Tíminn - 17.09.1987, Qupperneq 8

Tíminn - 17.09.1987, Qupperneq 8
8 Tíminn Fimmtudagur 17. september 1987 Tíniinn MÁLSVARI FRJÁLSLYNDIS, SAMVINNU OG FÉLAGSHYGGJU Útgefandi: Framsóknarflokkurinnog Framsóknarfélögin í Reykjavík Framkvæmdastjóri Ritstjórar: Kristinn Finnbogason Indriöi G. Þorsteinsson ábm. IngvarGíslason Aöstoöarritstjóri: OddurÓlafsson Fréttastjórar: BirgirGuömundsson EggertSkúlason Auglýsingastjóri: SteingrimurGíslason Skrifstófur: Síðumúli 15, Reykjavík. Sími: 686300. Auglýsingasími: 18300. Kvöldsímar: Áskrift og dreifing 686300, ritstjórn 686306, iþróttir 686332, tæknideild 686387. Setning og umbrot: Tæknideild Tímans. Prentun: Blaöaprent h.f. Kvöldsímar: 686387 (tæknideild) og 686306 (ritstjórn). Verð í lausasölu 55.- kr. og 65.- kr. um helgar. Áskrift 550,- Hagstæð lausn á hvaladeilu Náðst hefur mikilvægt samkomulag í hvalveiðideilu íslendinga og Bandaríkjamanna. íslendingar hafa að undanförnu haldið uppi hvalveiðum í vísindaskyni eftir að ákveðið var að hætta hvalveiðum sem eiginlegum atvinnuvegi, enda hafa íslensk stjórnvöld talið ótvírætt að veiðar í vísindaskyni séu heimilar samkvæmt reglum Alþjóðahvalveiðiráðsins. Sterk andstaða hefur komið fram hjá öfgasinnuðum hvalfriðunarsamtökum gegn þessum veiðum íslendinga, og hafa þau haft í frammi mikla áróðursherferð í Bandaríkjunum. Þessi áróður hvalfriðunarmanna hefur haft áhrif á stefnu og viðhorf stjórnvalda í Bandaríkjunum og það svo að Bandaríkjastjórn hafði öðlast lagaheimildir til að beita þjóðir, sem ekki mökkuðu rétt í hvalamálinu eftir spilareglum hryðjuverkamanna, viðskiptanauðung, sem hefði getað komið fram í því að íslendingum væri bannað að flytja út fisk og fiskafurðir til Bandaríkjanna og bandarískum kaupsýslumönnum þá einnig bannað að hafa íslenskan fisk til sölu á Bandaríkjamarkaði. Þessi bandarísku bannlög gagnvart íslenskum fiski m.a. er mál út af fyrir sig, og nær óskiljanlegt hvernig þjóðþing forystuþjóðar fyrir lýðræði og réttlæti, eins og Bandaríkjamenn telja sig vera, lætur sér til hugar koma að samþykkja slíka löggjöf og álíta að hún sé í samræmi við anda stjórnarskrárinnar. Ekki er að efa að innan bandarísku ríkisstjórnarinnar hafa ætíð verið til menn sem blöskrað hefur þetta hvalaofstæki, sem jafnvel tókst að leggja undir sig þjóðþingið í Washington. Hin hófsömu öfl hafa nú ráðið ferðinni í samningum við íslendinga, og árangur- inn er samkomulag það sem gekk í gildi í fyrradag milli ríkisstjórna íslands og Bandaríkjanna. Síst skal það undan dregið að þetta er íslenskur sigur, sem yfirgnæf- andi meirihluti þjóðarinnar fagnar, en þetta er líka sigur fyrir hófsömu öflin í bandarísku ríkisstjórninni, sem gera sér fulla grein fyrir þeirri alvöru sem í því felst að beita vinsamlega bandalags- og viðskiptaþjóð á borð við íslendinga viðskiptaþvingunum út af pjattmáli. Árangurinn af þessu samkomulagi hefur fyrst og fremst náðst fyrir einbeitni tveggja ráðherra í íslensku ríkisstjórninni, Halldórs Ásgrímssonar sjávarútvegs- ráðherra og Steingríms Hermannssonar utanríkisráð- herra. Peir hafa lagt sig fram um að skýra málstað íslendinga með augljósum rökum og festu, m.a. lagt áherslu á að hvalamálið sé ekki einangrað mál og utanlægt við önnur og mikilvægari samskipti íslendinga og Bandaríkjamanna. Þetta skilja hófsamir forystu- menn Bandaríkjanna og þeir hafa einnig lagt sig fram um það að deilan mætti leysast farsællega. Halldór Ásgrímsson sagði í viðtali við fréttamenn, þegar hann kynnti niðurstöðu þessara samninga milli ríkisstjórna íslands og Bandaríkjanna, að hér væri um stefnubreytingu að ræða af hálfu Bandaríkjamanna. Benti ráðherrann á að nú yrði það ekki allsherjarfundur Alþjóðahvalveiðiráðsins sem skæri úr um réttmæti vísindaveiða íslendinga heldur vísindanefnd ráðsins og væri það sú stefna, sem íslendingar hefðu alltaf talið hina réttu, enda hefðu íslendingar aldrei viljað fram- kvæma neitt gegn vilja vísindanefndarinnar, þótt þeir vilji ekki lúta niðurstöðum öfgasinna, sem áhrif hafa í Alþjóðahvalveiðiráðinu. GARRI illllill Máttlausir heildsalar Frétt Tímans ■ fyrradag uni mátt- luysi íslcnskra heildsala til aft brjóta sig úr viðjum danskrar ný- lendukúgunar hefur að vonum vak- ið athygli. Þó er hér ekki nýtt mál á ferðinni, licldur vandamál sem alltaf af og til hefur verið að koma upp á yfírborðið á liðnum árum. Kjarni málsins er hins vegar sá að í þessu eru íslenskir neytendur að borga kostnaðinn við það frjáls- hyggjuskipulag sem hér ríkir á stórum hluta innflutnings til landsins. Lögmál þessa skipulags er að í innflutningi eigi að ríkja frjáls samkeppni, og boðskapurinn er að sá heildsali, sem nær að kaupa ódýrastar vörur, njóti þess í mestri sölu, og þar með sé neytend- um tryggt lágt vöruverð. Kcynslan sýnir hins vegar aö þessi kenning heldur alls ekki þeg- ar til á að taka. Þvert á móti reynast hinir mörgu og smáu hcild- salar allt of vanmáttugir þegar til þess kemur að setja þarf hnefann í borðið í viðskiptum við erlenda seljendur. Þá standa þeir varnar- lausir gcgn því fyrirkomulagi ým- issa seljcnda í fjarlægum heims- hlutum að hafa umboösmenn í Danmörku, sem hirða kannski 20- 50% umboðslaun af allri sölu til íslands. Litlir kallar reynast þá ekki nægilegir bógar til að megna að fara beint í toppana í fyrirtækj- unum og setja þeim stólinn fyrir dyrnar: annað hvort engin umboðslaun eða engin viðskipti. Máttur hinna mörgu Þetta leiðir hugann að því sem samvinnuhreyfíngin hér á landi hefur verið að gera á liðnum árum, og er, þegar betur er að gáð, einmitt markviss viðleitni til að leiða þjóðina út úr þeirri klemmu sem smæð og fjöldi heildsalanna i einkageiranum myndi ella skapa hcnni. Samvinnuhreyfíngin er aðili að innkaupasambandi samvinnu- manna á öllum Norðurlöndum, og í gegnum það samstarf er hún í aðstöðu til að gera bein innkaup frá framleiðendum í fjarlægum heimshlutum í gegnum sérstakar innkaupaskrifstofursem þcssi sam- tök reka. Þar koma fulltrúar millj- óna norrænna neytenda fram sein einn aðili, fullnýta samtakamáttinn og tryggja sér lægsta mögulegt verð með milliliðalausum magn- innkaupum, fyrst og fremst á mat- vörum. Sömulciöis hcfur íslenska sam- vinnuhreyfingin tekið þátt í svo nefndum samkaupum norrænna og evrópskra samvinnusambanda á einstökum vörutegundum, ekki síst í sportvörum og margs konar tómstundavörum, svo og gjafavör- um. Þar er sameiginlegur inn- kaupamáttur sömuleiðis nýttur til hins ýtrasta, og árangurinn ersá að íslenskir neytendur hafa margoft átt þess kost að kaupa góðar vörur á hagstæðu verði í kjölfar þessara innkaupa. Styrkur stærðarinnar Reynslan sýnir að íslenska hcild- salakerfíð hefur í sér þann inn- byggða vcikleika að þar vilja fyrir- tæki vera lítil í byrjun og hafa tilhneigingu til að vera það áfram. Hvernig sem á því stendur er ekki að sjá að hér hafi vaxið upp í neinum umtalsverðum mæli einka- fyrirtæki í heildverslun sem hafí náð þeirri stærð að hægt sé að telja þau mikið meira en hæfileg fjöl- skyldufyrirtæki. Af þessu leiðir svo hitt að í einkageiranum er ckki hægt að segja að hér á landi séu til innflutn- ingsfyrirtæki sem nýtt geti mátt stærðarinnar. Þetta er alvarlegur galli á innflutningsverslun þjóðar- innar. í innflutningsverslun gildir það sama og hvarvetna annars staðar í viðskiptalífínu að máttur fyrirtækis vex í réttu hlutfalli við stærð þess. Lítill töskuheildsali er kannski háð- ur einu eða tveimur umboðum og stendur og fellur með því að hér á landi seljist það vörumerki sem hann hefur umboð fyrir. Stór heild- sali með mikil umsvif er fyrst og fremst háður því að geta flutt inn ákvcðnar vörutcgundir, en reynist einn framleiðandi illa er hann nógu burðugur til að geta beint kaupum sínum til annars, jafnvel þótt það kosti að hann verði að leggja í kostnað við að auglýsa upp nýtt vörumerki í stað hins gamla. Og það innifelur að stóra heild- salanum þýðir ekkert að bjóða viðskiptahætti af ætt danskrar ný- lendustefnu. Hann er það háður verðlaginu hér á neytendamar- kaðnum að hann myndi einfaldlega spila sig út af markaðnum með því að greiða dönskum umboðsmönn- um stórar upphæðir í „kommi- sjón“. Það er í þessu sem styrkur samvinnuformsins liggur í tslenskrí innflutningsverslun, og jafnframt veikleiki formsins sem kennt er við einkareksturínn. Garri. I: VlTT OG BREITT ... ..III. ... ... ... Besta og einfaldasta slysavörnin Ótrúleg framför hefur orðið á skömmum tíma hjá þeim aðilum sem bera ábyrgð á umferðaröryggi á landi hér. Þeir eru að rísa upp úr áralöngum doða, þar sem þeir hafa setið fastir í orðagjálfri um öryggis- belti og „tillitssemi í umferðinni.“ Áróðursjálkarnir eru allt í einu farnir að bera sér í munn varnaðar- orð um of hraðan akstur og að bílstjórar eigi að fara að umferðar- lögum. En það sem einkum glæðir vonir um lengdar lífslíkur og sæmilegt heilsufar vegfarenda yfirleitt, er að lögreglan cr farin að viðurkenna að það sé í hennar verkahring að sjá um að umferðarlög séu haldin. Eöggæslan er sem sagt farin að fylgjast með umferðarlagabrotum og meira að segja áminna brotlega ökumenn og jafnvel draga þá til ábyrgðar. Alvara en ekki sport Þetta er þó gert með hangandi hendi, eins og ummæli lögreglu- mannsins um að hann mundi aldrei mæla ólöglegan hraða ökutækis nema að níðingurinn sem því stjórnar viti af mælingunni. Baráttan við ökuníðingana er ekkert sport og sjálfir spyrja þeir ekki um leikreglur þegar þeir leggja líf og limi samborgara sinna í hættu. Lögreglumaðurinn sem viðhafði þessi ummæli sagði eitthvað á þá leið, að hraðamælingar með radar gætu mælst illa fyrir og þeir sem staðnir væru að verki kvörtuðu yfir að laumast væri aftan að þeim ef ekki væri tryggt að sett væru upp áberandi merki um að radarmæling stæði yfir. Undir því ámæli vildi pólitíið ekki liggja. Það væri jafn- vel von á að kvartað væri í blöðum um þessar svívirðilegu gildrur lög- reglunnar. Það mun vera óhætt fyrir hönd flestra eða allra fjölmiðla, að hugga þennan vörð laganna með því að þeir eru ekki málgögn ökuníðinga og sýna iðulega vilja sinn i verki að eiga góða samvinnu við löggæslu- menn og önnur umferðaryfirvöld til að leggja sitt af mörkum í baráttunni gegn umferðarslysun- um. Af þeirri ástæðu er alveg óhætt fyrir lögregluna að hafa hraðamælingum með þeim hætti sem árangursríkastur er. Með góðu eða illu Vel má rétt vera að löggæslan sé of fáliðuð til að hafa auga með allri umferð. En það þarf hvorki fjöl- menni né mikla yfirferð til að standa bílstjóra að umferðarlaga- brotum. Þau eiga sér stað nánast hvar sem er og hvenær sem er þar sem bílar eru á ferð. Það er því af nógu að taka ef umferðaryfirvöld hafa döngun í sér til að minnka slysahættuna, sem eykst nánast frá viku til viku. Tillitssemin er ágæt en of mikið hefur verið gert úr henni í áróðri um bætt ökulag. Árangursríkara væri að koma bílstjórum í skilning um að umferðarlög eru til í landi og að þeim ber að þekkja þau og fara eftir þeim. Hlutverk löggæslunar er að sjá um að ökumenn gerist ekki brot- legir við lög og það er einmitt það sem hún sýnist vera að átta sig á þessa dagana. Talað er um að verið sé að gera átak í umferðarmálum. Það er gott og blessað svo langt sem það nær. En það átak þarf að vera viðvar- andi, ekki aðeins í nokkrar vikur, heldur um alla framtíð. Umferðarslysin og fjárhagstjón- ið sem af þeim hlýst er alvarlegra mál en svo að hægt sé að sitja með hendur í skauti og væla um tillits- semi í umferðinni og að ekki sé við neitt ráðið vegna mannfæðar og dugleysis þegar það liggur ljóst fyrir að kenna þarf bílstjórum umferðarlög með góðu eða illu, og að fara eftir þeim. Þegar til lengdar lætur verður það besta slysavörnin;

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.