Tíminn - 14.06.1986, Side 19

Tíminn - 14.06.1986, Side 19
Tíminn 19 111 illlllll llllllilll Laugardagur 14. júní 1986 ARNAÐ HEILLA Sjötugur Þórður Björnsson ríkissaksóknari Þórður Björnsson ríkissaksóknari er sjötugur í dag. Það rifjar upp gamla endurminningu, þegar Pálmi Hannesson. rektor Menntaskólans í Reykjavík, sagði mér og nokkrum félögum mínum í Félagi ungra fram- sóknarmanna í Reykjavík, frá því fyrir meira en fimmtíu árum, að í skólanum hjá sér ætti Framsóknar- flokkurinn talsmann, sem bæri af flestum þar sem ræðumaður; rök- fastur og slyngur og sérlega skýr í framsetningu. Það leyndi sér ekki, að Pálmi Hannesson var hrifinn af þessum unga manni og var ekki alveg laus við stolt, þegar hann bætti því við að hann væri frændi sinn. Pess var ekki langt að bíða, að ég kynntist þessum unga manni, þegar hann gekk í Félag ungra framsókn- armanna, ásamt bekkjarfélaga sínum. Við urðum brátt nánir félag- ar og mat ég ekki annan mann meira í samtökum ungra framsóknar- manna á þeim tíma. Það styrkti kunn- ingsskap okkar, að skoðanir okkar fóru saman. Pessi maður var Þórður Björnsson. Næsta aldarfjórðunginn áttum við margt saman að sælda. Á stofnþingi Sambands ungra fram- sóknarmanna sumarið 1938 var ég kosinn formaður og hann varafor- maður. Mér fannst á þessum árum, að Þórður væri fæddur stjórnmála- maður, ráðsnjall og réttsýnn og fljótur að gera sér grein fyrir málum og margbreytilegum hliðum þeirra eftir því, hvernig atvikin þróuðust. Ég var á þessum árum ritstjóri Nýja dagblaðsins fyrst og síðar Tímans og ræddi ekki oftar um stjórnmál við annan mann en Þórð mér til gagns og leiðbeiningar, ef ég undanskil þá Jónas, Eystein, Hermann og Guðbrand. Framsóknarflokkurinn varð fyrir- því áfalli í bæjarstjórnarkosningun- um 1942 að missa bæjarfulltrúa sinn. Það var erfið sókn að ná því sæti. Fyrir bæjarstjórnarkosningarnar 1946 var vandasamt að finna mann, sem yrði líklegur til að vinna það sæti aftur. Fljótt urðu menn þó sammála um, að enginn væri sigur- vænlegri en Pálmi Hannesson. Pálmi Hannesson var hins vegar nijög tregur til að gefa kost á sér og færði meðal annars þau rök fyrir því að þetta samræmdist ekki vel rektors- starfi hans. Að lokum lét hann þó til leiðast, en hafði þann fyrirvara, að hann myndi ekki gegna bæjarfull- trúastarfinu nema í eitt kjörtímabil. Eins og búist var við náði Pálmi Hannesson kosningu með glæsibrag. Þegar kom að bæjarstjórnarkosn- ingunum 1950 skapaðist nýr vandi. Pálmi Hannesson hélt fast við það, að hann gæfi ekki kost á sér. Flokk- urinn varð því að finna nýjan mann. Við, sem höfðum unnið með Þórði Björnssyni, vorum ekki í neinum vafa um, að hann ætti að verða arftaki Pálma að þessu leyti. Um þaðnáðistlíka fullt samkomulag, að Þórður Björnsson skipaði efsta sæti framboðslistans. í öðru sæti var Sigríður Eiríksdótt- ir hjúkrunarkona, sem ekki var flokksbundin, en hallaðist að þjóð- varnarmönnum, en margir þeirra höfðu kosið Rannveigu Þorsteins- dóttur og átt þátt í því að tryggja henni glæsilegan sigur í þingkosning- unum árið áður. Þau Þórður og Sigríður reyndust sigursælir frambjóðendur og fengu aðeins nokkru minna fylgi en Rann- veig 1949. Þegar kom að bæjarstjórnarkosn- ingunum 1954 voru aðstæður breytt- ar og engan veginn vænlegar. Rann- veig Þorsteinsdóttir hafði fallið í þingkosningunum 1953, en litlu hafði munað á fylgi hennar og fram- bjóðanda Þjóðvarnarflokksins. Eftir sigur Þjóðvarnarflokksins í þing- kosningunum 1953 fékk hann mik- inn byr í seglin og bauð fram í bæjarstjómarkosningunum 1954. Sig- ríður Eiríksdóttir var ekki aftur í kjöri og féll í minn hlut að taka sæti hennar. Vegna vaxandi gengis Þjóð- varnartiokksins var aðstaða Fram- sóknarflokksins erfið, en það bætti þó stöðu hans, að hann hafði eitt gott tromp á hendi. Þórður Björns- son hafði starfað þannig í bæjar- stjórninni, að það var almennt viður- kennt, að hann hafði þar borið langt af öðrum andstæðingum bæjar- stjórnarmeirihlutans. Hann hafði þrautkynnt sér öll helstu mál og haldið uppi skilmerkilegum og snjöllum málflutningi í samræmi við það. Deilur hans og Gunnars Thor- oddsen, sem þá var borgarstjóri, urðu iðulega harðar og langar og oft skemmtilegar, því að báðir voru þeir vígfimir. Enginn kali myndaðist þó á milli þeirra og á góðum stundum röktu þeir saman ættir sínar. í kosningabaráttunni 1954 lögðu framsóknarmenn meginkapp á þann áróður, að Þórður Björnsson verð- skuldaði góða kosningu vegna fram- göngu sinnar í bæjarstjórn. Þessi málflutningur féll í góðan jarðveg. Þótt Þjóðvarnarflokkurinn fengi á fjórða þúsund atkvæða, tapaði Framsóknarflokkurinn innan við 100 atkvæðum, miðað við úrslit bæjar- stjórnarkosninganna 1950. Þetta var mikill persónulegur sigur fyrir Þórð Björnsson. I bæjarstjórnarkosningunum 1958 bætti Framsóknarflokkurinn mjög verulega fylgi sitt og lagði með því grundvöll aðsigrinum íþingkosning- unum 1959. Starf Þórðar Björnsson- ar sem bæjarfulltrúi átti mikinn þátt í fylgisaukningu Framsóknarflokks- ins í borgarstjórnarkosningunum 1958. Fyrir borgarstjórnarkosningarnar 1962 gaf Þórður Björnsson ekki kost á sér til framboðs á ný. Hann hafði á árunum 1941-1961 verið fulltrúi sakadómara f Reykjavík, en var skipaður sakadómari 1961. Hann ákvað að velja embættisbrautina til frambúðar. Árið 1964 var hann skipaður yfirsakadómari, er Valdi- mar Stefánsson var skipaður ríkis- saksóknari. Starfi yfirsakadómara gegndi hann til 1973. Þá lést Valdi- mar Stefánsson og var Þórður Björnsson skipaður eftirmaður hans. Embætti ríkissaksóknara hef- ur hann gegnt síðan, en lætur nú af því starfi fyrir aldurs sakir. Ríkissaksóknaraembættið var nýtt af nálinni, þegar Valdimar Stef- ánsson tók við því starfi. Óneitan- lega hefur það skapað þessu embætti traustan og virðulegan sess, að það hefur verið í höndum manna eins og Valdimars Stefánssonar og Þórðar Björnssonar, en hjá þeim fór saman skyldurækni og réttsýni. Þórður Björnsson er fæddur í Reykjavík 14. júní 1916, sonurhjón- anna Ingibjargar Ólafsdóttur Briem og Björns Þórðarsonar lögmanns og forsætisráðherra. Móðurafi Þórðar var Ólafur Briem, bóndi á Álfgeirs- völlum og alþingismaður og fyrsti formaður Framsóknarflokksins. Þórður lauk stúdentsprófi 1935 og lögfræðiprófi 1940. Framhaldsnám stundaði hann erlendis á árunum 1945-1946. Hann hefur auk framan- greindra starfa gegnt fjölmörgum nefndarstörfum, sem tengd hafa ver- ið menntun hans eða embættum. Meðan hann starfaði í Framsóknar- flokknum gegndi hann þar mörgum trúnaðarstörfum. Hann var t.d. for- maður Framsóknarfélags Reykja- víkur 1953-’55. Hann átti sæti í miðstjórn Framsóknarflokksins 1953-1963. Ég þakka Þórði Björnssyni kynni og vináttu, sem hefur haldist meira en í hálfa öld. Ég óska honum og Guðfinnu Guðmundsdóttur konu hans alira heilla. Ég veit að Þórður þarf ekki að kvíða iðjuleysi í ellinni. M.a. muni honum nú vinnast tími til að ganga til fulls frá hinu stórmerka bókasafni sínu, en í einkaeign mun ekki vera til meira erlendra ferða- bóka um ísland en í safni Þórðar. Þórarinn Þórarinsson. Vestur-Þýskaland: jr Islensk menning kynnt í Rínarhéruðum í Vestur-Þýska- landi verður í nóvember og desemb- er í ár haldin norræn menningar- kynning með svipuðu sniði og Scand- inavia today, sem haldin var í Bandaríkjunum fyrir nokkrum árum. Hér nefnist hún Nordische Wochen. Aðallega verður þessi kynning í Dússeldorf. Þar verður sérstök ís- lensk menningarkynning í nóvember í Orangerie, Benrath höll. Vilhjálm- ur Bergsson verður þar með sýningu á teikningum, vatnslitamyndum og olíumálverkum, alls 45-50 myndum. Sýningin ber nafnið Lífrænar víddir. Ávarp við opnun sýningarinnar flyt- ur Ernst O. Hesse, konsúll íslands. Á sama stað verða íslenskar bók- menntir kynntar. Dr. Ulrich Gro- enke, prófessor í norrænum fræðum við Kölnarháskóla, flytur þar fyrir- lestur um íslenskar fornbókmenntir, sem hann nefnir Heimsbókmenntir á heimsenda. Hámenning íslands á miðöldum. Eins og nafnið bcndir til var á miðöldum álitið, að ísland væri á endimörkum heimsins, og þaðan lægi leiðin beint til helvítis. Einmitt á þeim tímum voru skrifaðar þar. heimsbókmenntir. Marita Bergsson ætlar að kynna íslenska nútímaljóðlist undir nafn- inu Tíminn og vatnið. íslensk Ijóðlist á 20. öld. Sérstaklega verður lögð áhersla á að kynna Stein Steinarr og Snorra Hjartarson. Ennfremur verður í Orangerie, Benrath höll, íslenskt þjóðlaga- og vísnakvöld. Um það sjá þau Eiður Gunnarsson, óperusöngvari, og Agnes Baldursdóttir, píanóleikari. Bandslípivélar SCANTOOL 75x2250 mm Kr. 55.040 m.sölusk. SCANTOOLI 100x1500 mm Kr. 26.719 m.sölusk. Dönsk gæðavara -H j VELAVERSLUN Bíldshöföi 18*112 Reykjavík • Sími 685840 Eigum til á lager hinar vel þekktu HEYÞYRLUR Tvær vinnslubreiddir. Lyftutengdar og dragtengdar. Þjónustusími fyrir landsbyggðina Bein lína við varahlutaverslun OPNUNARTÍMI: mánudaga til föstudags kl. 8.30 til 18.00 39811 Spariðtíma /S BÚNADARDEILD Hringið beint S^SAMBANDSINS ÁRMÚLA3 108 REYKJAVÍK SiMI 38900

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.