Tíminn - 03.10.1987, Page 4
4 Tíminn
Laugardagur 3. október 1987
Tilboð
Óskast í eftirtaldar bifreiðar og tæki sem verða til sýnis þriðjudaginn
6. okt. 1987 kl. 13.00-16.00 í porti bak við skrifstofu vora að Borgartúni
7, Reykjavík og víðar
1 stk. Tegundir Árg.
Mitsubishi Pajero T urbo 4x4 diesel 1984
1 stk. DaihatsuTaft4x4 diesel 1982
1 stk. GMC pic-up m/húsi 4x4 diesel 1977
1 stk. Toyota Land Cruser4x4 (skemmdur) diesel 1984
1 stk. Toyota Land Cruser4x4 diesel 1982
2stk. Lada Sport 4x4 bensín 1984
4stk. Volvo Lapplander 4x4 bensín 1980-82
2stk. Mitsubishi L-200 pic-up 4x4 bensín 1981-82
2stk. Subaru 1800 pic up 4x4 bensín 1981-83
1 stk. Peugot 505 station bensín 1983
1 stk. Mazda 929 station bensín 1982
1 stk. Lada 1500 station bensín 1982
1 stk. VW Double cab diesel 1983
2stk. Toyota Hi Ace sendibifr. bensín 1982
2stk. Ford Econoline E-150 sendibifr. bensín 1979-80
1 stk. Dodge Sportman B200 7 farþ. bensín 1979
1 stk. Chevy Van sendibifr. bensín 1979
1 stk. Moskvitch IJ 2715 sendibifr. bensín 1981
1 stk. Chevrolet Suburban 8 farþ. bensín 1979
1 stk. Volvo N 87 fólks- og vörub. 10 f. Til sýnis hjá Vegagerð ríkisins Grafarvogi diesel 1966
1 stk. Veghefill Caterpillar 12-E (ógangfær) Til sýnis hjá Vegagerð ríkisins Akureyri 1963
1 stk. Vélskófla Bröyt X-2 1963
Tilboðin verða opnuð sama dag kl. 16.30 að viðstöddum bjóðendum.
Réttur er áskilinn að hafna tilboðum sem ekki teljast viðunandi.
INNKAUPASTOFNUN RIKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844______
RÍKISSPlTALAR
LAUSAR STÖDUR
Nýtt dagheimili
Okkur vantar fóstru eða starfsmann á nýtt skóla-
dagheimíli í Engihlíð.
Upplýsingar gefur forstöðumaður í síma 29000 -
641.
Betra dagheimili
Vegna stækkunar vantar okkur fleira starfsfólk í
Sólhlíð 1, bæði fóstrur og starfsmenn. Þeir sem
hafa áhuga hringi í síma 29000 - 591 eða
heimasíma 612125.
Auglýsing
frá afgreiðslunefnd vegna styrkveitinga til bifreiða-
kaupa. Umsóknareyðublöð liggja frammi í Trygg-
ingastofnun ríkisins og hjá umboðsmönnum
Tryggingastofnunar ríkisins um allt land.
Einnig í heilsugæslustöðvum og sjúkrahúsum.
Umsóknum skal skilað til greiðsludeildar Trygg-
ingastofnunar ríkisins fyrir 31. október 1987.
Afgreiðslunefnd
Starfsfólk
Óska eftir að ráða starfsfólk í stuðning eftir hádegi
á leikskólann Seljaborg.
Uppeldismenntun æskileg. Upplýsingar í síma
76680, Álfhildur Erlendsdóttir.
Bókband/vélavinna
Óskum eftir að ráða starfsmann til starfa sem fyrst.
Möguleiki á námssamning. Mikil vinna.
Prentsmiðjan Edda
Smiðjuvegi 3, Kópavogi, sími 45000.
Glenn Flaten og eiginkona hans Shirley Flaten, ásamt Inga Tryggvasyni fyrrverandi formanni Stéttarsambands bænda
á fundi með blaðamönnum í gær Tímamynd Pjetur
Forseti IFAP, alþjóöasambands bænda á íslandi:
Bandaríkin eiga
met í styrkjum
til landbúnaðar
Síðastliðna þrjá daga hefur Glenn
Flaten, forseti IFAP, alþjóðasam-
bands bænda verið í heimsókn hér á
landi ásamt konu sinni. Heimsóknin
er á vegum Stéttarsambands bænda,
sem hefur verið aðili að IFAP síðan
árið 1949 en IFAP var stofnað árið
1946.
í þá þrjá daga sem þau hjón hafa
dvalið hér á landi hafa þau m.a.
heimsótt garðyrkjubónda, eggja-
bónda, sauðfjárbónda og garðyrkju-
skólann á Reykjum auk þess sem
þau fóru í leikhús og sáu íslenska
ballettinn.
Glenn sagðist ekki treysta sér til
að segja mikið um stöðu íslensks
landbúnaðar eftir þessi stuttu kynni
af honum, en sagði þó að eggjabú
Jóns Gíslasonar á Hálsi í Kjós væri
mjög nýtískulegt. Hann sagðist líka
hafa tekið eftir því að félagskerfi
bænda á íslandi væri sterkt og taldi
það afar mikilvægt.
Félagskerfi bænda í Kanada væri
til dæmis því miður ekki eins öflugt,
p.n rík ástæða væri fyrir bændur þar
að standa saman, því þar væru um
35% bænda mjög illa staddir fjár-
bagslega og þar af 10% þeirra að
verða gjaldþrota. I Kanada væru nú
fyrirhugaðar stórfelldar stjórnunar-
aðgerðir í landbúnaði sem eiga að
taka um 10 ár, sem svipa til.stjórnun-
araðgerða í landbúnaði hér og áætl-
að er að taki 5 ár. Hinsvegar eru
forystumenn í landbúnaði þar í landi
ekki eins bjartsýnir á að aðgerðirnar
takist vel eins og forystumenn eru
hér á landi. Hann nefndi þó að
kjúklingaframleiðsla er háð tak-
mörkunum í Kanada og hefur það
fyrirkomulag þótt takast vel. Kjúk-
lingabændur fengju kvóta fyrir
hverja tvo mánuði í einu og engum
bónda væri heimilt að fara yfir
ákveðið framleiðsluþak. Jafnframt
þessari stjórn á kjúklingaframleiðslu
hefði afkoma bændanna batnað og
neysla aukist mjög mikið, aðallega
með tilkomu veitingastaðakeðjanna
sem selja gífurlega mikið af kjúkl-
ingum, svo sem McDonalds og Kent-
ucky fried chicken keðjanna. Aðra
sögu er að segja af nautakjötsfram-
leiðslu og kornframleiðslu. Kanada
flytur út yfir 30 milijónir tonna af
korni til 50 landa á ári og síðustu tvö
ár hefur kornverð lækkað sem sam-
svarar tæplega 40%. Ríkið greiðir
gífurlegar útflutningsbætur með
korninu á ári hverju.
Menn tala gjarnan fjálglega um að
hætta skuli niðurgreiðslum og út-
flutningsbótum á landbúnaðarafurð-
um og sömu menn tala gjarnan líka
um að verð á matvælum eigi að vera
háð framboði og eftirspurn. Glenn
Flaten sagði að mikilvægt væri fyrir
menn að gera sér grein fyrir því að
aðeins lítill hluti matvælaframleiðslu
heimsins væri á svokölluðum heims-
markaði því öll lönd heims teldu það
mikilvægt öryggisatriði að vera sjálf-
um sér næg með mat og vildu helst
eiga nokkurra mánaða birgðir af
matvælum á hverjum tíma. Einnig
ættu menn að muna eftir því að
Reagan Bandaríkjaforseti boðaði
afnám ríkisstyrkja á landbúnaðar-
afurðir þegar hann tók við embætti,
en þrátt fyrir forsetatíð hans er ekki
neitt land í víðri veröld sem greiðir
jafn hátt hlutfall með landbúnaðar-
framleiðslu sinni, hvort heldur mið-
að er við framleiðanda eða fram-
leiðslueiningu. Nánar tiltekið voru
styrkirnir í Bandaríkjunum á síðasta
ári 26 milljarðar Bandaríkjadala.
Glenn hefur verið forseti IFAP í
um eitt og hálft ár en hefur verið
varaforseti þess síðan 1984. Hann er
svína-og kjúklingabóndi frá Regina
í vesturhluta Kanada en er einnig
með kornrækt. Glenn hefur heim-
sótt um 60 lönd síðan hann fór að
starfa fyrir alþjóðasamtök bænda,
en hann er auk þess í hálfu starfi hjá
kanadísku stjórninni við að sinna
markaðsmálum landbúnaðarins.
IFAP var sem fyrr segir stofnað
árið 1946 í London í framhaldi af
þróun áranna á undan. Samtök
bænda í einstökum þjóðríkjum
Framkvæmdastjóri
Framleiðsluráðs:
Gísli tekur
við af Gunnari
Framleiðsluráð landbúnaðarins
hefur ákveðið að ráða Gísla S.
Karlsson sveitarstjóra í Borgarnesi í
starf framkvæmdastjóra ráðsins frá
og nteð næstsu áramótum, en þá
lætur Gunnar Guðbjartsson af
störfum.
Gísli er fæddur á Brjánslæk á
Barðaströnd árið 1940, lauk kandí-
datsprófi í búnaðarhagfræði frá Bún-
aðarskólanum í Kaupmannahöfn og
starfaði sem hagfræðiráðunautur á
Jótlandi til ársins 1971. t>á gerðist
hann kennari við Bændaskólann á
Hvanneyri en hefur verið sveitar-
stjóri í Borgarnesi frá árinu 1985.
Um stöðu framkvæmdastjóra
höfðu þá starfað áratugum saman og
heimsstyrjöldin síðari og kreppuárin
sannfærðu menn enn betur um nauð-
syn þess að standa saman. Á heims-
styrjaldarárunum höfðu samtök
bænda verið lykilaðilarnir í því að
tryggja fæðuframboð og skipulögðu
og framkvæmdu matvælastefnuna í
flestum löndum á árum þessum. Sú
stefna að fela samtökum bænda
veigamikil verkefni hélst því eftir
stríðslok og á endanum voru al-
þjóðasamtökin stofnuð. IFAP er
alþjóðlegur samræðuvettvangur for-
ystumanna bænda og matvælafram-
leiðenda, annast upplýsingamiðlun
um málefni matvælaframleiðslunnar
í heiminum til samtaka bænda um
heim allan, t.d. með útgáfu frétta-
bréfa, tímarita og ráðstefnum. Alls-
herjarþing IFAP er haldið á 18
mánaða fresti en það þing sækja um
200 fulltrúar. Aðalstöðvar samtak-
anna eru í París en síðasta allsherj-
arþing var haldið í Bonn í maí 1986.
Mikið vantar þó á að samtökin
verði heimssamtök, því t.d. er aðe-
ins eitt land austan járntjalds með-
limur í samtökunum, þ.e. Ungverja-
land, Júgóslavía var um skeið í
samtökunum en greiddi ekki tilskilin
gjöld og var því vísað úr þeim af
þeim sökum. Nú er unnið að því að
Pólland verði meðlimur í samtökun-
um. f Asíu er aðeins eitt ríki meðlim-
ur, þ.e. Argentína en á næstunni er
búist við að fleiri lönd í Asíu gerist
meðlimir, t.d. Brasilía. ABS
Gísli Karlsson
Framleiðsluráðs landbúnaðarins
sóttu auk Gísla þeir Björn Ástvalds-
son og Pétur Ó. Stephensen. Fjórði
umsækjandi dró umsókn sína til
baka.