Tíminn - 30.05.1987, Qupperneq 7
Laugardagur 30. maí 1987
Tíminn 7
Forsvarskonur gististaðarins Hof þær Jónína Ingvadóttir, Ásrún Lára Jó-
hannsdóttir, Aðalbjörg Kristjánsdóttir og Ásdís Sigurðardóttir.
(Tímamynd: BREIN)
Gististaðurinn Hof:
Fjórar konur
hefja eigin
hótelrekstur
- í fyrrum húsnæði sjúkrahótels
„Við höfðum unnið saman á Hótel
Hofi í mörg ár en stóðum uppi
atvinnulausar þegar Rauði krossinn
keypti húsnæði hótelsins undir
sjúkrahótel. Áður en við hættum
fórum við saman út að borða áður en
við tvístruðumst hver í sína áttina.
Pá byrjuðum við að ræða hvað það
væri erfitt að vera upp á aðra komnar
um atvinnu. í kjölfar þess fæddist
hugmyndin um að hefja sameiginleg-
an rekstur á hóteli" sögðu þær stöllur
Aðalbjörg, Ásdís, Ásrún Lára og
Jónína en þær hófu rekstur gististað-
arins Hof að Skipholti 21,1. maí síð-
astliðinn.
Þær stöllur sögðust engu kvíða í
rekstri gististaðarins enda allar með
áralanga reynslu í öllum hótelstörf-
um, en þær reka Hof í sameiningu og
á jafnréttisgrundvelli.
Reksturinn hefur gengið vel fyrstu
vikurnar, yfirleitt verið full nýting á
herbergjum. Gestir hafa verið
ánægðir með Hof, enda segjast
stöllurnar leggja sérstaka áherslu á
góðan anda á staðnum.
Eins og áður segir er gististaðurinn
Hof til húsa að Skipholti 21, þar sem
sjúkrahótel Rauða krossins var starf-
rækt um árabil. ÖIl aðstaða til hótel-
reksturs er þar með ágætum. Þar eru
20 rúmgóð herbergi þar sem 30
manns geta notið gistingar á góðu
verði.
Á Hofi er að finna sérstaklega
rúmgóða og notarlega setustofu þar
sem hægt er að horfa á sjónvarp eða
lesa dagblöðin í rólegheitum.
Gestamóttakan er opin allan sól-
arhringinn og veita þær stöllur gest-
um sínum alla almenna upplýsing-
aþjónustu auk þess sem þær bjóða
þeim upp á léttar veitingar hvenær
sólarhringsins sem er. Morgunverð-
arhlaðborð er mjög fjölbreytt og
öllum opið.
- HM
Núverandi stjórn BKR: Ragnheiður Viggósdóttir, Gunnlaug Emilsdóttir, Stella Guðnadóttir, Ingibjörg Magnúsdóttir,
Helga Guðmundsóttir, Kristín Guðmundsdóttir, Sigríður Ásgeirsdóttir og Erla Kristjánsdóttir.
Undirbúningsnefnd að stofnun bandalagsins. Sitjandi f.v. Inga Lára Lárus-
dóttir, Steinunn H. Bjarnason og Ragnhildur Pétursdóttir. Standandi f.v.
Hólmfríður Pétursdóttir, Hólmfríður Árnadóttir og Ingibjörg Bencdiktsdótt-
ir. Steinunn, Inga, Raguliildur og Hólmfríður Árnadóttir gcgndu formennsku
■ félaginu á árunum 1917 til 1943
Kristín Guðmundsdóttir núvera
formaður Bandalags kvenna
Reykjavík
hatiðafundur í Gama Bioi og hefst
hann kl. 14:00. Vigdís Finnboga-
dóttir forseti íslands mun heiðra
bandalagið með því að koma á
fundinn. Að honum loknum verður
opnuð sögusýning aðildarfélaganna
að Hallveigarstöðum, en BKR er
eigandi að Kvennaheimilinu Hall-
veigarstöðum ásamt Kvenfélaga-
sambandi íslands og Kvenréttinda-
félagi íslands.
Stofnendur BKR voru nokkrar
þekktar þjóðmálakonur. Af þeim
má nefna Aðalbjörgu Sigurðardótt-
ur sem var formaður félagsins um
rúmlega tuttugu ára skeið. Aðrir
formenn hafa verið Guðrún P.
Helgadóttir skólastjóri, Geirþrúður
Hildur Bernhöft ellimálafulltrúi,
María Pétursdóttir skólastjóri og
formaður Kvenfélagsambands ís-
lands og Unnur Schram Ágústsdóttir
fyrrv. form. Thorvaldsensfélagsins
og núverandi framkvæmdastjóri
Kvennaheimilisins Hallveigarstaða.
ABS
r ■■
KAUPFELOGIN |
búhadardeilo
ARMULA3 REYKJAVÍK SÍMi 38900
Bandalag kvenna í Reykjavík 70 ára í dag:
Konur sameinast
um góð málefni
- þrátt fyrir ólík flokkspólítísk viöhorf
segir Kristín Guömundsdóttir form. BKR.
Bandalag kvenna í Reykjavík er
70 ára í dag, laugardag 30. maí.
Bandalagið er samnefnari tuttugu
og átta félaga kvenna í Reykjavík
með um fjórtán þúsund félagsmönn-
um.
Bandalag kvenna í Reykjavík hef-
ur nýverið gefið út afmælisrit þar
sem rifjað er upp ýmislegt úr starf-
seminni frá stofnun og viðtöl við
fyrrverandi formenn BKR og núver-
andi formann Kristínu Guðmunds-
dóttur.
Kristín segir m.a. í viðtalinu að
sér finnist mjög merkileg sú sam-
staða sem finna má meðal kvenna í
samtökunum. Konur af mjög ólíku
pólitísku sauðahúsi og með hinar
margvíslegustu skoðanir á þjóðmál-
um vinna saman að málefnum svo að
til fyrirmyndar sé. Stóru málin séu
sett á oddinn hverju sinni og barist
fyrir framgangi þeirra. Kristín segir
einnig að nauðsyn sé að koma upp
aðstöðu fyrir konur til að undirbúa
sig við að taka að sér ábyrgðarstörf
í þjóðfélaginu. Sérstök fræðslumið-
stöð þar sem konur geta sótt þekk-
ingu, kraft og styrk væri mjög já-
kvæð viðbót við það það starf sem
BKR vinnur nú að í mannúðar og
þjóðþrifamálum.
í tilefni afmælisins verður haldinn