Tíminn - 08.11.1986, Blaðsíða 6
FRÉTTAYFIRLH
MOSKVA — Háttsettur sov-
éskur herforingi sakaöi Banda-
ríkjastjóm um að standa í vegi
fyrir framgangi viðræöna um
takmörkun vígbúnaðar og
sagði Moskvustjórnina ekki
munu láta Vesturveldin ná
hernaðarlegum yfirburðum.
Herforinginn, Pyotr Lushev,
sagði þetta í ræou sem hann
hélt á hinni árlegu hersýningu
á Rauða torginu í tilefni bylt-
ingarafmælisins. Hann kom
fram í stað Sergei Sokolovs
varnarmálaráðherra sem fréttir
herma að eigi við vanheilsu að
stríða.
PARIS — George Shultz
utanríkisráðherra Bandaríkj-
anna gaf í skyn að mikið hefði
skilið á milli í viðræðum sínum
um hryðjuverk við Jacques
Chirac forsætjsráðherra
Frakklands. Utanrikisráðherr-
ann bandaríski tók þó fram að
þeir félagar hefðu verið sam-
mála um nauðsyn þess að
koma í veg fyrir hryðjuverk.
TEHERAN — Ali Akbar Has-
hemi Rafsjanjani forseti þings-
ins í íran sagði íranstjórn vera
tilbúna til að miðla málum við
líbanska hópa er halda banda-
rískum gíslum ef stjórnin í
Washington gæfi skipan um
að vopn, sem haldið er frá
íran, yrðu send hið snarasta til
landsins.
MAPUTO — Mósambik-
stjórn neitaði harðlega ásökun-
um Suður-Afríkustjórnar um
að Samora heitinn Machel fyrr-
um forseti landsins , sem lést í
flugslysi í síðasta mánuði,
hefði verið að skipuleggja í
samráði við Zimbabwestjórn
byltingu í nágrannaríkinu Mal-
awi.
MANILA — Corazon Aquino
forseti Filippseyja sagðist ekki
ætla að fresta fyrirhugaðri för
sinni til Japans í næstu viku
þrátt fyrir orðróm um að hátt-
settir menn innan hersins væru
að skipuleggja byltingu.
JÓHANNESARBORG
— Þúsundir svartra verka-
manna við Kimrossnámurnar,
þar sem versta gullnámuslys
landsins varð í septemberm-
ánuði, fóru í verkfall en ástæð-
an fyrir verkfallinu var þó ekki
að fullu Ijós.
LISSABON — Einn æðsti
maður UNITA skæruliðahreyf-
ingarinnar í Angólu fórst í bíl-
slysi í síðasta mánuði. Það var
talsmaður UNITA sem skýrði
frá þessu í gær.
6 Tíminn Laugardagur 8. nóvember 1986
Sovétríkin/Bandaríkin:
Moskva-Reutcc
Mikhail Gorbatsjov Sovétleiðtogi
sagði í gær að það væri „engin leið
til baka“ frá hinni nýju stöðu í
alþjóðamálum sem skapaðist eftir
viðræður hans og Reagans Banda-
ríkjaforseta hér í Reykjavík í síðasta
mánuði
Gorbatsjov sagði ofangreint í
móttökuathöfn sem haldin var að
aflokinni hinni árlegu hcrsýningu á
Rauða torginu í tilefni byltingar-
afmælisins. Hann tók þar enn einu
sinni fram að leiðin fram á við lægi í
gegnum „nýja pólitíska hugsun“ þar
sem allar þjóöir sýndu hvcr annarri
gagnkvæma virðingu. Það var sov-
éska fréttastofan Tass sem skýrði frá
ræðu Gorbatsjovs.
Eduard Shevardnadze utanríkis-
ráðhcrra Sovétríkjanna hafði áður
ásakað Bandaríkjastjórn, að aflokn-
um tveggja daga viðræðum við
George Shultz utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, um að vilja ekki
standa við þann skilning sem náðist
á leiðtogafundinum í Reykjavík.
Báðir ráðherrarnir voru sammála að
árangurinn af Vínarviðræðum þeirra
hcfði verið enginn.
Eins og búist hafði vcrið við lagði
Sovétstjórnin fram í gær nýjar tillög-
ur í afvopnunarviðræðum stórveld-
anna í Genf en þar var sérstakur
fundur milli fulltrúa ríkjanna tveggja
í bandaríska scndiráðinu. í tillögun-
um er meðal annars gert ráð fyrir
_ eyðingu allra kjarnorkuvopna sem
miðað er á óvininn fyrir árið 1996og
verulegum takmörkunum á geim-
vopnarannsóknum.
Mikhail Gorbatsjov Sovétleiðtogi ræddi í gær um nauðsyn á „nýjum pólitískum þankagangi“, nokkuð sem strákurinn
í Moskvuforystunni hefur ekki ósjaldan minnst á.
Mörg ágreiningsefnin virðast
standa í vegi fyrir samkomulagi milli
stórveldanna tveggja um takmörkun
kjarnorkuvígbúnaðar en helsti
steinninn í götunni er þó geimvarn-
aráætlun Reagans Bandaríkjafor-
seta.
Sovétmenn hafa krafist þess hvað
eftir annað að rannsóknir er tengjast
„stjörnustríðsáætluninni" verði tak-
markaðar til að koma í veg fyrir nýtt
vígbúnaðarkapphlaup í geimnum.
Reagan og stjórn hans halda þó
fast við þá sannfæringu sína að
geimvopnin muni bjarga mannkyn-
inu frá kjarnorkustyrjöld og hjálpa
til við að gera kjarnorkuvopn áhrifa-
laus og gagnslaus.
„Engin leið til baka“
- Gorbatsjov talar enn um nýja pólitíska hugsun
- Sovétmenn lögöu fram nýjar afvopnunartillögur í gær
EB gegn Sýrlendingum:
Kína:
Takmörkuð refsing
líklega samþykkt
Brussel -Reutcr á takmarkaðar refsiaðgerðir gegn
Flest ríki Evrópubandalagsins Sýrlendingum, sem Bretlandsstjórn
(EB) virðast vera tilbúin til að setja sakar um að tengjast tilrauninni til
Suður-Kórea:
Sjálfsvíg
vegna
atvinnuleysis
Seoul-Reutcr
Örvingluð háskólakona í Suður-
Kóreu, sem útskrifaðist fyrir átta
mánuðum, kveikti í sér og skar sig
á háls eftir að liafa árangurslaust
leitað sér að vinnu. Það var lögregl-
an í Seoul sent skýrði frá þcssu í
gær.
Yoo Nan-Yong. 23 ára gömul,
hellti yfir sig bensíni og kveikti í
sér á heimili sínu. Hún lauk námi
í iðnaðarhönnun frá háskólanum í
Seoul í fcbrúar síðastliðnum og
hafði sagt við fjölskyldu sína að
hún vildi frekar deyja en lifa í
iðjuleysi og við sektarkennd.
Það er kaldhæðnislegt, að hinum
mikla efnahagsuppgangi í Suður-
Kóreu á síðasta áratug hefur fylgt
aukið atvinnuleysi meðal háskóla-
menntaðs fólks. Tölur um þetta
atvinnuleysi eru að vísu ekki fáan-
lcgar hjá stjórnvöldum cn stjórnar-
andstæðingar hafa haldið fram að
um 20% atvinnuleysi ríki hjá þess-
um þjóðfélagshóp, samanboriö við
4% hjá þjóðinni í heild.
Margt ungt fólk nteð góðar gráð-
ur frá háskólum þarf að vinna við
almenn þjónustustörf eða sem
verkamenn, störf sem mörg ung-
mennanna eiga erfitt með að sætta
sig við.
að koma sprengju fyrir um borð í
flugvél ísraelska flugfélagsins E1 A1
á Heathrowflugvelli í Lundúnum.
Þetta var haft eftir stjórnarerindrek-
um EB í gær.
Erindrekarnir sögðu að ákvörðun
yrði tekin á fundi utanríkisráðherra
EB í Lundúnum á mánudaginn hvort
innleiða ætti refsiaðgerðirnar þar
sem meðal annars er kveðið á um
vopnasölubann.
I viðræðum utanríkisráðherra
ríkjanna tólf í Vín í fyrradag var
komist að grunnsamkomulagi um
refsiaðgerðirnar og var gríski utan-
ríkisráðherrann sá eini sem neitaði
að fallast á þessar aðgerðir.
Að sögn stjórnarerindrekanna
hafa önnur ríki EB gefið í skyn að
neitun Grikkja muni ekki koma í
veg fyrir að áðurnefnd refsing gangi
í gildi.
Auk vopnasölubannsins munu
refsiaðgerðirnar kveða á um strang-
ari vegabréfsskyldu fyrir sýrlenska
ríkisborgara, meira eftirliti með
stjórnarerindrekum Sýrlendinga svo
og hertu eftirliti með flugvélum
sýrlenska flugfélagsins.
Gríska stjórnin, sem venjulega er
hliðhollari Arabaþjóðunum en
stjórnir hinna ellefu EB ríkjanna,
hefur neitað að taka þátt í hverskon-
ar sameiginlegum aðgerðum gegn
Sýrlendingum.
Lögreglu-
bíla-
skattur
Harðlega gagnrýndur
Pekini; - Reuter
Lögregla í Austur-Zhejiang-
hcraði í Kína hótaði að draga
úr eftirliti með byggingum
fyrirtækja héraðsins nema að
þau borguðu aukaskatt er færi
í kaup á lögreglubíium. Þetta
kom fram í frétt Kínverska
dagblaðsins í vikunni og var
jrar skatturinn sagður hafa átt
að nema 162 þúsund yuan eða
um 1,7 milljónum íslenskra
króna.
Blaðið sagði héraðsstjórnir
víðs vegar um landið hafa að
engu haft viðvaranir stjórnar-
innar í Pekíng um að hætta
gerræðislegum skatta-
þvingunum sem síðan væru
notaðar til að fjármagna bygg-
ingasmíði eða kaup á lögreglu-
bílum.
Blaðið vitnaði í bréf frá
framkvæmdastjóra verksmiðju
í borginni Harbin í norð-austur
Kína sem sagði unt 80% af
árlegum gróða fyrirtækisins
fara í skatta til skólabygginga
og uppsetningar olíulciðslu.