Tíminn - 14.06.1986, Side 16
16 Tíminn
Laugardagur 14. júní 1986
illlllllllllllllllllllllllll POPP lllllllllllllllllllllllllllllllllllllllilllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll
VÍMULAUST
LISTAPOPP
Nú styttist óðum í viðburðinn sem
poppáhugamenn hafa beðið eftir
árum saman, fyrsta rokkhátíð ís-
landssögunnar stendur fyrir dyrum.
Skipuleggjendur hátíðarinnar leggja
mikla áherslu á að allt fari vel fram,
því ef hátíðin fer úr böndunum er
ólíklegt að sambærilegur viðburður
verði hér á landi í bráð. Samtökin
Vímulaus æska taka þátt í undirbún-
ingnum og tugir unglinga hafa lagt
fram vinnu við skreytingu Laugar-
dalshallarinnar og takmarkið er
Listapopp án vímuefna.
Fyrir skömmu voru hinir erlendu
gestir Listapoppsins kynntir hér í
blaðinu. Því miður gat hin frábæra
hljómsveit Stranglers ekki komið í
þetta sinn, en í hennar stað kemur
ein áhugaverðasta hljómsveitin í
dag, Simply red. Því verður Simply
red kynnt hér að neðan ásamt ís-
lensku hljómsveitunum.
SIMPLY RED
Simply red er ung hljómsveit frá
Manchester og hefur skotist hratt
upp á stjörnuhiminn poppsins að
undanförnu. Aðalsprauta hljóm-
sveitarinnar er Red Hucknall og er
djúp, tilfinningarík söngrödd hans
einkenni Simply red.
Red fæddist í Manchcster árið
1960. Á uppvaxtarárum sínum varð
hann fyrir áhrifum frá soultónlistinni
og má greina þau áhrif í tónlist
Simply red.
Fyrsta smáskífa hljómsveitarinnar
kom út vorið 1985 og hafði hún að
geyma gamla lag Valentine bræðr-
anna, Money's Too Tight To Ment-
ion og naut lagið mikillar hylli í
Bretlandi.
f kjölfar smáskífunnar kom LP
platan Picture Book og sló lagið
Holding Back the Years heldur bet-
ur í gegn. Það varð mikil lyftistöng
fyrir hljómsveitina og nú er svo
komið að Simply red er ein vin-
sælasta hljómsveit poppsins og er
mikill fengur fyrir Islendinga að fá
hljómsveitina hingað í sömu viku og
hún situr í efstu sætum vinsældarlista
um allan heim.
GRAFÍK
ísfirska hljómsveitin Grafík, leik-
VARAHLUTIR í
INTERNATIONAL
Á GÓÐU VERÐI
Jámhálsi 2 Sími 83266 TIO Rvk.
Pósthólf 10180
BJARNI TRYGGVA
ur á mánudagskvöldið. Grafík hefur
starfað í fimm ár og gefið út fjórar
stórar plötur. Án efa er Grafík ein
vinsælasta rokkhljómsveit síðustu
ára og er skemmst að minnast leik
sveitarinnar í Laugardalshöllinni
þann 17. júní í fyrra. Þá vakti Grafík
verulega athygli á Norrokk hátíðinni
í Danmörku síðastliðið sumar og
þótti með eindæmum lífleg á sviði.
Ekki er víst að Helgi Björnsson
framlínumaður Grafíkur sé til stór-
ræðanna um þessar mundir, því
hægri fótur kappans er í einhverju
lamasessi, en hann lofar að gera sitt
besta.
Grafík er skipuð þeim Helga
Björnssyni söngvara, Rúnari Þóris-
syni gítarleikara, Rafni Jónssyni
trommuleikara Jakobi Magnússyni
bassaleikara og Hyrti Howser
hljómborðsleikara.
BJARNITRYGGVA
Nýstirnið Bjarni Tryggva kemur
alla leið frá Norðfirði til að
skemmta á Listapoppinu. Hann hef-
ur fengist við trúbadormennsku á
liðnum árum, jafnhliða sjómennsku
og öðrum vertíðarstörfum.
Nýverið lauk Bjarni vinnslu á
sinni fyrstu stóru plötu og kallar
hann plötuna „Mitt líf, bauðst
eitthvað betra?“
Bjarni kemur fram á mánudags-
kvöldið og honum til aðstoðar verða
liðsmenn Grafíkur ásamt Sigurði
Long, saxista. Gaman verður að
heyra í nýstirninu á þessum fyrstu
stóru hljómleikum hans.
GREIFARNIR
Frá Húsavík koma Greifarnir ný-
bakaðir sigurvegarar músíktilrauna
Tónabæjar og Rásar tvö.
Greifarnir eru tveggja ára gömul
hljómsveit en spilaði lengst af undir
nafninu Special Treadment. Fyrir
rúmum tveimur mánuðum breyttu
sveinarnir nafninu í Greifarnir og
með nýjum söngvara tókst þeim að
vinna verðskuldaðan sigur á músík-
tilraunum. Hljómsveitin stefnir að
útgáfu fjögurra laga plötu innan
tíðar.
Greifana skipa Felix Bragason
söngvari, Sveinbjörn Grétarsson gít-
arleikari, Gunnar Hrafn Gunnars-
son trommuleikari, Kristján Viðar
Haraldsson hljómborðsleikari og
bassaleikarinn Jón Ingi Valdimars-
son.
RIKSHAW
Fyrsta plata Rikshaw kom út fyrir
síðustu jól og seldist vel. Öll lög
plötunnar komust á vinsældarlista
Rásar tvö og er það góð vísbending
um vinsældir hljómsveitarinnar.
Strákarnir í Rikshaw hafa spilað
mikið opinberlega og skapað sér
reynslu sem nýtist þeim vel í Höllinni
þann 17. júní næstkomandi.
Rikshaw er skipuð fimm
mönnum, Richard Scoobie syngur,
Ingólfur Guðjónsson leikur á
hljómborð, Dagur Hólmarsson
plokkar bassann, Sigurður Gröndal
leikur á gítar og Akureyringurinn
ungi, Sigfús Óttarsson sér um ailan
trommuleik.
GRAFÍK
(Tímamynd-Pétur)
GREIFARNIR
(Tímamynd-Pétur)
RIKSHAW
SIMPLY RED