýst- ingi frá öðrum samveldislönd- um um að taka upþ efnahags- legar refsiaðgerir gegn stjórn Suður-Afríku. Bretland er eina ríki Samveldisbandalagsins sem hingað til hefur neitað að taka upp sameiginlegar refsi- aðgerðir gegn stjórn hvíta minnihlutans í Suður-Afríku. NÝJA DELHI — Hófsamir síkhar neituðu í gær að sam- þykkja eitt af höfuðatriðum Punjabsáttatillagnanna um landaskipti við nágrannahér- aðið Haryana. Neitun þessi er talin mikið áfall fyrir ríkisstjórn Rajiv Gandhis sem lagði fram sáttatillögurnar. BEIRÚT — „Herbúðastríðið" I Beirút hélt áfram í gær og var notast bæði við skriodreka og þungar vélbyssur. Reynt var að ná sáttum milli stríðandi fylkinga í Sýrlandi í gær. RÓM — Að sögn bandarískra embættismanna munu ítölsk og bandarísk stjórnvöld skrifa undirsáttamálasíðar í þessum mánuði er fjallað um varnir gegn hryðjuverkum. MANILA — Jose Fernandez yfirmaður Aðalbankans á Filippseyjum sagði efnahags- horfur í landinu hafa batnað verulega eftir að Marcos fyrr- um forseti flúði landið. Fern- andez sagði merki um framfarir þegarsjáanleg áFilippseyjum. MADRÍD — Stjórn sósíalista á Spáni fordæmdi neyðar- ástandslögin sem sett voru á í Suður-Afríku og hvatti til þess að stjórnvöld í ríkjum heimsins tækju upp viðræður við fulltrúa svarta meirihlutans í landinu.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.