Tíminn - 11.11.1986, Blaðsíða 4

Tíminn - 11.11.1986, Blaðsíða 4
4 Tíminn ! Þriðjudagur 11. nóvember 1986 LULU kemur í bíl - en SU flautar á bíl Tvær frægar á ferð og flugi! „I.ulu kemur í bæinn!“ (Lulu is Back in Town) hét eitt gott lag. Á þessari mynd sjáum við hvar hún LULU vinsæla söngkonan þeirra í Englandi kemur á fljúgandi fart í bæinn. Það fylgir myndinni að Lulu sé að verða of sein í sjónvarpsupptöku, en vonandi hefur hún náð. Hún er að minnsta kosti nógu einbeitt á svipinn. Nú er allt orðið gott aftur, og Dean Martin kvænist Jeanne í annað sinn DEAN MARTIN undirbýr nú tvöfalt brúðkaup, - bæði fyrir sig og dóttur sína! Dean kvænist nú í fjóröa sinn, en brúður hans nú er eiginkona hans nr. 2 Nú er það klappað og klárt, að því að sagt er - að hinn gamli sjarmör Dean Martin ætlar að kvænast í fjórða sinn. Það út af fyrir sig þykir ekki stórfrétt í Holly- wood, en það vekur óncitanlega athygli - að hann er nú að ganga í hjónaband í annað sinn með sömu konunni, Jeanne, sem var eigin- kona hans nr. 2. Nú stóð þannig á að yngsta dóttir hans, Gina, 29 ára , var líka í giftingarhugleiðingum, og þá fannst pabba Itennar upplagt að þau slægju saman og hefðu tvöfalt brúðkaup. Brúðkaupið á svo að vera á hinu geysistóra heimili Deans í Kali- forníu. Hann hefur þegar boðið besta vini sínum, Frank Sinatra og konu hans Barböru, en nýjustu fréttir af Frank voru víst þær, að frúin væri farin frá honurn, en kannski verður það allt orðið gott fyrir brúðkaupsveisluna. Þó ekki yrðu aðrir í vcislunni en nánustu vinir og ættingjar gæti hún orðið nokkuð fjölmenp, því að Dean á 7 börn: Craig, 43 ára, Claudia 40 ára, Gail 39, Deanna 37, Dean jr. 34, Ricci 3I og svo Gina, sem er 29 ára og ætlar nú að giftast um leið og pabbinn. Hin börnin eru öll gift og eiga börn, svo þetta er orðinn stór hópur. Hvort fyrrv. eiginkonur Deans cru boðn- ar í veisluna vitum við ekki. Dean og Jeanne, sem ætla nú að gifta sig voru áður gift í 24 ár og var hjónabandið álitið sérlega gott, miðað við Hollywooð-mælikvarða. En svo kom „grái fiðringurinn" í Gina ætlar að giftast Carl Wilson, sem einu sinni var í vinsælustu hljómsveitinni, Bcach Boys Dean þegar hann var kominn á sextugs- aldurinn og hann rauk að heiman og giftist 26 ára gamalli hárgreiðslukonu, sem sagt var að hefði haft fyrst og fremst áhuga á peningunum hans. Að minnsta kosti varð það honum dýrt að fá skilnað frá henni, þó sambúðin væri fljótlega ómöguicg. Nú eru allir vinir þeirra Deans og Jeannes glaðir yfir því hvernig málin hafa þróast. Gina ætlar að giftast Carl Wilson, scm var í hljómsvcitinni Beach Boys, en hún var ein vinsæ- lasta popphljómsveitin í Ameríku fyrir um 25 árum . Hvað hinn fyrrv. poppari gerir nú fylgdi ekki fréttinni Faðirinn féllí yfirlið! Það muna kannski ýmsir eftir því þegar Maurice Chevalier söng í myndinni Gigi „Thank Heaven For Little Girls" (Þökkum himna- föðurnum fyrir litlar stúlkur) , en svo getur það komið fyrir að sum- um finnist nóg komið af stelpum. Þannig var það t.d. með Kevin Strelley, en hann og kona hans áttu sex myndarlegar dætur, og nú var konan ófrísk cinu sinni enn og litlu systurnar töluðu um litla bróður sem kæmi bráðum. En svo þegar líða tók á mcðgöngutímann kom upp grunur um að frúin gengi með tvíbura, svo hún fór í sérstaka rannsókn til að ganga úr skugga um það (sónar-rannsókn). Jú, frúin gekk með tvíbura um það var enginn vafi. Hún spurði hvort hún gæti fengið að vita um kynferði barnanna, og var sagt að allt væri eðlilegt og liti vel út og hún gengi með tvær telpur. - Telpur eru indælar, sagði hún og virtist alveg sætta sig við að ekki rættist óskin unt að eignast son í þetta skiptið. Hún sagði svo eiginmanninum hvað hcfði komið út úr rannsókn- Kevin og Pauline Strelley með dætur sínar. Þau hafa eignast 8 dætur á II árum ! inni, - að hún gengi með tvær telpur. Maðurinn hafði beðið í spenningi meðan konan var í rannsókn, en nú þegar hann heyrði um úrskurðinn - tvær stelpur í viðbót - þá steinleið yfir hann. Sent betur fer endaði þctta allt vel. 2. ágúst s.l. var mikill merkis- dagur í Strelley-fjölskyldunni: Það var afmælisdagur móðurinnar, Pauline, II. brúðkaupsafmælið þeirra hjónanna - og þá fæddust tvíburasysturnar, sem nú eru eftir- læti allra á heimilinu! giit“ Lcikkonan Katharine Rosserfædd í Holíywood I943, en þó að kvik- myndaborgin sé fæðingarstaður hennar, þá hefur hún sagt að hún ætlaði sér aldrei að semja sig að hinum margumtalaða Hollywood- stíl, það er „glys- og glingurstíll- inn“. Nú leikur Katharine Ross hinum vinsælu Colbys-þáttum (sem eru víst framhald af Dynasty) og er hún allt í einu komin í Hollywood- stílinn, því að hún glitraði svo, að ljósmyndarinn sagðist hafa fengið ofltirtu í augun þegar hann smellti af. „Flassið" endurkastaðist af glitrandi kjólnum, silfurbeltinu og þá ckki síst hönskunum, sent leiftr- uðu af þegar leikkonan hreyfði hendurnar. „Þetta var stjörnuglit sem sagði sex!“ varð Ijósmyndar- anunt að orði, þegar hann þurrkaði tárin úr augunum hálfblindaður af dýrðinni. Katharine Ross er komin í „Glys- borgar-stílinn“ , en Hollywood er oft kölluö „Tinsel Town“ eða, „Glys- og glingur-borgin".

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.