Tíminn - 11.11.1986, Síða 6

Tíminn - 11.11.1986, Síða 6
Tíminn Þriðjudagur 11. nóvember 1986 FRÉTTAYFIRLIT, BEIRÚT — Skæruliöahópur gaf út tilkynningu þar sem hann sagöist ætla aö leysa úr haldi franska gísla sem liös- menn hans héldu í Libanon. Vestrænir stjórnarerindrekar bjuggust við aö Sýrlendingar myndu leika lykilhlutverk ( hugsanlegum gíslafrelsunum. TOKYO — Corazon Aquino forseti Filippseyja hóf opinbera heimsókn sína til Japans og var strax lofað aukinni efna- hagshjálp frá Yasuhiro Naka- sone forsætisráðherra Japans. í Manila var ástandið óstööugt enda hefur orörómur verið þrálátur um aö herinn hygöi á byltingu i fjarveru Aquino. Mikilvægar viöræöur milli er- indreka stjórnar Aquino og skæruliöa kommúnista hófust einnig í gær. KARIÓ — Atef Sedki hinn nýi forsætisráöherra Egyptalands er lítt þekktur í stjórnmála- heiminum en hann var valinn til aö fást við gífurleg efna- hagsvandamál Egyptalands. Sedki tilkynnti um skipan stjórnar sinnar sem hann sagöi þó munu fylgja stefnu fyrri stjórnar í meginatriðum. DHAKA — Hossain Moham- mad Ershad forseti Bangla- desh aflétti herlögum þeim sem verið hafa í gildi síoasta fjórða og hálft áriö. Hann sagöi land sitt nú vera á leið til lýöræöis. DYFLINNI — Öryggisvarsla hefur verið mjög aukin beggja vegna landamæra Irlands og Noröur-írlands. Hópar á báö- um þessum stöðum hafa hvatt til ofbeldisaðgerða í tilefni aö ár er liðið frá því samningurinn um takmarkaða stjórnun (r- lands í málefnum Norður-ír- lands var undirritaöur af Mar-' gréti Thatcher forsætisráö- herra Bretlands og Garret Fitz- jerald forsætisráðherra rlands. R BOMBAY — Myndavélarnar voru settar af staö aö nýju í Hollywood þeirra Indverja, Bombay, og kvikmyndahúsin undirbjuggu að opna aftur eftir verkfall sem staðið hefur síð- asta mánuðinn og haft mikil áhrif á indverska kvikmynda- iönaöinn, sem er sá viðamesti í öllum heimi. HAAG — Eitruö úrgangsef bárust út í ána Rín frá svis: neskri efnaverksmiöju og flu' í átt til Norðursjávar. Gorbatsjov Sovétleiðtogi predikar hér yfir sovéskum iðnaðarmönnum um betra efnahagslif. Nu predikar hann yfir öðrum kommúnistaleiðtogum og enn er stirt og svifaseint efnahagslíf hans helsta áhugamál. Leiðtogaráðstefna Comeconríkjanna í Moskvu: Fundað um samvinnu Mósambik: Skæruliðar streyma yfir landamærin Maputo-Keuter Hægrisinnaðir skæruliðar laumuð- ust yfir landamærin frá Malawi og réðust á bæinn Ulongue í Norð-vest- ur Mósambik um helgina. Það var hin opinbcra fréttastofa í Mósambik sem skýrði frá atburðnum. Stjórnvöld í Mósambik hafa haid- ið því fram að þúsundir skæruliða sem stjórnað er af Suður-Afríku- mönnum hafi komið frá Malawi yfir til Mósantbik á síðustu vikum og ráðist á nokkra bæi í grennd við landamærin. Stjórnvöld í Malawi og Suður-Afríku hafa bæði neitað að styðja hægrisinnaða skæruliða er berjast gegn Mósambikstjórn. Fréttastofan sagði einnig frá því að árásir skæruliða heföu hindrað flutning landbúnaðarvara í héraðinu Tete og þar væri nú mikill matar- skortur. Sinatra syngur ei í bili Palm Springs-Reuter Stórsöngvarinn Frank Sinatra var við góða heilsu í gær eftir að hafa gengist undir tveggja tíma skurðaðgerð þar sem læknar fóru höndum um garnir hans. „Aðgerðin var ekki flókin og það bendir ekkert til að um krabbamein sé að ræða,“ sagði talsmaður sjúkrahússins við fréttamenn og bætti við að Sin- atra væri hress. Sinatra er nú sjötugur og gekkst hann undir skurðaðgerð- ina vegna ígerðar í þörmunt sem valdið hafði honunt kvölum miklum, meðal annars er hann þurfti að syngja. Sinatra mun dvelja á sjúkra- húsi næstu vikuna eða svo en heldur þá til heimilis síns í Palm Springs í Kaliforníu. - Gorbatsjov vill blása nýju lífi í samvinnu hinna tíu ríkja Comecon viöskiptabandalagsins Moskva-Reuter Mikhail Gorbatsjov Sovétleiðtogi og leiðtogar níu annarra kommún- istaríkja settust við fundarborðið í gær í Moskvuborg á fyrstu ráðstefnu Comecon viðskiptabandalagsins sem haldin er síðan í júní árið 1984. Það var sovéska fréttastofan Tass sem skýrði frá upphafi ráðstefnunn- ar en engar frekari skýringar voru gefnar á innihaldi viðræðnanna né lengd þeirra. Leiðtogaráðstefnan er haldin að- eins viku eftir fund forsætisráðherra Comecon ríkjanna í Búkarest í Rúmeníu þar sem samþykkt var að setja á stofn fyrirtæki er ynnu að sameiginlegri framleiðslu. Þar var einnig skrifað undir fleiri samþy kktir um aukna viðskiptasamvinnu. Stjórnarerindrekar segja að leið- togaráðstefna svo fljótt eftir forsæt- isráðherrafundinn sýni vilja Gorbat- sjovs til að blása nýju lífi í efnahags- líf Comeconríkjanna. Ekki hafa neinar opinbcrar yfir- lýsingar verið gefnar um innihald viðræðnanna en Nicolae Ceausescu Rúmeníuleiðtogi sagði í síðasta mánuði í Búkarest að nánari efna- hagssamvinna Comeconríkjanna myndi verða aðalumræðuefnið á ráðstefnunni í Moskvu. Tass fréttastofan sagði að Ceaus- escu, Todor Zhivkov frá Búlgaríu, Gustav Husak frá Tékkóslóvakíu, Erich Honecker frá Austur-Þýska- landi, Janos Kadar frá Ungverjal- andi, Wojciech Jarúzelski frá Pól- landi, Fidel Castró frá Kúbu og Truong Chinh frá Víetnam væru komnir til Moskvu vegna fundarins. Samkvæmt heimildum Reuters Refsing EB til handa Sýrlendingum: Takmörkuð og táknræn Lundúnir - Reuter Evrópubandalagið (EB) sam- þykkti í gær að beita Sýricndinga takmörkuðum refsiaðgerðum fyrir meinta þátttöku þeirra í tilraun til að koma sprengju um borð í ísraelsku farþegaþotuna á Heathrowflugvelli í Lundúnum síðastliðið vor. Vopna- sölubann er ein refsiaðgerðanna. Allir utanríkisráðherrar EB utan sá frá Grikklandi skrifuðu undir refsiaðgerðaskjalið á fundi í Lundúnum. Grikkir geta ekki sætt sig við orðalag samþykktarinnar og hafa formlega neitað að skrifa undir slíkar rcfsiaðgerðir en breskir em- bættismenn sögðu þó að grísk stjórn- völd myndu taka þátt í þeim eigi að síður. „Við viljum senda Sýrlendingum skýr boð um að það sem gerðist sé algjörlega óviðunandi," sagði í yfir- lýsingu ráðherranna. Auk vopnasölubannsins er kveðið á um aukið eftirlit með starfsemi sýrlenskra sendiráða í ríkjunum tólf, nánari öryggisgæslu í sambandi við ferðir sýrlenska flugfélagsins og bann við ferðum háttsettra embætt- ismanna til og frá Sýrlandi. Frakkland var eitt þeirra ríkja sem studdu aðgerðirnar þrátt fyrir ásakanir Jacques Chirac forsætisráð- herra Frakklands unt að ísraelska leyniþjónustan hefði líklegast sett Sýrlendinga upp í þessu máli. Ásak- anir Chirac birtust í viðtali sem bandaríska stórblaðið Washington- pósturinn (The Washington Post) birti í gær. Aðgerðirnar gegn Sýrlendingunt eru að mestu táknrænar og eiga að sýna stuðning Evrópubandalagsríkj- anna við bresk stjórnvöld vegna deilu hennar við Sýrlandsstjórn um tengslin milli stjórnarinnar í Dam- ascus og mál Jórdanans Nezar Hind- awi, sem fundinn var sekur í síðasta ntánuði um að hafa ætlað að sprengja upp ísraelska farþegaflug- vél. Hindawimálið hefur þegar valdið stjórnmálaslitum milli Bretlands og Sýrlands og nú hyggja Evrópu- bandalagsríkin á takmarkaðar refsi- aðgerðir gegn Sýrlandsstjórn. Á myndinni má sjá sendiherra Sýrlands Allah Haydar yfirgefa Lundúni nú fyrir skömmu. fréttastofunnar innan Austur-Evr- ópu gæti farið svo að Gorbatsjov eyddi tíma í að skýra hinum leið- togunum frá Reykjavíkurfundi sín- um og Reagans Bandaríkjaforseta þrátt fyrir að ljóst sé að efnahagsmál Comecon ríkjanna eru ástæða fund- arins. Sovéskt efnahagslíf gnæfir yfir viðskipti hinna ríkjanna og hafa þarlend stjórnvöld lengi reynt að gera Comeconríkin háðari hvort öðru. Þessi viðleitni hefur aukist síðan Gorbatsjov tók við völdum í mars á síðasta ári. Moskvustjórnin hefur gert hinum ríkjunum ljóst að hún vilji fá betri iðnaðarvörur frá hinum ríkjum bandalagsins fyrir orku þá sem Sov- étríkin láta þeim í hendur. í desember á síðasta ári var ný fimmtán ára áætlun samþykkt af stjórnvöldum Comeconríkjanna og gerir hún ráð fyrir aukinni samvinnu á sviði háþróaðrar tækni sem er í mörgu ábótavant í hinum tíu ríkjum bandalagsins.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.