Tíminn - 11.11.1986, Side 16

Tíminn - 11.11.1986, Side 16
16 Tíminn Þriðjudagur 11. nóvember 1986 Svona fóru skenundarverka- mennirnir með alla nuela í verk- smiðjunni. (Tímumynd Svcrrir) - ef marka má vinnubrögðin „Okkur virðist við fyrsta yfirlit að hér sé ekki um neinn alþjóðlegan glæpahring að ræða. Það sér maður af vinnubrögðunum á staðnum," sagði rannsóknarlögreglumaður sem hafði yfirumsjón með rannsókn á skcmmdarverkum þeim scm fram- kvæmd voru í Hvalstöðinni um helg- ina, í samtali við Tímann. Skemmdarverkin sem unnin voru í Hvalstöðinni eru þess eðlis að gífurlegt fjárhagslegt tjón hefur ver- ið unnið. Hitt er uftur Ijóst að skcmmdarverkin eru flausturslega unnin með tilliti til þess hvert mark- miðið með þeim hlýtur að hafa verið. Skemmdarvcrkin voru unnin á fjórum sviðum. í fyrsta lagi var ráðist á stýritölvu þá sem verksmiðj- unni er stjórnað með. Tölvan sjálf er þó óskemd, en stjórnborð hennar er ónýtt. í öðru lagi voru unnin skemmdarverk á Ijósavélum, sem keyrðar eru þegar rafmagn þrýtur. í þriðja lagi var ráðist á verkstjóra- skrifstofurnar og miklar skemmdir unnar á húsnæðinu og dýrum tækja- búnaði. í fjórða lugi hafa þeir sem frömdu ódæðið skemmt hvern ein- asta mæli í verksmiðjunni. Verkstjórar þeir sem Tíminn ræddi við í gær voru almennt sam- mála um það að skemmdarverkið væri illa hcppnað. Sögðu þeir að slagæðar og lífæðar verksmiðjunnar hefði verið látnar ósnortnar og væri ekki lengi verið að koma verksmiðj- unni í starfhæft ástand að nýju. Skemmdarfýsn hefur greinilega ráðið hluta af ferðinni hjá þeim sem réðust inn í Hvalstöðina. Lýsi, brennisteinssýru og tjöru hafði verið ausið á gólf og var verulega óhugn- anleg aðkoma. Útvarpstæki starfs- manna og segulbund var eyðilagt. Málið er í höndurn rannsóknarlög- reglu og er ekki hægt að búast við upplýsingum í bráð. - ES Stjórntölvan í Hvalstöðinni eftir þá útreið sem hún fékk uin helgina. Eins og sjá má hefur skemindariysn ráðið gerðum þeirra sem réðust til atlögunnar. Skvett hefur verið úr tjörufötu á gólfiö. (Tímamynd Sverrir)1 Rannsóknarlögreglan um skemmdarverkin: Paul Watson „sjálfskipaður lögregluþjónn úthafanna“: Ekki alþjóða glæpahringur Segist hafa sökkt báðum hvalbátunum „Erum komnir á sporiö," segir Þorsteinn Geirsson ráðuneytisstjóri Mikilsverðar upplýsingar varð- andi skemmdarverkasveit þá sem Sea Shepherd segist hafa sent hingað fengust í gær. Interpol svaraði skeyti frá dómsmálaráðuneytinu og sagði Þorsteinn Geirsson ráðuneytisstjóri í sanrtali við Tímann í gær að þessar upplýsingar tengdust grunsamlegum útlendingum sem tengjast samtök- um Sea Shepherd. „Við vonumst til þess að málið upplýsist á næstu dögum," sagði Þorsteinn Geirsson. Hann var spurður hvort hann teldi að hægt yrði að koma lögum yfir þá menn sem sökktu hvalbátunum. Fjöldi fólks koni til þess að sjá með eigin auguni skcmmdarverkin sem unnin voru í Rekjavíkurhöfn. Flestir bitu saman tönnum og bölvuðu þeg- ar þeir stóðu á brún bryggjunnar og horfðu niður á skipin tvö þar sem þau liggja á botni hafnarinnar. (Tímamynd Pjelur) Þorsteinn benti á að íslendingar væru aðilar að framsalssamningum ríkja Evrópuráðsins og verið væri að kanna möguleika á framsali. Hval 6 og Hval 7 var sökkt í Reykjavíkurhöfn um helgina. Kaf- arar sannreyndu grun almennings þegar þeir tilkynntu um að botnlokar hefðu verið skrúfaðir úr innan frá. Gerðar voru ráðstafanir af Útlend- ingaeftirliti þegar leið fram á daginn. Paul Watson talsmaður samtakanna hefur viðurkennt að samtökin standi á bak við verknaðinn. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem samtökin beita aðferðum af þcssu tagi og hafa þau sökkt hvalveiðiskipum við Portúgal og Spán. Paul Watson skipherra á skipi Sea Shepherd sagði í samtali við blaðamann þegar skipið kom hingað til lands í fyrra að hann væri sjálfskipaður lögregluþjónn úthafs- ins og sæi um að alþjóðalögum væri framfylgt. - ES

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.