Tíminn - 03.10.1987, Page 20
20 Tíminn
Laugardagur 3. október 1987
Keflvíkingar - Reyknesingar
Hádegisverðarfundur verður með þingmönnum Framsóknarflokksins
í Fteykjaneskjördæmi í Glóðinni laugardaginn 3. okt. kl. 12.00.
Hádegisverður kr. 600.-
Framsóknarfólk fjölmennið.
Framsóknarfélögin í Keflavík
Selfoss
-félagsvist
Framsóknarfélag Selfoss stendur fyrir þriggja
* m kvölda spilakeppni þann 5. - 12. - 19. október kl.
20.30 öll kvöldin, aö Eyrarvegi 15. Góö verðlaun.
Guðni Ágústsson flytur ávarp þann 5. október. Allir
velkomnir.
Reykjaneskjördæmi
Kjördæmissamband framsóknarmanna Reykjanesi boða til for-
mannafundar laugardaginn 3. okt. nk. kl. 13.30. í Félagsheimili
Framsóknarfélaganna, Austurgötu 26, Keflavík.
Stjórnin
Selfoss
Félagsfundur verður haldinn þann 6. október kl. 20.30 að Eyrarvegi
15.
Dagskrá bæjarmálin.Grétar Jónsson flytur framsögu.
Framsóknarfélag Selfoss.
Suðurland
Skrifstofa Kjördæmissambands Framsóknarfélaganna á Suðurlandi,
Eyrarvegi 15, Selfossi, er opin alla þriðjudaga og fimmtudaga frá kl.
13-17 sími 2547.
Heimasími starfsmanns er 6388.
Framsóknarmenn eru hvattir til að líta inn eða hafa samband.
Framsóknarfólk Austurlandi athugið
28.kjördæmisþing framsóknarmanna á Austurlandi, sem vera átti á
Hótel Höfn, Hornafirði dagana 9. og 10. október nk. verður frestað til
30. og 31. október nk. og hefst kl. 20.00. Nánari upplýsingar í síma
97-11584.
KSFA
Framsóknarfólk Suðurlandi
28. Kjördæmisþing Framsóknarfélaganna á Suðurlandi verður haldið
helgina 7.-8. nóv. n.k. á Kirkjubæjarklaustri og hefst kl. 14
laugardag.
Nánar auglýst síðar.
KSFS
Viðtalstími
borgarfulltrúa
Sigrún Magnúsdóttir er með viðtalstíma á þriðju-
dögum kl. 16.00-18.00.
Viðtalstímarnir eru á skrifstofu Framsóknarflokks-
ins að Nóatúni 21, síminn er 24480.
Landssamband
framsóknarkvenna
auglýsir viðtalstíma
Valgerður Sverrisdóttir, alþingismaður verður til viðtals og svarar í
síma að Nóatúni 21, sími 91-24480, fimmtudaginn 8. okt. nk. kl.
10.00-12.00
Framkvæmdastjórn LFK
Pelsjakki til sölu
Til sölu ónotaður pelsjakki nr. 38.
Upplýsingar í síma 91-43259
DAGBÓK
Vetrarstarf Laugarneskirkju
að hefjast
Messað verður í Laugarneskirkju á
hverjum sunnudegi í vetur, en sunnudags-
guðsþjónustan verður kl. 11:00 og verður
eina guðsþjónusta dagsins. „Sannkölluð
fjölskylduguðsþjónusta, því hún er ætluð
öllum aldurshópum", segir í fréttabréfi
frá sóknarprestinum.
Sá háttur verður hafður á, að við upphaf
guðsþjónustunnar verða allir viðstaddir,
en þegar kemur að predikun fara börnin
í safnaðarheimilið með leiðbeinendum
og fá fræðslu við sitt hæfi.
Eftir guðsþjónustur verður heitt á
könnunni, eða stundum heit súpa og
brauð, svo fólk getur sest niður og
spjallað saman áður en heim er haldið.
Safnaðarstarfið að öðru leyti verður
með svipuðu sniði og fyrr: Æskulýðsstarf-
ið verður á mánudögum kl. 18:00. Kven-
félag kirkjunnar hefur fundi fyrsta mánu-
dag hvers mánaðar. Kirkjukórinn hóf
vetrarstarf sitt í september, en 25. okt. kl.
17:00 verða tónleikar í Laugarneskirkju
þar sem kórinn flytur Gloriu eftir A
Vivaldi og Kóralkantötu eftir Buxtehude:
Jesús heill míns hjarta.
Þá er ákveðið að bjóða upp á helgi-
stundir kl. 17:00 á sunnudögum, að
jafnaði einu sinni í mánuði, með vandaðri
tónlist, ritningarlestri og bænagjörð.
Einnig verða fræðslukvöld, hjónanám-
skeið og samkomur sem auglýstar verða
hverju sinni.
Jón Dalbú Hróbjartsson
sóknarprestur
Vetrarstarfið í Bústaðakirkju
Með októbermánuði hefst vetrarstarfið
í Bústaðakirkju. Barnasamkomur eru
klukkan ellefu eins og í fyrra. Sömu
umsjónarmenn sjá um þær. Börnin fá
ýmis gögn sem nýtt verða í vetur við
barnaguðsþjónustur. Einnig eru afmælis-
gjafir veittar og öðru hverju sýndar
myndir. Auk þess sjá börnin að hluta til
um helgihaldið.
Guðsþjónustur verða kl. 14:00, sú
fyrsta nú á sunnudag. Boðið verður upp
á kaffi og meðlæti eftir messu. Þá mun
Kvenfélagið einnig bjóða kökur og muni
til sölu á haustbasar sínum. Einnig verður
flutt tónlist.
Æskulýðsfélagið starfar nú í tveim
deildum: yngri deild hefur fund hvert
þriðjudagskvöld, en eldri deildin annan
hvern miðvikudag.
Á hverjum miðvikudegi kemur gamla
fólkið saman upp úr hádeginu og unir við
föndur, lestur eða spil fram undir klukkan
fimm. Einnig eru flutt erindi og mikið er
um söng, auk þess sem ævinlega er
helgistund. Þá kemur einnig leikfimi-
kennari í heimsókn. Allt er unnið í
sjálfboðaliðsvinnu. Þá er einnig fótsnyrt-
¥ÉP\1R&
mayemHF
Járnhálsi 2 Sími 83266 110 Rvk.
Pósthólf 10180
BILALEIGA
Útibú í kringum landið
REYKJAVIK:.. 91-31815/686915
AKUREYRI:.... 96-21715/23515
BORGARNES: ......... 93-7618
BLÖNDUÓS:...... 95-4350/4568
SAUÐÁRKRÓKUR: . 95-5913/5969
SIGLUFJÖRÐUR:...... 96-71489
HUSAVÍK: .... 96-41940/41594
EGILSSTAÐIR: .......-97-1550
VOPNAFJÖRÐUR: . 97-3145/3121
FASKRÚÐSFJÖRÐUR: .97-5366/5166
HÖFN HORNAFIRÐI: ... 97-8303
interRerrt
ing á fimmtudagsmorgnum og hárgreiðsla
á föstudögum fyrir eldra fólk í sókninni.
Kirkjukórinn er að hefja vetrarstarfið,
og gæti þegið fleiri raddir í kórinn. Nánari
upplýsingar gefur organistinn og söng-
stjórinn, Jónas Þórir, eftir messuna á
sunnudaginn eða endranær.
Kvenfélagið starfar sem áður. Fundir
eru annan mánudag hvers mánaðar, og
þá hefur Bræðrafélagið einnig sína fundi.
Nýir félagar eru boðnir velkomnir í bæði
félögin.
Frekari upplýsingar eru veittar á skrif-
stofu kirkjunnar í síma 37801 eða hjá
sóknarprestinum. Ólafur Skúlason
Keflavíkurkirkja
Sunnudagaskóli kl. 11:00. Munið
skólabílinn og verið með frá byrjun.
Fjölskylduguðsþjónusta kl. 14:00. Vænst
er þátttöku fermingarbarna og foreldra
Þeirra- Sóknarprestur
Leikhúsið í kirkjunni
Arnar Jónsson leikur Kaj Munk
Mánudaginn 5. október hefjast að nýju
sýningar á leikritinu Kaj Munk í Hall-
grímskirkju kl. 20:30 með Arnari Jóns-
syni í titilhlutverkinu.
Sýningar verða næstu vikur á sunnu-
dögum kl. 16:00 og mánudögum kl. 20:30.
Hallgrímskirkja-starf aldraðra
Næstkomandi þriðjudag, 6. okt., hefst
að nýju leikfimi við hæfi eldra fólks.
Leiðbcinandi verður sem fyrr Hulda
Ólafsdóttir sjúkraþjálfari.
Nánari upplýsingar gefur Dómhildur
Jónsdóttir f síma 39965.
Kökubasar
í Bústaðasókn
Kvenfélag Bústaðasóknar heldur köku-
basar í safnaðarheimili Bústaðakirkju
sunnud. 4. okt. kl. 15:00. Tekið verður á
móti kökum og öðrum basarmunum í
dag, laugardag, kl. 13:00 - 15:00 og á
morgun, sunnudag, eftir kl. 10:00 í safn-
aðarheimilinu.
Kaffidagur
Bolvíkingafélagsins
Bolvíkingafélagiö heldur hinn árlega
kaffidag í Domus Medica viö Egilsgötu
sunnudaginn 4. október kl. 15:00-18:00.
Bo Carpelan í
Norræna húsinu
1 dag, laugard. 3. október kl. 16:00
efnir Norræna húsið til bókmenntakynn-
ingar, sem helguð er finnlandssænska
Ijóðskáldinu Bo Carpelan. Hann er nú
staddur hér á landi í tilefni af því að
Bókaútgáfan Urta hefur sent frá sér úrval
ljóða hans í íslenskri þýðingu Njarðar P.
Njarðvík, alls 52 ljóð undir heitinu Ferð
yfir þögul vötn.
Hjörtur Pálsson rithöfundur flytur er-
indi um Bo Carpelan og skáldskap hans.
Þá spjallar skáldið sjálft á persónulegan
hátt um Ijóðagerð sína og loks lesa þeir
Bo Carpelan og Njörður P. Njarðvík úr
ljóðabókinni, fyrst Carpelan á sænsku og
Njörður stðan sömu ljóð í íslenskri þýð-
ingu.
Bo Carpelan hlaut Bókmenntaverðla-
un Norðurlandaráðs fyrir ljóð sín árið
1977.
Auk Norræna hússins standa að bók-
menntakynningunni Bókaútgáfan Urta
og Finnlandsvinafélagið Suomi.
Knut Hamsun-dagskrá
í Norræna húsinu
Á morgun, sunnudaginn 4. október kl.
16:00 talar norski málarinn Tore Hamsun
um Knut Hamsun í Norræna húsinu.
Tore Hamsun (f. 1912) er sonur rit-
höfundarins fræga, Knut Hamsun. Hann
er þekktur málari og teiknari, sem hefur
haldið fjölda sýninga í Noregi, en hefur
auk þess sent frá sér nokkrar bækur, sem
fjalla að mestu leyti um föður hans. S.l.
vor var húsfyllir á Hamsun-dagskrá Norr-
æna hússins og er ekki að efa, að fengur
er að því að heyra son hans spjalla um
hann.
Dagskráin hefst kl. 16:00 á laugard. og
eru allir velkomnir.
Félag harmonikuunnenda
Félag harmonikuunnenda verður með
sinn mánaðarlega skemmtifund í
Templarahöllinni við Skólavörðuholt
sunnudaginn 4. október. Boðið verður
upp á veitingar sem konur félagsmanna
sjá um. Harmonikuleikur og F.I. Allir
eru velkomnir. Skemmtinefnd F.H.U.
Gunnar Hjaltason
sýnir í Listakrubbu
1 Listakrubbu Bókasafns Kópavogs
stcndur yfir sýning Gunnars Hjaltasonar,
en henni lýkur 30. október.
Gunnar Ásgeir Hjaltason er fæddur að
Ytri-Bakka við Eyjafjörð 1920. Hann
nam teikningu, módelteikningu og.
olíumálun hjá Birni Björnssyni og
Marteini Guðmundssyni og sótti ýmis
námskeið í Handíðaskólanum. Gullsmíði
nam hann hjá Guðmundi Guðnasyni og
Leifi Kaldal 1943-47.
Gunnar hefur sýnt oft og víða, en fyrst
í Hafnarfirði 1964, m.a. í Norræna húsinu
og Bogasal. Einnig í Vestmannaeyjum,
Kópavogi Hveragerði. Borgarnesi,
Hvammstanga og víðar. Hann hefur líka
tekið þátt í samsýningum, m.a. sýningu
hafnfirskra málara í Uppsölum í Svíþjóð
og á íslandssýningu í Vínarborg 1984. Þá
hefur Gunnar myndskreytt bækur og
tímarit, m.a. Árbók Ferðafélagsins frá
1975.
Sýningin er opin á sama tíma og
Bókasafn Kópavogs, þ.e. rnánud. til
föstud. kl. 09:00-21:00 og laugardaga kl.
11:00-14:00. Hún er öllum opin gjaldfrítt
og allar myndirnar eru til sölu.
Ragnar Kjartansson myndhöggvari
Sýning Ragnars Kjartanssonar
í Hveragerði
Nú stendur yfir sýning Ragnars Kjart-
anssonar myndhöggvara á keramik- mál-
verkum og höggmyndum í Heilsuhælinu
í Hveragerði. Sýningin ersett upp í tilefni
af 50 ára afmæli Náttúrulækningafélags
íslands og gaf listamaðurinn félaginu
verk eftir sig, keramikmálverkið „Parið“.
Sýningin hófst sunnudaginn 20. septemb-
er og stendur til 31. október.
Kvikmyndasýning MÍR
Á morgun, sunnud. 4. október kl.
16:00 verða sýndar tvær stuttar kvik-
myndir í bíósal MÍR, Vatnsstíg 10. Önnur
myndin nefnist “Byltingaretýða", en hin
fjallar um vísindi í Sovétríkjunum.
Skýringar með báðum myndum eru á
íslensku. Aðgangur öllum heimill.
Gallerí Borg
í Austurstræti:
- -Hitt og þetta
í Gallerí Borg í Austurstræti hafa nú
verið hengd upp allmörg olíumálverk.
Flestar eru myndirnar af minni gerðinni
og hanga þar undir samhcitinu Hitt og
þetta.
Þarna er um að ræða verk eftir Hring
Jóhannesson, Tryggva Ólafsson, Baltaz-
ar, Ágúst Petersen, Elías B. Halldórsson,
Kjartan Guðjónsson, Daða Guðbjarts-
son, Jón Þór Gíslason. Temmu Bell og
Karólínu Lárusdóttur. Einnig nokkrir
skúlptúrar eftir Þórdísi Á. Sigurðardótt-
ur.
Verkin munu hana uppi fram í næstu
viku og eru öll tíl sölu.
Opið er frá kl. 10:00 og síðan á
opnunartíma verslana til kvölds.