Tíminn - 03.10.1987, Page 19
Laugardagur 3. október 1987
Tíminn 19
MINNING
máltækið. Þetta eru orð að sönnu.
Félagsandi og vinnuafköst í vinnu-
flokkum geta bókstaflega farið eftir
því hvernig viðurgjörningur er.
Eins og áður segir eignuðust Anna
og Ingólfur 5 börn sem öll eru á lífi
og mikið dugnaðar- og myndarfólk.
Þau eru: Sigríður Jóna, gift Rögn-
valdi Helgasyni, Sigurjón, gifturSig-
fríði Jónsdóttur, Dagmar, gift Pétri
Björnssyni, Kristjana Halla, gift
Grími Benediktssyni og Inga, gift
Þorsteini Valdimarssyni.
Barnabörnin eru 16 og barna-
barnabörnin eru orðin 25.
Ég hygg að segja megi að Anna
hafi verið gæfumanneskja. Hún átti
barnaláni að fagna. Slíkt er dýrmætt
og ómetanlegt. Hún fékk vissulega
að kenna á andstreymi og mótlæti í
lífinu, en hún bjó yfir þeim sálar-
styrk og innri ró sem öllu býður
birginn og kunni að taka því sem að
höndum bar.
Anna var þrekmanneskja og
dugnaðarforkur. Hún var sérstak-
lega hraust og heilsugóð mestan
hluta ævinnar. Það var fyrst er hún
var komin á efri ár sem þrekið fór að
gefa sig. Síðustu fimm árin dvaldi
hún á Dvalarheimili aldraðra í Borg-
arnesi.
Þeim fækkar óðum sem fæddir eru
um og fyrir síðustu aldamót. Alda-
mótamenn eru þeir oft kallaðir.
Þessi kynslóð lyfti grettistaki og við
hana stöndum við í mikilli þakkar-
skuld.
Með Önnu eigum við á bak að sjá
glæsilegri, dugmikilli aldamótakonu,
sem aldrei mátti vamm sitt vita.
Blessuð sé minning Önnu Sigur-
jónsdóttur.
Ættingjum og vinum sendi ég
samúðarkveðjur.
Þorsteinn Ólafsson.
í dag laugardaginn 3. október er til
moldar borin amma okkar Anna
Sigurjónsdóttir. Amma var nýorðin
87 ára er hún sofnaði svefninum
langa.
Okkur systkinunum langar til að
minnast hennar því hún var okkur
mjög kær og góð amma. Margar
skemmtilegar minningar koma fram
í huga okkar er við lítum til liðinna
ára, þegar við heimsóttum Ömmu á
Borðeyri, þar var oft glatt á hjalla
því hún amma var alltaf í góðu skapi
og mikið að gerast í kringum hana.
Hún var gestrisin mjög og hafði
gaman af að gefa fólki góðgerðir og
stinga mola upp í litla munna. Oft
dvaldi amma hjá okkur í Borgarnesi,
nutum við þá frásagna frá uppvaxtar-
árum hennar í Laxárdal, þar sem
hún ólst upp í stórum frændsyst-
kinahóp.
Til himins upp þig hef, mín sál,
til himins fljúgi lofgjörð þín.
Upp, upp, mitt hjarta, hugur, mál,
með helgum söng, því dagur skín.
Með þessum fátæklegu orðum
viljum við þakka henni fyrir allt sem
hún hefir gert fyrir okkur systkinin.
Blessuð sé minning hennar.
Helga, Björn Bjaki,
Valur og Ingólfur.
Fimmtudaginn 24. september s.l.
lést á sjúkrahúsinu á Akranesi Anna
Sigurjónsdóttir frá Borðeyri.
Anna varfædd 11. sept. árið 1900
að Laxárdal í Bæjarhreppi. Foreldr-
ar hennar voru Sigurjón Guðmunds-
son og kona hans Dagmar Jónsdóttir
er bjuggu þar. Þar óist Anna upp
ásamt systur sinni Guðrúnu sem var
2 árum yngri. Guðrún er látin fyrir
nokkrum árum.
Árið 1921 giftist Anna Ingólfi
Jónssyni frá Valdasteinsstöðum.
Árið eftir fluttust þau að Prestbakka
og voru þar til 1925. Þá fluttu þau á
innsta bæ í sveitinni, Gilhaga. Þar
var tekið til hendinni við búskapinn,
enda stækkaði fjölskyldan. Gilhagi
var afskekkt og aðdrættir erfiðir,
enginn akfær vegur og því varð að
fara á hestum eða fótgangandi. Ekki
fengu þau hjónin lengi að búa
saman, dauðinn gerir ekki alltaf boð
á undan sér. Ingólfur lést 11. júlí
1932.
Þau eignuðust 5 börn, sem eru
Sigríður gift Rögnvaldi Helgasyni
lengi búsett á Borðeyri, nú í Borg-
arnesi, Sigurjón bóndi í Skálholts-
vík, kvæntur Sigfríði Jónsdóttur.
Dagmar, gift Petri Björnssyni, bú-
sett í Reykjavík. Kristjana Halla,
gift Grími Benediktssyni bónda á
Kirkjubóli og Inga gift Þorsteini
Valdimarssyni, búsett í Borgarnesi.
Það var erfitt fyrir ekkju með 5
börn að komast áfram á þessum
árum. Yngsta barnið fæddist um
sama leyti og bóndinn féll frá. Vissu-
lega urðu ýmsir til að hjálpa, en allt
valt á önnu og hún bilaði ekki. Hún
bjó áfram í Gilhaga til 1943 að hún
fluttist að Prestbakka og var þar til
1948. Gilhagi fór í eyði og hefur ekki
byggst síðan.
Árið 1948 fluttist Dagmar dóttir
hennar ásamt manni sínum að
Hrútatungu í Staðarhrepp og hófu
búskap þav á hálfri jörðinni á móti
foreldrum mínum og bjuggu þar til
1951. Anna dvaldi þar langtímum
saman hjá þeim á þessum árum.
Á þessum árum urðu mi'n fyrstu
kynni af þessari góðu konu, en ekki
þau síðustu. Það var ávallt tekið vel
á móti stráksnáðanum þegar hann
var að skjótast yfir í hinn endann á
húsinu.
Haustið 1951 gerðist Anna mat-
ráðskona við heimavistarbarnaskóla
sem settur var á laggirnar á Borð-
eyri. Þarna hófst nýr þáttur í lífi
hennar. Anna var meira en ráðskona
barnanna, hún gekk þeim í móður
stað þann tíma sem börnin dvöldu í
skólanum hverju sinni. Húsmóðirin
í skólanum fylgdist vel með, hefði
einhver meitt sig, eða kom blautur
inn eða leiddist einhverjum, þá var
Anna ávallt tilbúin að aðstoða eða
hugga og telja kjark í viðkomandi ef
þess þurfti með. Vissulega siðaði
hún okkur til þegar þess þurfti með
og ekki vorum við ávallt hlýðin og
stundum gat orðið hávaðasamt, en
ég held að ég geti fullyrt að allir
krakkarnir mátu hana það mikils að
þeim þótti verulega miður ef henni
var gert á móti skapi. Kennarar voru
ekki margir við skólann oftast bara
einn, en ég fullyrði að á milli þeirra
og Önnu var ávallt hið besta
samstarf. Og að þeim ólöstuðum þá
hvíldi hið daglega starf fyrir utan
kennslu ekki síður á henni en kenn-
aranum. Anna hafði herbergi í
skólahúsinu og varð hún að ganga í
gegnum eitt herbergi barnanna til að
komast í sitt. Það gat því verið
ónæðissamt hjá henni ef kyrrð komst
ekki á tilsettum tíma. Það kom því í
hennar hlut að sjá um að gæta okkar
þegar kennarinn yfirgaf húsið á
kvöldin, eða ef hann varð að bregða
sér frá. Matmóðir var hún með
afbrigðum góð og fór vel með.
Þegar ég lít til baka í dag er mér
þakklæti efst í huga fyrir allt það sem
Anna gerði fyrir mig bæði fyrr og
síðar. Og hún var vinur vina sinna.
Það þroskar ungling að kynnast fólki
eins og henni. Anna var sköruleg í
fasi og kvik á fæti og það var tekið
eftir henni hvar sem hún var.
Haustið 1974 var tekið í notkun
nýtt skólahús á Borðeyri og þá hætti
Anna sem ráðskona og um sama
leyti lagðist heimavistin af og dagleg-
ur akstur skólabarna tók við.
Anna dvaldi í nokkur ár á Borð-
eyri en fór síðan í Borgarnes og fékk
þar pláss á Dvalarheimili aldraðra.
Síðustu mánuðina var hún á sjúkra-
húsinu á Akranesi. Ég votta að-
standendum samúð mína, en
minningin um þessa mætu konu lifir
áfram.
Tómas Gunnar Sæmunds-
Hin langa þraut er liðin
Nú loksins hlaustu friðinn
og allt er orðið rótt,
nú sæll er sigur unninn
og sólin björt upp runnin
á bak við dimma dauðans nótt.
(V.Br.)
í dag laugardaginn 3. október
1987 verður lögð til hinstu hvíldar
amma okkar Anna Sigurjónsdóttir
frá Borðeyri.
Amma var fædd f Laxárdal í
Hrútafirði, 11. september 1900, eldri
dóttir hjónanna Dagmar Jónasdóttur
og Sigurjóns Guðmundssonar bónda
þar. Guðrún systir hennar lést fyrir
allmörgum árum.
Amma giftist ung Ingólfi Jónssyni
frá Valdasteinsstöðum. Voru þau
fyrst í húsmennsku á Prestbakka en
fluttust árið 1925 að Gilhaga, innsta
bæ sýslunnar, og hófu búskap þar.
Ingólfur afi lést árið 1932. Með
óbilandi kjarki og dugnaði hélt
amma áfram búskap á þessum af-
dalabæ með stóran barnahóp.
Lengst af naut hún aðstoðar Björns
Þórðarsonar sem var vinnumaður
hjá henni svo og móður sinnar.
Einnig komu börnin fljótt til hjálpar.
Oft var þröngt í búi og vinnudagur-
inn langur á litla heiðarbýlinu.
Amma fluttist að Prestbakka árið
1943 og bjó þar til 1948. Síðar varð
amma ráðskona barnaskólans á
Borðeyri t' fjölda ára með miklum
myndarbrag. Þar vann hún mikið
j starf og segja má að hún hafi verið
börnunum á heimavistinni sem
móðir.
Einnig var hún ráðskona hjá
vegavinnuflokki sýslunnar í allmörg
sumur. Sfðustu æviárin var hún vist-
maður á Dvalarheimili aldraðra í
Borgarnesi nema síðustu mánuði
I þegar heilsu tók að hnigna, þá lá hún
á Fjórðungssjúkrahúsinu Akranesi.
Börn afa og ömmu eru 5, þau eru:
Sigríður Jóna, gift Rögnvaldi
|Helgasyni nú búsett í Borgarnesi,
Sigurjón bóndi í Skálholtsvík,
kvæntur Sigfríði Jónsdóttur,
Dagmar, gift Pétri Björnssyni, búa í
Reykjavík, Kristjana Halla, gift
Grími Benediktssyni.búa á Kirkju-
bóli í Steingrímsfirði og Inga, gift
Þorsteini Valdimarssyni,búa í Borg-
arnesi.
Barnabörnin eru 16 og barna-
barnabörnin 25 svo afkomendahóp-
urinn er stór. Börnin voru ávallt
gleðin hennar ömmu, hvort sem það
voru hennar afkomendur eða börnin
í barnaskólanum.
Öll eigum við barnabörnin ljúfar
minningar um góða ömmu með létta
lund sem alltaf var tilbúin að gera
okkur eitthvað til góða.
Með þessum fáu línum viljum við
kveðja kæra ömmu fullviss þess að
henni hefur vel verið fagnað á næsta
tilverustigi.
Far þú í friði
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V.Br.)
Barnabörn
NOTAR |
ÞÚ
Opnunar-
tilboð 3.
1000 vatta
Panasonic
PANASONIC kynnlr
nýja áhrifamikla
ryksugu í baráttunni
við rykið.
1000 vött.
Tvískiptur veltihaus.
Hólf fyrir fylgihluti
í ryksugunni.
Inndraganleg snúra.
Stiglaus styrkstillir.
Rykmælir fyrir poka.
Og umfram allt
hljóðlát, nett og
meðfæranleg.
jhtm
TILBOÐSVERÐ
AÐEIIMS KR. 6.980.
JAPISS
BRAUTARHOLT 2 - KRINGLAN - SÍMI 27133