Tíminn - 11.11.1986, Síða 13

Tíminn - 11.11.1986, Síða 13
12 Tíminn ÍÞRÓTTIR Enska knattspyrnan: Liverpool komið á „sinn stað“ aftur Frá Guðmundi Fr. Jónassyni fréttaritara Tímans í Lundúnum: Coventry sýndi hinum liöunum í deildinni hvernig á að stoppa Forest, Nick Pickering tók Franz Carr úr umferð og munaði um það því hann hefur verið þeirra besti maður í vetur. Sigurmarkið skoraði Nick Pickering á 54. mín. Breidd Notting- ham Forest er ekki nógu mikil til að þeir geti haldið sér í toppbaráttunni en búist er við að þeir kaupi nýja leikmenn á næstunni. Trevor Stevens kom Everton yfir á 22. mín. úr vítaspyrnu eftir að Kevin McAllister hafði handleikið knöttinn. Það var síðan gegn gangi leiksins er Keith Jones jafnaði á 44. mín með góðu skallamarki eftir sendingu frá Patt Nevin. Kevin She- edy kom Everton aftur yfir á 67. mín. eftiraukaspyrnu, þrumaði bolt- anum gegnum varnarvegg Chelsea og beint í markið. Á 69. mín var síðan Kevin McAllister vikið af leikvelli fyrir að sparka í Kevin Sheedy. Við það tvíefldust leikmenn Chelsea og Colin Pates náði að jafna 3 mín. fyrir leikslok. Paul Goddard lék sinn fyrsta leik fyrir Newcastle og stóð sig mjög vel. Hann fiskaði vítaspyrnu á 17. mín. og úr henni skoraði Neil McDonald. Alan Smith náði að jafna fyrir Leic- esterá47. mín. ogeftirþaðbjörguðu leikmenn Newcastle tvisvar á línu. Ferðalagið til Manchester var leiðinlegt fyrir Billy McNeil fram- kvæmdastjóra Aston Villa en fyrir aðeins 5 vikum var hann fram- kvæmdastjóri Man. City. Á leiðinni á völlinn lenti rúta Aston Villa í umferðarslysi þar sem ein kona dó. Þegar þeir loks komust á völlinn fékk McNeil fjandsamlegar viðtök- ur. Leikmenn Aston Villa voru slappir í þessum leik enda í hálf- gerðu sjokki. Mörk Manchester City skoruðu Paul Moulden 2, á 25. og 80.mín. og Imre Varadi á 56. nu'n. Eina mark Aston Villa gerði Tony Daley á 66. mín. Úrslit 1. deild: Arsenal-West Ham ................ 0-0 Coventry-Notth. Forest........... 1-0 Eveiton-Chelsea.................. 2-2 Leicester-Newcastle ............. 1-1 Man. City-Aston Villa............ 3-1 Norwich-Tottenham ............... 2-1 Oxford-Manchester Utd............ 2-0 Q.P.R.-Liverpool................. 1-3 Sheff. Wed.-Southampton.......... 3-1 Watford-Charlton................. 4-1 Wimbiedon-Luton ................. 0-1 2. deild: Birmingh.-Oldham................. 1-3 Blackb.-Sheffield................ 0-2 Crystal Palace-Grimsby........... 0-3 Derby-Ipswich.................... 2-1 Huddersf.-Brighton............... 2-1 Hull-Stoke........................ 04 Millwall-Leeds................... 1-0 Portsmouth-Bradford.............. 2-1 Reading-Barnsley ................ 0-0 Shrewsb.-Plymouth................ 1-1 i Sunderl.-West Bromwich........... 0-3 • Skoska úrvalsdeildin Aberdeon-St. Mirren.............. 0-0 Clydebank-Hearts................. 0-3 Dundee U.-Dundee ................ 0-3 Hamilton-Celtic.................. 1-2 ^Hiberaian-Falkirk................ 1-0 \angers-Motherwell ............... 0-1 Ian Crooks fyrrverandi leikmaður Tottenham kom Norwich yfir gegn Tottenham á 59. mín. Þá var Glenn Hoddle settur inná og hann átti síðan stóran þátt í jöfnunarmarkinu sem Nico Claesen gerði á 72. mín., hans fyrsta deildarmark í Englandi. Fjórum mínútum síðar kom sigur- mark Norwich. Aukaspyrna úti á kanti, Shaun Elliott var alveg frír og náði að skalla knöttinn f netið. Sanngjarn sigur. Ray Clemens hafði nóg að gera í marki Tottenham og varði oft vel. Leikur Oxford og Manchester Un- Jted var jafn en ekkert gengur upp hjá Manchester United. Á 17. mín varð Kevin Moran fyrir því óláni að skella John Aldridge og dæmt var víti. Hann skoraði síðan örugglega úr því sjálfur. Frank Stapleton Man. Utd. var óheppinn í síðari hálfleik, átti skot í slá. Það var síðan Neil Slater sem tryggði Oxford sigurinn á 80. mín., hann skoraði heppnismark úr þvögu. Eftir markið sótti Man. Utd. stíft en ekkert gekk. í lið Man. Utd. vantaði Bryan Robson, Gor- don Strachan, John Sivebæk og Norman Whiteside, þeir eru allir meiddir. Jesper Olsen kom inná í leiknum og er óvíst hvort hann fer frá liðinu eftir allt saman. Liverpool réð algerlega gangi leiksins gegn QPR og vann sann- gjarnan sigur. Fyrsta markið kom á 9. mín. Ian Rush komst þá inn í sendingu til Seamans markmanns. Hann náði að verja skot Rush en hélt ekki boltanum sem endaði í markinu. Sex mínútum seinna kom annað markið, Steve Nicol fékk boltann út eftir hornspyrnu. Hann var ekkert að tvínóna við hlutina heldur þrumaði boltanum í netið með vinstrifótarskoti, fallegt mark. Gary Bannister náði að minnka muninn á 27. mín með glæsilegu skallamarki sem Bruce Grobbelaar hafði ekki möguleika í. Það var síðan Craig Johnston sem tryggði Liverpool sigurinn á 76. mín. með skoti af stuttu færi. Topplið deildarinnar var þannig skipað á laugardaginn: Grobbelaar, Gillespie, Baglin, Lawrenson, Hansen, Johnston, Nicol, Walsh, Mölby, Rush, McMahon,(John Wark). Bryan Marwood kom Sheffield Wed. yfir á 67. mín. með marki úr vítaspyrnu. Lee Chapman bætti síð- an tveimur við á 71. og 75. mín. Varmarmaður Southampton Matt- hew Letissier minnkaði muninn á 87. mín. Sigurður Jónsson kom inná þegar hálftími var eftir af leiknum. Hann lék vel og átti þátt í 3. markinu, skaut á markið, markvörðurinn hélt ekki knettinum og Chapman kláraði dæmið. Watford vann sinn stærsta sigur á tfmabilinu á móti Charlton en það var þó Charlton sem skoraði fyrsta markið, George Shipley skoraði á 10. mín. Mark Falco náði að jafna á síðustu mín. fyrri hálfleiks og hann skoraði aftur á 54. mín. David Bardsley skoraði 3. mark Watford á 70. mín og mínútu síðar skoraði Luther Blissett 4. markið. Leikur Wimbledon og Luton var harður og mikið um brot. Brian Stein varð að yfirgefa völlinn vegna meiðsla í síðari hálfleik. Það var yngri bróðir hans, Mark Stein sem skoraði sigurmark Luton á 57. mín. 2. deild: Portsmouth-Bradford.........3-1 Kevin Dillon og Micky Quinn skor- uðu fyrir Portsmouth en Stuart McCalI fyrir gestina. Millwall-Leeds ...............1-0 Jack Ashurst tryggði Millwall sigur- inn úr vítaspyrnu. Derby-Ipswich ...............2-1 Gary Micklewhite kom Derby yfir en Nick Stockwell náði að jafna. Bob Davidson tryggði síðan Derby sigurinn 20 sek. fyrir leiksiok. - Sunderland-WBA ........0-3 Bobby Willamson, Garth Crooks og Martin Dickenson skoruðu mörkin. Hull-Stoke.............0-4 Leikmenn Hull gerðu 2 sjálfsmörk en hin tvö gerðu Keith Berschin og Tony Ford. Staðan: 1. deild Liverpool .... 14 8 2 4 33-19 26 Nott. Forest .... 14 8 2 4 30-16 26 Arsenal ... 14 7 4 3 16-8 25 Norwich .... 14 7 4 3 23-21 25 Luton ... 14 6 5 3 14-9 23 Coventry .... 14 6 5 3 14-10 23 West Ham .... 14 6 5 3 24-22 23 Everton .... 14 6 4 4 22-17 22 Sheff. Wed .... 14 5 6 3 28-22 21 Oxford 5 4 14-21 20 Tottenham .... 14 5 4 5 14-14 19 Wimbledon .... 14 6 1 7 16-18 19 Watford 3 6 23-19 18 Southampton . . . . .... 14 5 2 7 27-30 17 QPR 2 7 14-18 17 Charlton .... 14 5 2 7 16-23 17 Leicester .... 14 4 4 6 17-20 16 Aston Villa .... 14 5 1 8 20-31 16 Chelsea . ... 14 3 5 6 16-25 14 Manchester Utd. . . . ... 14 3 4 7 16-18 13 Manchester City . .... 14 2 6 6 13-16 12 Newcastle . ... 14 2 4 8 10-23 10 2. deild Portsmouth ... 14 8 5 1 18-8 29 Oldham .... 14 8 4 2 23-13 28 Leeds .... 14 7 3 4 19-12 24 Plymouth .... 14 6 6 2 23-17 24 West Bromwich . . .... 14 7 3 4 20-15 24 Derby .... 14 7 3 4 18-15 24 Ipswich .... 14 6 4 4 22-18 22 Sheff. Utd . ... 14 5 6 3 18-15 21 Grimsby .... 13 5 5 3 14-12 20 Sunderland . ... 14 5 5 4 19-20 20 Crystal Palace . .. . ... 14 6 0 8 17-26 18 Millwall . ... 14 5 2 7 17-16 17 Brighton .... 14 4 5 5 14-15 17 Hull .... 14 5 2 7 13-22 17 Reading .... 14 4 4 6 23-21 16 Bradford .... 13 4 3 6 17-19 15 Huddersfield .... 14 4 3 7 14-21 15 Birmingham .... 14 3 5 6 19-23 14 Stoke .... 14 4 2 8 12-16 14 Shrewsbury .... 14 4 2 8 13-19 14 Barnsley .... 14 2 6 6 11-16 12 Blackburn . ... 12 3 2 7 13-18 11 Skoska úrvalsdeildin Celtic .. 16 12 2 1 1 38-9 27 Dundee Utd . 17 10 E 2 30-14 25 Hearts ..17 8 6 3 22-12 22 Rangers .. 16 9 3 1 4 26-11 21 Aberdeen . . 16 7 6 3 25-14 20 Dundee . . 17 9 2 » 6 22-15 20 St. Mirren ..17 6 6 1 6 13-15 16 Motherwell .. 17 3 7 » 7 16-27 13 Hibernian .. 17 4 E 8 17-34 13 Falkirk .. 17 3 6 9 13-24 11 Clydebank . 17 4 2 ! 11 11-31 10 Hamilton .16 0 2 14 9-36 2 Enska knattspyrnan: Lukic í stuði og ekkert mark var skorað á Highbury Frá Guðmundi Fr. Jónassyni frcttarítara Tímans á Highbury Park í Lundúnum: Arsenal komst lítið áfram gegn sterkri vörn West Ham þrátt fyrir mikla sókn í fyrri hálfleik. West Ham skoraði tvö mörk en þau voru bæði dæmd af vegna rangstöðu. í síðari hálfleik jafnaðist leikurinn og síðustu 20 mínúturn- ar var einstefna á mark Arsenal. Frank McAvennie komst tvisvar einn innfyrir vörn Arsenal en Lukic varði meistaralega. Tony Cottee náði síðan að leika á einn varnarmanna Arsenal en var full fljótur á sér og Lukic varði enn. Á 88. mín. fékk Frank McAvennie dauðafæri. í stað þess að renna knettinum í markið stöðvaði hann knöttinn til að leggja hann fyrir sig en Lukic var eldfljótur og hirti hann af honum. Þrátt fyrir 0-0 jafntefli var klappað fyrir leikmönnum liðanna er þeir gengu af leikvelli fyrir góðan leik. Charlie Nicholas, Graham Rix og Stewart Robson leikmenn Arsenal eru enn frá vegna meiðsla. Maður leiksins Steve Williams Arsenal. Shilton meiddur Peter Shilton, landsliðsmarkvörður Englands f knatt- spyrnu meiddist í leik liðs síns Southampton gegn Sheffield Wednesday á laugardaginn og er óvíst að hann geti staðið í enska markinu gegn Júgóslövum í Evrópu- keppninni annað kvöld. Hann lenti í samstuði við Paul Hart í fyrri hálfleik en lék allan leikinn. Kraftlyftingar: íslandsmet Frá Gylfa Kristjánssyni fréttarítara Tímans á Akurcyri: Víkingur „heimskautabangsi“ Traustason hlaut flest stig í Grét- arsmótinu í kraftlyftingum sem haldið var á Akureyri um helgina. Hann hlaut 422,3 stig en samtals lyfti hann 820 kg sem er nokkuð frá hans besta árangri. Tvö ís- landsmet voru sett á mótinu. Þar var að verki Nína Óskarsdóttir en hún er systir hins þekkta lyftinga- manns Skúla Óskarssonar. Nína keppti í 60 kg flokki og lyfti 100 kg í hnébeygju og 125 kg í réttstöðulyftu sem hvorttveggja eru ný met. Hún lyfti samtals 275 kg. Mesta keppnin var í 100 kg flokki en þar sigraði Óskar Sig- urpálsson sem lyfti samtais 700 kg Akureyringurinn Flosi Jóns- son varð annar með 65 kg. í 90 kg flokki sigraði Sigurður Gests- son sem lyfti 610 kg og Haraldur Ólafsson sigraði í 82,5 kg flokki með 455 kg Kári Elísson sigraði í 75 kg flokki með 600 kg og Aðalsteinn Kjartansson i 60 kg flokki með 387,5 kg. ÓS»/SlA Fjölbreytt úrval af fallegum gjafavörum. Við útbúum fallegan jólapakka og sjáum um að hann komist til viðtakanda á réttum tíma. ^lafossbúðin VESTURGÖTU 2, SÍMI 13404 Tíminn 13 ÍÞRÓTTIR Úrvalsdeildin í körfuknattleik Úrslit alls óráðin Urvalsdeildin í körfuknattleik ætl- ar svo sannarlega að verða spenn- andi og jöfn, hver leikur mikilvægur og úrslit á alla vegu. íslandsmeistar- ar Njarðvíkur nældu sér í tvö stig nú um helgina er þeir sigruðu KR-inga í íþróttahúsi Hagaskóla með 80 stigum gegn 79 í skemmtilegum baráttuleik. Staðan í leikhléi var 38-34 gestunum í hag. Njarðvíkingar byrjuðu betur enda með reynt og samæft byrjunarlið sem í voru þeir Helgi Rafnsson, Jóhannes Kristbjörnsson, ísakTóm- asson, Kristinn Einarsson og Hreið- ar Hreiðarsson. Helgi lék mjög vel í byrjun eins og reyndar allan leikinn og Njarðvíkingar komust í 12-6 eftir fimm mínútna leik. Staðan breytist þó fljótt í körfu- bolta, KR-ingar með Garðar Jó- hannesson í fararbroddi sigu á, léku stórvel og voru allt í einu komnir með níu stiga forystu 31-23. Sú dýrð Helgi Rafnsson Njarðvíkingur er knattsjúkur undir körfu eins og Tímamynd Péturs ber raun vitni. Helgi átti stóran hlut í sigri Njarðvík- inga á KR-ingum. stóð hinsvegar stutt yfir og það voru Suðurnesjabúarnirsem leiddu í hléi. Allt virtist stefna í nokkuð örugg- an sigur Njarðvíkinga í síðari hálf- leik en undir lok hans fóru KR-ingar að bíta frá sér, söxuðu á forskotið með aðstoð Njarðvíkinga sem virt- ust furðulega óöruggir í þessari að- stöðu miðað við getu, leikreynslu og fjölda Islandsmeistaratitla. Þegar mínúta var til leiksloka höfðu KR-ingar náð markmiði sínu, helst fyrir tilstilli Guðna Guðnason- ar sem fór á kostum á þessu tímabili, og minnkað muninn niður í tvö stig 76-78. Þrátt fyrir mikinn hamagang kom þó allt fyrir ekki, Njarðvíkingar höfðu sigur en Vesturbæingarnir sátu eftir með sárt ennið. Teitur örlygsson Njardvíkingur var mað- ur þessa leiks. Hann nýtti skot sín vel, stal bolta ósjaldan og gaí sig allan i leikinn baaði i vörn sem sókn. Mikið framtíðarefni þar á ferð. Helgi Rafnsson skoraði grimmt, leikur lykilhlutverk í fráköstum og gerir þad vel. Þá var Valur Ingimundarson þjálfari Suður- nesjabúanna iðinn við kolann en sú hugsun læðist þó að, að þjálfarastarfið taki sinn toll af þessum besta leikmanni i íslenskum körfuknattleik undanfarin ár. KR-ingar sýndu sterkan leikanda, gáfust ekki upp þó á móti blési og eru til alls líklegir í vetur. Guðni Guðnason byrjaði leikinn illa en tók við sór i siðari hálfleik og var þá nær óstöðvandi. Garðar Jóhannes- son hitti vel og Þorsteinn Gunnarson sýndi snjalla boltatakta í leikstjórastöðunni. Bergur Steingrímsson og Jóhann Dagur réðu flautugangi leiksins, gerðu sinn skammt af villum og kvörtuðu leikmenn sáran yfir frammistöðu þeirra. Mörgum þeirra væri hinsvegar ráðleggjandi að líta í eigin barm. hb Mark Duffield aftur til Siglufjarðar Frá Gylfa Krístjánssyni fréttaritara Tímans á Akureyrí: Mark Duffield sem lék með Víði í Garði í 1. deildinni síðastliðið sumar hefur tilkynnt félagsskipti yfir í KS og mun leika með KS í 2. deildinni næsta sumar. Mark er því kominn heim að nýju en hann lék með Siglfirðingum áður en hann fór til Víðis. Endurkoma hans í lið KS mun vissulega styrkja liðið því mark er snjall leikmaður og bar- áttujaxl. Léttur sigur hjá Haukum Hann var auðvcldur sigurinn hjá Haukum í úrvalsdeildinni á sunnu- dagskvöldið. Mótherjarnir voru Framarar. lcikstaöur var íþróttahús Hagaskóla, leikurinn var slakur, úr- slitin aldrei spurning. Haukar urinu með 67 stigum gegn 47 og skoraði Þorvaldur Geirsson nær hclming stiga Framara. Haukarnir náðu strax forystunni í leiknum og héldu henni út alla viðureignina. Munurinn var þó aldr- ei meiri en í lokin enda sýndu Haukarnir þá snjalla spretti þar scnt Henning Henningson og PálmarSig- urðsson sýndu leikni sína í hraða- upphlaupum. Framarar fóru hinsvegar nær aldr- ci í hraðaupphlaup. jafnvel þótt þeir stælu boltanum í miðri sókn Hauka. Slík boðar aldrei gott, rcyndar ósæmandi liði í úrvalsdeildinni, cn Framarar rcyna frekar aö stilla upp í sókn og trcysta á Þorvald Geirsson til að framkvæma hlutina. Vissulega framkvæmdi þessi sterki lcikmaður marga hluti á sunnudagskvöldið, skoraði 19 stig og var cini maöurinn sem Haukavörnin þurfti að hafa áhyggjur af. Haukarnir cru mcð ágætt liö, mcðalhæðin hcfur þó fallið talsvert eftir að Webster, íslcnski ríkisborg- arinn mcð bandaríska ríkisborgara- réttinn, yfirgaf liðið. Henning Henn- ingson átti mjög góðan leik gegn Fram, skoraði grimmt og bcrst frá- bærlcga auk þess sem hann er ólatur við aö hvetja samherja sína. Pálmar Sigurðsson á einnig hrós skilið fyrir góða leikstjórn og hittni þegar leið á lcikinn. Þá var Ingimar Jónsson tyrrum Njarðvíkingur sterkur í vörn sem sókn og ívar Ásgrímsson sýndi snjalla takta. Stigin: Fram: Þorvaldur 19, Ómar 8, Jóhann 7, Jón 4, Auðunn 3, Björn 2, Þorkell 2, Þorsteinn 2. Haukar: Hcnning 21, Pálmar 20, ívar 9, Ingimar 8, Eyþór 4, Bogi 2, Guð- laugur 2, Ólafur 1. LANDSBANKANS FRÁ OG MEÐ 11. NÓVEMBER ERU VEXTIR í LANDSBANKA ÍSLANDS SEM HÉR SEGIR: °02923815 QUUW 29 MAfls C7*— eðlabanki INNLÁNSVEXTIR: Sparisjóösbækur Kjörbækur Vaxtaleiörétting v/úttekta Verðtryggður Sparireikningur: Með 3ja mánaða bindingu Með 6 mánaða bindingu Afmælisreikningur með 15 mánaða bindingu Tékkareikningar Sparireikningar bundnir (3 mán. Sparireikningar bundnir í 12 mán. Sparilán í allt að 5 mán. Sparilán til minnst 6 mán. Sérstakar verðbætur á mánuði Innlendir gjaldeyrisreikningar: Bandaríkjadollarar Sterlingspund Vesturþýsk mörk Danskar krúnur Vextir alls áári 9,0 % 15,0 % 0,7 % 1,0 % 3,5 % 7,25% 6,0 % 10,0 % 11,0 % 10,0 % 11,0 % 0,75% 5,0% 10,0% 3,5% 8,5% Landsbanki íslands Banki allra landsmanna ÚTLÁNSVEXTIR: Vextir alls áári Víxlar (forvextir) Hlaupareikningar Almenn skuldabréf Verðtryggð lán: Lánstími í allt að 2Vfe ár Lánstími minnst 21á ár

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.