Tíminn - 08.11.1986, Blaðsíða 1

Tíminn - 08.11.1986, Blaðsíða 1
f H ^ _ STOFNAÐUR1917 I íminn SFJALDHAGI gj allar upplýsingar á einum staó SAMVINNUBANKI « ÍSLANDS HF. Ljósmyndavél var stolið úr husakynnum isfilm að Laugavegi 26 fyrir nokkrum dögum. Um er að ræða Pentax 6 sinnum 7 vél með 55 mm linsu. Þjófnaðurinn hefur verið kærður til RLR og biður hún þá sem eitthvað kunna að vita um hvar vélin er niður- komin að hafa samband. SVÍAR eru feimnir og innhverfir og vilja frekar taka sér göngutúr í skógin- um en sitja í veislum með samstarfs- mönnum sinum. Þau einu skipti sem þeir losa sig úr viðjum feimninnar er þegar þeir drekka áfengi og verða fullir og einnig í rúmförum. Það er sænskur haskóiaprófessor sem heldur þessu fram en hann mun hafa rannsakað atferlismunstur landa sinna nokkuð lengi og frekar nákvæmlega. FÓLK sem reykir ekki en býr með reykinqamönnum á 35% meiri mögu- leika a að næla sér í lungnakrabba- mein en aðrir sem reykja hvorki né búa með reykingamönnum. Þetta kom fram í niourstöðum alþjóðlegrar rann- sóknar sem birtar voru í bresku lækna- riti í gær. AÐALFUNDUR miðstjórnar Alþýðubandalagsins er haldinn nú um helgina og lýkur á sunnudag. Þar veröur til umfjöllunar stjórnmálaálykt- un, tillögur um efnahags- og atvinnu- mál, breytingar á húsnæðismálakerfi og utanrikismál. I MÁLFUNDAFÉLAG féi agshyggjufólks boðar til opins fundar um efnið: Verkalýðshreyfing og stjórn- málaflokkar. Ráostefnan hefst klukkan 20:30 á þriðjudag að Hótel Hofi við Rauðarárstíg í Reykjavík. Erindi og framsögurflytja þau Lára V. Júlíusdótt- ir lögfræðingur ASl, Helgi Skúli Kjart- ansson, Elín G. Ólafsdóttir kennari og Þorbjörn Guðmundsson. Fundurinn er öllum opinn. VÆRINGAR virðast vera í upp- siglingu varðandi prófkjör framsókn- armanna í Norðurlandskjördæmi vestra. Stefán Guðmundsson alþingis- maður hefur gefið út þá yfirlýsingu að hann hyggist sækjast eftir fyrsta sæti á listanum, en það skipaði Páll Péturs- son við síðustu kosningar. Páll hefur hinsvegar lýst því yfir að hann líti á það sem vantraust á sig fari hann f sæti neðar á listanum en í það fyrsta. AMFETAMÍN fannst fyrir tæp- um hálfum mánuði, þeaar börn voru að leik á Vatnsendahæo. Skjóða sem börnin fundu reyndist innihalda um 140 grömm af efninu og er verðmæti þess um 1,5 milljónir króna komið f hendur neytenda. Engu er líkara en fíkniefnadeildln hafi gefist upp við rannsókn málsins þar sem tilkynnt var í sjónvarpsfréttum í gær að málið væri enn í rannsókn. Væntanlega mun slfk yfirlýsing ekki verða til þess að auð- velda starf lögreglunnar. KRUMMI „Verður þá fram- sóknaráratugurinn framsóknaröld? „ Flokksþing Framsóknarflokksins sett í gær: „Ný öld í augsýn“ flokksins, en í fyrsta sinn í sögu flokksins væri hann kominn með sérstakt merki og kvaðst Guð- mundur fagna því að fram væri komið slíkt samciningartákn og vona að sem flest framsóknarfólk bæri það merki í barmi sínum. Finnur Ingólfsson, gjaldkeri flokksins sagðist því miður ekki geta talað af sömu bjartsýni og þeir Steingrímur og Guðmundur, þar sem dökkt væri yfir fjármálum flokksins. Rakti hann í stuttu máli hvernig Framsóknarflokkurinn tók á sig skuldir af dagblaðinu NT. Finnur sagði að um síðustu áramót hafi framkvæmdastjórn flokksins staðið frammi fyrir tveim valkost- um, að láta taka blaðið til gjald- þrotaskipta cða reka það áfram til bráðabirgða og reyna að draga sem mest úr tapinu. Benti hann á að það hafi pólitískt ekki verið viðun- andi að láta fyrirtæki sem flokkur- inn væri stærsti hluthafinn í fara undir hamarinn og því hafi seinni kosturinn verið valinn. í dag sagðt hann að flokkurinn skuldaði um 70 milljónir vegna blaðaútgáfunnar og cftir að flokkurinn hafi sclt húsnæðið að Rauðarárstíg og sinn hlut í því húsi sem tekið var upp í (makaskiptum fyrir það, stæði : flokkurinn uppi eignalaus með 25 ( milljón króna skuld. Sagði hann þó enn kraft í mönnum og í athugun væri að flokkurinn kæmist í hús- næði í miðbænum, nálægt Alþingi, og kæmi þá til greina að kaupa, leigja cða byggja. Einn ljósan punkt nefndi Finnur þó varðandi blaðaútgáfuna, en hann var sá að Tíminn hefur fyrstu níu mánuði ársins verið rekinn með lítilsháttar' hagnaði, sem hann taldi gánga kraftaverki næst, „enda krafta- , verkamenn á ferð.“ Síðdegis í gær voru síðan al- mennar umræður og nefndarstörf. Nánar er fjallað um þingið á bls. 5 og 17. -BG - er kjörorð þingsins Flokksþtng Framsóknarflokksins hófst í gær og er það hið 19. í röðinni og mun' standa fram á sunnudag. Þing þetta er jafnframt afmælisþing, en í ár er flokkurinn 70 ára. Á þinginu sitja rúmlega 500 ; fulltrúar víðs vegar af landinu, enj kjörorð flokksþingsins er: „Ný öld í augsýn". Steingrímur Hermannsson for- maður flokksins setti þingið en fundarstjórar á fyrsta degi voru kosnir Bolli Héðinsson og Valgerð- ur Sverrisdóttir. Steingrímur Hermannsson flutti yfirlitsræðu þar sem hann gerði m.a. að umtalsefni ríkisstjórnar- samstarfið og sagði að framsóknar- menn gætu vel við það unað og að hann væri ánægður með það. Benti hann á að störf framsóknarráðherr- anna í stjórninni hefðu einkennst af festu og að tekist hafi verið á við fjölmörg knýjandi vandamái. Ræða Steingríms birtist í heild í blaðinu í dag. Guðmundur Bjarnason gaf á flokksþinginu í gær skýrslu ritara og fjallaði hann um innri mál flokksins. Guðmundur sagði það sérstaklega ánægjulcgt hvcrsu mjög Landssamband framsóknar- kvenna og samtök ungra framsókn- armanna hefðu mótað og tekið þátt í flokkstarfinu á síðustu árum. Þá sagði hann frá nýju mcrki Steingrímur Hermannsson formaður Framsóknarflokksins flutti ræðu við upphaf 19. flokksþings Framsóknar- flokksins. Ræða Steingríms er birt í glaðinu í dag. Tímamynd: Pjetur Heildartekjurnar um 1.290.000 kr. á vísitölufjölskyldu 1985: Þriðjungur tekna lands- manna annað en vinnulaun Af heildartekjum einstaklinga í landinu er um þriðjungur til kom- inn fyrir eitthvað annað en launuð störf. Heildarlaunagreiðslur í land- inu árið 1985 námu um 57 milljörð- um króna, samkvæmt útreikning- um Þjóðhagsstofnunar úr launa- miðum vegna skáttframtala. Auk allra iaunagréiðslna er þar um að ræða t.d. ökutækjastyrki, dagpen- inga, risnu, gjafir og reiknuð laun eigenda í eigin atvinnurekstri. Þar við bætast síðan í kringum 50% eða u.þ.b. 2.8 til 29 milljarðar í aðrar tekjur., Þar er m.a. um að ræða tryggingabætur, lífeyris- greiðslur, eignatekjur svo sem vaxtatekjur og leigutekjur og síðan hagnað af einstaklingsfyrirtækj- um. Upplýsingar um þcssar u.þ.b. 50% tekjur til viðbótar launatekj- um eru fengnar frá Þjóðhagsstofn- un sem nú vinnur að gerð tekju- og útgjaldareiknings hcimilanna á ár- ■unum frá 1980. Samtals hafa því tekjur einstaklinga á síðasta ári verið í kringum 85 milljarðar króna, eða rösklega 80% af um 105 milljarða króna þjóðartekjum það ár. Þess má geta að af framan- greindum 28-29 milljarða tilfærslu- tekjum námu bætur frá Trygginga- stofnun og lífeyrisgrciðslur lífcyris- sjóðanna samtals um 5,4 milljörð- um á síðasta ári. Tekjur af fasteign- um og fjármunum og rekstrar- afgangur einstaklingsfyrirtækja hafa samkvæmt því numið í kring- um 22-23 milljörðum króna, eða ríflega þriðjungi á við öll vinnulaun í landinu. Um 85 milljarða heildartekjur samsvara um 353 þús. krónum á hvcrn landsmann árið 1985, eða um 1.290 þús. króna tekjum á hverja vísitölufjölskyldu. Launa- tekjurnar - 57 milljarðar - jafn- gilda um 483 þús. kr. mcðaltckjum á unnið ársverk árið 1985, eða um 866 þús. króna meðaltekjum á hverja vísitölufjölskyldu. Til samanburðar má geta þess, að hcildarútgjöld vísitölufjölskyld- unnar í framfærsluvísitölunni voru um 836 þús. krónur á síðasta ári, eða um 30 þús. krónum lægri en meðal launatekjur vísitölufjöl- skyldunnar. - HEI Reykjavík: Þjófnaðir úr bílum cru mjög margir um þessar niundir. Bæði er um að ræða innbrot í bílana og að farið cr inn í þá þegar eigendur skilja við þá ólæsta á meðan þcir skreppa frá. Talstöðvum, hljómflutningstækjum og' lausamunúmcrstoliðogekki t virðist skipta máli hvaða tími dags cr um að ræða en flestir eru þjófnaðirnir á nóttunni. Einnig hefur siðustu tvær vik- ur hefur vcrið stolið um '7 erlendum númeraspjöldum af bílum.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.