Tíminn - 08.11.1986, Blaðsíða 2
2 Tíminn
Laugardagur 8. nóvember 1986
Breytingar á
búskap bænda
“Meira en aö segja þaö aö rífa sig burt,“
segir Magnús Guðjónsson í Hrútsholti
Frumvarp þetta varð tilefni nokk-
urs uppþots þar sem umræðan um
það snerist upp í karp um sjúkrahús-
Nokkrir bændur innan búnaðar-
sambands Snæfellinga hafa nú íhug-
að tilboð Framleiðnisjóðs.
Nú þegar er Ijóst að einn bóndi er
búinn að farga sauðfé sínu og mun
alfarið snúa sér að ferðaþjónustu,
annar hættir kúabúskap en heldur
áfram sauðfjárframleiðslu og bætir
við sig loðdýrabúskap. Friðji fer út í
loðdýrabúskap eingöngu, fjórði er
búinn að selja bústofninn cn ckki er
Ijóst hvað hann ætlar að gera.
Til þess að átta sig á hvað Fram-
leiðnisjóður er með í boði, má nefna
dænti um bónda sem hefur 300
ærgilda fullvirðisrétt. Framleiðni-
sjóður greiðir 4200 krónur fyrir hvert
ærgildi sauðfjárafurða og 5200 fyrir
hvert ærgildi mjólkurafurða. Ef um
einfalda sölu er að ræða greiðist
upphæðin á 4 árum en cf um kaup-
leigu er að ræöa greiðist upphæðin á
6 árum cn í byrjun 6. árs þarf
bóndinn að láta vita hvort hann
ætlar að hefja búskap að nýju eða
hætta. Síðan má reikna mánaðar-
laun bændafjölskyldunnar út frá
þessu.
Sé þetta t.d. fullorðinn maður
sem ekki treystir sér til að fara út í
annan búskap á jörðinni hefur hann
eingöngu þcssa upphæð til að byrja
nýtt líf annars staðar. Þetta er í
mörgum tilfellum jarðir sem myndu
fara í eyði eftir nokkur ár og því
erfitt að selja.
„Það er meira en að segja það að
selja fullvirðisréttinn og rífa sig burt
frá jörð og húsnæði og leita fyrir sér
að samastað annars staðar þegar
mcnn eru búnir að byggja upp jörð
og bústofn og upplifa það síðan allt
í einu að vera orðinn baggi á þjóðfé-
laginu. Það eru margir eldri bændur
sem hafa mjög lítinn fullvirðisrétt og
þegar þeir menn hætta, þá nægja ^
peningar frá Framlciðnisjöði ekki til
að sjá fyrir þeim. Það þarf að
aðstoða þessar fjölskyldur til að
koma sér í húsnæði annars staðar.
Það má ckki skc að þær lendi á
hálfgerðum vergangi í kaupstöðun-
um,“ sagði Magnús Guðjónsson í
Hrútsholti í samtali við Tímann.
Magnús sagði að aflciðing af þess-
ari fækkun bænda í sveitunum yrði
gífurlegur félagslegur vandi. Það er
t.d. ekki vitað hvernig fer með
smalamennsku á haustin, en það er
ekki um aðra að ræða í slíkt en þá
bændur scm eftir eru. „Þeir vcrða
ekki öfundsverðir sem eftir vcrða,
einkum ekki sauðfjárbændurnir.
Það verður algjört basl hjá þeim.
Það er hins vegar fyrirsjáanlegt að
það verður dregið saman, hvort scm
bændur gera það sjálfir eða hvort
það verður gert með pennastriki að
sunnan.
Búnaðarsamband Snæfellinga
hefur nú úthlutað sínum hluta full-
virðisréttar sem það hefur til umráða
samkvæmt reglugerð um fullvirðis-
rétt til mjólkurframleiðslu fyrir árið
'1986-1987. Úthlutunin fór til 41
bónda og eru það 2400 ærgildi sem
úthlutað var.
„Tölvunefnd hefur úrskurðað að
upplýsingar um aukaúthlutanir bún-
aðarsambandanna séu persónuleg
pcningamál og því megi þær ckki
birtast. Bændur hér á svæðinu vilja
lield ég allir að þessar upplýsingar
séu látnar uppi en Tölvunefnd
bannar," sagði Magnús.
-ABS
Samspil hinnar fræðilegu hugsunar og þekkingar innan úr skóla reynslunnar er hugmynd Péturs Blöndals að
samsetningu stjórnar hins nýja Kaupþings hf. Frá vinstri: Baldvin Tryggvason, Geirmundur Kristinsson,
Þorvaldur Gylfason, Pétur Blöndal, Þorkell Helgason, Magnús Magnússon og Jónas Reynisson.
Tímamynd: Pjetur.
Fjórir sparisjóöir kaupa 49% í Kaupþingi hf.:
Sparisjóðirnir inn á
verðbréfamarkaðinn
„Við erum í raun að kaupa
okkur aukna þekkingu með þess-
um hætti. Sumir bankarnir eru
komnir nteð verðbréfamarkaði, en
við fórum styttri leið með því að
kaupa hlut í Kaupþingi hf.,“ sagði
Baldvin Tryggvason, sparisjóðs-
stjóri í Sparisjóði Reykjavíkur og
nágrennis. En sá sjóður ásamt
Sparisjóði Hafnarfjarðar, Spari-
sjóði Kópavogs og Sparisjóði
Keflavíkur hafa nú keypt 49% í
Kaupþingi hf. fyrir 4,9 milljónir
króna. En það er rúmlega tólffalt
nafnverð hlutabréfanna. Með
þessu telur Baldvin að sparisjóð-
irnir geti veitt viðskiptavinum sín-
um betri og víðtækari þjónustu en
hingað til, og víkkað starfssvið
sparisjóðanna.
Pétur Blöndal, sem áfram er
stærsti eigandi Kaupþings og fram-
kvæmdastjóri er ekki síður ánægð-
ur með hina nýju hluthafa. „Það er
ómetanlegt fyrir ntig að fá alla þá
reynslu scnt sparisjóðirnir búa yfir.
Ég vona að þetta verði ntikil lyfti-
stöng fyrir Kaupþing hf. “ Pétur
sagði þetta raunar í samræmi við
þróunina bæði erlendis og hér
heima, að bankar reyni að tengjast
verðbréfafyrirtækjum. Með eign-
araðild sinni að Kaupþingi komi
sparisjóðirnir inn á vaxandi verð-
bréfamarkað hér á landi.
Að sögn Baldvins Tryggvasonar
stcndur það opið fyrir aðra spari-
sjóði í landinu að gerast eignaraðil-
ar að Kaupþingi, þannig að hugs-
anlega gerðust fleiri sparisjóðir
eignaraðilar að fyrirtækinu. Menn
voru sammála um að úti á landi
skorti mjög upplýsingar um verð-
bréfamarkaðinn.
Formaður og varaformaður
hinnar nýju stjórnar Kaupþings hf.
eru háskólaprófessorarnir Þorvald-
ur Gylfason og Þorkell Helgason,
en aðrir stjórnarmenn eru spari-
sjóðsstjórarnir Baldvin Tryggva-
son, Guðmundur Hauksson og
Geirmundur Kristinsson. Spurður
sagði Pétur Blöndal þetta bestu
samsetningu stjórnar sem hann
gæti hugsað sér, þ.e. samspil fræði-
legrar hugsunar og viðskiptareynsl-
unnar hins vegar. -HEI
Kvótafrumvarp Vestfiröinga:
“Útgerð legðist
af í Reykjavík,
Akureyri, Hafnar-
firði og víðar“
- segir Kristján Ragnarsson
Kristín Sædal Sigtryggsdóttir
Kristfn Sædal með
einsöngstónleika
Kristín Sædal Sigtryggsdóttir
verður með einsöngstónleika í ís-
lensku óperunni í dag klukkan 16.
Píanóleikari verður Catherine
Williams. Á efnisskránni verða tón-
verk eftir bæði innlend og erlend
tónskáld.
Kristín hóf snemma söngnám og
var Guðrún Á. Símonar hennar
fyrsti kennari.
Kristín hefur sótt námskeið hjá
Gerald Sousay og tvívegis hjá próf-
essor Helene Karusso. Síðastliðinn
vetur sótti hún einkatíma í 3 mánuði
hjá Valerie Heath Davies í London.
Kristín hefur sungið bæði í óperu-
kór Þjóðleikhússins og í kór Söng-
skólans í Reykjavík. Hún söng hlut-
verk Hildar í Meyjarskemmunni í
Þjóðleikhúsinu 1982 og hlutverk eins
andans í Töfraflautunni í uppsetn-
ingu íslensku óperunnar 1983. Auk
þess hefur Kristín sungið við ýmis
tækifæri á vegum Söngskólans í
Reykjavík og á eigin vegum.
R.G.
starfskynning
Kristján Ragnarsson fram-
kvæmdastjóri LÍÚ lét í ljós skoðun
sína á frumvarpi Karvels Pálmason-
ar, Hjörleifs Guttormssonar, og
Jóns Baldvins Hannibalssonar um
að þau byggðalög þar sem 35% af
vinnuaflinu væri í sjávarútvegi
fengju 25% viðbót í aflakvóta, á
aðalfundi LÍÚ sem nú stendur yfir í
Vestmannaeyjum. Kristján sagði að
það væri létt verk að leggja til að
bæta við þennan og hinn, eins og
gert er í frumvarpinu, án þess að láta
þess getið, hvar það á að taka, sem
bæta á við aðra. Sagði hann enn-
fremur að málflutningur af þessu
tagi hefði ekki náð eyrum útgerð-
armanna og kvaðst vona að hann
ætti ekki eftir að gera það, enda
myndi útgerð frá stöðum eins og
Hafnarfirði, Reykjavík, Keflavík og
Akureyri leggjast af ef frumvarpið
næði fram að ganga.
ið á ísafirði og laun lækna í Reykja-
vík.
- BG
Kynþáttaaðskilnaðarstefna S-Afríku:
Norrænum verkalýðsformönnum
neitað um vegabréfsáritun
- þeirra á meðal Ásmundi Stefánssyni
Formönnunt verkalýðssam-
banda á Norðurlöndum, sem boðiö
hafði verið af verkalýðssamtökum
í S-Afríku að heimsækja landið og
ræða samstarf verkalýðssamtaka
þessara landa, var í gær neitað um
vegabréfsáritun til landsins at
stjórninni í Pretoríu. Meðal þeirra
sem boðið var í ferðina var Ás-
mundur Stefánsson, forseti ASÍ.
Fyrirhugað hafði verið að sendi-
nefndin kærni til S-Afríku þann 2.
desember og hitti þá m.a. að máli
Desntond Tutu erkibiskup, séra
Allan Boesak og Winnie Mandela,
auk fjölda verklýðsleiðtoga. Sune
Ahlén, frantkvæmdastjóri Norr-
æna verkalýðssantbandsins, sem
var hinn formlegi viðtakandi
heimboðsins, hefur lýst yfir að
þessi viðbrögð sýni hið rétta andlit
aðskilnaðarstjórnarinnar í S-Afr-
íku og ótta hennar að menn kynnist
af cigin raun ástandinu í landinu.
-phh
Snæfellsnes: