Tíminn - 14.06.1986, Síða 14
14 Tíminn
'n.'ii .M lupsb'iSDunJ ■
Laugardagur 14. júní 1986
100 ára afmælismót skákfélagsins í Helsinki:
Hart sótt að titiláfanga í Finnlandi
Jón L. Árnason stóð í stórræðum
á alþjóðlega skákmótinu sem 100 ára
gamall skákklúbbur höfuðstaðarins í
Helsinki stóð fyrir. Annar áfangi að
stórmestaratitli var markmið hans í
mótinu og hann náði eftir frækilegan
sprett um mitt mót þar sem vinn-
ingarnir komu á færibandi og urðu
alls sex í röð. Afanginn miðaðist við
8 vinninga úr 11 skákum og Jón varð
að taka á honum stóra sínuni því í
fyrstu umferð tapaði hann fyrir Jon-
atahn Tisdal, Bandaríkjamanni sem
um skeið hefur verið búsettur í
Noregi. Því fylgdi jafnteli við sterk-
asta skákmann Finna um þessar
mundir, Jouni Yrjola en því næst
kom spretturinn góði, sex skákmenn
lágu í valnum þar af fjórir heima-
menn, að auki Svtinn Widenkeller
og sovéski stórmeistarinn Josif
Dorfman, sem er einn helsti ráðgjafi
heimsmeistarans Kasparovs.
Er aðeins þrjár umferðir voru til
loka þurfti Jón 50% vinningshlutfall.
Hann gerði fyrst jafntefli við Svíann
Lars Karlson en þá kom babb í
bátinn og Sovéski stórmeistarinn
Timoschenko sem líkt og Dorfman
hefur aðstoðað Kasparov, gerði sér
lítið fyrir og vann okkar mann sem
nú stóð frammi fyrir því erfiða
úrlausnarefni að sigra hinn örugga
stórmeistara Dana, Curt Hansen.
Curt var efstur fyrir síðustu umferð
og hefði jafntefli komið honum vel.
En Jón varð að vinna og slíkt gefur
mönnum oft aukinn kraft. Eftir
mikinn barning og þófkennda tafl-
mennsku á köflum sá Jón ljós í
stöðunni, fórnaði hrók og varsú fórn
svo mögnuð að Daninn varð að
gefast upp þegar í stað.
Meðan þessu fór fram hafði Tim-
oschenko gert jafntefli í sinni skák
og stóð því ásamt Jóni á verðlauna-
pallinum. Þeir hlutu báði 8 vinninga,
Curt varð í þriðja sæti og Tisdall
fjórði með 7 vininga. Hann var í
sömu aðstöðu og Jón fyrir síðustu
umferð, varð að vinna en það tókst
ekki. Fáir eru jafn harðsæknir og
íslendingar þegar stórmeistaratitill
er í húfi eins og frægt er orðið.
Jón tefldi af hörku í þessu móti.
Aðeins tvö jafntefli, sjö sigrar og tvö
Jón L. Árnason. Glæsilegur sprettur, sex sigrar í röð tryggði annan áfanga að stórmeistaratitili.
Ferðaskrifslolan Úrval v/Austurvöll. Simi (91) 26900.
A-'arfs er full af lífi og krafti, fjöri og ferðamannalúxus.
JL Þar blómstrar lifandi menning og sérdeilis lystaukandi
matarlist; kræsingar fyrir likama og sál á hverju götuhorni.
Vika á möu hóteli
kostarjrá kr 23.295r
Úrval býður farþegum sínum mikinn fjölda
hótela í París. Allt frá notalegum 3ja stjörnu
hótelurn uppi 5 stjörnu lúxushótel. Innifalið
i verði er flug, gisting og morgunverður.
Vjka íglœsilegum
íbúdum kostar frá
kr 20.934.-
í boði eru glæsilegar íbúðir á besta
stað í borginni. Þar eru öll þægindi.
Ef dvalið er lengur en 7 daga fæst
15% afslátturog30% ef dvalið er
lengur en 3 vikur. Innifalið:
Flug, gisting, söluskattur,
hreingerning o.fl.
Brottfarir til Parísar: Alla
miðvikudaga og sunnudaga
í júní, júlí og ágúst.
Sérstakarviku hóþ-
feröir 6.og20.ágúst
Gist er á fallegu 3ja stjörnu
hóteli-verðá mann í tvíbýli:
kr. 24.470,— eða lúxus-
hótelinu Lutetia Concorde -
verð á mann í tvibýli: kr. 28.390,-. Innifalið:
Flug, gisting, morgunverður, akstur frá og
flugvelli í París, skoðunarferðir um Paris og
Versali og íslensk fararstjórn. Barnaafsláttur.
töp. Ein hans besta skák var gegn
Svíanum Widenkeller sem tefld var
í fimmtu umferð þegar Svíinn var
eftur með 3Vi vinning:
Hvítt: Widenkeller (Svíþjóð)
Svart: Jón L. Árnason.
Enskur leikur.
1. c4 e5
2. Rc3 dó
3. d4 cxd4
4. Dxd4 Rf6
5. b3 g6
(Þessi byrjun hefur verið í sviðsljós-
inu að undanförnu m.a. fyrir til-
verknað Garrí Kasparovs sem vann
frækilegan sigur á Robert Húbner í
upphitunareinvígi í fyrra. Jón teflir
byrjunina eftir forskrift Tékkans
Smejkals sem sleppir - Rc6 þar
sem drottningin á d4 hrekst hvort eð
er undan fyrr eða síðar.)
6. Bb2 Bg7
7. g3 0-0
8. Bg2 He8
9. Dd2 Rbd7
10. Rh3?!
(Vafasamur leikur. Betra er talið 10.
Rf3 með u.þ.b. jöfnum möguleik-
um)
10. .. Rc5
11. 0-0 a5
12. Hadl a4!
(Þessi framrás reynist hvítum oft
erfið. Það er ljóst að nú þegar er
frumkvæðið í höndum svarts því 13.
Dc2 strandar á 13. - Bf5 o.s.frv.)
13. b4 Rce4
14. Rxe4 Rxe4
15. Dc2 Bxb2
16. Dxb2 a3!
(Fótgönguliðinn framsækni gerir
hvítum gramt í geði og hefur ekki
sagt sitt síðasta orð. Þó ótrúlegt
kunni að virðast á hvítur í miklum
erfiðleikum með að finna hentugan
reit fyrir drottninguna.)
17. Db3
(Það er erfitt að benda á betri leik.
Eftir 17. D2 dc2 Bf5 er hvítur í
úlfakreppu.)
17. .. Bxh3
(18. - Rg5 kom til greina en þetta er
betra. Drottningin ryðst inn til b2 og
þjáningar hvíts minnka ekki.)
21. ...Dxb3
22. Hxb3 Rd2
23. Hd3 Rxc4
24. Hc3 Rb2
25. bxc5 bxc5
26. Hb3
(Ekki 26. Hxc5 vegna 26. - Rd3 og
vinnur.)
26. ...He7
27. e4 c4
28. Hb5 c3
29. Hcl Hc7
30. Hc2 Rdl
(„Þetta er ansi fallegur riddari,“
sagði frægur maður hér um árið.
Riddarinn hefur í frammi ýmsar
kúnstir og helsta verkefni er að fá c
- peðinu þokað enn fremur.)
31. Hb3 Hd8
32. Bfl Hd2
33. Hcl Hxa2!
+ ■
Illllll i l!il lllllllll i 111 i
1 i lllll
i
A lllllll
III l i III IHI
III 0 101
- m lloíl
(Lagleg lítil flétta af einfaldari sort-
inni. Frípeðin ljúka vel unnu verki.)
34. Hxdl c2
35. Hcl Hb2
36. Hb3 Hxb5
37. Bxb5 a2
38. Kf2
(Hvítur gat auðvitað gefist upp með
góðri samvisku en þráast við um
stund. Nú vinnur 38. - al (D) létt en
Jón velur aðra leið og eigi síðri.)
38. ...Hc3
39. Ke2 Hb3
40. Kd2 Hxb5
og hvítur lagði niður vopnin.
19. Hd3
(Svartur hótaði 19.-Rc3.)
19. ...Db2
20. Hel c5!
21. f3(?)
(21. b5 virðist betra en Jón á sterkt
framhald: 21. - d5! 22. cxd5 Rd6!
með yfirburðastöðu. En níu tapar
hvítur peði bótalaust.)
Hannes og Snorri efstir
Boðsmót Taflfélagsins Reykjavík-
ur stendur nú yfir og nýtur sem
endranær mikilla vinsælda. Kepp-
endur eru um 70 talsins. Þegar
tefldar hafa verið fjórar umferðir
eru þeir Snorri Bergsson og Hannes
Hlífar Stefánsson efstir með 4 vinn-
inga. Tefldar verða sjö umferðir.
FRAMTÆKNI s/f Skemmuveg 34 N
Vélsmiðja 200 Kópavogur lceland
Járnsmíði- Viðgerðir Tel. 91-641055
Vélaviðgerðir - Nýsmíði