Tíminn - 08.11.1986, Blaðsíða 8

Tíminn - 08.11.1986, Blaðsíða 8
8 Tíminn Tíminn MÁLSVARIFRJÁLSLYNDIS, SAMVINNU OG FÉLAGSHYGGJU Útgefandi: Framsóknarflokkurinn og Framsóknarfélögin í Reykjavík Framkvæmdastjóri Ritstjóri: Aðstoðarritstjóri: Fréttastjórar: Auglýsingastjóri: Kristinn Finnbogason NíelsÁrni Lund OddurÓlafsson Birgir Guðmundsson Eggert Skúlason SteingrímurGíslason Skrifstofur: Síðumúli 15, Reykjavík. Sími: 686300. Auglýsingasími: 18300. Kvöldsímar: Áskrift og dreifing 686300, ritstjórn 686392 og 686495, tæknideild 686538. Setning og umbrot: Tæknideild Tímans. Prentun: Blaðaprent h.f. Kvöldsímar: 686387 og 686306 Verð í lausasölu 50.- kr. og 60.- kr. um helgar. Áskrift 500.- Flokksþingsræða forsætisráðherra í ræðu sinni á flokksþingi Framsóknarflokksins, sem birt er í blaðinu í dag, rekur Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra m.a. stjórnarsamstarfið frá síðustu kosningum. Hann lýsir því þar að eftir kosningarnar hafi ýmsir framsóknarmenn, þar á meðal hann sjálfur, talið það ekki óeðlilegt að flokkurinn yrði þá utan ríkisstjórnar. Þegar á reyndi voru það hins vegar aðeins Framsóknar- flokkur og Sjálfstæðisflokkur sem treystu sér til að taka á þeim mikla vanda sem við blasti í efnahagsmálum. Núverandi ríkisstjórn var mynduð til að snúast gegn þeim vanda. Framsóknarmenn fengu fram í stjórnar- samstarfinu lögbundnar efnahagsaðgerðir í átta mán- uði. Árangurinn varð sá að verðbólgan hjaðnaði úr 130 í 20'af hundraði á árinu 1983. Að þessu loknu tók við tímabil frjálsræðis. Framsókn- armenn voru nokkuð hikandi í þeim efnum, og reynslan sýndi að þeir höfðu rétt fyrir sér. Fjármagnskostnaður reis of hratt árið 1984, samningar fóru úr böndunum og verðbólgan rauk upp í 60 af hundraði snemma á árinu 1985. Eftir þessa kollsteypu varð sjálfstæðismönnum ljóst að sú skoðun framsóknarmanna, að þjóðfélagið væri ekki undir slíkt frelsi búið, var rétt. Þeir féllust þá á kröfu þeirra um að ríkisvaldið byði fram aðstoð sína og þátttöku í kjarasamningum. Steingrímur segir í ræðunni að hann telji þá þríhliða samninga, sem gerðir voru í febrúar s.l. einn merkasta atburð sem orðið hafi í tíð þessarar ríkisstjórnar, og reyndar þótt lengra aftur í tímann sé leitað. Þessir samningar hafi tekist vegna þess að menn höfðu lært af kollsteypunni fyrri hluta ársins 1985 og forysta verkalýðshreyfingar, launþega og atvinnurek- enda hafi reynst ábyrg í gerðum sínum. Þessir samningar hafi kostað ríkissjóð um það bil 1800 miljónir króna, en því fjármagni hafi verið vel varið. í ræðu sinni víkur Steingrímur einnig að því að fylgi flokksins hafi á undanförnum árum hrakað í þéttbýlinu suðvestanlands. Hann bendir þar á að í næstu kosning- um geti jafnvel svo farið að það ákveðist hvort Framsóknarflokkurinn verði tiltölulega lítill flokkur dreifbýlis eða áfram alhliða þjóðmálaflokkur. Hann segist telja að stefna flokksins eigi ekki síður erindi til þéttbýlis en dreifbýlis, og til að undirstrika þá óbifanlegu sannfæringu sína hafi það verið sem hann gaf kost á sér til framboðs í Reykj aneskj ördæmi. „Ég komst hins vegar að þeirri niðurstöðu að sem formanni flokksins beri mér skylda til að sýna og sanna að hugur fylgi þeirri áherslu sem ég hef lagt á fylgisaukningu í þéttbýlinu, sanna að Fram- sóknarflokkurinn á erindi til landsmanna allra,“ segir forsætisráðherra um þetta efni. Laugardagur 8. nóvember 1986 MENN OG MÁLEFNI 70 ár samkvæmt lögum 1970. Hlutverk þess m.a. að skipuleggja og sam- ræma opinberan stuðning við æskulýðsstarf og samræma starf þeirra aðila sem að þessum málum vinna. Þá er því falið að gera tillögur til menntamálaráðuneytis- ins um fjárveitingar til æskulýðs- ntála, stuðla að fræðslu og safna upplýsingum hérlendis og erlendis um æskulýðsmál. Æskulýðsráð hefur ávallt leitast við að vinna í anda þessa hlutverks en hins vegar leyfa fjárveitingar þess ekki stóra hluti. Margsinnis hefur verið bent á nauðsyn þess að auka framlög ríkisins og að það væri forsenda þess að Æskulýðsráð gæti starfað samkvæmt lögum og sú staðreynd blasir við að fjárveitingar ríkisins til æskulýðsmála hafa dregist veru- lega saman frá því sem þær voru þegar Æskulýðsráð var stofnað. Eðlilegt er að lög um æskulýðs- mál verði tekin til endurskoðunar og þar með hlutverk Æskulýðsráðs ríkisins og vera má að það hafi þjónað þeim tilgangi sem að var stcfnt og að ckki sé þörf á því lengur Ef það er álit manna, er rétt að það komi skýrt og ákveðið fram en með öðru móti en því að rýra svo fjárveitingar til þess að það gcti ekki starfað af reisn. Sé litið til æskulýðsstarfs sveitar- félaganna má fullyrða að það stendur víðast hvar í miklum blóma. Mjög víða hafa verið teknar í notkun félagsmiðstöðvar þar sem fram fer öflugt og fjölbreytt æsku- lýðsstarf. Á öðrum stöðum er fé- lagslífinu stjórnað í samvinnu við skólana sent er heppilegt fyrir- komulag og þyrfti að leggja áherslu á að auka. Skólahúsnæði er vand- aðar og dýrar byggingar sem sjálf- sagt er að nýta sem mest og hvert dæmið á fætur öðru sannar að þar sem góð samvinna hefur tekist milli skólanna og þeirra sem að æskulýðsmálum vinna hefur náðst góður árangur. Einn veigamesti þátturinn í öllu æskulýðsstarfi eru íþróttirnar. Aðstaða til íþróttaiðkana hefur batnað til muna á síðari árum og hvert sveitarfclagið af öðru lcggur metnað sinn í að íþróttaaðstaða þeirra sé sem best. Þrátt fyrir hlutverk ríkis og sveit- arfélaga í æskulýðsmálum. er þátt- ur hinna frjálsu æskulýðs- og íþróttafélaga veigamestur. Að þeirn félögum ber að hlúa. Styrkja þarf starfsemi þeirra bæði hvað varðar aðstöðu og fjárhag, en þó ntá sá stuðningur aldrei verða til þess að þau starl’i ekki sjálfstætt óháð opinberu valdi. Frelsi þeirra til athafna er þeirra styrkur og forsenda fyrir tilveru. Þau hafa sannað gildi sitt fyrir íslenska æsku í heila öld. Framsókn í Um þessa helgi þinga framsókn- armenn á Hótel Sögu. Framsóknarflokkurinn minnist þess að 70 ár eru liðin frá því að flokkurinn var stofnaður. Framsóknarflokkurinn hefur alla tíð verið áhrifamikð stjórn- málaafl í íslenskri pólitík. Upphaflega stóðu að flokknum bændur, ungmennafélagar og sam- vinnumenn, en fljótlega bættust aðrir í hópinn. Fullyrða má að allar stéttir landsmanna eigi fulltrúa eða máls- vara innan flokksins, og hafi átt það lengi. Framsóknarflokkurinn er fyrst og fremst íslenskur stjórnmála- flokkur sem tekur mið af íslenskum aðstæðum og íslensku þjóðlífi. Hann er laus við áhrif erlendra kreddukenninga til hægri og vinstri og er það ein aðalástæða þess hve vel honum hefur gengið að mæta nýjungum og þróun sem sífellt á sér stað hér á Igndi. Þrátt fyrir sveiflur sem alltaf eiga sér stað í stjórnmálum verður ekki annað sagt en að Framsóknar- flokkurinn hafi haldið vel sínum hlut þau 70 ár sem hann hefur verið við lýði. Hvað cftir annað hefur flokkn- um verið falin stjórnarmyndun og farið þar með forystu. Framsókn- arflokkurinn hcfur verið það afl sem hefur getað sameinað ólík sjónarmið og jafnframt það sterkur að hann hefur getað haldið frant sinni stcfnu í stjórnarsamstarfi. Vonandi verður svo áfram um langa framtíð. Ábyrg vinnubrögð Stjórnmálabaráttan sem annað tekur breytingum, og nauðsynlegt er að flokkar gcri sér grein fyrir þeirri þróun. Þetta á ekki síst við um breytt og nútímalegri vinnu- brögð stjórnmálaflokka í áróðri og við að koma sínum málum á frant- færi. Svo virðist sem málefnalegir kosningafundir séu á undanhaldi en í þeirra stað séu komnar kapp- ræður í fjölmiðlum, sem oft eru í stikkorðastíl. Áhrif fjölmiðlanna eru gífurleg og af þeim sökum leggja stjórn- málamenn allt kapp á að koma þar fram, einkum ísjónvarpi. Málcfnin skipta orðið minrta máli en fram- koman og umtalið. Stundum liggur við að halda rnegi því fram að illt umtal sé bctra eh ekkcrt, alla vega virðast þeir stjórnmálamenn gleymast sem ekki eru sífellt að láta í sér heyra. Santa virðist af hvaða tilefni það er. Af þessu leiðir að þingmenn sem verða við hverjar kosningar að berjast fyrir sætum sínum, þurfa sífellt að láta í scr heyra á Alþingi til að sanna fyrir kjósendum hæfi- lcika sína. Af þessu leiðir að þingmenn eru tilknúnir að bera þar fram ályktanir og frumvörp sem vitað er að nái ekki fram að ganga, til þess eins að láta á sér bera. Þessi vinnubrögð eru mikið stunduð af stjórnarandstöðuflokk- um á hverjum tíma enda geta þeir leyft sér að vera óábyrgari í tillögu- flutningi en ríkisstjórnarflokkarnir þar sem á þeim hvílir ekki að tryggja framgang samþykktra mála. Framsóknarmönnum á Álþingi er legið á hálsi fyrir að láta lítið í sér heyra og vel er hægt að taka undir þær raddir að skoðanir þeirra mættu heyrast þar oftar. Hins veg- ar má bcnda á að Framsóknar- flokkurinn hefur átt aðild að ríkis- stjórn nær óslitið í 16 ár og hefur m.a. haft þau áhrif að þeir sýna meiri ábyrgð í málflutningi en aðrir þingmenn. Ábyrgð í verkum er einkenni Framsóknarflokksins og verið hans styrkur. Þá er illa komið í íslensk— urn stjórnmálum ef verður að fórna henni til að ná athygli kjósenda. Ungtfólkí nútíð og framtíð Er heiti á ráðstefnu sem menn- tamálaráðuneytið og Samband ís- lenskra sveitarfélaga gangast fyrir í dag og á morgun. Á dagskrá hennar eru mikil- sverðir málaflokkar sem snúa að æskunni, s.s. ný lagasetning í æsku- lýðsðmálum, kynning á æskulýðs- starfi, áhrif tölvutækni ogfjölmiðla á heimilislíf og nám, félagsstarf í grunnskólum ogspáð í framtíðina. Þá flytur formaður Norræna æskulýðssjóðsins Sven-Even Ma- amoen erindi um hlutverk sjóðsins en það er að styrkja frjáls æsku- lýðssamtök á Norðurlöndum. Vel er þess virði að taka eftir þessari ráðstefnu og þakka fram- takið. Eflum æskulýðsstarfið Æskulýðsmál eru mikilvægur málaflokkur sem virðist þó ná lítilli athygli stjórnmálamanna nema á tyllidögum. Á því þarf að verða breyting. Æskulýðsstarfsemin er einkum í höndum þriggja aðila, þ.e. ríkis, sveitarfélaga og frjálsra félaga. Æskulýðsráð ríkisins var stofnað

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.