Tíminn - 11.11.1986, Qupperneq 17

Tíminn - 11.11.1986, Qupperneq 17
Þriðjudagur 11. nóvember 1986 Tíminn 17 -/• Helgi Jónsson verkstjóri í verksmiðjunni í Hvalstöðinni: „Menn fylltust réttlátri reiði“ Það þarf meira til að buga okkur „Ingvi Böðvarsson verkstjóri og ég komu hingað fyrstir í morgun. Það var rétt rúmlega níu. Ég tók fyrst eftir að rúður voru brotnar í verkstjórahúsnæðinu og datt hrein- lega í hug að eitthvað lauslegt hefði fokið í þær. Þó svo að búið sé að sökkva tveimur hvalbátum þá hvarfl- aði ekki að mér innbrot. Við vorum algerlega grandalausir fyrir þessu. Ingvi fór hinsvegar niður eftir og hann kom að öllu í rúst,“ sagði Helgi Jónsson verkstjóri í verksmiðju Hvalstöðvarinnar í samtali við Tím- ann í Hvalstöðinni í gær. „Þeir hafa unnið gífurlegt tjón í peningum, en þetta stoppar okkur ekki hérna. jafnvel þó þetta hefði gerst á vertíð þá hefði þetta aldrei stoppað okkur,“ sagði Helgi. Helgi benti á að tölvubúnaðurinn hefði skemmst verulega og það væri sá búnaður sem stjórnaði verksmiðj- unni. Aftur á móti benti hann á að tölvan væri ekki ónýt heldur fyrst og fremst stjórnborðið. „Allir mælar hafa verið brotnir og virðast hafa farið gífulega í taugarnar á þeim. Það er engu líkara en að þeir sem Þetta gerðu hafi fengið skipanir um að eyðileggja allan stjórnbúnað.“ Hvaða hugur er í mönnum eftir þessa atburði? „Það þarf miklu meira en þetta til að stoppa okkur. Þetta verður senni- lega til þess að þjappa mannskapn- um betur saman. Maður fyllist rétt- látri reiði vegna þessa," sagði Helgi -ES Helgi Jónsson verkstjóri í skrifstofu sinni. Þar var búið að rústa öllu og hella brennisteinssýru á gólfið, svo og lýsi og tjöru. Útvarpstæki Helga og segulband var eyðilagt. „Það þarf meira til að buga okkur," sagði Helgi. (IimaniMUÍ Sverrir) Andrés Magnússon verkstjóri á planinu í Hvalstöðinni: „Virðist vera handahófskennt“ „Mér sýnist sem skemmdarverkin séu mjög handahófskennd og skcmmdarfýsn hefur ráðið ferðinni að nokkrum hluta. Það cr hinsvcgar Ijóst að skemmdirnar eru dýrar og miklar,“ sagði Andrés Magnússon verkstjóri í Hvalstöðinni í samtali við Tímann í gær. Andrés var spurður hvort hann vildi ganga svo langt að segja að Andrés Magnússon verkstjóri sagði aö liann teldi aö þrátt fyrir gífurlegt fjárhagslegt tjón hefði atlagan mis- tekist. Hann stendur hér viö nokk- urn hluta þeirra mæla sem eyðilagðir VOfU. (Tímamynd Sverrir) þeim sem hcfðu verið á ferðinni hcfði mistckist áætlun sín. „Já, ég held að það megi segja þaö að vissu leyti.“ Andrés sagði aö menn hefðu orðið verulega undrandi þegar þeir komu til vinnu og menn hefðu verið grandalausir fyrir skemmdarverkum í sjálfri stöðinni. „Það er ómögulegt að scgja til um hvcrjir hafa verið á fcrðinni hér. Það gcta allt eins vcrið íslendingar scm áttu við stöðina," sagði Andrés. -ES Útlendingaeftirlitið: Skipin sukku á tiltölulega stuttum tíma. Slökkviliðið reyndi án árangurs að dæla sjó úr skipunum. Sjórinn spýttist inn um opna botnlokana. (Timamynd Sverrir) Þrjár vélar frá landinu - án þess að farþegar gæfcr persónuupplýsingar Persónuupplýsingar hafa verið teknar niður um þá sem fóru úr landi síðan eftir hádegi á sunnu- dag. Þegar Útlcndingaeftirlitið fékk upplýsingar rétt fyrir hádegi um málið, voru þrjár vélar farnar úr landi frá Keflavíkurflugvelli. Rannsóknarlögreglan fékk upp- lýsingar um að tvö hvalskip væru að sökkva í Reykjavíkurhöfn um sjöleytið á sunnudag en ekki þótti ástæða til að láta Útlend- ingaeftirlitið athuga ferðir manna til og frá landinu fyrr en skömmu fyrir hádegi. Til staðar eru listar yfir menn sem hafa verið teknir erlendis og menn sem hafa komið hingað og hafa verið orðaðir við skemmdar- verk, en einnig er trúlegt að óþckktir menn komi þarna við sögu. Þórir Oddsson vararannsókn- arlögreglustjóri sagðist ekki vilja gefa það upp í hverju rannsókn málsins væri fólgin þar sem slíkar upplýsingar gætu komið þeim til góða sem unnu skemmdarverkin. ABS

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.