Tíminn - 17.09.1987, Qupperneq 4
4 Tíminn
IMI
^mmmmmmmmf
Fjórðungssjúkra-
húsið á Akureyri
Staða Yfirsjúkraþjálfara við Endurhæfingadeild
sjúkrahússins er laus til umsóknar.
Staðan veitist strax eða síðar eftir samkomulagi.
Umsóknir, er greini menntun og fyrri störf sendist
framkvæmdastjóra sjúkrahússins fyrir 10. október
1987.
Einnig er laus til umsóknar staða deildarsjúkra-
þjálfara við sjúkrahúsið.
Umsóknarfrestur er til 25. október n.k.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun og
fyrri störf sendist framkvæmdastjóra sjúkrahúss-
ins.
Nokkrar stöður hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða
eru lausartil umsóknarvið Sel, hjúkrunardeild fyrir
aldraða. Umsóknarfrestur er til 1. október n.k.
Upplýsingar gefur hjúkrunarframkvæmdastjóri
Sonja Sveinsdóttir í síma 96-22100 milli kl. 13 og
14 virka daga.
Ennfremur eru lausar stöður hjúkrunarfræðinga
á ýmsum öðrum deildum.
Upplýsingum veitir hjúkrunarforstjóri Ólína Torfa-
dóttir í síma 96-22100.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri.
Sendistarf
Ríkisendurskoðun óskar eftir starfsmanni til léttra
sendistarfa 2-4 kl. st. á dag mánud.-föstud. Frekari
upplýsingar um starfið gefur Jónas Hallgrímsson
í síma 22160.
Drögum úr hraöa
-ökum af skynsemi!
t
Eiginmaöur minn
Eiríkur Erlendsson
Leirubakka 12, Reykjavík
andaöist á Vífilsstaöaspítala, miðvikudaginn 16. sept. Útförin auglýst
síöar.
Björg Jónsdóttir
ndt
Ögmundur Guðmundsson
fyrrum bóndi Þórarinsstöðum, Hrunamannahreppi
verður jarðsunginn frá Hrunakirkju laugardaginn 19. september kl. 14.
Þeim sem vildu minnast hans, er bent á líknarstofnanir.
Jóhanna Guðmundsdóttir
Steinunn Þorsteinsdóttir Hreinn Gunnarsson.
t
Eiginmaöur minn, faðir, tengdafaðir, afi, og langafi
Einar Eggertsson,
kafari,
Álftamýri 48,
verður jarðsunginn föstudaginn 18. sept. kl. 13.30 frá Fossvogskap-
ellu.
Sveinbjörg Árnadóttir
Helga Einarsdóttir Kjartan Guðmundsson
SigríðurHalla Einarsdóttir Ingvar Jóhannsson
Hilmar Einarsson Berglind Pálmadóttir
Margrét Einarsdóttir Ásmundur Cornelíus
Guðmundur Einarsson Kristjana Karlsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Fimmtudagur 17. september 1987
Loðdýrabúskapur:
Fjöldi minkabúa
hefurnærtvöfald-
ast f rá því í fyrra
Loðdýrabú í landinu eru nú á
a.m.k. 215 jörðum, en heildar-
fjöldi loðdýrabúa í fyrra var 197.
Mörg loðdýrabúanna eru blönduð,
þ.e. hafa bæði rcf og mink en talið
er að tala minkabúa hafi allt að
tvöfaldast frá því í fyrra. Frjósemi
minka hérlendis er talin prýðileg
en aðra sögu er að segja af frjósemi
refanna. Flest búanna eru í grennd
við fóðurstöðvarnar, aðeins 7 eða
8 bú sjá sér sjálf fyrir fóðri.
Tíminn bað Álfliildi Ólafsdóttur
loðdýraræktarráðunaut að gefa
nokkurt yfirlit yfir útkomu gotsins
í vor og hvcrnig loðdýraræktin
skiptist í minka og refarækt.
Frjósemin góð í minknum
Ásettar minkalæður eru samtals
24 þúsund talsins á 79 búum.
Þessar læður eiga núna samtals um
104 þúsund hvolpa, eða4,5 hvolpar
á hverja paraða læðu.
Álfliildur segir það vera skínandi
góða frjósemi, einkum þegar tillit
er tekið til þess að margir minka-
bændureru byrjendur. Fá minkabú
eru með yfir 1000 læður og margir
sem eru að hefja minkabúskap
byrja með á bilinu 50 til 200 læður.
Búin fara þó smám saman stækk-
andi og þegar eru komin nokkuð
mörg bú sem hafa 600 til 800 læður
en það er sú bústærð sem talin er
vera eitt ársverk.
Helstu tegundir minka eru Svart-
minkur, Pastel og villiminkur. þar
af er mest af svartmink. Skinn af
svartmink hafa að undanförnu ver-
ið einna eftirsóttust á skinna-
mörkuðum ásamt dökkbrúnum
högnaskinnum en þau fást með því
að para saman ljósbrúnan mink og
næstum hvítan mink.
Frjósemi í refarækt er
ekki viðunandi
í ár varð hins vegar mjög léleg
útkoma í refagotinu. Blárefalæður
eru nú um 18 þúsund talsins á 187
búum. Þær eiga t' ár samtals um 78
þúsund lifandi hvolpa, eða að með-
altali 5 hvolpa á hverja paraða
læðu. Viðunandi frjósemi væri 6,5
hvolpar að meðaltali að sögn Álf-
hildar, svo frjósemi íslenskra blá-
refalæða er rúmlega einum hvolpi
minna á hverja læðu að meðaltali
helduren viðunandier. Helst þyrfti
frjósemin að vera enn meiri vegna
lágs verðs á blárefaskinnum, en
það er önnur saga.
Ástæður þessarar slæmu gotút-
komu geta verið margar að sögn
Álfhildar, t.d. að læðurnar parast
ekki nógu vel, gjóta ekki nógu
ntargar, hvolpar drepast og fleira.
Ástæðurnar geta verið mismun-
andi eftir svæðum eða héruðum,
t.d. ekki nógu góð pörun á einu
svæði á meðan hvolpar drepast á
öðru svæði og svo framvegis.
Þrjú þúsund blárefa-
læður sæddar til að fá
„blufrost“ hvolpa
Silfurrefalæður voru um 380 á 22
búum. Þær komu upp 680
hvolpum, eða að meðaltali 2,2 á
hverja paraða læðu. Frjósemin i
silfurrefnum er nálægt því að vera
eðlileg því viðunandi frjósemi hjá
silfurrefalæðum er talin vera 2 til 3
hvolpar á hverja læðu.
Talsvert af þessum 78 þúsund
refahvolpum sem nú eru lifandi,
eru svokallaðir „blufrost". Þeireru
afkvæmi silfurrcfs og blárefs. Rúm-
lega 3000 blárefalæður voru sæddar
í ár með silfurrefasæði. í þeim
tilgangi að fá blufrost afbrigði.
Þannig á aö nást verðmeiri skinn
því blufrostskinn hafa verið á háu
verði en blárefsskinnin á lágu
verði. í fyrra voru sæddar á milli 6
og 7 hundruð læður með silfurrefa-
sæði svo að mikil aukning hefur
orðið í refasæðingum í ár.
Til þess að refabú teljist vera
ársverk þarf að hafa um 150 til 170
læður en á landinu eru sárafá bú
sem hafa yfir 200 læður. Algeng
stærð er á bilinu 60 til 140 refir en
á mörgum búum cr einnig minkur
eins og fyrr segir.
Flestar minkalæður gjóta frá 20
apríl og fram í miðjan maí. Refa-
læðurnar byrja að gjóta síðast í
apríl og þær síðustu gjóta í júní.
Hægt er að farga fyrstu blárefa-
hvolpunum í október en þeim er
þó aðallega fargað í nóvember.
Silfurrefurinn þarf lengri tíma til
að þroska fcldinn heldur en blá-
refurinn og er því fargað seinni-
partinn í nóvcmber. Minknum er
fargað frá miðjum nóvember og
fram í fyrstu viku af desembcr.
Veðrið hefur áhrif á minka- og
refarækt eins og annan búskap, því
ef bjart og kalt er í veðri á haustin
þegar feldskipti eiga sér stað, þá
þroskast feldurinn fljótar heldur
en ef hlýtt og rakt er.
Ekki er hægt að farga dýrunum
í mjög röku loftslagi því útiloftið
hefur áhrif inn í loðdýrahúsin og
feldurinn dregur rakann í sig sem
aftur hefur þau áhrif að feldurinn
verður mattari en ella.
Afkoma loðdýrabúanna hefur
hingað til verið mun betri í minkn-
um heldur en í refnum og margir
bændur hafa hætt við að fjölga
refum og stækka bú sín frekar með
minkum. Þeir hinir sömu hafa
gjarnan fargað öllum refum nema
þeim sem þeir telja besta og reynt
að koma þannig upp betri refa-
stofni jafnhliða minkaræktinni.
Hægt er að nota sömu loðdýrahús-
in hvort heldur búið er með ref eða
mink, en mismunandi búr þarf
eftir því hvort búið er með mink
eða ref. ABS