Tíminn - 11.11.1986, Page 2

Tíminn - 11.11.1986, Page 2
2 Tíminn Þriðjudagur 11. nóvember 1986 Síldarsöltun: ÞRJU SKIP Á LEIDINNI 60 ÞUS- TUNNUR - búið að salta í 92 þúsund tunnur Síldarsöltun hefur gengið vel eftir að samningar náðust við Sovétmenn og var í fyrrakvöld búið að salta í 92 þúsund tunnur á landinu öllu. í gærmorgun veiddist blönduð síld í Reyðarfirði og var obbinn af flotan- um þá staddur í firðinum. Nokkuð er farið að þrengjast með tunnur fyrir austan þar sem söltun hefur verið nánast viðstöðulaus síð- ustu daga, en að sögn Kristjáns Jóhannessonar hjá Síldarútvegs- nefnd eru enn til tunnur í landinu og fleiri eru á leiðinni. Kristján sagði að strax á fimmtudaginn var, daginn eftir að samið var við Sovétmenn, hafi verið farið í að ganga frá kaupum á tunnum og að nú væri búið að festa kaup á öllum þeim trétunnum sem eru á lausu í heimin- um, eða um 200 þúsund tunnum. Nú þegar hafa verið fluttar inn um 110 þúsund tunnur. „Daginn sem samningar lágu fyrir leigðum við fjögur skip sem öll áttu að byrja að lesta tunnur í morgun. Við vorum hins vegar svo óheppnir að skipið sem taka átti stærsta farminn, vöruflutningaskipið Kefla- vík, fékk víradrasl í skrúfuna þegar hún var að sigla út frá Rotterdam á föstudagskvöldið og verður því stopp í viku. Hins vegar er í dag verið að lesta Jökulfellið með full- fermi af tunnum í Noregi og það eru 30-35 þúsund tunnur, það er líka verið að lesta lítið skip sem heitir ísafold með nokkur þúsund tunnum og það er verið að lesta skip frá Nesskip með 20 þúsund tunnum. Þannig að um helgina verða komnar hingað í kringum landið a.m.k. 60 þúsund tunnur. Síðan verða þrjú skip lestuð á mánudag og má þá búast við þeim hingað til lands seinni hluta næstu viku,“ sagði Kristján Jóhannesson við Tímann í gær. í ár kaupir Síldarútvegsnefnd hátt á þriðja hundrað þúsund tunnur þar af koma um 12000 tunnur frá Finnlandi en restin frá Noregi. -BG Áfangaskýrsla vitamálastjórnar: Steypt yfir Kolbeinsey? Nánari rannsókna þörf Sumarið 1985 fóru fram frumrann- sóknir á jarðlagagerð Kolbeinseyjar vegna hugmynda um að steypa styrktarhjúp um eyna. Áfanga- skýrsla vitamálastjórnar um málið var lögð fram á ríkisstjórnarfundi í síðustu viku. í skýrslunni kemur koma fram að nauðsynlegt er að kanna nánar jarðlagagerð og gera ítarlegar dýptarmælingar kringum eyna áður en ákvörðun er tekin um frekari framkvæmdir. Þá kom einnig fram í skýrslunni að Kolbeinsey mun standast ágang sjávarins í nokkra ártatugi enn, en ljóst er að ef þessi útvörður íslands í norðri verður ekki styrktur mun hann á endanum hverfa í hafið. Þá var einnig í lagt til að steypt verði upp sjómerki með innbyggðum radarspeglum á eynni. Áætlað er að kostnaður við þær framkvæmdir og þær rannsóknir sem nauðsynlegar eru muni nema um tveimur og hálfri milljón króna. hm Oflugt félagsstarf Aðalfundur Framsóknarfélags Kjósarsýslu var haldinn í Hlégarði, Mosfellssveit, fimmtudaginn 30. október 1986. Vel var mætt á fundinn sem var hinn líflegasti. Jón Jóhannsson, formaður félags- ins gaf ekki kost á sér til áframhald- andi formennsku og var Sveinbjörn Eyjólfsson kosinn í hans stað. Aðrir í stjórn eru: Helgi Sigurðsson, Erna Kjartansdóttir, Gylfi Guðjónsson og Ólafur Magnússon. Á fundinum lýsti Gylfi Guðjóns- son, ökukennari því yfir að hann hefði ákveðið að gefa kost á sér í prófkjör framsóknarmanna í Reykjaneskjördæmi. Þegar hefur verið skýrt frá frá framboði Gylfa í Tímanum. Fundarmenn lýstu einróma ánægju sinni með framboð Gylfa en hann stefnir á 3ja sæti á listanum. Töluverðar umræður urðu um framboðsmál almennt og sýndist sitt hverjum en þó er ljóst að framsókn- armenn í Kjósarsýslu ætla ekki að liggja á liði sínu fyrir næstu kosning- ar. Stjórnin. ojáun ihívtlii Hjónin Lúðvík Kristjánsson og Helga Proppé Síöasta bindiö af Islenskum sjávarháttum komið út: „Björgunarstarf í þágu íslenskrar menningar“ - segir Sverrir Hermannsson menntamálaráðherra Út er komið síðasta bindið af „íslenskum sjávarháttum", cftir dr. Lúðvík Kristjánsson. Þar með er lokið þessu mikla verki scm Hrólfur Halldórsson framkvæmdastjóri Menningarsjóðs lýsti sem „einu mesta vísindaafreki á sviði þjóðlegra fræða á íslandi," við sérstaka athöfn sem haldin var í gamla Landshöfð- ingjahúsinu eða Næpunni nú fyrir helgina. Við þetta tækifæri ávarpaði Sverr- ir Hermannsson viðstadda og færði Lúðvík Kristjánssyni og konu hans Helgu Proppc þakkir sínar, mennta- málaráðuneytisins og ríkisstjórnar- innar fyrir einstakt afreksverk og sagði að þetta væri mikill dagur í sögu íslenskrar menningar. Kvað menntamálaráðherra Lúðvík hafa unnið björgunarstarf með þessu verki sínu og að hann hefði ekki komist hjá því að hugleiða þegar hann fletti þessum bókum, hvcrsu mikil menningarvcrömæti hefðu far- ið forgörðum, ef þær hcföu ekki vcrið skrifaðar. Menntamálaráð- hcrra færði Lúðvík að gjöf Land- námabók, sem þakklætisvott fyrir „frábært starf í þágu íslenskra fræða og menningar", eins og hann hafði ritað á saurblaö. íslcnskir sjávarhættir eru gefnir út af Menningarsjóði og kom fyrsta bindið út árið 1980, annað 1982, þriðja 1983, og fjórða 1985. Ritverkið íslenskir sjávarhættir er helgað minningu íslenskra sjómanna fyrr og síð, en í eftirmála bókarinnar segir höfundur frá tildrögum þess að hann tók að safna efni í bókina. Þar kemur fram að fyrst kviknaði hug- myndin hjá honunt þegar hann var á trollvakt vcstur á llala vorið 1928, en skipuleg efnisöflun hófst þó ekki fyrr en 1932 á Snæfellsnesi. Lúðvík fór síðan um allt land að afla efnis í ritverkið og alls urðu heimildarmenn Sverrir Hermannsson ræðir við Lúðvik Kristjánsson og Bjarna Jonsson listmálara um Islenska sjávarhætti. (Tímamjndir Pjciur) hans 374 og eru þcir flcstir látnir nú. Fjölmargir hafa unnið að íslensk- um sjávarháttum með Lúðvík og ber þar fyrst að telja konu hans Helgu Proppé. Þá kom Bjarni Jónsson listmálari til liðs við Lúðvík um 1960 og hefur hann gert allar þær teikn- ingar í ritinu sem ekki eru sérstak- lega merktar öðrum. Auk þessara hafa fjölmargir aðrir einstaklingar og stofnanir lagt hönd á pióginn. Nú eru liðin nær sextíu ár frá því að hugmyndin að íslenskum sjávar- háttum fyrst kviknaði vestur á Hala ogTíminn spurði Lúðvík hvort hann hafi þá séð fyrir sér svo viðamikið verk sem raunin varð á. Lúðvík sagði það ekki vera og að með árunum hefði þetta hlaðið nokkuð utan á sig samhliða því sem hann ferðaðist um og fjöldi hcimildar- manna og annarra sem aðstoðuðu hann hefði aukist. Aðspurður um hvernig honum liði þegar þessu væri nú lokið og hvort hann myndi halda áfram ritstörfum sagði hann: „Ég held ég verði að segja að mér líði vel. En ég held að það verði eitthvað smátt úr þessu þó ég haldi nú sjálfsagt áfram að skrifa eitthvað." -BG lÁnscsi* Arn acfinarlnmlflti ijvuiidvcir Mrn ddOlldi RVUIQ Frá Magnúsi Magnússyni fréttarítara Tímans í Borgarflrði: í tilefni af útgáfu þjóðlagasafns Jónasar Árnasonar „Til söngs“, efna Bókasafn Reykdæla og nágrannar Jónasar til kvöldvöku í Logalandi Reykholtsdal, föstudaginn 14. nóv- ember klukkan 21.00. Meðal efnis verður flutt smásagan „Tíðinda í kirkjugarðinum", í leik- gerð Gunnlaugs E. Ragnarssonar, flutt verða söngatriði úr leikritinu „Þið munið hann Jörund“, börn úr Kleppjárnsreykjaskóla syngja með Jónasi og karlakórinn Söngbræður syngur undir stjórn Sigurðar Guð- mundssonar. Jónas mun einnig lesa úr verkum sínum. Að dagskrá lokinni mun foreldra- félag Dagheimilis Reykholtsdals- og Hálsahrepps, selja fólki kaffi.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.