Tíminn - 29.09.1987, Blaðsíða 12
12 Tíminn
Þriðjudagur 29. september 1987
llllllilM IPRÓTTIR ................................................................................... ....................................................................................................................................................................................................................................................................Illlllllllllllllll.....................................................................................................................................Illllllll1
47. íslandsmótið í handknattleik:
Hvað Fyrsta deildin hefst af
segja fullum krafti annað kvöld
þjálfar-
amir?
Þjálfarar 1. dcildarlitfanna i
handknattleik eru sammála um að
deildin verði mjög jöfn og spenn-
andi í ár og aö mótiö veröi
skemmtilegt. Flestir telja að liöin
sem berjast um titilinn geti orðið
allt aö 7 talsins.
„Liðin eru tvímælalaust jafnari
en áður og fleiri eru líkleg til
stórræða. Leikmennirnir sem
koma erlendis frá koma til með að
draga að áhorfcndur. Valsmcnn
eru með sterkasta liðið í dag en
Breiðablik, Fram og Stjarnan eru
ekki langt undan. Við Víkingar
ætlum að stefna að þvi að hrapa
ekki langt niður töfluna í íslands-
mótinu,“ sagði Árni Indriðason
þjólfari Víkings.
„Ég er hlynntur því að landsliðið
sé tekið með í dæmið þegar ís-
landsmótið er skipulagt því sterk-
ara landslið á samleið með sterkari
liðum,“ sagði Björgvin Björgvins-
son þjálfari Fram. „Við Framarar
erum búnir að æfa síðan í júlí.
Reykjavíkurmótið sýndi að ekkcrt
eitt lið sker sig úr. Það er erfitt að
spá um röð liðanna en það lið sem
sigrar í vor verður það lið sem
hefur mestu breiddina,“ sagði
Björgvin.
„Við eruin komnir til að vera.
Við höfum æft mjög stíft síöan í
júlí. Ég er ekki ánægður með það
hlé sem verður á deildinni því það
er mjög kostnaðarsamt fyrir okkur
norðanliðin að halda okkur í æf-
ingu á meðan,“ sagði Erlendur
Hennannsson þjálfari Þórs.
„Mér iíst mjög vel á deildina og
ég held að þetta eigi eftir að verða
spennandi. Ég held að ekkert lið
geti bókað sigur gegn öðru fyrir-
fram en mér sýnist að við Breiða-
bliksmenn megum passa okkur
vegna þess að nú reikna allir með
okkur. Við þurfum að sýna meiri
gctu en í fyrra," sagði Geir Hall-
steinsson þjálfari Breiðabliks.
„Okkar markmið er eingöngu
að halda okkur i deildinni. I’aö
verður mjög erfitt en við erum
búnir að æfa vel og vonum að það
skili sér,“ sagði Guðmundur Fórð-
arson þjáifari ÍR. „Deildin verður
mjög jöfn og skemmtileg og það
geta sjö lið orðið íslandsmeistarar,
þó kannski frekar 5 af þcim en ég
held það komi til með að skýrast
mjög fljótt. Þór, ÍR og KR verða í
faílbaráttunni. KR-liðið cr rétt
sæmilega undirbúið, við höfum æft
frá því í ágúst en fótboltinn hefur
truflað okkur. Okkar markmið er
að halda okkur í deildinni," sagði
Ólafur Jónsson þjálfari KR.
„Þetta verður hálfgert happ-
drætti, ég hef að vísu ekki séð öll
liðin en mér sýnist FH, UBK,
Víkingur, Fram og KR vera lið í
háum gæðaflokki. Valsliðið hefur
ekki verið nógu stöðugt í haust en
liðið getur spilað mjög vel,“ sagði
Stanislav Modraweski þjálfari
Vals.
Auk þeirra þjálfara sem að fram-
an eru nefndir þjáifar Viggó Sig-
urðsson FH, Gunnar Einarsson er
þjálfari Stjörnunnar og Brynjar
Kvaran er við stjórnvölinn hjá KA.
íslandsmótið í handknattleik hefst
af fullum krafti annað kvöld og
verður byrjað á heilli umferð í 1.
deildinni. Menn eru sammála um að
keppni á þessu 47. íslandsmóti verði
Einar Þorvarðarson ver mark
Valsmanna í vetur en hann lék á
Spáni.
mjög jöfn og spennandi og ef marka
má áhorfendafjöldann á leikjum ■
Reykjavíkurmótinu verður Ijörugt á
fjölum íþróttahúsanna í vetur.
Heimkoma nokkurra „útlend-
Atli Hilmarsson er kominn frá
Þýskalandi og leikur með Fram í
vetur.
inga“ á án efa eftir að setja skemmti-
legan svip á keppnina í deildinni og
breytir tilkoma þeirra mikið styrk-
hlutföllum liðanna frá því í fyrra.
Þannig er Einar Þorvarðarson kom-
inn milli stanganna á Hlíðarenda en
markvarslan var einmitt veikasti
hlekkur Valsliðsins í fyrra. Atli
Hilmarsson hefur bæst í lið Framara
og Sigurður Gunnarsson styrkir lið
Víkinga. Þá leika Jakob Jónsson og
Erlingur Kristjánsson með KA eftir
veru í Noregi en Jón bróðir Erlings
er farinn yfir í Val. Hann var ein
styrkasta stoð KA-liðsins í fyrra.
Stjörnumenn hafa líka misst sterkan
hlekk, Hannes Leifsson. Þá má geta
Hans Guðmundssonar sem nú leikur
með Breiðabliki en hann var í KR í
fyrra, reyndar meiddur lengst af.
Eins og sjá má á þessari upptaln-
ingu er töluverð hreyfing á leik-
mönnum og því í raun erfitt að spá
í styrk liðanna. Valsmenn verða þó
að teljast líklegir til stórræða en ekki
er þar með sagt að Víkingar láti
íslandsbikarinn baráttulaust af
hendi. Hitt er víst að deildin verður
ntjög jöfn og að öllum líkindum
spennandi fram á síðasta dag. Nýlið-
arnir ÍR og Þór verða líklega í
vandræðum innan um risana þar
sem landsliðsmenn skipa margar
stöður en engin ástæða er til að
afskrifa þau þrátt fyrir það.
Þáttur áhorfenda er stór á íslands-
mótinu og ræður miklu um hvort
mótið verður skemmtilegt, bráð-
skemmtilegir leikir verða hálf daufir
þegar fáir horfa á. „Ég lít björtum
augum á deildina og hún verður
mjög skemmtileg ef við fáum marga
áhorfendur,“ sagði Einar Þorvarðar-
son landsliðsmarkvörður á blaða-
mannafundi á laugardaginn. „Mér
þykir líklegt að 7 lið berjist um efsta
sætið en ég hef reyndar ekki séð öll
liðin enn. Ef miðað er við þau lið
sem ég sá leika á Reykjavíkurmótinu
þá þurfum við ekki að kvíða framtíð
íslensks handknattleiks, það er mik-
ið af ungum og efnilegum leikmönn-
um að koma upp,“ sagði Einar
Þorvarðarson.
- HÁ
Sigurður Gunnarsson leikur með Víkingum að nýju í vetur eftir veru á Spáni en hætt er við að Júlíus Jónasson félagi
hans ■ landsliðinu láti vera að „blokkera“ fyrir hann ■ leikjum Víkinga og Vals.
Hverju spá þeir?
Þjálfarar, fyrirliðar og forráðamenn 1. deildar- félaganna í handknattleik Spá handboltamann- anna er þessi:
gerðu á dögunum spá um 1. Valur
gengi liðanna í deildinni í 2. Víkingur ... 80-
vetur. Var Valsmönnum 3. FH 117-
þar spáð mestum frama. 4. Fram 127-
Þess má geta að Stjörnu- 5. Breiðablik.. ■ ■■■ ■ 133 *
mönnum var spáð sigri í 6.KA 156-
fyrra en Víkingar sigruðu 7-8. KR 213
þá í deildinni og Breiða- 7-8. Stjarnan . 213
blik, sem ekki átti miklu 9. Þór .... 267-
fylgi að fagna í spánni, varð í 2. sæti. Gefið er 1 stig fyrir 1. sæti, o.s.frv. 10. Þór A 286-
1.DEILDKARLA:
Akureyri 30.09.87 20.00KA -Stjarnan Digranes 24.01.88 20.00 Stjarnan -KA
Digranes 30.09.87 20.00UBK -KR Höll 25.01.88 20.00 KR -UBK
Höll 30.09.87 20.00 Víkingur -ÍR Seljask. 24.01.88 20.00ÍR -Vikingur
Hafnarfj. 30.09.87 20.00 FH -ÞórAk. Akureyri 24.01.88 20.00 ÞórAk. -FH
Höll 30.09.87 21.15Fram -Valur Valsh. 20.01..88 18.00 Valur -Fram
Seljask. 07.10.87 20.00ÍR -FH Hafnarfj. 31.01.88 14.00 FH -ÍR
Höll 07.10.87 20.15 KR -Vikingur Höll 30.01.88 15.15Víkingur -KR
Digranes 07.10.87 20.00 Stjarnan -UBK Digranes 27.01.88 20.15UBK -Stjaraan
Akureyri 07.10.87 20.00 KA -Fram HöU 30.01.88 14.00 Fram -KA
Valsh. 0710.87 18.00 Valur -ÞórAk. Akureyri 30.01.88 14.00 ÞórAk. -Valur
Digranes 11.10.87 14.00 UBK -Fram Höll 07.02.88 20.00 Fram -UBK
Höll 11.10.87 14.00 Víkingur -Stjarnan Digranes 10.02.88 20.15Stjaraan -Víkingur
Hafnarfj. 11.10.87 14.00 FH -KR Höll 07.02.88 21.15KR -FH
Akureyri 10.10.87 14.00 ÞórAk. -ÍR Seljask. 06.02.88 14.00 ÍR -ÞórAk.
ValBh. 10.10.87 18.00Valur -KA Valsh. 06.02.88 14.00 KA -Valur
Höll 14.10.87 20.15 KR -ÞórAk. Akureyri 20.02.88 14.00 ÞórAk. -KR
Digranes 14.10.87 20.00 Stjaman -FH Hafnarfj. 21.02.88 20.00 FH - Stjarnan
Höll 14.10.87 21.30 Fram -Víkingur Höll 21.02.88 20.00 Víkingur -Fram
Akiueyri 14.10.87 20.00 KA -UBK Digranes 20.02.88 14.00 UBK -KA
Valsh. 14.10.87 18.00Valur -ÍR Seljask. 22.02.88 20.00ÍR -Valur
Höll 17.10.87 15.15 Vikingur -KA Akureyri 27.02.88 14.00 KA -Vikingur
Hafnarfj. 18.10.87 20.00 FH -Fram Höll 28.02.88 20.00 Fram -FH
Akureyri 17.10.87 14.00 ÞórAk. - Stjaraan Digranes 27.02.88 14.00 Stjaraan -ÞórAK
Soljask. 18.10.87 20.00 ÍR -KR HöU 28.02.88 21.15 KR -ÍR
Digranes 18.10.87 20.00UBK -Valur Valsh. 24.02.88 18.00 Valur -UBK
DigTanes 27.10.87 21.15 Stjaraan -ÍR 06.03.88 15.15ÍR -Stjarnan
HöU 28.10.87 20.15Fram -ÞórAk. 04.03.88 14.00 ÞórAk. -Fram
Akxireyri 28.10.87 20.00 KA -FH 04.03.88 20.00FH -KA
Digranes 30.10.87 21.15UBK -Víkingur Höll 07.03.88 20.15Víkingur -UBK
Valsh. 28.10.87 18.00 Valur -KR HöU 07.03.88 21.30 KR -Valur
Hafnarfj. 04.11.87 20.16FH -UBK 14.00 UBK -FH
Akuroyri 04.11.87 20.00 ÞórAk. -KA 13.03.88 14.00 KA -ÞórAk.
Soljask. 04.11.87 20.15ÍR -Fram HöU 12.03.88 14.00 Fram -ÍR
Höll 04.11.87 20.15KR -Stjarnan Digranes 09.03.88 20.00 Stjaraan -KR
Höll 04.11.87 21.30 Víkingur -Valur Valsfa. 13.03.88 14.00 Valur - Víkingur
HöU 11.11.87 20.15Fram -KR HöU 22.03.88 21.15KR
Akureyri 11.11.87 20.00KA ~ÍR 22.03.88 20.00 ÍR -KA
Digranes 11.11.87 20.00 UBK -ÞórAk. 22.03.88 20.00 ÞórAk. UBK
Höll 11.11.87 21.30 Víkingur -FH 23.03.88 20.00FH
Valsh. 11.11.87 18.00Valur -Stjaraan Digranes 23.03.88 20.15Stjaraan -Valur
Akureyri 14.11.87 14.00 Þór.Ak. -Víkingur HöU 30.03.88
Seljatk. 15.11.87 14.00 tR -UBK 30.03.88 20.00UBK -ÍR
HöU 14.11.87 14.00 KR -KA 30.03.88 20.00KA -KR
Digranea 14.11.87 14.00 Stjaraan -Fram HöU 30.03.88 21.15Fram
Hafnarfj. 15.11.87 20.15FH -Valur Valsh. 30.03.88 18.00 Valur -FH