Tíminn - 08.11.1986, Side 24
^SAMBANDSFÓÐUR
m J
í GÆRMORGUN var dregiö í 3.
umferð í Evrópukeppni félagsliða í knatt-
| spyrnu. Meöal liða sem drógust saman má
nefna Bayer Uerdingen og Barcelona, Dukla
Prag og Internazionale og Glaskow Rangers
og Borussia Mönchengladbach. Ekki verður
dregið í öðrum Evrópukeppnum fyrr en 12.
I desemþer.,
SJAIÞRÓTTIR BLS. 13.
Kaffibaunamáliö:
VITNALEIÐSLUM
HALDIÐ ÁFRAM
JERRY LEE LEWIS
nafnkunnur rokkari af gamla skólanum, hefur nokkur undan-
farin kvöld leikið með hljómsveit sinni í veitingahúsinu Broad-
way. Því miður fór blaðamaður á tónleika með Jerry the killer,
eða Jerry drápara og mátti sitja þar undir máttlausum gömlum
slögurum og ókunnum, illa leiknum kántrílögum. Stjörnunni
sjálfri má þó segja það til hróss, að hann bar af öðrum með-
limum hljómsveitarinnar og hefði sennilega verið besti kostur-
inn ef hann hefði leikið einleik allt kvöldið. Miðaverð er 3200
kr. með mat, en 1500 kr. án matar. - phh/Tímamynd Pétur
Vitnaleiðslum var fram haldið í
Sakadómi Reykjavíkur í gær. Geir
Geirsson löggiltur endurskoðandi
SÍS og Sigurður Gils Björgvinsson
fv. aðstoðarframkv.stjórr innflutn-
ingsdcildar SÍS vitnuðu. Valur Arn-
þórsson stjórnarformaður SÍS átti
að mæta til vitnalciðslna í gær en var
veikur erlendis.
Geir Geirsson sagðist hafa tekið
þátt í umræðum fjögurra manna
nefndar sem fjallaði um skiptingu
tekna á kaffi milli SÍS og KA.
Nefndin komst ekki að t'ormlegri
niðurstöðu enda varð ágrciningur
milli SÍS ög KA um upphæðir. Þcgar
nefndin hafði lokið störfum ákvað
SÍS einhliða avisos og verðbætur.
í máli Geirs kom einnig fram að
skuld KA vegna kaffikaupa hafi
ekki verið nafngrcind, cn færð á
einn skuldheimtumannsreikning.
Kröfureikningar hinna brasilísku
seljenda voru almennt skráðir á SÍS
sem kaupanda. Ljóst er að inn-
heimtukröfur vegna kaffikaupanna
séu eign SÍS og þær greinilega merkt-
ar skrifstofu þess í London sem
kröfuhafa.
Sigurður Gils Björgvinsson kvaðst
alltaf hafa haldið að SÍS væri inn-
flytjandi og seljandi vörunnar og þar
af leiðandi væri ekki um umboðsvið-
skipti að ræða. Hann hefði litið svo
á að þegar um kaffikaup hafi verið
að ræða þá hefði KA leyst vöruna út
sjálf en deildin bókað söluna eftir á
líkt og þegar um útboð væri að ræða.
Sigurður sagði aðspurður að kaffi-
innkaupamál hafi ekki verið borin
upp á fundum innflutningsdeildar.
Sigurður Gils sagðist ekki hafa
gefið Arnóri Valgeirssyni nein sér-
stök fyrirmæli um meðferð avisos
greiðslnanna né nefnt það við Arnór
að ekki mætti nefna grciðslurnar á
nafn við forráðamenn KA þegar
hann var að setja Arnór inn í starf
sitt.
Valur Arnþórsson mun að öllum
líkindum mæta í vitnaleiðslur á
mánudagsmorguninn. Væntanlega
munu Geir Magnússon, Snorri Egils-
>on Hjörtur Eiríksson og Ólafur
Fónsson framkvæmdastjóri
O.Johnsson og Kaaber hf. mæta
;em vitni á næstunni.
ABS
Landhelgisgæslan:
Flutti lækni
til Akraness
Þyrla Landhelgisgæslunnar fór í
sjúkraflug til Akraness í gær þar sem
gert var ráð fyrir að flytja þyrfti 7 ára
barn til Reykjavíkur. Með þyrlunni
fór sérfræðingur í háls-nef- og eyrna-
lækningum því um var að ræða barn
sem hafði farið í aðgerð vegna
hálskirtla. Eftir aðgerðina hófst
blæðing en með aðstoð sérfræðings-
ins tókst að stöðva blæðinguna á
Akranesi. Ferðin gekk mjög fljótt
fyrir sig, þar sem aðeins leið hálftími
frá því að beiðni um þyrlu kom og
þar til sérfræðingurinn var kominn á
sjúkrahúsið á Akranesi.
Allir sem eiga fé á Innlánsreikningi n
fengu hækkun 1. nóvember.
meðal þeirra,
þarftu að gera éitthvað
málinu?
15,49% ársávöxtun
■ r
...
[
b' |
o
*
ABS