Tíminn - 14.06.1986, Blaðsíða 15
Laugardagur 14. júní 1986
Tíminn 15:
BRIDGE
Heimsviöburöur í bridge í dag:
Hundrað þúsund manns
spila sömu spil í einu
- Deng Ziaoping veröur meðal þátttakenda
Deng Xiaoping, leiðtogi Kín-
verja, verður einn af um 100.000
manns út um allan heim sem í dag
setjast við spilaborðið og taka þátt í
sérstöku bridgemóti þar sem allir
keppendur spila sömu spilin á sama
tíma. Mótið hefst kl. 18.00 að ís-
lenskum tíma en Deng og hans
félagar verða að rífa sig fram úr
eldsnemma á sunnudagsmorgni að
þeirra tíma.
Mót þetta hefur vakið talsverða
athygli og helstu fréttastofur heims
hafa fjallað um það í skeytum sínum,
ekki síst fyrir það að Deng, sem nú
er orðinn 82 ára gamall, skuli taka
þátt. Þá þykir það ekki síður for-
vitnilegt, að Omar Sharif kvik-
myndaleikari mun hafa umsjón með
því að kynna úrslitin. Annars sjá
franska bridgesambandið og alþjóða
bridgesambandið um að halda
mótið.
Spilamennska hefst samstundis í
yfir sjötíu löndum og um leið og
henni lýkur verða úrslitin í hverjum
riðli send til Parísar þar sem útreikn-
ingur fer fram. Riðlarnir eru mis-
munandi margir í hverju landi.
Nokkrar borgir, t.d. Tókíó, Ottawa,
Búkarest, Canberra og fleiri, hafa
sérstaka riðla fyrir diplómata og
starfsmenn utanríkisþjónustu til að
starfslið hinna ýmsu sendiráða geti
kynnst betur. Sumstaðar eru einnig
sérstakir riðlar fyrir börn 16 ára og
yngri.
Forseti alþjóða bridgesambands-
ins, Jaime Ortiz-Patino, segir í sam-
tali við Reuterfréttastofuna að þessi
keppni sé aðallega ætluð til að vekja
áhuga almennings á bridgeíþrótt-
inni, og bæta við bridgemönnum í
hóp þeirra 50 milljóna manna sem
þegar spila reglulega út um allan
heim. „Ut um allan heim eru
bridgespilarar að setjast að vinsam-
legri baráttu við bridgeborðin og
yfirvinna um leið tálmanir, sem
landamæri, menning, aldurogfötlun
setur þeim ella,“ segir Jaime í sam-
tali við Reuters.
fslenska bridgesambandið tekur
ekki þátt í þessu móti og var sú
ákvörðun tekin aðallega vegna þess
að ekki var talið að þátttaka fengist
í miðjum júní. Sú ákvörðun er nú
undarleg í Ijósi þess að á annað
hundrað manns spila vikulega í
sumarbridge í Reykjavík einni.
Bikarkeppni
Bridgesambands íslands:
Eftirtöldum leikjum 1. umferðar Bikar-
keppni Bridgesambandsins er lokið: Sveit
Aðalsteins Jónssonar Eskifirði vann sveit
Ragnars Jónssonar Kópavogi. Þeir aust-
anmenn brugðu sér svo vestur til Grund-
arfjarðar, til keppni við sveit Ragnars
Haraldssonar í 2. umferð og sigruðu
einnig, svo Aðalsteinn og co. eru fyrsta
sveitin til að tryggja sér rétt í 16 liða
úrslitin.
Sveit Ólafs Valgeirssonar Hafnarfirði
vann sveit Jónasar Jónssonar frá Reyðar-
firði í jöfnum leik, þar sem spaðadrottn-
ing ku hafa leikið aðalhlutverícið (þar sem
hún lá undir borði í síðustu lotunni hjá
Jónasar-mönnum).
Sveit Jóns Haukssonar frá Vestmanna-
eyjum (með heimaleiki í Reykjavík,
vegna skipan sveitarinnar, en í henni er
ekki ófrægari kappi en Jói Sigló) lagði
sveit Jörundar Þórðarsonar Reykjavík að
velli.
Sveit Sigfúsar Arnar Árnasonar
Reykjavík vann sveit Valdimars Gríms-
sonar nokkuð örugglega. Þeir Sigfús og
Ólafur Valgeirsson mætast í 2. umferð.
Sveit Guðjóns Einarssonar Selfossi fór
illa með Trésíldarmenn frá Reyðarfirði
og spilar því við sveit Kristjáns Guðjóns-
sonar frá Akureyri í 2. umferð.
Sveit Sigmundar Stefánssonar Reykja-
vík fór einnig illa með sveit Valtýs
Pálssonar frá Selfossi og mætir því
DELTA-mönnum í 2. umferð.
Sveit Bernódusar Kristinssonar frá
Reykjavík vann sveit Erlu Sigurjónsdótt-
ur frá Hafnarfirði og mætir sveit Gríms
Thorarensen frá Kópavogi, sem vann
sveit Halldórs Tryggvasonar frá Sauðár-
króki örugglega í 2. umferð.
Sveit Pólaris frá Reykjavík vann sveit
Jóns Aðalls frá Borgarfirði eystri, með all
miklum mun, eftir jafna byrjun.
Sveit Ásgríms Sigurbjörnssonar frá
Siglufirði vann sveit Þórðar Sigfússonar
frá Reykjavík í jöfnum leik.
Og loks vann Hörður bakarameistari
Pálsson frá Akranesi sveit Ferðaskrifstofu
Akureyrar, eftir miklar sviptingar í lokin.
Með Herði eru gamlar kempur ofan af
Skaga, eins og Oliver Kristófersson, Þrá-
inn Sigurðsson o.fl.
16 leikjum er þá ólokið í 1. umferð.
Áður hefur verið sagt frá því að sveitir
DELTA og Ásgeirs P. Ásbjörnssonar
unnu sína leiki í 1. umferð.
Fyrirliðar eru vinsamlegast minntir á
að greiða keppnisgjaldið, sem er kr.
4.000 pr. sveit, hið fyrsta til Bridgesam-
bandsins. Einnig að hafa samband eftir
hvern leik og tilkynna úrslit, svo og nöfn
þeirra sem spiluðu hverju sinni. Minnt er
á að leikjum í 2. umferð skal vera lokið
fyrir 16. júlí nk., en þá verður dregið í 3.
umferð Bikarkeppni Bridgesambandsins.
Ómar Sharif ætlar að tilkynna úr-
slitin sem sennilega verða ráðin á
niorgun.
Glæný meistarastig
sjá dagsins Ijós
1 vikunni lauk meistarastigaskráningu
hjá Bridgesambandi íslands á stigum
áunnum fram til 15. maí 1986.
Á skrá eru hátt í 3.000 spifarar í 47
félögum innan vébanda BSÍ. Skiptingin
er þannig: 17 hafa hlotið stórmeistara-
nafnbót (500 stig eða meir). 56 hafa hlotið
spaðanafnbót (150-499 stig). 125 hafa
hlotið hjartanafnbót (50-149 stig). 284
hafa hlotið tígulnafnbót (15-49 stig). 370
hafa hlotið laufnafnbót (2-14 stig) og 1341
eru án nafnbótar (undir 2 stigum).
Flestir eru á skrá hjá B.Akureyrar 162.
Hjá B. Reykjavíkur eru 140 á skrá. Hjá
Breiðfirðingum í Reykjavík eru 113 á
skrá, hjá B. Suðurnesja eru 106, hjá B.
Kópavogs eru 101, hjá B. Breiðholts eru
98 á skrá, B. Skagfirðinga Reykjavík eru
96 á skrá, hjá B. Akraness eru 92 á skrá
og loks hjá Sauðkræklingum eru 90 á skrá.
Og efstu spilarar samtals yfir landið
eru:
1. Þórarinn Sigþórsson Reykjavík 1009
2. Jón Baldursson Reykjavík 929
3. Sigurður Sverrisson Reykjavík 857
4. Ásmundur Pálsson Reykjavík 819
5. Guðlaugur R. Jóhannsson Reykjavík 818
6. Öm Arnþórsson Reykjavík 812
7. Valur Sigurðsson Reykjavík 785
8. Símon Símonarson Reykjavík 725
9. Jón Ásbjörnsson Rcykjavík 675
10. Guðmundur Páll Amarson Reykjavík 622
11. Karl Sigurhjartarson Rcykjavík 617
12. Hörður Amþórsson Reykjavík 592
13. Guðmundur Sv. Hermannsson Reykjavík 589
14. Guðmundur Pétursson Reykjavík 543
15. Stefán Guðjohnsen Reykjavík 514
16. Sævar Þorbjörnsson Danmörk 511
17. Hjalti Elíasson Reykjavík 507
18. Aðalsteinn Jörgensen Hafnarfirði 434
19. Bjöm Eysteinsson Hafnarfirði 421
20. Óli Már Guðmundsson Reykjavík 392
Nýju meistarastigin voru send í pósti til
allra félaga innan Bridgesambandsins í
vikunni. Spilarar geta haft samband við
formann sinn til nánari upplýsinga um
eigin stig. Oski einhver eftir leiðréttingum
á skránni eru þeir beðnir um að hafa
samband við skrifstofu BSÍ.
Vakin er athygli á því, að all nokkur
félög innan Bridgesambandsins hafa ekki
enn skilað inn stigum fyrir síðasta
starfsár. Er það afar leitt fyrir spilara í
viðkomandi félagi, en við engan að sakast
nema eigin félaga. Það ætti ekki að þurfa
að brýna það fyrir forráðamönnum, að
skráning stiga er ein af frumskyldum
þeirra sem taka að sér rekstur bridgefé-
iaga, svo og að koma þeim af sér til
skráningar hjá Bridgesambandinu.
Ný meistarastigaskrá mun sjá dagsins
Ijós í janúar 1987. Skilafrestur félaganna
fyrir þann tíma verður auglýstur nánar
síðar.
Sumarbridge
Stöðugt eykst þátttaka í Sumarbridge
1986 að Borgartúni 18. Sl. þriðjudag
mættu 42 pör til leiks, sem er mesta
þátttaka á þriðjudegi frá upphafi. Spilað
var í þremur 14 para riðlum og urðu úrslit
þessi (efstu pör):
A)
Eyjólfur Magnússon - Steingrímur Þórisson 210
Arnór Ragnarsson - Baldur Bjartmarsson 191
Murat Serdar - Þorbergur Ólafsson 181
Guðmundur Aronsson - Sigurður Ámundason 176
B)
Júlíus Snorrason - Sigurður Sigurjónsson 203
Anton Haraldsson - Ulfar Kristinsson 188
Karen Vilhjálmsdóttir - Þorvaldur Óskarsson 183
Magnús Ólafsson - Páll Bergsson 181
C)
Lárus Hermannsson - Gunnar Þorkelsson 213
Ragnar Ragnarsson - Stefán Oddsson 206
Sveinn Sigurgeirsson - Sveinn Þorvaldsson 187
Gunnar Þórðarson - Sigfús Þórðarson 169
Og efstu spilarar í þriðjudagskepninni
eru: Anton Haraldsson og Úlfar Kristins-
son með 60 stig. Lárus Hermannsson 53
stig. Guðmundur Aronsson 51 stig og
Sigfús Þórðarson og Gunnar Þórðarson
með 43 stig og Jóhann Jóelsson 42 stig.
Á fimmtudag mættu svo 58 pör til leiks,
þannig að parafjöldinn þessa vikuna náði
100 para markinu.
Spilað var í 4 riðlum og urðu úrslit
þessi:
A)
Murat Serdar - Þorbergur Ólafsson 248
Véný Viðarsdóttir - Dúa Ólafsdóttir 240
Eyjólfur Magnússon - Steingrímur Þórisson 233
Guðmundur Kr. Sigurðsson - Steingrímur
Steingrímson 230
B)
Þórður Sigurðsson - Valtýr Pálsson 198
Ásthildur Sigurgísladóttir - Lárus Arnórsson 170
Gunnar Þórðarson - Sigfús Þórðarson 166
Eyþór Pétursson - Lúðvík Wladiek 165
C)
Bernódus Kristinsson - Þórður Björnsson 208
Jacqui McGreal - Þorlákur Jónsson 192
Esther Jakobsdóttir-Valgerður Kristjónsdóttir 183
Anton R. Gunnarsson - Ari Konráðsson 177
Rósa Þorsteinsdóttir - Ragnar Þorsteinsson 177
D)
Ríkharður Steinbergss. - Steinberg Ríkharðss. 194
Hermann Lárusson - Páll Valdimarsson 188
Bergur Ingimundarson - Axel Lárusson 181
Björn Jónsson - Þórður Jónsson 166
Og efstu spilarar í fimmtudagskeppn-
Deng Xiaopeng, leiðtogi Kínverja, er kunnur hridgespilari og samtök
bridgefréttamanna kusu hann bridgcspilara ársins fyrir nokkrum árum.
Kínverjar litu þó þessa bakteríu leiðtogans hornauga lengi vel og töldu hana
merki um spillingu. En eftir að Deng komst til valda á ný 1978 hefur Kína
hægt og bítandi stefnt að því að komast í hóp bestu bridgeþjóða heims. Á
þessari mynd sést Dcng spila við nokkra félaga sína á bridgemóti 1984.
inni eru: Ásthildur Sigurgísladóttir og
Lárus Arnórsson 77stig. Murat Serdar og
Þorbergur Ólafsson 59 stig. Magnús Asp-
elund og Steingrímur Jónasson 44 stig.
Anlon R. Gunnarsson 43 stig. Guð-
mundur Kr. Sigurðsson 42 stig.
Að sjálfsögðu verður ckki spilað næsta
þriðjudag, sem er 17. júní, en Sumar-
bridge heldur áfram af fullum krafti næsta
fimmtudag
Bridgedeild Skagfirðinga
Þátttaka í sumarbridge deildarinnar cr
með miklum ágætum t.d. var spilað í
tveimur riðlum 16 og 14 para þriðjudag-
inn 10. júní.
Úrslit:
A) A
Dúa Ólafsdóttir - Véný Viðarsdóttir 187
Svava Ásgcirsdóttir - Þorvaldur Matthíasson 176
Guðmundur Samúelsson - Samúel Samúelsson 171
Erla Erlendsdóttir - Kristfn Jónsdóttir 17(1
B)
Hulda Hjálmarsdóttir - Þórarinn Andrcwsson 255
Högni Torfason - Sigmar Jónsson 251
Guðm. Kr. Sigurðs. - Erlendur Björgvinss. 237
Steingrímur Jónasson - Þorfinnur Karlsson 234
Efst eftir 5 kvöld eru:
Hulda Hjálmarsdóttir 7,5
Þórarinn Andrcwsson 7,5
Sigmar Jónsson 7
Ármann Lárusson 5
Helgi Nýborg 5
Ekki verður spilað 17. júní og verður
því kcppninni fram haldið þriðjudaginn
24. júní. Spilað er í Drangey.
Sveit Gunnlaugs
Norðurlandsmeistari
Sveit Gunnlaugs Guðmundssonar frá
Akureyri vann Norðurlandsmótið í
svcitakeppni scm fram fór á Siglufirði
fyrir skömmu. Alls mættu 19 svcitir til
leiks og spiluðu 7 umferðir eftir Monr-
adkcrfi.
Það voru sveitir Gunnlaugs og Boga
Sigurbjörnssonar sem börðust um sigur-
inn og fyrir síðustu umferð hafði sveit
Gunnlaugs eins stigs forskot: á sveit
Boga. Sfðasta umferðin reyndist Siglfirð-
ingunum síðan crfið og þcir töpuðu
sínum leik 13-17 mcðan sveit Gunnlaugs
vann 24-6.
( sigursveitinni spiluðu Hreinn Elliða-
son, Friðfinnur Gíslason, Stefán Ragn-
arsson, Pétur Guðjónsson, Magnús Aðal-
björnsson og Gunnlaugur Guðmundsson.
Lokaröðin varð þessi:
Gunnlaugur Guðmundson Akureyri 148
Bogi Sigurbjörnsson Sigiufirði 136
Jón Stefánsson Akureyri I28
Reynir Pálsson Fljótum H6
Sparisjóður Glæsibæjarhrcpps Il3
Ó.Þ. Kljútum.
RIKISUTVARPIÐ
Ríkisútvarpið Hijóðvarp minnir á, að skiiafrestur í
verð/aunasamkeppni þess um hijóðvarpsieikrit er tii 15.
september nœstkomandi. Verkin sku/u send/eik/istardei/c/
Hijóðvarps, pósthóif 120, í umstagi merktu
Leikritasamkeppni Ríkisútvarpsins 1986. Verkin eiga að
vera undir duinefni og rétt nafn höfundarað fyigjameð
í iokuðu ums/agi.
Leikritin sku/u vera frumsamin, hvergihafa verið birt áður
ogmiðað við aðþauséu40-60mínúturífiutningi. Fyrstu
verðiaun í samkeppninni verða ekkiiœgrien kr. 200.000,
en ai/s hefur dómnefnd kr. 350.000 tii ráðstöfunar.
R/K/SUTVARPiÐ